Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ BJÖRN ÞÓRÐARSON + Björn Þórðarson fæddist að Steindyrum í Svarf- aðardal 20. febrúar 1902. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 3. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrarkirkju 12. mars. Minningin um afa Bjöm er bæði Ijúf og skýr. Afi var prýðileg fyrirmynd sem upp- alandi bama. Hann tók farsælar ákvarðanir sem homsteinn í fjölskyldunni. Auðurinn íþyngdi honum ekki á lífsleiðinni, en hann lagði á borð með sér gullkom sem hann hafði viðað að sér í kirkjum og leikhúsum landsins. Snyrtimennska og starfsgleði vom rík einkenni í fari hans. Hann var þelþýður, jafn- lyndur og jákvæður. Hann sá alltaf bjart í kringum sig og trúði á mátt bænarinnar. Afi var félagslyndur og átti auðvelt með að ræða við fólk um málefni líðandi stundar. Margar stundir dvaldi afi hjá foreldrum . mínum á Brettingsstöðum í Flateyj- ardal. Honum fannst bæjarstæðið undurfag- urt og kunni öll ömefni á þessu svæði. Hann lagði sitt lóð á vogar- skálina við uppbygg- ingu staðarins og naut sín vel á þessu aí- skekkta eyðibýli. í bókinni Gaman er að lifa eftir Jóhann Ög- mundsson segir frá störfum afa hjá Leikfé- laginu: „Bjöm var rit- ari stjómar og hvíslari. Það var ekki vonin um gott hlutverk eða leik- húsframa sem hvatti Bjöm til starfa heldur brennandi áhugi á starfsem- inni. Stundum fómm við að hitta fólk og biðja það að taka að sér hlut- verk í næsta sjónleik. Þegar Bjöm kom til baka sagði hann ætíð sömu orðin: Jæja, Jóhann minn, þetta gekk nú bara Ijómandi vel. Þetta sagði hann þótt hann fengi þvert nei.“ Það var ætíð tilhlökkun að fara í ferðalag með afa. Farkosturinn bar einkennisstafina A-730. Hann lá í dvala inní bílskúr á vetrum líkt og bimir. Hraðanum var stállt í hóf. Afi Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, uppeldisfaðir og afi, KRISTINN ÓLAFSSON, Holti, Qrindavfk, slðast búsettur á Hamratanga 7, Mosfellsbæ, er látinn. Útförin ferfram frá Grindavíkurkirkju í dag, laugardaginn 14. mars, kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minn- ast hans, er bent á slysavarnadeildina Þorbjörn ( Grindavik. Ásdfs Vigfúsdóttir, Þorvaldur Jón Krfstinsson, Ellen Maja Tryggvadóttir, Ragnar Heiðar Kristinsson, Ragnheiður Katrfn Thorarensen, Ólafur Kristinsson, Þorbjörg Inga Jónsdóttir, Hulda Björk Ingibergsdóttir, Kristfn Sigriður Þorvaldsdóttir, Kristinn Richardsson og afaböm. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNS EYSTEINSSONAR, Skólavegi 36, Vestmannaeyjum. Selma Jóhannsdóttir, Gunnar Jónsson Elfn Bjarney Jóhannsdóttir, Svavar Sigmundsson, Ástráður Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir færum við öllum þeim fjöl- mörgu, sem með samúðarkortum, biómum, skeytum og gjöfum og á annan hátt sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og útför elskulegrar dóttur okkar, móður, fyrrum eiginkonu, systur og mágkonu, ÞÓRU MARGRÉTAR FRIÐRIKSDÓTTUR, V sfðast til heimilis f Bllkahólum 6, Reykjavfk. Guð blessi ykkur öll. Anna Jóhanna Oddgeirs, Friðrik Hjörieifsson, Borgþór Ágústsson, Guðrún Ágústsdóttir, Sigfús Ágústsson, Aurora Ágústsdóttir, Ágúst Borgþórsson, Aurora G. Friðriksdóttir, Bjarnl Sighvatsson, Hjörieifur Friðriksson, Auðbjörg Sigurþórsdóttir, Jón Rúnar Friðriksson, Friðrik Þór Friðriksson og fjölskyldur. riíjaði upp bæjamöfn, fjöll, fossa og sýslumörk. Ber voru tínd í landi Mið- háls og það var alltaf keppni um það hvor tíndi meira. Jarðepli voru rækt- uð í landi Ytra-Hóls. Það sást ekki rykkom á afa þegar uppskeran var tekin upp. Hann hefði alveg eins get- að mætt þama í kjólfötum. Þetta starf var unnið af vandvirkni líkt og annað sem hann tók sér fyrir hendur. Sigríður og Bjöm bjuggu í rúma hálfa öld á Oddagötunni. Þau vom samrýnd hjón, hún mild og hlý og hann með áhuga á þjóðlífinu. Þau eignuðust þrjár ólíkar dætur. Bamabömin urðu þrír piltar og þijár stúlkur. Því var eins og hendi Guðs væri lögð yfir, þegar afi yfir- gaf þetta jarðlíf þann 3.3. klukkan 3 á þriðjudegi. Ég þakka samfylgdina sem var ánægjuleg og lærdómsrík. Björn Amarson. Hann afi er dáinn. Margar minn- ingar koma upp í hugann. Afi Bjöm og amma Sigríður, móðurforeldrar mínir, bjuggu á Akureyri allan sinn búskap. Eg var fimm ára gömul þegar við systumar vorum fyrst sendar einar til afa og ömmu á Akureyri. Á hverju sumri í tíu ár dvöldumst við þar um nokkurra vikna skeið í góðu yfirlæti. I minn- ingunni finnst mér að það hafi alltaf verið sólskin þessa sumardaga á Akureyri. Við fórum alltaf fljúgandi norður og aldrei brást það að afi og amma væm mætt á flugvellinum á Taunusnum að sækja okkur og oft með bláan ópal í farteskinu. Á kvöldin plöntuðum við systumar okkur á milli afa og ömmu í hjóna- rúminu og lásum til skiptis fyrir þau upp úr ýmsum bókum, svo sem bók- inni Sumardagar eftir Sigurð Thor- lacius, en sú bók var í miklu uppá- haldi hjá afa. Afi var alltaf að kenna okkur eitthvað nýtt, hann var ekki ánægður fyrr en við vorum alveg vissar um hvaða sýslu eða kaupstað bílar með ákveðnum upphafsstaf til- heyrðu og elstu bamabömunum kenndi hann öll sýslumörk á land- inu. Einhverju sinni bað hann okkur systumar að skrifa niður allar hljómsveitir sem við myndum eftir. Ekki man ég hver tilgangurinn var en við höfðum óskaplega gaman af þessu. Afi var mikill áhugamaður um ferðalög innanlands og þá ekki síst gönguferðir af ýmsu tagi. Hann fór oft með okkur í gönguferðir, langar og stuttar. Afi var kirkjurækinn með af- brigðum enda meðhjálpari til margra ára. Aldrei var sunnudags- messu sleppt en yfirleitt lagt upp í bílferð strax upp úr hádegi og stundum var maturinn bara tekinn með og borðaður undir bemm himni. Oft var ferðinni heitið upp á Glerárdal eða austur í Vaglaskóg. Oft kom það fyrir að við fóram samferða afa og ömmu suður til Reykjavíkur að lokinni sumardvöl. Brottfarardaginn var vaknað eldsnemma, nesti smurt og yfirleitt lagt af stað eigi síðar en klukkan átta. Afi var aldrei neitt að flýta sér Sorgar og samúðarmerki Borið við minningarathafnir og jarðarfarir. Allur ágóði rennur til líknarmála. Fæst á bensínstöðvum, f Kirkjuhúsinu og í blómaverslunum. H KRABBAMEINSSJÚK BÖRN HtAlPARSTOFNUN KIRKJUNNAR allt of mikið og oft var stoppað, fyrsti nestisstaður var við Kotárgil. Ég held að hann hafi sagt okkur nöfn á öllum íjöllum og bæjum á leiðinni. Aldrei var komið til Reykjavíkur fyrr en undir kvöld og vora dætumar og tengdasynimir þá mætt til að taka á móti ferða- löngunum á Kjalamesi eða í Kolla- firðinum því ekki kærði afi sig um að keyra í borginni. Eftír því sem árin liðu styttíst sá tími sem ég gat dvalist hjá afa og ömmu á sumrin. Seinni ár hefur þó varla liðið það sumar að ég hafi ekki heimsótt afa á Oddagötuna. Hann hafði alltaf jafnmikinn áhuga á að fara í bíltúr, hætti reyndar sjálfur að keyra fyrir nokkrum áram. Sum- arið 1991 fóram við hjónin með afa yfir Lágheiði og síðan yfir Siglu- fjarðarskarð til Siglufjarðar. Hann hafði gaman af þessari ferð og sagði okkur að hann hefði farið gangandi yfir Siglufjarðarskarð tæpum 20 ár- um áður, þá um sjötugt. Svarfaðar- dalur var ofarlega á vinsældalistan- um af eðlilegum ástæðum. Sumarið 1989 tók Höskuldur mynd af afa og okkur mömmu við leiði Þórðar Jónssonar, föður afa, í kirkjugarðin- um á Tjöm. Afa fannst alveg ómögulegt að við skyldum ekki eiga bam því þá hefði mátt segja að fimm ættliðir væra á myndinni. Sumarið 1993 var tekin önnur mynd á sama stað og nú hafði afa orðið að ósk sinni. Ámi Björn hugsar mikið til langafa og kemur alltaf til með að muna eftir honum. Birgir Öm sagði að nú væri langafi kominn til Guðs á himninum og væri á stélinu hjá fuglunum. Guðrún litla mun ekíd muna eftir afa en ég veit að honum þótti mjög vænt um að hún skyldi vera skírð í höfuðið á móðurömmu sinni sem jafnframt bar móðumafn- ið hans. Þegar ég hitti afa síðast í lok janúar sl. var hann nýlagstur á Landspítalann og allir áttu von á að hann myndi komast aftur á fætur. Hann var með allt á hreinu eins og venjulega, beið spenntur eftir úr- slitum í prófkjöri Reykjavíkurlist- ans og við skiptumst á gamansög- um. Ég vil að lokum þakka afa mín- um fyrir allt. Blessuð sé minning hans. Auður Þóra Árnadóttir. „Sælinú,“ sagði afi alltaf við mig þegar við hittumst. Nú er komið að kveðjustund. Afi minn, Bjöm Þórð- arson, er látinn. Afi átti gæfuríka ævi. Hann var heilsuhraustur mest- an hluta ævinnar og andlega hress fram á síðasta dag. Við systkinin eigum margar minningar tengdar ömmu og afa á Akureyri. í minning- unni var alltaf sól og hiti á Akur- eyri. Þetta er eflaust tákn um þá birtu sem ljómaði í kringum afa og ömmu. Það var alltaf eitthvað um að vera hjá þeim og hjá þeim var gott að vera. Þau vora bamgóð með ólík- indum og höfðu innsýn í hvað okkur þótti skemmtilegast að gera. Aftur og aftur sagði afi okkur söguna af Steini Bollasyni og las fyrir okkur söguna um tíu litla negrastráka. Oft var farið í bíltúra um ná- grenni Akureyrar á „Taunusnum". Það var alltaJf farið með sóltjald, nesti, brenndan brjóstsykur og kandís í bauk. Afi var fróður um landið og kenndi okkur mörg ör- nefni. Eins var honum kappsmál að við lærðum frá hvaða landshluta hin ýmsu bflnúmer væra. Ekki gekk það nú alltaf vel hjá okkur að læra það. Ef við svöraðum rétt þá sagði hann iðulega „gott hjá köllunum". Þetta notaði hann oft ef hann var ánægður með það sem við gerðum. Ferðalög voru afa afar hugleikin. Hann hafði mjög gaman af að ferð- ast um landið, hvort sem var fót- gangandi eða akandi. Það vora há- tíðarstundir þegar amma og afi komu keyrandi til Reykjavíkur. Þau fóra hægt yfir og tók ferðin oftast 12 klukkustundir. Oft áð á leiðinni og nokkrar kirkjur skoðaðar. Afi var mikill áhugamaður um allar kirkjur, enda mjög trúaður maður. Afi sagði eitt sinn að ef maður eignaðist ekki böm, þá eignaðist maður ekki bamaböm. Nú á seinni áram hafði hann gaman af að fylgj- ast með langafabörnunum. Afi og amma héldu uppi ákveðn- um siðum í fjölskyldunni í kringum jól og afmæli. Við munum viðhalda þessum siðum í minningu þeirra. Afi hélt sínum virðuleik alla ævi. Hann kenndi mér margt sem ég varðveiti. Löngu ferðalagi hans afa míns er lokið. Hann er kominn á leiðarenda. Við tekur annað ferða- lag á öðram stöðum. Þar verða aðr- ar kirkjur kannaðar ásamt mörgu öðru. Eg hringdi í afa 20. febrúar síðastliðinn á 96 ára afmæli hans. Það síðasta sem hann sagði við mig var: „Guð blessi ykkur ölL“ Guð blessi hann. Sigríður Heimisdóttir. Margs er að minnast við andlát afa okkar Bjöms Þórðarsonar. Við krakkamir vorum tíðir gestir í Oddagötunni hjá afa og ömmu á Akureyri á hverju sumri og stundum oftar. Mirmisstæðar era allar ferð- imar í nágrenni Akureyrar, en skemmtílegast fannst okkur að fara í Vaglaskóg. Ég minnist þess sérstak- lega þegar ég, sem ungur drengur, beið við hliðið á Oddagötunni eftir því að afi kæmi heim í hádegismat. Alltaf gaf hann sér tíma tíl að tala við okkur krakkana, og aftur var beðið við hliðið þegar vinnudegi lauk. Þá var iðulega sest upp í gljáfægðan Taunusinn og farið í ferðalag um bæ- inn. Einstaka sinnum var komið við í Lindu tíl að taka „nestí“ sem geymt var í hanskahólfinu til síðari nota, oftast kandís eða súkkulaði. Margs er að minnast úr ferðalög- unum með afa og ömmu. Oft man maður best ýmis smáatriði sem fest- ast í minni. Alltaf var röð og regla á hlutunum hjá afa. Gaman er að láta hugann reika til baka og minnast hinna mörgu hughrifa, í ferðum á Brettingsstaði á Flateyjardal, í Kjamaskóg, inn í fjörð og stundum til Reykjavíkur. Við minnumst líka allra gönguferðanna, í Lystígarðin- um og í beijaferðum á Norðurlandi. Og við munum það enn hversu erfitt var að skipta um gír í brekkum í öll- um ferðunum með afa. Afi fór með okkur í kirkju á hverjum sunnudegi en þar starfaði hann sem meðhjálpari. Mér er alltaf minnisstætt hvað afi var virðulegur þegar hann jas upp ritningarorðin í kirkjunni. Ég var víst ekld alltaf ánægður með þessar tíðu kirkju- ferðir á þessum árum og vildi halda áfram að spila fótbolta í gilinu. Afi var gjafmildasti maður sem ég hef kynnst. Stórir pakkar bárast fyrir öll afmæli og sú regla höfð, að pakkamir biðu á náttborðinu að morgni aftnælisdagsins, hver hlutur innpakkaður og skrifuð afmælis- kveðja með hverjum pakka. Svipað var þetta um jólin, en þá bárast hangikjötslæri og jólarósir inn á heimilið. Þetta era örfáar minningar frá æskudögunum með afa og ömmu. Árin liðu og bamabömin urðu full- orðin. Þau áhrif frá afa og ömmu, sem við krakkarnir urðum fyrir í æsku hafa áreiðanlega orðið okkur mjög til góðs síðar í lífinu. Afi varð mjög ánægður þegar við fjölskyldan, sem höfðum dvalist er- lendis í nokkur ár, komum heim í haust. Ég var því miður erlendis þegar haldið var upp á 95 ára af- mæli hans í fyrra, en þá var hann mjög hress og sýndi engin teljandi merki um háan aldur. Það var ógleymanlegt að hafa hann sem gest heima hjá okkur í afmælisboði Araars 17. janúar sl., en þá var hann enn mjög andlega hress, en orðinn stirðari til gangs. Nokkra síðar þurfti hann að leggjast inn á sjúkrahús, en þar spjölluðum við um lífið og tilverana og alltaf var hann jafn yfirvegaður og rólegur. Það var afa líkt að láta færa starfs- fólki deildarinnar gjafir, þegar hann fór norður í bæinn sinn. Elsku afi. Það er komið að leiðar- lokum, langri og góðri ævi er lokið og þakkað er fyrir það sem þú hefur veitt mér og kennt. Minningin um góðu dagana á Akureyri mun lifa í hjarta mínu um aldur og ævi. Blessuð sé minning afa míns Bjöms Þórðarsonar. Magnús Heimisson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.