Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 569 USl
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Svartsýni á að sjómannadeilan leysist fyrir miðnætti á sunnudag
Vélstjórar aflýsa
hugsanlega verkfalli
TIL greina kemur að Vélstjórafélag
íslands aflýsi verkfalli náist ekki
samkomulag i kjaradeilu sjómanna
og útgerðarmanna fyrir miðnætti á
sunnudag. Samningafundi hjá Rík-
issáttasemjara lauk í gær án árang-
urs og hefur nýr fundur verið boð-
aður í dag. Utgerðarmenn settu
fram þá kröfu að allir fulltrúar sjó-
' rnanna kæmu saman til fundar og
tillögur yrðu bornar milli þeirra og
útgerðarmanna. Sjómenn urðu við
því. Svartsýni ríkir í röðum deiluað-
ila um lausn deilunnar.
Vélstjórar lýstu þvi yfir að stæðu
menn frammi fyrir því á sunnudags-
kvöld, að verkfall hæfíst þá um mið-
nætti og tillögur ráðuneytisstjóra-
nefndarinnar yrðu ekki að lögum,
væru þeir tilbúnir að aflýsa verk-
fallinu. „Við eigum hægt um vik að
boða verkfall á ný og það myndum
>við gera í maí. Við höfum ekki fallið
frá okkar kröfum," sagði Helgi Lax-
dal, formaður Vélstjórafélagsins.
Pórir Einarsson ríkissáttasemjari
sagði að lítið hefði verið um sameig-
inlega fundi og málum hefði ekki
miðað áfram í gær þrátt fyrir að til-
lögur hefðu verið bomar milli
manna. Aðspurður um hvort til
greina kæmi að hann legði fram
sáttatillögu á fundinum í dag sagði
hann of snemmt að ræða slíkt.
Hann sagði að staða viðræðnanna
væri erfið og mikið bæri í milli.
„Ég held áfram á þeim grundvelli
að reynt verði að ná samningum.
Gangi það ekki er það síðari tíma
mál,“ sagði Pórir.
Ihugunarefni fyrir
útvegsmenn
Kristján Ragnarsson, formaður
LIU, sagði að forseti Alþýðusam-
bands Vestfjarða hefði sett tóninn í
viðræðurnar með yfirlýsingu í fjöl-
miðlum um að ríkissáttasemjari
væri að undirbúa að leggja fram
sáttatillögu. Menn hefðu því haldið
að sér höndum og beðið eftir að til-
lagan yrði lögð fram sem ekki var
gert.
Kristján sagði að ágreiningur
væri milli samtaka sjómanna sem
spillti fyrir árangri. Vélstjórafélagið
héldi sinni kröfu fram um hækkun
hlutaskipta sem hvorki útgerðar-
menn né Sjómannasambandið og
Farmanna- og fiskimannasamband-
ið sættu sig við.
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Islands, sagði
að ekki væri rétt að ágreiningur
væri milli sjómanna. Formaður
LIÚ hefði ekki hitt sig á fundi síð-
ustu þrjá daga og ekki léð máls á
því að ræða kröfur aðila. „Hann hef-
ur ekki verið tilbúinn til að gera
samning í fimmtán mánuði og ég
held að það sé orðið íhugunarefni
fyrir útvegsmenn almennt hvernig
haldið er á málum hjá LÍÚ,“ sagði
Sævar.
Að sínu mati biði formaður LIÚ
eftir því að verkfall skylli á og teldi
hann sig þá hafa aðgang að áliti þrí-
höfðanefndarinnar sem hann teldi
sig geta teygt og togað. Ekkert til-
efni væri þó til að breyta tillögum
nefndarinnar.
Helgi sagði að ekkert lægi fyrir
fundinum í dag. Það væri ríkissátta-
semjari sem hefði það í hendi sinni
hvort lögð yrði fram sáttatillaga en
sér fyndist vanta mikið upp á að það
væri tímabært. Vinnuveitendur
hefðu lítið gefið eftir og heldur
dregið til baka það sem þeir höfðu
látið í veðri vaka að semja mætti
um, eins og t.d. endurmenntun sjó-
manna.
Sjávarafurðir
1997 metár
í útflutningi
VERÐMÆTI útflutnings sjávar-
afurða allt síðasta ár nam um 93,7
milljörðum króna og hefur aldrei
verið meira. Þetta er um 1,1 millj-
arði króna meira en metárið 1996,
þrátt fyrir að gengi krónunnar hafi
hækkað. Sé útflutningurinn flokk-
aður eftir vinnslugreinum, kemur í
ljós að frysting botnfisks í landi
skilaði mestum verðmætum, eða
um 17,3 milljörðum króna, þrátt
fyrir 5,4% samdrátt.
Söltun skilaði nú 15,4
milljörðum í útflutningsverðmæt-
um, sem er nánast það sama og ár-
ið áður. Verðmæti sjófrysts botn-
fisks var um 14 milljarðar og jókst
um 9,4% og verðmæti útflutts
fiskimjöls varð alls um 11,2 millj-
arðar króna og jókst það um
10,8%.
Mikill samdráttur varð á út-
flutningi saltsíldar, frystrar síldar,
loðnu og humars, en verðmæti út-
flutts hörpudisks jókst um 80% og
varð alls um einn milljarður króna.
Útflutningur á skreið jókst um
45% og skilaði einnig um einum
milljarði króna.
■ Útflutningur/22
Mokveiði og
löndunarbið
ENN er rífandi veiði á loðnumiðun-
um. Agnar Sigurðsson, stýrimaður á
Faxa RE, sagði í samtali við blaðið í
gærdag að löndunarbið væri í Þor-
lákshöfn, þeir hefðu beðið þar síðan
snemma um morguninn og enn væru
nokkrir á undan. Menn biðu þess
eins að komast aftur út í mokið. Faxi
var með 630 tonn, eða eins og skipið
tekur.
„Við vorum að fá þetta í Vatna-
mótunum undan Landeyjum. Þetta
er allt að gerast á þessu sama svæði
og verið hefur síðustu sólarhringa.
Það er eins og loðnan sé fóst þarna,
en að vísu heyrðum við að Oddeyrin
hefði verið að fá afla vestar, um 10
mflur fyrir austan Þorlákshöfn. En
þetta er bara það sem maður heyrir.
Þessi loðna sem við vorum að fá er
misjafnlega langt komin í hrygn-
ingu,“ sagði Agnai'.
Þokkalegt veður var á miðunum
síðasta sólarhringinn, en „þykk
kvika og mikill sjór. Sennilega bræla
suður undan,“ eins og Agnar komst
að orði.
I gærdag hafði mestu verið landað
af loðnu hjá Hraðfrystihúsi Eski-
fjarðar, alls 41.593 tonnum. Þar næst
kom Sfldarvinnslan í Neskaupstað
með 39.266 tonn. Því næst Vinnslu-
stöðin hf. í Vestmannaeyjum með
28.253 tonn, þá Loðnuvinnslan hf. á
Fáskrúðsfirði með 26.556 tonn og
síðan Isfélag Vestmannaeyja með
22.832 tonn.
Færeysku skipin hafa nú lokið
kvóta sínum á vetrarvertíðinni hér
við land. Alls höfðu þau leyfi til veiða
á 15.000 tonnum innan lögsögunnar
og var mestu af því landað hérlendis.
Veiðum skipanna lauk á fimmtudag
og í gær hafði ekkert færeyskt skip
tilkynnt sig til Landhelgisgæslunn-
ar.
Lifeyrissjóður verslunarmanna lækkar vexti á sjóðfélagalánum 1 5,87%
Lán tengd vöxtum húsbréfa
Rigning í
Reykjavík
VÆTUSAMT er um þessar
mundir í höfuðborginni og mun
líkiega verða svo áfram í dag,
samkvæmt spá Veðurstofu Is-
lands. Börnin á leikskólanum
Vesturborg í Vesturbænum
virtust alsæl með regnið í gær
þegar Ijósmyndara Morgun-
blaðsins bar að garði, enda
kunna þau að klæða sig eftir
veðri.
A sunnudag mun hins vegar
kólna í veðri á ný með hvassri
suðvestanátt, éljum og frosti
um mestallt land. I byrjun
næstu viku er gert ráð fyrir
frosti á bilinu 3 til 10 stig en
íiuknum hlýindum á fimmtudag
’^Bfcieð rigningu og suðvestanátt.
LÍFEYRISSJÓÐUR verslunar-
manna hefur ákveðið að tengja vexti
á sjóðfélagalánum sínum við mark-
aðsvexti húsbréfa eins og þeir eru á
hverjum tíma að viðbættu 0,75 pró-
sentustiga álagi. Það þýðir að vext-
imir lækka nú um miðjan mánuðinn
úr 6% í 5,87%, en vextimir hafa ver-
ið óbreyttir í fjögur ár eins og hjá
flestum öðrum lífeyrissjóðum. Jafn-
framt era lánsfjárhæðh' hækkaðar
um 25% í 2 milljónir króna.
Verðbréfaþing Islands mun
reikna út meðalvexti á húsbréfum í
hverjum almanaksmánuði og munu
vextir á sjóðfélagalánum íylgja
þeim breytingum í næsta mánuði á
eftir. Það þýðir að vextir sjóðfélaga-
lána munu væntanlega lækka enn
frekar í næsta mánuði þar sem
frekari lækkanir hafa orðið á ávöxt-
unarkröfu húsbréfa það sem af er
þessum mánuði. Þannig vora síð-
ustu viðskipti með húsbréf í flokkn-
um 96/2 á Verðbréfaþingi í gær á
ávöxtunarkröfunni 4,96%.
Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna, sagði að
meðalvextir húsbréfa í febrúarmán-
uði hefðu verið 5,12% og því myndu
vextir sjóðfélagalánanna lækka í
5,87% um miðjan þennan mánuð.
Fyrirsjáanlegt væri að vextirnir
myndu lækka írekar í næsta mán-
uði vegna lækkunar ávöxtunarkröfu
húsbréfa á Verðbréfaþingi og síðan
myndu vextirnir taka hliðstæðum
breytingum og markaðsvextir hús-
bréfanna gerðu á hverjum tíma.
Verðbréfaþing íslands reiknaði út
vextina fyrir lífeyrissjóðinn og tæki
útreikningurinn til allra viðskipta
með húsbréf bæði á þinginu og utan
þess. Útreikningurinn byggðist
þannig á margra milljarða króna
viðskiptum á hverjum tíma.
Sjö milljarða höfuðstóll
Þorgeir sagði að vextir áður
veittra sjóðfélagalána lækkuðu
einnig til samræmis við þetta, en
höfuðstóll sjóðfélagalána hjá Líf-
eyrissjóði verslunarmanna er í
kringum 7 milljarðar króna.
„Nú hafa vextir og vaxtagólfið í
þjóðfélaginu lækkað það mikið að
það era forsendur til þess að fara að
leiða þessa sjóðfélagalánsvexti örlít-
ið niður á við, þannig að þeir séu í
takt við vaxtabreytingar á öðram
löngum, verðtryggðum lánum,“
sagði Þorgeir aðspurður um ástæð-
ur þessarar ákvörðunar sjóðsins.
Lífeyrissjóður verslunarmanna
er stærsti lífeyrissjóður landsins og
nam höfuðstóll sjóðsins 53,4 millj-
örðum króna í árslok 1997 og hækk-
aði um 17,3% á árinu. Raunávöxtun
sjóðsins var 10,3% á síðasta ári í
samanburði við 7,7% á árinu 1996.
Meðalraunávöxtun sjóðsins síðustu
fimm árin er 7,7%.