Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR14. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bæjarstjorinn í Garðabæ um ógildingu dómstóla á eignarnámi Ekkert liggur fyrir um við- ræður að nýju INGIMUNDUR Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garðabæ, segir að ekkert liggi fyrir um að hafnar verði á ný viðræður við eigendur 34 hektara landspildu á Amameshálsi í kjölfar þess að Hæstiréttur hefur dæmt ákvörðun bæjarstjómar um eignarnám á landinu ógilda. Hann segir að Garðabær hefði unnið að málinu á þann hátt sem tahnn hafi verið réttastur og viðurkenndur hefur verið til þessa. „Dómur Hæstaréttar byggir fyrst og fremst á huglægu mati sem greinilega er annað en mat bæjarstjórnar. Ég get ekki skilið dóminn öðruvísi en svo að hann hafi talið að nægur tími hafi verið til frekari viðræðna. Það er út af fyrir sig sjónarmið, en við mátum það með öðrum hætti og töldum að það væri fullreynt á þeim tíma- punkti sem ákvörðunin um eignar- námið var tekin. Þá var ekki meiri tími til viðræðna því það stóð til að úthluta þessu svæði. Það er hins vegar athyglisvert að dómurinn fellst á það sjónar- mið Garðabæjar að formlegar við- ræður hafi fljótlega leitt í Ijós að það bæri svo mikið í milli í sam- bandi við kaupverð á landinu að það væri ólíklegt að það leiddi til sameiginlegrar niðurstöðu. Þrátt fyrir að dómurinn fallist á þetta sjónarmið telur hann að nægur tími hafi ekki verið settur í við- ræðurnar. Þetta virkar óneitan- lega nokkuð þversagnakennt," sagði Ingimundur í samtali við Morgunblaðið. Breyttar forsendur Hann sagði að samkvæmt aðal- skipulagi yrði umrædd landspilda byggingarland í framtíðinni. A þeim tíma sem ákvörðunin var tek- in um eignarnámið hefði þetta ver- ið það land sem bæjaryfirvöld töldu heppilegast að taka næst til úthlutunar, en síðan hefði annað svæði, svokallað Asahverfi í Hraunsholtslandi, verið skipulagt. Það væri nú til úthlutunar og svo yrði næstu árin. Auk þess hefði Garðabær á und- anfömum mánuðum og ámm keypt töluvert af löndum sem möguleiki væri á að taka til úthlut- unar og því væm forsendur breytt- ar og ekkert sem þrýsti sérstak- lega á Garðabæ til þess að kaupa landspilduna á Arnarneshálsi. Því lægi ekkert fýrir um það á þessu stigi að Garðabær hefði frumkvæði að því að hefja viðræður á ný við landeigendurna. Hæstiréttur 15 mán- aða fang- elsi fyrir nauðgun HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem dæmdur var til 15 mán- aða fangelsisvistar fyrir að nauðga konu á heimih hennar í Keflavík í febrúar á síðasta ári. Konan fór fram á að maðurinn greiddi eina milljón króna í miska- bætur, en í héraðsdómi vom henni dæmdar 400 þúsund krónur í bæt- ur og var sú bótaupphæð staðfest í Hæstarétti. Málið dæmdu hæstaréttardóm- aramir Pétur Kr. Hafstein, Garðar Gíslason, Haraldur Henrysson, Hjörtur Torfason og Hrafn Braga- son. I dóminum taka þeir Haraldur Henrysson og Pétm- Kr. Hafstein fram að þeir telji refsingu ákærða frekar eiga að vera 18 mánaða fangelsi. Hús reist í Vopnafírði. Morgunblaðið. ÞEIR höfðu nóg fyrir stafni bræð- umir Arnar og Hinrik Ingólfssynir í vetrarblíðu á Austurlandi. Snjó- húsið var reist með aðstoð föður þeirra Ingólfs Sveinssonar smiðs Morgunblaðið/Sigrún Oddsdóttir sól og snjó enda vandreist svo veglegt hús og eins gott að hafa hallamálið í lagi. Strompur og gluggi skyldu vera á húsinu og áfram héldu þeir að reisa húsið með reku og sög í hendi. Mál heilsugæslulækn- is til ríkissaksóknara LÖGREGLAN í Reykjavík hefur ákveðið að vísa til Ríkissaksóknara máli heilsugæslulæknis á höfuð- borgarsvæðinu sem kærður var fyr- ir nauðgun um miðjan janúar síð- astliðinn. Elín Hallvarðsdóttir yfirlögfræð- ingur hjá embætti lögreglustjóra í Reykjavík segir að málið sé talið fullrannsakað og verði sent embætti ríkissaksóknara til frekari ákvörð- unar innan skamms. Kona sem var sjúklingur læknis- ins lagði fram nauðgunarkæm á hendur honum um miðjan janúar og kvað hann hafa haft við sig mök eftir að hafa gefið sér róandi lyf. Læknir- inn mun hafa játað að hafa átt mök við konuna en neitað að um nauðgun væri að ræða. Beðið var eftir niður- stöðum úr lyfjaprófi sem gert var á konunni, áður en ákvörðun um frek- ari málsmeðferð var tekin. í blóði konunnar komu fram um- merki um ýmis lyf en Elín segir óljóst hvað það sanni. „Raunar er ekki hægt að segja með hvaða hætti konan fékk ákveðin lyf og ekki hægt að fullyrða hvort að þau voru í blóði hennar fyrir þennan tíma eða komu þangað eftir hann,“ segir hún. Heilbrigðisráðherra svipti lækn- inn lækningaleyfi fyrir skömmu að tillögu landlæknis, vegna alvarlegs brots á læknalögum. Sviptingin er ótímabundin. Álit tveggja lagaprófessora um frumvarp um Brunabótafélagið Alþingi heimilt að slíta Eignarhaldsfélagi BI NIÐURSTÖÐUR lögfræðiálits, sem prófessoramir Stefán Már Stefáns- son og Þorgeir Örlygsson unnu fyrir Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, eru þær að ekkert sé því til fyrirstöðu að Alþingi ákveði að slíta Eignarhalds- félagi Brunabótafélags Islands eins og fyrirliggjandi frumvarp Einars Odds Kristjánssonar og fjöguira annarra þingmanna Sjálfstæðis- flokksins, kveður á um. Verði það frumvarp að lögum yrði Eignar- haldsfélaginu Brunabótafélagi Is- lands slitið og eignum þess deilt til þeirra, sem höfðu vátryggingar hjá félaginu og sameignarsjóðs félags- ins, en að honum standa þau sveitar- félög sem eiga aðild að fulltrúaráði Félagsins. Prófessoramir segja ljóst að eign- arréttur þessara aðUa, sem teljast hafa verið félagsmenn í Bmnabóta- félaginu hafi lögum samkvæmt verið háður verulegum takmörkunum og hafi það bæði átt við um hinn félags- lega og fjárhagslega þátt réttind- anna. I 2. mgr. 16. greinar laga um Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Islands, nr. 68 frá 1994, segir að ákveði fulltrúaráð BÍ að slíta félag- inu skuli fyrst inna af hendi allar skuldbindingar félagsins hverju nafhi sem nefnast eða setja trygg- ingar fyrir greiðslu þeirra. Síðan skal greiða þeim aðUum sem hafi öðl- ast réttindi tU greiðslu sem við- skiptamenn tryggingafélagsins á tíl- teknum tíma. Að öðru leyti renni eigrúmar tU sameignarsjóðs félags- ins. Tald annað félag ekla við hlut- verki eignarhaldsfélagsins við slit þess skuli hin hreina eign sameign- arsjóðsins renna til þeirra sveitarfé- laga sem eiga aðUd að fuUtrúaráðinu í hlutfaUi við brunatryggingaiðgjöld fasteigna í sveitarfélaginu á vátrygg- ingaáiinu október 1992 tU 1993. Lögfræðiprófessoramir telja að löggjafarvaldinu hafi verið heimilt að setja þessar leikreglur um slit félagsins með lögum sem tóku gildi árið 1994 og þar sem þau lög hafi ekki stangast á við eignarréttará- kvæði stjómarskrárinnar hafi ekki stofnast til bótaskyldu við laga- setninguna. Með sama hætti sé ekkert því til fyrirstöðu að löggjafinn taki nú ákvörðun um að slíta félaginu í samræmi þetta ákvæði frá 1994 eins og frumvarp þingmannanna fimm gerir ráð fyrir að gert verði. Prófessorarnir telja að það breyti engu þar um að það sé löggjafinn en ekki fulltrúaráð félagsins sem taki ákvörðun um að slíta félaginu samkvæmt frumvarpinu. Framvarp þingmannanna hefur farið í gegnum 1. umræðu í Alþingi og hefur verið vísað til efnahags- og viðskiptanefndar þingsins. Afgreiðslutími vmveitingastaða Leyfí til lengri opnunar seld Aukið sjálf- stæði HA BJÖRN Bjamason mennta- málaráðherra kynnti ríkis- stjórninni í gær framvarp til laga um Háskólann á Akur- eyri. Framvarpið felur í sér breytingar á skipulagi há- skólans til samræmis við ákvæði háskólalaganna sem tóku gildi 1. janúar síðastlið- inn. Björn Bjamason mennta- málaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að framvarpið fæli í sér aukið sjálfstæði Háskólans á Akur- eyri í samræmi við breyting- arnar á háskólalögunum. Að öðru leyti vildi hann lít- ið tjá sig um efni frumvarps- ins, sem ekki hefur enn verið kynnt þingflokkum. Ráð- herra sagði að frumvarpið yrði væntanlega einungis kynnt Alþingi í vor. BORGARRÁÐ hefur samþykkt að heimila tilraun í tólf mánuði með sveigjanlegan afgreiðslutíma á vín- veitingahúsum í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að hluti veitingahúsa geti keypt leyfi til afgreiðslu lengur en til kl. 3 aðfaranótt laugardags og sunnu- dags. Tilraunin hefst 1. júlí n.k. Gert er ráð fyrir að tilraunin verði metin eftir 12 mánuði og niðurstöð- ur nýttar til frekari stefnumótunar. Forsendur þess að tilraunin verði gerð, eru að nauðsynlegar breyting- ar verði gerðar á samþykktum og reglugerðum og tilraunin samrýmist nýjum lögum, sem unnið er að um vínveitingahús. Að lögreglustjóri fái ótvíræðar heimildir til afskipta af starfsemi þeirra vínveitingahúsa sem opin verða lengur og geti án fyrirvara afturkallað leyfi þeirra. Að löggæslunni verði búin aðstaða til öflugs eftirlits. Að þeir staðir sem heimild fá til lengri opnunar valdi ekki hávaðamengun og mannsöfnuð- ur utan við þá varði leyfissviptingu. Loks að frekari úthlutanir vínveit- ingaleyfa taki mið af því að ekki raskist frekar en orðið er jafnvægi milli verslunar, veitingahúsa og íbúðabyggða í miðborginni. Borgarráð samþykkti jafnframt að skipa þriggja manna verkefnisstjóm til undirbúnings og eftirlits með til- rauninni. Stjórninni er ætlað að leggja fram endanlegar tillögur um fyrirkomulag sveigjanlegs opnunar- tíma fyrir borgarráð fyrir 1. júní n.k. Frá þeim tíma tekur borgarráð við afgi'eiðslu nýrra umsókna um vín- veitingaleyfi. Samþykkt var að til- nefna Steinunni Valdísi Óskarsdótt- ur, Helga Hjörvar og Guðlaug Þór Þórðarson í verkefnisstjórnina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.