Morgunblaðið - 14.03.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 25
Þrjúþúsundasta
Boeing-737
þotan afhent
ÞRJIJÞUSUNDASTA farþegaþot-
an af gerðinni Boeing-737 var á
dögunum afhent, en hún var af
undirtegundinni -400 og hefur hafíð
áætlunarflug á flugleiðum Alaska
Airlines. Engin farþegaþota hefur
notið jafnmikflla vinsælda meðal
flugfélaga og Boeing-737 og ekkert
lát er á vinsældum flugvélarinnar
því nú munu 900 slíkar vera í pönt-
un hjá Boeing. Til samanburðar
voru smíðuð innan við tvöþúsund
flugvélar af næstvinsælustu þotu
Boeing, 727-gerðunum.
Þýska flugfélagið Lufthansa varð
íyrst flugfélaga til þess að kaupa og
taka Boeing-737 flugvélar í notkun;
pantaði 21 af gerðinni 737-100 og
fékk þá fyrstu afhenta 28. desem-
ber 1967. Hóf hún farþegaflug 10.
febrúar 1968, eða fyrir 30 árum.
Síðasta Boeing 737-100 þotan
sem var smíðuð var afhent í nóvem-
ber 1969. Fyrsta þota þessarar
gerðar flaug í fyrsta sinn 9. apríl
1967 og notuðu Boeing-verksmiðj-
umar hana í tilraunaskyni þar til
þær afhentu bandarísku geimferða-
stofnuninni (NASA) hana til um-
ráða sumarið 1973. Er hún enn í
stöðugri notkun í þágu NASA.
Strax í upphafí var boðið upp á
tvær undirtegundir en sú þriðja,
737-300, bættist ekki við fyrr en 16
árum seinna eða 1984. Stóra systir
hennar, 737-400, kom svo til skjal-
anna 1988 og fimmti fjölskyldumeð-
limurinn, -500, árið eftir.
Og fyrir rúmum fjórum árum var
nýrri kynslóð 737-þotna hleypt af
stokkunum en þeim er ætlað að
mæta þörfum flugfélaga nokkuð
fram á næstu öld. Flugvélar í þeirri
fjölskyldu eru af undirtegundunum
-600, -700, -800 og -900, allt eftir
sætafjölda.
Fyrstu flugvélarnar af þessari
kynslóð voru afhentar sl. haust.
Þær eru búnar nýjum vængjum, af-
kastameiri en jafnframt sparneytn-
ari hreyflum og geta því flogið bæði
hraðar, hærra, lengra, ódýrar og
verða lágværari en systur sínar
eldri. Hækkar farflugshæð úr 37
þúsundum fetum í 41 þúsund fet og
flugdrægnin verður 5.900 kílómetr-
ar eða 1.700 kílómetrum lengri en
t.d. 737-400.
825 Boeing-737 þotur
jafnan á lofti
Samkvæmt upplýsingum
Boeing-verksmiðjanna eru á
hverju augnabliki a.m.k. 825 737-
þotur á lofti og flugvélar þessarar
tegundar fara á loft á sex sekúndna
fresti. I júní í hitteðfyrra höfðu
flugvélar af þessari tegund flutt
um 4,3 milljarða farþega eða sem
svarar helmingi alls íbúafjölda
jarðarinnar. Þá voru þær jafnframt
búnar að leggja að baki um 27
milljarða kílómetra eða sem svarar
130 ferðum fram og til baka frá
jörðinni til sólarinnar. Alls hafa
-/elinei
Nærfatnaður
af bestu gerð
737-flugvélar farið í 73 milljónir
flugferða, stuttar eða langar.
Þotur af gerðinni Boeing-737 eru
nú í þjónustu 250 flugrekstraraðila
í 95 löndum. Þó flugvélamar séu
settar saman í verksmiðjum Boeing
við Seattle smíða rúmlega 1.200
fyrirtæki um heim allan hluti í flug-
vélarnar, en í hverri þotu er um ein
milljón parta.
, „ Morgunblaðið/Boeing
ÞRJUÞUSUNDASTA Boeing-737 þotan kveður Seattle og heldur til heimavallar Alaska Airlines í Anchoras'e.
BALENO WAGON 1,6 GLX OG GLX 4X4
baleno
Kynnstu töfrum Suzuki
Finndu hve rýmið er gott
Baleno Wagon hefur allt að
1.377 lítra farangursrými!
Þægilegur og óvenju rúmgóður, Baleno 4x4 hefur einstaklega
bæði fyrir bílstjóra og farþega góða aksturseiginleika
Það er meira rými en flestir þurfa að nota,
jafnvel þegarfarið er í sumarbústaðinn
eða söluferðina. Aftursætið skiptist 40/60.
Krókar binda niður farangurinn, draghlíf
hylur hann og aðskildar hirslur eru inn-
feldar í gólf. Baleno Wagon er gerður til
flutninga.
í Baleno Wagon er nóg fóta-, höfuð-
og olnbogarými fyrir bílstjóra og
farþega, jafnvel þótt stórir og stæði-
legir séu! Vel bólstruð sætin veita
góðan stuðning á langferðum og
hljóðeinangruð yfirbyggingin heldur
vélar- og vegahljóðum í algjöru
lágmarki. Það gerir ferðalagið enn
ánægjulegra.
Og líttu á verðið:
WAGONGLX 1.445.000 KR.
WAGON GLX 4x4 1.595.000 KR.
Fjórhjóladrifnir Baleno Wagon hafa
RBC fjöldiska tengsli sem sér um að
færa afl milli fram- og afturhjóla eftir
því sem aðstæður krefjast. RBC
tengslið eykur veggrip í beygjum og
brekkum og bætir jafnvægi við
hemlun. ..v/E
96 hestafla, 16 ventla
vél með fjölinnsprautun
Baleno Wagon er hagkvæmur í
rekstri og sameinar mikið afl og litla
eyðslu. Suzuki hönnun tryggir bestu
eldsneytisnýtingu við allar aðstæður.
$ SUZUKI \ ALLIR fsuzukA
SUZUKI BlLAR ERU MEÐ 2 ÖRYGGIS- LOFTPÚÐUM. AFLOG I . ÖRYGGIJ
SUZUKI SðlUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00.
Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. ísafjörður: Bilagarður ehf„
Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.