Morgunblaðið - 14.03.1998, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Björn Blöndal
VERÐLAUNAHAFARNIR frá Suðurnesjum í stærðfræðikeppni grunnskólanna. Frá vinstri til hægri eru:
Kristján Ásmundsson, síðan koma nemendur úr 8. bekk, Ágúst Ingi Brynjarsson úr Keflavík, sem varð í 1.
sæti og Kristín Rúnarsdóttir úr Njarðvík, sem varð í 3. sæti. Þá koma nemendur úr 9. bekk: Ingunn S.
Gunnlaugsdóttir úr Keflavík, sem varð í 1-2. sæti og Guðný P. Þórðardóttir úr Keflavík, sem varð í 3. sæti.
Næst eru nemendur úr 10. bekk: Jóhann Már Jóhannsson úr Keflavík, sem varð í 1. sæti, Ragnar Már
Skúlason, Keflavík, sem varð í 2. sæti og Heiða Björg Árnadóttir úr Njarðvík, sem varð í 3. sæti. Lengst til
hægri er Una Steinsdóttir þjónustufulltrúi íslandsbanka, sem styrkti keppnina.
Stærðfræðikeppni grunnskólanna
Keflavík - Stærðfræðikeppni
grunnskólanna fór fram í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja 21. febrú-
ar sl. AUs tóku 87 krakkar þátt í
keppninni og voru þau úr 10.
bekk, 9. bekk og 8. bekk. Krökk-
unum sem tóku þátt í keppninni
voru siðan veittar viðurkenningar
um síðustu helgi og sagði Ólafur
Jón Arnbjörnsson skólameistari
Fjölbrautaskóla Suðurnesja við
það tækifæri að árangurinn í
keppninni hefði verið góður sem
sæist af samanburði við aðra
Góður ár-
angur hjá
Suðurnesja-
krökkum
landshluta og vonandi yrði þetta
að árlegum viðburði.
Keppendur voru úr öllum skólum
á svæðinu, flestir úr Holtaskóla,
eða 44, 17 úr Njarðvík, 6 úr
Gerðaskóla, 7 frá Stóru-Voga-
skóla, 9 frá Sandgerði og Grinda-
vík sendi fjóra keppendur. ísa-
landsbanki styrkti keppnina og
veitti peningaverðlaun en þrír
efstu í hverjum árgangi hlutu
verðlaun og tíu efstu fengu viður-
kenningarskjöl frá Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja fyrir góða
frammistöðu. Kristján Ásmunds-
son, svæðis- og deildarstjóri í
stærðfærði og raungreinum við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sá
um keppnina.
Kvennaveldi
í Skallagrími
Borgarnesi - Aðalfundur Ung-
mennafélagsins Skallagríms í
Borgarnesi fór fram 9. mars sl. í
húsnæði félagsins við Skalla-
grímsgötu 7a. Húsnæðið fékk fé-
lagið til afnota á síðasta ári og
bætir það mikið aðstöðuna. Áður
hafði félagið eitt herbergi í
íþróttamiðstöðinni, en nú hefur
hver deild sitt herbergi
auk sameiginlegs rýmis í
húsinu. Húsið er á góðum
stað í bænum í nágrenni
íþróttamiðstöðvarinnar og
Skallagrímsvallar.
Innan félagsins eru starf-
andi fimm deildir: Bad-
mintondeild, fijálsíþrótta-
deild, knattspyrnudeild,
körfuknattleiksdeild, Ieik-
deUd og sunddeUd. Starfið
var öfiugt í þeim öllum á
síðasta ári. Meðal málefna
sem rædd voru á fundinum
var vímuvarnastefna
Skallagríms sem er í mót-
um um þessar muudir.
Ekki er hægt að segja
að hlutur kvenna í stjórn-
unarstörfum sé rýr innan
Skallagríms. Af fimm for-
mönnum deilda eru þijár
konur við völd. Þá er aðal-
stjórn félagsins eingöngu
skipuð konum. Jófríður Hanna
Sigfúsdóttir var endurkjörin for-
maður til tveggja ára. Anna Björk
Bjarnadóttir var kjörin ritari í
stað Helgu Halldórsdóttur en fyr-
ir í stjórn var Kristín María Val-
garðsdóttir. Varamenn voru kosn-
ir Svanur Steinarsson og Sigríður
Karlsdóttir.
Morgunblaðið/Ingimundur
STJÓRN Ungmennafélagsins Skalla-
gríms í Borgarnesi. F.v. Anna Björk
Bjarnadóttir ritari, Jófríður Hanna Sig-
fúsdóttir formaður og Kristín María Val-
garðsdóttir gjaldkeri.
Nýtt íþróttahús
í Snæfellsbæ
haustið 1999
TILLÖGUR arkitektastofunnar
Glámu/Kím urðu fyrir vali dómnefnd-
ar í lokaðri samkeppni sem haldin var
um hönnun nýs íþróttahúss í Snæ-
fellsbæ. Stofurnar Arkþing og Batt-
eríið tóku einnig þátt í keppninni, en
30 ai’kitektastofur sóttu um þátttöku
að undangengnu forvali.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist
á sumri komanda og á húsið að vera
tilbúið til notkunar fyrir 1. september
1999, segir í fréttatilkynningu. Bygg-
ingin er rúmlega 2.500 fm og inni-
heldur meðal annars íþróttasal, for-
sal, búningsherbergi, þreksal og fjöl-
notasal. Bæjaiyfirvöld Snæfellsbæj-
ar, í samstarfi við Framkvæmdasýslu
ríkisins, efndu til samkeppninnar
þegar fyrir lá að vanda yrði til hönn-
unar hússins vegna nálægðar þess við
Ólafsvíkurkirkju. I vinningstillögunni
er leitað samhengis við landslagið og
byggðina í kring auk þess sem land-
halli lóðarinnai- er nýttur.
Dómnefnd skipuðu Páll Ingólfsson
forseti bæjarstjómar, Erlingur Jó-
hannesson skólastjóri Iþróttakenn-
araskólans á Laugarvatni, Sigríður
Sigurðardóttir arkitekt FAI fyrir
hönd Framkvæmdasýslu ííkisins,
Maggi Jónsson arkitekt FAÍ og Sól-
veig Berg Björnsdóttir arkitekt
FAI.
Tillögurnar þrjár eru til sýnis í
Grunnskólanum í Ólafsvík til 13.
mars.
Góður árangur í
pappírssöfnun hjá
Sorpstöð Suðurlands
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
UNGA fólkið á Selfossi og nágrenni er
meðvitað um inikilvægi uinhverfis-
verndar og endurvinnslu á pappír.
Selfossi - Umhverfismál ým-
iss konar hafa mikið verið til
umræðu á seinustu misserum.
Viðhorfsbreyting gagnvart
sorpmeðhöndlun og endur-
vinnslu hefur orðið til batnað-
ar sem og umhverfisvitund al-
mennt. Þar hafa Sunnlending-
ar ekki látið sitt eftir liggja.
Á Suðurlandi hefur verið
móttaka á pappír til endur-
vinnslu í tæp tvö ár. Móttaka
var í fyrstu bundin við stærri
þéttbýliskjarna en síðastliðið
sumar bættust átta sveitarfé-
lög í hóp þeirra níu sem buðu
þessa þjónustu fyrir. Femu-
söfnun bættist við í júlí sl. en
söfnunin er samvinnuverkefni
Mjólkurbús Flóamanna og Gáma-
þjónustunnar og hefur árangur af
þeirri söfnun verið mjög góður, að
sögn forsvarsmanna Sorpstöðvar
Suðurlands.
Eyrbekkingar standa sig best af
Sunnlendingum, en þar skila íbúar
18,4 kg af femum og pappír pr. mann
á ári. Rétt á eftir Eyrbekkingum
koma Selfyssingar og Hvolhreppur
er síðan í þriðja sæti. Árangur Eyr-
bekkinga og Selfyssinga er sá besti á
landinu, samkvæmt upplýsingum frá
Guðmundi Tryggva Ólafssyni, starfs-
manni Sorpstöðvar Suðurlands, og til
samanburðar má geta þess að á
Egilsstöðum og nágrenni hafa safn-
ast 8 kg pr. mann á ári.
TILLAGA arkitektastofunnar Glámu/Kím að fþróttahúsi Snæfellsbæjar.
Aðrar vélarstærðir einnig á tager, viðbótarbúnaður titgreindur:
Honda Civic 1.6 VTi.VTEC
Honda Civic 1.5 LSi VTEC
Honda Civic 1.4 Si
HONDA
Verð á götuna: 1.295.000,-
Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri
nnlla.lið..Lv..ej..ði.bllsins.
M400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautun
Hoftpúðar fyrir ökumann og farþega
iRafdrifnar rúður og speglar
iVindskeið með bremsuljósi
kÚtvarp og kassettutæki
iHonda teppasett
M4" dekk
► Samlæsingar
► ABS bremsukerfi
►Ryðvörn og skráning
1 890.000, - ■ 1.490.000,- ■ 1.375.000,-
160 hestöfl
115 hestöfl
90 hestöfl
15" álfelgur
Rafdrifin sóltúga
6 hátalarar
Sportinnrétting
Leðurstýri og leðurgírhnúður
Fjarstýðar samlæsingar
Höfuðpúðar attan
4 hátalarar
Hæðarstitlanlegt ökumannssæti
Sjálfskipting 100.000,-
[0
HOXDA
S(ml: 520 1100