Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 55,
k
|
I
I
I
I
I
í
I
1
<
I
i
<
Danskeppni
á Broadway
Á BRODWAY, Hótel íslandi,
sunnudaginn 15. mars verður
haldin Innanskólakeppni Dans-
smiðju Hermanns Ragnars og
Dansskóla Auðar Haralds í sam-
kvæmisdönsum, keppni í kántrí
línudönsum og Opna Séð og Heyrt
mótið í suður-amerískum dönsum.
í fréttatilkynningu segir að Inn-
anskólakeppnin sé árlegur við-
burður þar sem ungum og öldnum
nemendum skólanna gefíst tæki-
færi til að spreyta sig á dansgólf-
inu. Búist sé við harðri keppni í
Opna Séð og Heyrt mótinu en þar
muni í fyrsta sinn á íslandi dansað
undir lifandi tónlist þar sem hin
nýja sveit Svartur ís leikur. Einnig
segir að keppni í línudansi sé nú
haldin í annað sinn samhliða Inn-
anskólakeppninni.
Keppni hefjast kl. 14 og húsið
verður opnað kl. 13. Miðaverð er
500 kr. en frítt er fyrir 4 ára og
yngri.
Kvikmyndasýn-
ing til styrktar
vímuvörnum
SÉRSTÖK forsýning verður á
myndinni „The Boxer“ sem er
leikstýrt af Jim Sheridan, hann
leikstýrði myndunun I nafni föður-
ins og „My left foot“ sem unnið
hafa til fjölda verðlauna.
Lionsklúbburinn Eir stendur
fyrir sýningunni og rennur allur
ágóði vegna hennar til vímuvarna.
Þetta er í 13. skipti sem Lions-
klúbburinn aflar fjár með þessum
hætti og hefur ágóðinn runnið til
vímuvarna. Má þar nefna tækja-
kaup fyrir fíkniefnadeild lögreglu,
útgáfustarf og fleira.
Sýningin verður í Háskólabíói
kl. 20 á þriðjudagskvöld, 17. mars.
Kvikmyndin „The Boxer“ er
með leikurunum Daniel Day Lew-
is og Emily Watson. Myndin fjall-
ar um boxara og örlagaríka ástar-
sögu sem gerist í miðri hringiðu
friðarferilsins á Norður-írlandi.
Formaður Lionsklúbbsins Eir,
Camilla Hallgrímsson, setur sýn-
inguna og mun Bubbi Morthens
leggja málefninu lið með því að
leika á undan sýningu.
Neistinn hvet-
ur til blóðgjafa
í DAG, laugardaginn 14. mars, er
ár liðið frá landssöfnun Neistans,
styrktarfélags hjartveikra barna
og Stöðvar 2, en þá leitaði Neist-
inn til þjóðarinnar og óskaði eftir
fjárframlögum til eflingar Styrkt-
arsjóðs hjartveikra barna. Þá
söfnuðust 25,4 milljónir króna. í
tilefni dagsins nú ári síðar hefur
Neistinn ákveðið að gefa blóð og
styrkja þar með starfsemi Blóð-
bankans.
Blóðbankinn verður af þessu til-
efni opinn laugardaginn 14. mars
frá kl. 11 -16. Vonast forystumenn
félagsins til að félagsmenn Neist-
ans og velunnarar mæti og gefi
blóð sem síðan á eftir að nýtast í
þágu sjúkra barna og fullorðinna á
Islandi, segir í fréttatilkynningu
frá Neistanum.
Skrifstofa Neistans að Suður-
götu 10, Reykjavík verður einnig
opin frá kl. 14 - 17. Barnapössun
verður á skrifstofunni fyrir þá sem
uppteknir verða í „bankaviðskipt-
um“.
Síðustu
sýningar
Revían í den
Kaffileikhúsið
Síðasta sýning á skemmtidag-
skránni Revíunni í den, sem sýnd
hefur verið frá því í október, verð-
ur laugardaginn 14. mars og hefst
kl. 23.30.
Þing’ um
norræna
miðalda-
menningu
ÞING um norræna miðaldamenn-
ingu og miðlun hennar verður
haldið í Kaupmannahafnarháskóla
dagana 17.-19. apn'l nk. Að þinginu
standa Stofnun Sigurðar Nordals
og nokkrir starfsmenn Stofnunar
Áma Magnússonar í Kaupmanna-
höfn og sænsku deildarinnar við
Gautaborgarháskóla.
Á þinginu koma saman norrænir
listamenn, þýðendur, útgefendur
og fræðimenn til að lýsa reynslu
sinni af því, að koma norrænum
menningararfi á framfæri í samtíð-
inni og ræða hvaða möguleikar eru
á því að gera menningararfinn að
lifandi hluta í menningu okkar
daga.
Meðal þeirra sem flytja erindi á
ráðstefnunni eru rithöfundarnir
Andri Snær Magnason, Ib Michael,
Poul Vad, Svava Jakobsdóttir og
Tor Áge Bringsværd og fræði-
mennirnir Erik Skyum-Nielsen,
Jan Ragnar Hagland, Preben Meu-
lengracht Sorensen og Thomas
Bredsdorff. Þá verður leikritið
Ormstunga flutt á þinginu og
Benedikt Erlingsson leikari fjallar
um sviðssetningu á Gunnlaugs
sögu ormstungu.
Ráðstefnan er öllum opin.
Skráning þátttakenda er til 20
mars. Nánari upplýsingar fást á
Stofnun Sigurðar Nordals.
-------------
Opið hús
í Borgar-
holtsskóla
OPIÐ hús verður sunnudaginn 15.
mars í Borgarholtsskóla í Grafar-
vogi kl. 14-17.
Deildir skólans munu þá kynna
starfsemi sína, kennarar og nem-
endur bjóða gestum í kennslu-
stundir og kynningar verða haldn-
ar. Nemendur hella upp á kaffi og
baka vöfflur. í fréttatilkynningu
segir að starfsfólk vonist til að sem
flestir sjái sér fært að koma og
skoða skólann og kynna sér starf-
semi hans.
------♦-♦-♦----
Marsvaka
KFUM o g
KFUK
KFUM og KFUK halda marsvöku í
húsi félaganna við Holtaveg (gegnt
Langholtsskóla) sunnudagskvöldið
15. mars kl. 20.
Þar mun Þorvaldur Halldórsson
leiða söng og lofgjörð en Þórdís
Klara Ágústsdóttir mun flytja hug-
leiðingu. Auk þess verður boðið upp
á fýrirbæn.
ORÐSENDING
TIL SÖLUAÐILA
VIDSKIPTASKILMÁLAR
CAGNVART KORTHÖFUM VISA.
Gildistöku ákvörðunar Samkeppnisráðs frestað
til 1. október nk.
Áfrýjunarnefnd Samkeppnismála hefur birt úrskurð sinn í máli VISA ÍSLANDS gegn Samkeppnisráði
vegna banns þess á „jafnræðisreglunni" svonefndu í kortaviðskiptum.
Hér er um að ræða 2. gr. samstarfssamnings VISA og söluaðila, sem kveður m.a. á um:
„Að söluaðila sé skylt að veita korthöfum sömu viðskiptakjör, verð og þjónustu og þeim sem
greiða með reiðufé. Óheimilt er að hækka verð á vöru eða þjónustu þegar kaupandi framvísar
greiðslukorti við kaup. Söluaðila ber, þegar verð er auglýst eða sett fram á sölustað, jafnan að
gæta þess að fram komi það almenna verð sem öllum viðskiptavinum stendur til boða. Söluaðila
er í sjálfsvald sett hvort hann auglýsir samhliða staðgreiðsluafslátt eða staðgreiðsluverð."
Úrskurður meirihluta áfrýjunarnefndar eða tveggja nefndarmanna af þremur hljóðaði svo:
„Ákvörðun samkeppnisráðs nr. 1/1998, er staðfest með þeirri breytingu að hún komi ekki til
framkvæmda fyrr en 1. október 1998."
Minnihluti áfrýjunarnefndar skilaði séráliti um málið og tekur undir það sjónarmið VISA að sjálfsagt
sé að fresta ákvörðuninni meðan að beðið sé fjölþjóðlegrar niðurstöðu frá Evrópu-sambandinu
í Brussel, sem er að vænta síðar á árinu. Einnig er talið að hagsmunir neytenda hafi ekki verið
hafðir nægilega að leiðarljósi og „því beri að fella niðurstöðu samkeppnisráðs úr gildi".
Eins og ofanritað ber með sér eru því allar breytingar á framsetningu verðs til korthafa VISA
óheimilar fyrr en nýjar reglur hafa tekið gildi, sem samkvæmt úrskurði þessum verður í fyrsta lagi
hinn 1. Október nk. Til greina kemur af VISA ÍSLANDS hálfu að skjóta málinu til dómstóla,
enda kveður 35. gr. samkeppnislaga skýrt á um „Að þess skuli gætt að viðskiptahættir í
greiðslukortastarfsemi séu sambærilegir hér við það sem almennt gerist í helstu
viðskiptaríkjum íslendinga. “
Öllum söluaðilum ber því að virða samstarfssamning sinn við VISA ÍSLAND í samræmi við ofangreindan
úrskurð Áfrýjunarnefndar samkeppnismála eða þar til annað verður ákveðið af yfirvöldum.
V/SA
Greiðslumiðlun hf.
ÁLFABAKKA 16, 109 REYKJAVÍK sími 525 2000 - fax 525 2020