Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI I i I ✓_ SIF kaupir franskt sjávarafurðafyrirtæki Verða stærstir í sölu kældra sjávarafurða Umsvif SÖLUSAMBANDS ISLENSKRA FISKFRAMLEIÐENDA hf. T3 c -2 £ Saltkaup hf. Saltskip hi. 100% 100% O l+l C ‘ca II cn Sans Souci Seafoods ud. 100% Mar-Nora.s. 100% Union Islandisa.s. 100% Söluskrifstofa i Ítalíu 100% Union-SIF Hellas a.s. 67% lcebrit Ltd. 40% Nord Morue s.a. J.B. 100% Delpierre s.a. !, , 100% / Brasilíu SIFTORa.s. 50% Söluskrifstofa í Madríd 50% SÍF hf. hefur fest kaup á franska fyrirtækinu J.B. Delpierre s.a. Með kaupunum og samrekstri með Nord Morue, dótturfélagi SÍF, verður SÍF stærsta fyrirtækið í framleiðslu og sölu kældra sjávarafurða á Frakk- landsmarkaði, að sögn forsvars- manna fyrirtækisins. Með kaupunum eykst velta samstæðu SIF úr tæpum 12 milljörðum í 17 milljarða kr. Franska fyrirtækið var keypt af Nord-Est s.a. sem átt hefur J.B. Delpierre í sex ár. Fram kom hjá forsvarsmönnum SIF hf. á blaða- mannafundi í gær að viðræður um kaupin hafa staðið yfír í tæpt ár. SÍF hf. tekur við rekstrinum 1. apríl. SÍF greiðir 60 milljónir kr. fyrir öll hlutabréf í fyrirtækinu. SIF mun jafnframt leggja fyrirtækinu til um 240 milljónir kr. í nýju hlutafé til að byggja upp eiginfjárstöðu þess sem nú er neikvæð. Franska fyrirtækið hefur verið rekið með tapi en vegna breytinga sem gerðar voru á síðasta ári stefndi í að reksturinn yrði í jafn- vægi á þessu ári, áður en hagræðið af samrekstri með Nord Morue kom til. „Við tökum við hreinu borði, það var meginkrafa okkur í samningun- um. Seljandinn leggur fram trygg- ingu fyrir því,“ segir Gunnar Orn Kristjánsson, framkvæmdastjóri SÍF. Nord Mar Distribuidora de Alimentos Ltd. 70% Hovden Nykvág Loppa Fiskeindustri a.s. Fisk a.s. Fisk a.s. 100% 100% 100% as Alfa Seafood 51% Fellur vel saman J.B. Delpierre s.a. er rótgróið fyr- irtæki í framleiðslu kældra sjávaraf- urða, sölu þeirra og dreifíngu. Það var stofnað 1912 og rekið af Delpi- erre-fjölskyldunni þar ti) Nord-Est samsteypan keypti 67% hlutabréfa þess á árinu 1992. Velta fyrirtækis- ins á síðasta ári var um það bil 5 milljarðar króna og heildarfram- leiðslumagn um 7 þúsund tonn. I fyr- irtækinu starfa um 330 fastráðnir starfsmenn auk 62 lausráðinna. Fyrirtækið framleiðir 2.500 tonn af reyktum laxi, jafn mikið af reykt- um síldarafurðum og alls um 2.000 tonn af öðrum unnum og kældum sjávarafurðum, saltaðar, reyktar, marineraðar, soðnar og þurrkaðar. Fyrirtækið rekur þrjár verksmiðjur, tvær í Boulogne og eina í Wisches í nágrenni Strassborgar, og er saman- lögð stærð þeirra um 23 þúsund fer- metrar. Birgir Sævar Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Nord Morue, segir að rekstur fyrirtækjanna falli vel sam- an. Þótt bæði stundi viðskipti með kældar sjávarafurðh- skarist starf- semin lítið, aðeins í reyktri síld. Hins vegar aukist mjög fjölbreytni í vöru- framboði SÍF og sölukerfið styi-kist. Sighvatur Bjarnason, stjórnarfor- maður SÍF, segir að með kaupum á þessum stærsta keppinauti sínum á Frakklandsmarkaði telji fyrirtækið sig geta aukið framlegð sína. Birgir Sævar segir að fyrirtæki SIF verði leiðandi á markaðnum fyrir kældar sjávarafurðir í Frakklandi, með 60- 70% markaðarins fyrir síld og 20% í laxi. Fyrirtækið verði fjórum sinnum stærra en næststærsta fyrirtækið á þessum markaði í heild en þess ber að geta að saltfískur er flokkaður undir kældar afurðir í þessu sam- bandi. Forsvarsmenn SIF segja að Delpierre hafí mjög góða ímynd á tslenskur markaður hf Hlutafjársala co qa rr'i ZD fU^ FIÁRVANGUR lOítm ymntuuiiiimm Óskað er eftir tilboðum í 54,617% hlut Framkvæmdasjóðs íslands. Söluupphæð: Krónur 7.547.105,- að nafnvirði eða 54,617% af heildarhlutafé íslensks Markaðar hf. Sölutilhögun: Hlutur Framkvæmdasjóðs fslands verður seldur í einu lagi. Tilboðum skal skila til Fjárvangs hf. í lokuðu umslagi fyrir kl. 15;00, miðvikudaginn 25. mars 1998. Á sama tíma verða tilboð opnuð að viðstöddum þeim tilboðsgjöfum sem þess óska. Tilboð eru bindandi og skulu hljóða upp á krónutölu þá sem viðkomandi er tilbúinn að greiða fyrir 54,617% hluta útistandandi hlutafjár í íslenskum Markaði, samanber lýsingu á sölu- upphæð hér að ofan. Tilboðsgjöfum verður tilkynnt skriflega um niðurstöðu útboðsins í síðasta lagi miðvikudaginn 1. apríl 1998. Hlutabréfin verða seld gegn staðgreiðslu og skal greiðsla kaupanda hafa farið frarn í síðasta lagi 15. apríl 1998, samhliða undirskrift kaupsamnings. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum. Lágmarks söluverð: Seljandi hefur ákveðið að lágmarks söluverð á hlut Framkvæmdasjóðs íslands í íslenskum Markaði hf. skuli vera 90 milljónir króna. Hömlur á viðskiptum: Félagið hefur kauprétt á 10% af hlutabréfum í félaginu og hafa hluthafar forkaupsrétt. Sjá nánar (sölulýsingu. Sölulýsingu má nálgast hjá Fjárvangi. FJÁRVANGUR, Laugavegi 170, 105 Reykjavfk, sfmi 540 5060, fax 540 5061, www.fjarvangur.is markaðnum og vörumerki þess vel þekkt meðal neytenda. Um 85% af seldum afurðum fai-a í nútímadreif- ingu á Frakklandsmarkaði, það er að segja til stór- og risamarkaða. Fleiri tækifæri Kaupin á franska fyrirtækinu eru liður í þeim breytingum sem gerðar hafa verið á starfsemi SÍF frá því fé- laginu var breytt úr sameignai’félagi framleiðenda í hlutafélag á verðbréfa- markaði. Félagið hefur keypt fyrir- tæki og hlut í fyrirtækjum í mörgum Evrópulöndum, Kanada og Brasilíu, eins og sést á meðfylgjandi korti. Með kaupunum eykst velta sam- stæðu SIF úr tæpum 12 milljörðum kr. í 17 milljarða tæpa, að sögn Gunnars Arnar. Hjá SIF og dóttur- félögum þess munu vinna um 850 manns. Forsvarsmenn félagsins telja að þessi þróun muni halda áfram. Gunnar Öm segir að miklar breyt- ingar eigi sér nú stað í Evrópu, félög séu að sameinast vegna krafna um hagræðingu. Telur hann að enn séu tækifæri til fjárfestinga í ýmsum fyr- irtækjum. SÖLUSAMBAND ISLENSKRA FISKFRAMLEIÐENDA HF. Úr samstæðureikningum 1997 Rekstrarreikningur Miiijónir kmna 1997 1996 Breyting Rekstrartekjur 11.676 10.304 +13% Rekstrargjöld 11.389 10.018 +14% Afskriftir 123 108 +14% Fjármaqnsliðir nettó -6 -44 +86% Hagnaður af regluiegri starfsemi 157 135 +17% Tekju- og eignarskattar -29 -31 -35% Hagnaður ársins 156 117 34% Sjóðstreymi MHIjónir króna 1996 1995 Bæyting Veltufé frá rekstri 272,0 263 +3,4% Efnahagsreikningur 31. des.: 1997 1996 Breyting Eignir: Fastafjármunir Milljónirkr. 1.600 4.333 1.027 4.000 +56% +8% Veltuf jármunir Elgnir samtals 5.933 5.027 +18% Skuldir Eigið fé 1.423 1.294 +10% °SA eigið fé: Langtímaskuldír 918 378 +143% Skammtímaskuldir 3.591 3.355 +7% Skuldir og eigið fé samtals 5.933 5.027 +18% Kennitölur 1997 1996 Eiginfjárhlutfall 24% 26% Veltufjárhlutfall 1,21 1,19 +1,7% Arðsemi eigin fjár 11% 9% SIFmeð 156 m.kr. hagnað UM 156 milljóna króna hagnaður varð af rekstri SIF hf. á síðasta ári, samanborið við 117 milljónir kr. árið áður. Rekstraráætlun fyrir yfír- standandi ár gerir ráð fyrir 185 milljóna króna hagnaði. Á aðalfundi SÍF mun stjórnin óska eftir heimild til að selja aukið hlutafé, um 200 milljónir kr. að nafnverði, í þeim til- gangi að fjármagna fjárfestingar. Heildarvelta samstæðu SIF hf. var 11.676 milljónir kr. á síðasta ári, sem er 13% aukning frá árinu áður. Eigið fé félagsins hækkaði úr 1.294 milljónum í 1.423 milljónir eða um 10%. Á árinu fjárfesti SÍF fyrir um 833 milljónir kr. Skipið ms. Hvítanes var keypt fyrir 142 milljónir, kanadíska fyrirtækið Sans Souci Seafoods Ltd. var keypt fyrir 334 milljónir. Lagt var í kostnað við byggingu kæli- geymslu í Hafnarfirði fyrir 231 millj- ón en henni var ekki lokið við ára- mót. Þá var aukið hlutafé í dótturfé- lögum og stofnuð ný og til þess varið 126 milljónum kr. Þar af vegur mest 185 miiyóna kr. hagnaður 1998 I I [ I c I I I hlutafjáraukning í Nord Morue s.a. í Frakklandi, 114 milljónir. Hagnaður varð af rekstri dóttur- fyrirtækja á síðasta ári, 13 milljónir kr., á móti tapi upp á 8 milljónir árið 1996. Tekið er fram í frétt frá SÍF að Nord Morue hafi greitt SÍF þjón- ustugjöld að fjárhæð 68 milljónir kr., 14 milljónum meira en árið áður. Sans Souci Seafood skilaði 10 millj- óna króna hagnaði eftir að SÍF eign- aðist það 1. október. Heildarvelta þess fyrirtækis er 1.600 milljónir kr. Rekstraráætlanir SÍF fyrir árið 1998 gera ráð fyrir 185 milljóna króna hagnaði. Líkur eru taldar á að afkoma móðurfélagsins verði svipuð og á síðasta ári en að dótturfélög skili betri rekstrarárangri. Nýju dótturfyrirtækin í Kanada og Frakk- landi verða komin að fullu inn í sam- stæðureikning 1998. Aðalfundur SÍF verður haldinn 24. apríl. Þar verður lagt til að greiddur verði 7% arður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.