Morgunblaðið - 14.03.1998, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Særast í spreng--
ingu í A-Jerúsalem
Jerúsalem. Reuters.
Viðræður um framtíð
Norður-Irlands
Sinn Fein
reiðu-
búinn
South Orange í Bandaríkjunum. Reuters.
GERRY Adams, leiðtogi Sinn
Fein, sagði á fimmtudag að flokkur
sinn væri reiðubúinn að mæta aft-
ur til viðræðna um frið á Norður-
írlandi, eftir að hafa verið meinuð
þátttaka í 18
daga vegna
meintrar aðildar
írska lýðveldis-
hersins (IRA),
sem tengist Sinn
Fein, að morðum
í Belfast.
„Ég held að
þetta sé ekki
spurning um
hvort heldur
hvenær,“ sagði
Adams við upphaf sex daga heim-
sóknar til Bandaríkjanna. „Okkur
var það á móti skapi að okkur
skyldi vísað frá viðræðunum.“
David Trimble, leiðtogi flokks
Sambandssinna Ulster, sem fylgj-
andi er forræði Breta á Norður-Ir-
landi, átti í fyrrakvöld fund með
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og varaði þá við því að flokk-
ur sinn teldi koma til greina að
mótmæla því að Sinn Fein fengi að
taka aftur þátt í viðræðunum.
Sinn Fein, líkt og IRA, berst fyr-
ir endalokum breskra yfirráða á N-
Irlandi. Ráðstefna um framtíð hér-
aðsins hefur staðið í Belfast að
undirlagi írskra og breskra stjóm-
valda með þátttöku stjórnmála-
flokka deiluaðila. Adams sagði í
gær að hann hefði átt fund með
öðrum leiðtogum Sinn Fein og
hefðu þeir komist að „eins konar“
samkomulagi um að taka aftur þátt
í viðræðunum.
Drög fyrir páska?
írar og Bretar vænta þess að
drög að samkomulagi í deilunni
liggi fyrir um páska. Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, átti á
fimmtudagsmorgun fund með Ad-
ams og sagði eftir hann að sam-
komulagsdrög væru „hræðilega
skammt undan“.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
aflýsti öllum fundum sínum í gær
vegna barkakýlis- og barkabólgu.
Talsmenn forsetans sögðu að
Jeltsín tæki inn sýklalyf vegna
veikindanna og væri nokkuð rám-
ur. Fréttin olli í fyrstu nokkrum
óróa á fjármálamörkuðum í Rúss-
landi en litlar breytingar urðu á
gengi verðbréfa.
Með kvef og hæsi
Fréttastofan Interfax hafði eftir
skrifstofustjóra forsetans, Valentín
Júmashev, að Jeltsín hefði fengið
kvef og væri „svolítið hás“. Þýski
þingmaðurinn Rudolf Seiters, sem
ætlaði að ræða við Jeltsín í gær,
hafði eftir Anatolí Tsjúbajs, aðstoð-
arforsætisráðherra Rússlands, að
forsetinn hefði fengið flensu á
fimmtudag.
Heimildarmenn í Kreml sögðu
að embættismenn þar tækju frétt-
SPRENGJA sprakk í Austur-Jer-
úsalem í gærmorgun, þar sem
arabar eru í meirihluta, og særði
fjóra, að því er lögregla í ísrael
greindi frá. ísraelskir lögreglu- og
hermenn voru í viðbragðsstöðu í
gær vegna óeirða sem brotist hafa
út á Vesturbakkanum undanfama
tvo daga í kjölfar þess að ísraelskir
landamæraverðir skutu þrjá Pal-
estínumenn til bana skammt frá
Hebron á miðvikudagskvöld.
Lögregla sagði að tvö ungmenni
hefðu verið meðal þeirra sem særð-
ust, enginn væri alvarlega meidd-
ur. Sprengjan sprakk skammt utan
inni með ró og hefðu ekki miklar
áhyggjur af veikindum Jeltsíns.
Hann hefði fengið hósta á fimmtu-
dagskvöld þegar verið var að taka
upp útvarpsávarp hans og búist
væri við að hann færi ekki aftur á
skrifstofu sína í Kreml fyrr en eftir
að minnsta kosti viku. Hann gæti
verið frá vinnu í hálfan mánuð ef
hann fengi alvarlega flensu.
Hefur ekki áhrif
á hjartað
Rússneskir fjölmiðlar sögðu að
líkamshiti Jeltsíns væri eðlilegur
og hann dveldi í embættisbústað
nálægt Moskvu. Forsetinn hefur
a.m.k. tvisvar sinnum fengið
hjartaáfall og gekkst undir hjarta-
aðgerð árið 1996 en sérfræðingar
segja að engin hætta sé á að barka-
kýlis- og barkabólga hafi áhrif á
hjartað. Meðferðin ætti að taka
eina eða tvær vikur.
við Damaskushlið Gömlu borgar-
innar, og tjáði lögreglustjóri, Yair
Yitzhaki, fréttamönnum að í henni
hefðu verið 300-400 grömm af
sprengiefni. Sagði Yitzhaki að
sprengjan liti út „eins og hún hefði
verið gerð fyrir hryðjuverka-
menn“.
Landnemar að verki?
Yitzhaki sagði að ekki lægi ljóst
fyrir hvert skotmarkið hefði verið.
Lögregla teldi koma til greina að
ætlunin hefði verið að flytja
sprengjuna til vesturhluta borgar-
innar þar sem ísraelar eru í meiri-
LOFTSTEINNINN 1997 XFll
mun alls ekki rekast á jörðina ár-
ið 2028, að mati bandarfsku geim-
ferðastofnunarinnar (NASA) og í
versta falli segir stofnunin, að
beina megi honum framhjá með
því að skjóta stórri sprengju á
hann.
Alþjóðastjarnfræðisambandið
(IAU) tilkynnti í fyrrakvöld, að
XFll, hinn nýfundni loftsteinn,
hefði verið flokkaður með hlutum
á ferð í alheiminum sem jörðinni
stafaði hætta af. í þeim flokki eru
108 geimhlutir. Búast mætti við
að loftsteinninn færi framhjá
jörðu árið 2028 í aðeins 42.000 km
fjarlægð en vegna hugsanlegrar
reikningsskekkju vegna fjarlægð-
ar á þessari stundu gæti hann alit
eins rekist á jörðina og haft mikla
eyðileggingu f för með sér.
VerðurXFll sprengdur
framhjá jörðu?
Þessum útreikningum er NASA
ekki sammála, að sögn Dons Sav-
age, talsmanns stofnunarinnar.
„Nýjustu útreikningar okkar sýna
að hann muni fara framhjá f
960.000 kílómetra fjarlægð,"
sagði Savage. Er það talsvert utar
en tunglið, sem er á 384.000 kíló-
hluta „og einnig kemur til greina
að einhverjir gyðingar hafi búið
hana til,“ sagði Yitzhaki.
Háttsettir, palestínskir embætt-
ismenn sökuðu ísraelska landnema
um að hafa komið sprengjunni fyr-
ir til þess að valda óróa áður en
múslímar byrjuðu bænahald. Ahm-
ed Abdel-Rahman, aðalritari
palestínsku heimastjómarinnar,
sagði að staður og stund spreng-
ingarinnar benti til þess hver hefði
staðið að henni. Landnemamir
hefðu gert það til þess að gefa her
sínum tilefni til að tmfla bænahald
múslíma.
metra hárri braut frá jörðu. Á
þessari stundu telur NASA því
nær engar lfkur á árekstri loft-
steinsins við jörðina.
Háttsettur sérfræðingur þjá
NASA, Don Yeomans, segir, að
auðveldlega megi breyta stefnu
XFll með sprengju þann veg að
hann fari örugglega framhjá
jörðu. „Við búum nú þegar yfir
tækni til þess að senda stóra
sprengju, svo sem kjarnorku-
sprengju, út í geiminn með geim-
flaug," sagði Yeoman. „Með því
að sprengja hana í hæð yfír stein-
inum sem jafngildir þvermáli
hans mætti hægja nógu mikið á
ferð XFll til að tryggja að hann
fari framhjá jörðu," bætti hann
við.
Yeoman sagði að kjörið væri að
reyna þessa tækni á XFll. Gera
þyrfti ráðstafanir af því tagi sem
fyrst því of seint væri að grípa til
sprengingar af þessu tagi einu til
tveimur árum fyrir hið væntan-
lega stefnumót.
Steinninn er á sporöskjulaga
braut um sólina og er 21 mánuð f
hverri hringferð. Það þýðir að
hann á eftir að skera sporbraut
jarðarinnar um sólu með reglu-
legu millibili.
Finnska
stjórnin
hélt velli
FINNSKA stjómin stóð af
sér vantrauststillögu á þingi í
gær og er það í níunda sinn
sem tillaga um vantraust er
borin upp og felld frá því
stjóm Paavos Lipponens tók
við völdum 1995. Miðflokkur-
inn bar upp tillöguna í gær
vegna óánægju með niður-
greiðslur til landbúnaðar.
Hún hlaut aðeins 50 atkvæði,
121 þingmaður greiddi mótat-
kvæði, þrír sátu hjá og 25
þingmenn voru fjarverandi.
Aukin
þungun
stúlkna
ÞRIÐJA árið í röð fjölgar
breskum stúlkum sem verða
þungaðar fyrir 16 ára aldur,
samkvæmt opinbemm tölum,
sem birtar voru í gær.
Svokölluð „fjölskyldusamtök"
bmgðust við með því að
hvetja til þess að kynfræðslu í
skólum yrði hætt. Þykir
bresku stjórninni upplýsing-
amar gera væntanlegar til-
lögur sínar um leiðir til að
draga úr þungun ungra
stúlkna enn meira aðkallandi.
Árið 1996 urðu 8.829 breskar
stúlkur undir 16 ára aldri
ófrískar og hafði fjöldinn ekki
verið meiri í 11 ár eða frá 1985
er þær vom 9.406 talsins. Af
þeim vora 459 stúlkur undir
14 ára aldri, tæplega 2.000 14
ára og rúmlega 6.300 15 ára.
Bretar eiga nú metið í Evrópu
hvað varðar hlutfall þungunar
meðal stúlkna 16 ára og yngri,
eða 9,4 á hvert þúsund árið
1996.
Swissair
bannar
reykingar
SVISSNESKA flugfélagið
Swissair hefur ákveðið að
banna reykingar um borð í
flugvélum sínum á öllum áætl-
unarleiðum félagsins, stuttum
sem löngum, frá 1. júm'. Sagði
félagið rannsóknir sýna, að
80% farþega félagsins, þ.á m.
stórreykingamenn, vildu að
flugvélamar yrðu reyklausar.
Sakaruppgjöf
ANC-manna
ógilt?
SANNLEIKS- og sáttanefnd-
in í Suður-Afríku óskaði eftir
því í gær að dómstóll ógilti
sakaruppgjöf sem nefndin
hafði veitt 37 háttsettum fé-
lögum í Afríska þjóðarráðinu
(ANC), þeirra á meðal Thabo
Mbeki varaforseta og væntan-
legum arftaka Nelsons Mand-
ela forseta.
Nefndin hafði veitt mönn-
unum sakamppgjöf vegna
ótilgreindra mannréttinda-
brota ANC á tímum aðskiln-
aðarstefnunnar án þess að
þeir væm yfirheyrðir eða
skýrt væri frá því hvaða glæpi
þeir hefðu framið. Þjóðar-
flokkurinn mótmælti sakar-
uppgjöfinni og hafði sjálfur
óskað eftir því að henni yrði
hnekkt.
Gerry Adams
1337 Dec 6 V Uaq: 19.2
Díscovery Jím Scotti Rate: 0.35 Deg/Dy Areo: 100“ XI00”
Obse.rvation Spccewatch 0.9
Meter Telescope RA: 07:5S:2S
Kítt Peúk, A2 Dec: 4-13:31:16
Reuters
STJÖRNUFRÆÐISTOFNUN Arizona-háskólans hefur sent frá sér þessa mynd af loftsteininum 1997 XFll.
Gulu örvarnar vfsa á steininn, sem mun fara framhjá jörðu f 960.000 km fjarlægð árið 2028, að sögn NASA.
Stofnunin telur nær útilokað að hann skelli á jörðinni eins og Alþjóðasljömufræðistofnunin (IAU) sagði í
fyrradag að hugsanlega gæti átt sér stað.
Jeltsín aflýsir
fundum vegna
veikinda
Moskvu. Reuters.
Engin hætta sögð af
loftsteininum XFll
Washington. Reuters.