Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EF þér takið pakkalán upp á milljón með öllu, stöng, vöðlum, maðki, flugum, háf og leiðsögn, þá er það vaxtalaust allt veiðitímabilið. Frábær þjónusta, finnst yður ekki... Þórarinn Jónasson, hestabóndi í Laxnesi Óttast að sóttin berist senn í hrossin sín ÞÓRARINN Jónasson, sem rekur hestaleigu að Laxnesi í Mosfellsbæ, segir að það myndi skaða rekstur- inn mjög illa ef hestasóttin skæða bærist í hross hans. Hestaleiga hans hefur enn sem komið er slopp- ið við sóttina enda hefur hún enn ekki borist upp í Mosfellsdalinn sjálfan. Þórarinn óttast hins vegar að senn verði þar breyting á. Viðskipti á hestaleigu Þórarins jukust eilítið í kjölfar þess að loka þurfti nokkrum hestaleigum vegna sóttarinnar en það segir Þórarinn að sé sennilega skammgóður vermir íyrir sig. Hann telur lítinn vafa leika á því að þjónusta við ferða- menn nú í sumar eigi eftir að skað- ast mikið ef ekki fer að rofa til bráð- lega og sóttin að ganga yfir. ís- lenski hesturinn væri orðinn það stór þáttur í ferðaþjónustu íslend- inga. Þórarinn rekur eina stærstu hestaleigu landsins og er nú með um 100 hesta á járnum. Mest sinnir hann hótelgestum úr Reykjavík, sem fara vilja stutta reiðtúra, svo og fyrirtækjum og einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að mikið sé um pantanir og að það yrði afar bagalegt ef hann þyrfti að loka hjá sér. „Maður vonar auðvitað að þetta komi ekki hérna upp eftir því mörg hundruð pantanir hafa borist fyrir mars- og aprílmánuð. Ef hestasóttin bærist hingað myndi það skaða gíf- urlega viðskipti mín því ég er með 100 hesta í húsi. Því miður held ég þó að fyrr eða síðar berist þetta til mín, ég er bara að vona að það verði ekki fyrr en í sumar þegar ég get haft hestana úti.“ Samkomulag um frístundastarf unglinga í Garðabæ Lífstækni, náms- og starfs- kynning BÆJARSTJÓRINN í Garðabæ, Ingimundur Sigurpálsson, og skólameistari Fjölbrautaskólans f Garðabæ, Þorsteinn Þorsteins- son, undirrituðu í vikunni sam- komulag um framkvæmd og markmið frístundastarfs ung- linga á framhaldsskólaaldri í bænum. í samkomulaginu er lögð áhersla á fjölbreytt, skapandi og þroskandi kvöldstarf fyrir allt ungt fólk á framhaldsskóla- aldri og sérstaklega mikilvægt er taiið að leita að og ná til þeirra unglinga sem eru illa staddir félagslega og/eða hafa hætt námi, og tengja þá við kvöldstarf sem fram fer í hús- næði fjölbrautaskólans í sam- vinnu við nemendafélag FG, Morgunblaðið/Golli ÞORSTEINN Þorsteinsson skólameistari, Ingimundur Sigurpálsson bæjarstjóri og Brynjar Kjærnested gjaldkeri við undirritun samkomu- lags um frístundastarf unglinga í Garðabæ. undir stjórn og umsjón for- stöðumanns Garðalundar. Kvöldstarfið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtu- dögum kl. 19-23 í húsnæði Fjöl- brautaskólans í Garðabæ. Ætlunin er að ná til þeirra unglinga á framhaldsskólaaldri í Garðabæ sem hætt hafa námi, með það að markmiði að kanna stöðu þeirra og bjóða þeim viðtöl við námsráðgjafa, þátttöku í fé- Iagsh'fi, námskeið og aðgang að einstökum námsgreinum í FG. Meðal þess sem boðið verður upp á er námskeið í lífstækni, en það tekur til sjálfstyrkingar, samskipta, markmiðssetningar, sjálfsmats, áhugamála, hæfni, hópeflis og náms- og starfskynn- ingar. Samkomulagið gildir til 1. jan- úar 1999 og munu samningsaðil- ar þá meta, að fenginni reynslu, hvort framhald verður á verkefn- inu. Styrktarsýning í Háskólabíói fyrir Eir Höfum helgað okkur vímu- efnavörnum Camilla Th. Hallgrímsson Lionsklúbburinn Eir stendur fyrir kvik- myndasýningu í fjár- öflunarskyni í aðalsal Há- skólabíós á þriðjudaginn kemur klukkan 20. Sýnd verður kvikmyndin Boxer með Daniel Day Lewis og Emily Watson sem er örlagarík ástarsaga og var opnunarmynd á kvikmyndahátíðinni í Berlín. Leikstjóri myndar- innar er Jim Sheridan sem meðal annars leikstýrði I nafni föðurins og Vinstra fætinum. Camilla segir að fleiri hafi þegar séð þessa mynd en sáu Vinstra fót- inn, eða My Left Foot, á sínum tíma. Sögusviðið er Norður-írland og átökin sem þar geisa. Félagskonur Eirar, sem eru milli 30 og 40, selja miðana sjálfar en hægt verður að kaupa sig inn á sýninguna í bíóinu á þriðjudag. Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens kemur fram áður en sýning myndarinnar hefst og gefur vinnu sína að sögn Camillu. - Hvers vegna standið þið fyrir þessari kvikmyndasýn- ingu? „Okkur sem stofnuðum Lions-klúbbinn Eir fyrir 13 ár- um fannst að við yrðum að hafa eitthvert baráttumál. Því var ákveðið að barátta okkar myndi beinast gegn eiturlyfjum og að við myndum helga okkur vímu- efnavörnum í framtíðinni. Við fórum á fund lögreglunnar, um- sjónarmanna unglingaheimila og allra sem okkur datt í hug til þess að afla vitneskju um um- fang vandans á íslandi. Satt að segja trúði fólk okkur ekki þegar við fórum að greina frá því sem við komumst að fyr- ir 13 árum. En þá voru um 40 útigangsbörn á Reykjavíkur- svæðinu sem sváfu í kofum, skipum eða hvar sem var og voru mörg hver komin út í eit- urlyfjaneyslu. Þessu vildi eng- inn trúa. Við vildum beina öllum kröft- um okkar í þessa átt og gera það sem við gátum og vorum svo lánsamar að komast í sam- band við Friðbert Pálsson í Há- skólabíói sem lofaði okkur einni frumsýn- ingu á ári en hún er yfirleitt er í mars. Hann gefur okkur sem sagt sýninguna og það eina sem við þurfum að gera er að selja mið- ana. Allur ágóðinn rennur síðan til vímuefnavarna, að undan- skyldum auglýsingakostnaði. Þannig að þetta eru að minnsta kosti orðnar um 5-6 milljónir frá upphafi." - Hvernig hefur þeim fjár- munum verið varið? „Við byrjuðum á því á sínum tíma að snúa okkur til fíkniefna- lögreglunnar og keyptum handa þeim hátæknibúnað, til dæmis myndavél, en fénu er varið til mismunandi málefna á hverju ári. Annað dæmi er Krísuvíkur- samtökin. Við lögðum til fé og mikla vinnu þegar þau voru sett á fót, fórum allar með börn og maka, hjólbörur og skóflur og ► Camilla Th. Hallgrímsson fæddist í Reykjavík árið 1945. Hún lauk kvennaskólaprófi árið 1962 og stundaði nám í listdansi í Kaupmannahöfn og London. Hún rekur heild- verslun og ÓM-búðina ásamt eiginmanni sínum Ólafi Má Ásgeirssjmi dúklagninga- meistara og eiga þau hjónin tvö börn. Camilla hefur starf- að lengi í Lions-hreyfíngunni og er formaður Eirar og varaformaður Iþróttasam- bands fatlaðra. mokuðum út glerbrotum og lambaskít og máluðum her- bergi. Einnig gáfum við ýmsa hluti til starfseminnar en lögð- um aðallega fram vinnu. Við höfum ræktað tengslin við stað- inn og mætum á hverju vori til þess að gróðursetja." - Er hreyfingin með fleiri slík málefni á döfínni? „Lions-hreyfingin er með átak sem nefnist Lions Quest og þar er um að ræða nokkurs konar forvarnarkennslu. Lions- klúbburinn Eir hefur sett dálít- ið fé í þetta verkefni. Námsefn- ið heitir Að ná tökum á tilver- unni og er kennt í 12 ára bekk grunnskóla. Við höfum átt sam- starf við Vímulausa æsku og lagt fjármuni til þess að prenta fleiri bækur svo eitthvað sé nefnt. Einnig studd- um við starfið á Tind- um þegar opið var þar.“ - Hvemig verður peningunum varið í ár? „Við erum með sérstaka vímu- vamanefnd sem hefur verið að skoða ýmis málefni en endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin. Við munum að minnsta kosti koma til með að styrkja Lions- Quest og Vímulausa æsku áfram því verið er að gefa út aðra bók fyrir 14 og 15 ára unglinga sem tengist ofbeldi og kennir þeim að stilla sig og tala saman í stað þess að ráðast á næsta mann. Verkefnið Lions-Quest hefur verið mjög gagnlegt því ungu fólki er kennt að meta sjálft sig og hafa sjálstæðar skoðanir og að segja nei. Það getur komið þeim til góða á mörgum sviðum til dæmis gegn jafningjunum ef þeir hvetja til reykinga eða ann- arrar vímuefnaneyslu.“ Hafa safnað 5-6 milljónum með bíósýn- ingum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.