Morgunblaðið - 14.03.1998, Side 30

Morgunblaðið - 14.03.1998, Side 30
30 LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 „Er fúsjón í kvöld mamma?“ Nú er hugtakið „fúsjón“ ekki lengur einkaeign eðlisfræði og tónlistar, heldur hefur það einnig slegið í gegn í matargerð- inni, eins og Sigrún Davíðsdóttir rekur með dæmum. KANELSTENGUR, stjörnuanis, sítrónur, rauðlaukur, chili og döðl- ur: Allt er þetta girnilegur kostur í ýmsa rétti, eða saman sem uppi- staða í góða kryddsultu. BÆÐI í eðlisfræði og tónlist hefur enska orðið „fusion“ löngu unnið sér hefð sem fagheiti yfir samruna krafta eða tóna. Undanfarið hefur það svo skotið upp kollinum í matar- gerð, reyndar orðið ærlegt tískufyr- irbæri þar, svo það er enginn kokkur með kokkum, sem ekki kennir sig við „fúsjón“. Ómögulegt að tolla í matar- tískunni annars. Orðið vísar oftast til matargerðarlistar Astralíu, þar sem lýstur saman vestrænum og austurlenskum áhrifum. í „fú- sjón“-mat blandast vest- ræn og austur- lensk hráefni og aðferðir, og útkom- an er vægast sagt æsileg. Svo mjög að eftir að þessi matargerðarstefna barst inn á heimilið þá spyrja af- kvæmin gjaman síðla dags með von- artón í röddinni: „Er „fúsjón" í kvöld, mamma?“ Auk þess sem þessi matargerðar- stefna lifir góðu lífi í Astralíu þá hefur hún slegið í gegn í Evrópu út frá London, eðhlegum áfangastað Ástra- la á leið sinni út í heiminn. Par er það einkum veitingastaðurinn Sugar Club og kokkur hans, Peter Gordon, sem hefur hafið merki stefnunnar á loft og enn frekar útbreitt það eftir að hafa gefið út The Sugar Club Cookbook í fyrra. Tvímælalaust ein besta breska kokkabókin það árið. En eins og með aðrar tískustefnur þá fer hún auðvit- að í taugamar á sumum, sem hrista hausinn yfir tilhugsuninni um ítalskt pasta með kjötkássu í karrí og mangóchutney ... en það er hægt að gera gott betur en það. En þó stefn- an hafi þama öðlast nafn þá er ekki þar með sagt að hennar gæti ekki víðar. Fyrir rúmum tveimur árum snæddi ég ótrúlega góða og spennandi máltíð á litium stað í Soho í New York, sem heitir 32 gráð- ur norður, eða eitthvað í þá áttina og er í Spring Street, nyög áhugaverðri matargötu. Staðinn valdi ég eftir að hafa lesið mig í gegnum slangur af matseðlum nærhggjandi veitinga- húsa, en féh íyrir lofaðri blöndu af Kyrrahafsmatargerð og bandarískum hefðum. Orðið ,fiúsjón“ var hvergi nefiit, en matargerðin þama var í raun hreinræktuð í þessa átt. í Kaupmannahöfn keppast nýir og gamlir staðir að kenna sig við þessa tísku, en ég hef hingað tíl ekki fundið neinn, sem mér finnst alveg standa við fyrirheitin, en hef heyrt frá áreiðanlegum smekkmanni að Etcet- era í Hovedvagtsgade rétt við Kóngsins nýja torg standi undir því að kenna sig við þessa stefnu. Pað sem gerir „fúsjón“ svo spenn- andi er sumsé að þar lýstur saman ólíkum menningarheimum, einkum þannig að einfóld matargerð er örv- uð með austurlensku kryddi, mest í ætt við tælenskan mat, gjarnan með nýju sítrónugresi og kóríanderblöð- um, að ógleymdri kókosmjólk og nýju engifer. Kanell, stjörnuanís og chili tilheyrir, en líka rauðlaukur og dísætir ávextir eins og döðlur, jafnt í salta sem sæta rétti, að ógleymdum sítrónum. Eftirréttir úr ávöxtum eða súkkulaði eru líka kryddaðir og ekki má gleyma að grænmetissúpur öðl- ast nýjar víddir innan þessarar stefnu. Svo er bara að láta hug- myndaflugið geisa og þá er ekki ósennilegt að fjölskyldumeðbmir fari vongóðir að kasta fram þeirri spurn- ingu hvort það sé kannski „fúsjón" í kvöld... Góða skemmtun! Sætsúr engiferlaukur Byrjum á einhverju afar einföldu eins og sætsúrum engiferrauðlauk. Laukinn getið þið snætt heitan eða kaldan og sem meðlæti með glóðar- MORGUNBLAÐIÐ steiktu kjöti, skinku eða hamborgar- hrygg ef einhver á jólaafganga, sem þarfnast nýs búnings. Bæði í franskri og ítalskri matargerð tíðkast að láta lauk malla með ediki og sykri og nýta sem meðlæti á margvíslegan hátt, en hér er það engiferið sem sér fyrir austurlenskum keim og færir réttinn yfir á „fúsjón“-stigið. Rétturinn er bestur ef laukurinn fær að standa í sólarhring og jafna sig, þó það sé ekki nauðsynlegt. Ef þið berið laukinn fram kaldan á hann ekki að koma beint úr kæliskápnum, því kuldinn deyfir bragðið. Hér er notaður rauð- laukur, sem er tvímælalaust besti kosturinn, en venjulegur laukur er engin frágangssök. Skammturinn er ríflegur, enda geymist laukurinn vel í kæliskápnum. Um 5 cm biti af engifer, afhýddur ___________og fínsaxaður_____________ _______4 fínsöxuð hvítlauksrif_______ 1 kg rauðlaukur, afhýddur og skor- ___________inn í þunna báta__________ ólífuolía eða vínberjakjarnaolía 'A-V.'2 dl edik, helst ítalskt balsamico - _______annars vín- eða eplaedik______ ___________2 msk hunang______________ ___________nýmalaður pipar___________ nokkur saltkorn ef ykkur sýnist svo 1. Látið engifer og hvitlauk stikna í svoh'tilh oh'u og bætið rauðlauknum út í, ásamt ediki og hunangi. Látið þetta nú malla undir loki þar til laukurinn er mjúkur í gegn. Edikslögurinn á að vera þykkur, svo ef mikih vökvi er í pottinum látíð þá laukinn sjóða við háan hita án loks þar til vökvinn er orðinn sirópskenndui- og þykkur. Bragðið á og athugið hvort ykkur finnst bragðið nógu sætt og nógu súrt. Bætið annars í edikskvettu eða hunangi. Malið ögn af pipar yfír, gjaman úr kvöm sem malar gróft, um leið og þið berið laukinn fram, hvort sem hann er heitur eða kaldui-. Gulrótasúpa Sykurklúbbsins Eins og nafnið bendir til á súpan rætur að rekja til áðumefnds veit- ingastaðar í London og bókar Peter Gordon. Hér eru notaðar gulrætur en á svipaðan hátt má nota rauðróf- MATAR6E RÐAR LIST Síðasti draumurínn íbænum DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns ÉG FÓR með syni mínum að sjá Síðasta bæ- inn í dalnum hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu. Leikrit sem var stórkostlegt ævintýri, frá- bærlega útfært og aðstandendum til sóma. Það sem tók hug minn framar öðru var hversu draumkennd uppfærslan virkaði og hvemig senuskiptin minntu á myndbrigði draumsins. Pá snerti sá sannleikur ævintýrs- ins mig sem álfkonan benti okkur á í upphafi verksins, að án trúar manna á álfa gætu þeir ekki þrifist og flosnuðu upp, hyrfu úr nábýli manna og minni. Þessi sannleikur gildir einnig um drauminn og þá staðreynd að rækti menn ekki drauma sína, næri þá og klæði, hverfa þeir úr manninum og eftir situr innan- tóm skel án tengsla við þann innri veruleika sem lífið er spunnið úr. Draumurinn er brúin milh þess hulda og sýnilega, milli heimsins sem var og þess sem verður. Hann er boðtæki innri veruleika til hins ytri, þess ómeðvitaða tii þess meðvitaða, þess andlega til þess ver- aldlega og hann veitir þá fyllingu sem menn sakna og sækja sér í tilbúinn heim fíknar. Draumurinn er alltaf gildur, hann hefur eng- an holan hljóm, engar gervilausnir nútíma ginnungagaps að bjóða og ekkert selsemgull að selja. Hann er sú lind sem aldrei þrýtur þorstlátum þegnum þessa heims. „Dulrún Draumland“ sendi þessa tvo Mér fannst kona sem vinnur mqð mér hafa bamasokka í veskinu sínu. Þetta voru sokk- ar af börnum hennar þegar þau voru lítil, þessi kona er búin að missa eitt bama sinna. Ég var undrandi yfir þessum sokkum í veski, en svo kom svarið. Sonur hennar á unglings- aldri setti sokkana á gólfið í gömlum bílskúr. Búið var að klippa neðan af sokkunum, þá mokaði hann hrærðri steinsteypu í sokkana þannig að þeir urðu mót fyrir steypusokka. Sömu nótt dreymdi mig að ég horfði á stein- blokk í rigningu, á miðsvölum svaf lítill dótt- ursonur minn. Þá fannst mér ég hitta konu sem á mjög veikt barnabarn en hún var með stóran blómvönd af hvítum og fjólubláum fresíum. Hún klauf 1/3 af vendinum, rétti mér og sagði: „Láttu þetta hjá honum litla þínum, ekki mun veita af.“ Ráðning Við fyrstu sýn gætu draumar þínir virst fyrir erfiðleikum en þær áhyggjur sem þú speglar í draumunum eru óþarfar. Fyná draumurinn sýnir áhyggjur (sokkarnir og steypan) en búið er að klippa neðan af þeim (áhyggjunum aflétt) og gera úr þeim mót, sem þýðir að reynsla annarra styrkir þig og eflir á göngunni fram um veg. Seinni draumurinn sýnir einnig áhyggjui- þínar um annars hag, en fresíumar eða freysliljurnar segja að sá hinn sami sé ágætí astur ása og gott sé að heita á hann til árs og friðar. Draumur „Jónu“ Mig dreymdi manninn minn en hann lést fyrir nokkrum árum. Mér fannst vera að- faranótt jóladags og ég vakna við hljóð í dráttarvél. Þá vissi ég að það var hann og ég hugsaði „hann hlaut að koma“. Mér fannst ég líta út um gluggann og sá hann við stýrið á dráttgrvélinni. Hann var í kuldagalla og hélt á pakka, ég flýtti mér upp að opna fyrir honum og ég hlakkaði til að faðma hann að mér. Ég var í náttfötum, sokkum og með vettlinga, á leiðinni hugsaði ég af hverju ég væri í sokkum og með vettlinga. Þá hrökk ég upp við mikið bank sem var í draumnum. Ráðning Draumar spegla sálarlífið sem annað og Mynd/Kristján Kristjánsson Á ÞRIÐJA stigi svefnsins, draumstigi. þessi draumur þinn lýsir vetrardrunganum sem sækir á mörg okkar. Hann sýnir einnig löngun til breytinga og þörf þína fyrir gleði- leg umskipti. Þungu höggin sem vöktu þig benda til að þú getir átt von á snöggri breyt- ingu. „Draumar Mörsu“ 8.1. (98 Var á ferðalagi með hóp af fólki. Var far- arstjóri. Vorum líklega á leið í Þórsmörk í fjallaferð. Stoppuðum í fjallaskála. Allfr í lopapeysum og gamaldags útivistarfatnaði. Einhver klíkumyndun var í gangi í hópnum (t.d. einn núverandi vinnufélagi) en ég leiddi það hjá mér og reyndi að tala við þá sem voru einir á ferð, til að fá þá í hópinn, sér- staklega einn óásjálegan mann. Allt í einu vorum við að keyra í rútu á of mikilli ferð í gegnum mannfjölda og mér fannst fólkið eiga fótum fjör að launa. Skammaði bílstjórann í rútunni. Sáum borg við vatn með miklum háhýsum, fallega og snyrtilega borg. Hélt fyrst að við værum komin til Reykjavíkur en sá að það gat ekki verið. Stóð nú í einhvers konar rúllustiga á leið inn í borgina og við hlið mér var mynd- arlegur, dökkhærður maður, vel klæddur í jakkafótum með frakka í hendinni. Ég spurði hann um þessa borg og hann svaraði mér, en ég mundi ekki svarið þegar ég vaknaði. 14.1. ‘98 Var með manni sem ég þekki, syni mínum og fleira fólki í hvítu húsi. Skyldfólk manns- ins var húsráðendur. Var sagt að heimili mitt væri að brenna og verið væri að bjarga hús- gögnunum. Allir voru á leið að þessum bruna og fólk að hjálpa mér að finna skó. Ég leitaði að kunningja mínum og fann hann sofandi í bakherbergi. Vakti hann og fékk hann með mér til að bjarga. Mér fannst ég hafa fengið viðvörun frá vinkonu minni um þennan bruna en ekki hlustað. Ráðning Báðir draumarnir eru þér til viðvörunar um að vera ekki að dufla við hluti sem þú átt í raun ekkert með. Fyrri draumurinn lýsir löngun þinni til að stjórna öðrum (fjallaferðin) og ráðskast með annarra hag, það veit á árekstra (rúta á of mikilli ferð), oflátungshátt (háhýsin) og launin eru tómt hjarta (mundi ekki svarið). Seinni draumurinn lýsir svo því sem ger- ist sinni maður ekki aðvörunum eigin sálar um sinn hag og annarra. • Þeir lesendur sem vilja fá drauma sfna birta og ráðna sendi þá með fullu nafni, fæðingar- degi og ári ásamt heimilisfangi og dulnefni til birtingar til: Draumstafir Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavfk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.