Morgunblaðið - 14.03.1998, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ
42 LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998
AÐSENDAR GREINAR
hafast þau að
VASKLEG fram-
ganga Árna Sigfússon-
ar við að bæta hag ís-
j, lenskr a bifr eið aeig-
yenda hefur vakið verð-
skuldaða athygli. Bar-
átta hans sem formað-
ur FÍB hefur leitt til
lækkunar bifreiða-
trygginga um allt að
30%. Ég þekki það af
eigin raun úr mínu
fvyimili.sbókhaldi. Þessi
lækkun hefur vita-
skuld ekki aðeins náð
til reykvískra heimila
heldur landsmanna
allra. Utgjöld almenn-
ings vegna trygginga
eru yfirleitt veruleg. Virkari sam-
keppni á tryggingamarkaðnum
hefur því skilað heimilunum í
landinu drjúgri kjarabót.
I ljósi þessara staðreynda vekja
heiftúðug viðbrögð nokkurra aðila
við framgöngu formanns FÍB
verulega furðu. Því er haldið fram
að Arni Sigfússon sé með baráttu-
aðferðum sínum að nota for-
ijjjennsku í FÍB í pólitískum til-
gangi vegna komandi borgar-
stjórnarkosninga. Það
vita allir sem fylgst
hafa með kröftugri
framgöngu Arna að
barátta hans fyrir
bættum hag bifreiða-
eigenda er ekki nýtil-
komin, enda hefur
Arni gegnt starfi for-
manns FIB síðastliðin
þrjú ár, við góðan
orðstír. Það er ekki
fyrr en nú að árangur
Arna virðist ýmsum
aðilum sérstakur
þyrnir í augum, svo
Svanhildur Hólm einkennilegt sem það
Valsdóttir nú er. Getur verið, að
sá ávinningur sem
hann hefur náð sem formaður FIB
veki í einhverjum tilvikum óþægi-
legar spurningar og viðkvæmni
þegar árangur hans er borinn
saman við árangur R-listans á því
kjörtímabili sem nú er að líða?
Álögur auknar um 30%
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri aftók það með öllu
fyrir síðustu kosningar að R-list-
inn ætlaði sér að hækka skatta.
Þegar svo skammt er til kosninga
í borginni er forvitnilegt að bera
saman orð og efndir í þessu efni.
Eitt fyrsta verk Ingibjargar
Sólrúnar var að beita sér fyrir
stórhækkun fasteignagjalda með
svokölluðum holræsaskatti. Fast-
eignagjöld hækkuðu við það að
Þrátt fyrir ríkjandi
góðæri á valdatíma R-
listans, segir Svanhild-
ur Hólm Valsdóttir,
hafa öll þessi loforð
verið svikin.
meðaltali um 26% en um 60% hjá
tekjulágum öryrkjum og ellilífeyr-
isþegum. Strætisvagnafargjöld
voru stórhækkuð og sérstaklega
fargjöld aldraðra, eða um 100%.
Þá voru dagvistar- og leikskóla-
gjöld hækkuð verulega, sömuleiðis
hiti og rafmagn, aðgangseyrir að
sundstöðum, auk gjalds fyrir þjón-
ustu i félagsmiðstöðvum aldraðra
og svo mætti áfram telja. Þá hafa
arðgreiðslur til borgarinnar frá
eigin fyrirtækum, svo sem Hita-
veitu og Rafmagnsveitu, verið
hækkuð um yfir 100% frá því að
Ingibjörg Sólrún tók við stjórn
borgarinnar. En Ingibjörgu Sól-
rúnu þykir ekki nóg að gert. Hún
hefur boðað stórhækkun á leigu af
íbúðum í eigu borgarinnar. Sú
hækkun skal hins vegar ekki
koma til framkvæmda fyrr en eftir
kosningar.
Þegar þessar hækkanir R-list-
ans eru teknar saman kemur í ljós
að heildarálögur á borgarbúa hafa
verið auknar um nálægt 30%.
Áframhaldandi halli
og skuldasöfnun
Ætla mætti að stórauknar álög-
ur R-listans hefðu skilað sér í
bættum hag borgarinnar og niður-
greiðslu skulda. Við skoðun á árs-
reikningum borgarinnar fyrir liðin
ár kemur í ljós að því fer fjarri að
sú sé raunin. í fjárhagsáætlun R-
listans fyrir árið 1998 er t.d. gert
ráð fyrir því að líklegur halli á
borgarsjóði á árinu 1997 verði á
annan milljarð króna eða 8-9% af
tekjum. Á árinu 1998 er gert ráð
fyrir svipuðum halla. Þrátt fyrir
það góðæri sem nú ríkir og stór-
hækkun á sköttum og gjöldum er
því gert ráð fyrir áframhaldandi
halla. Eyðsla um efni fram hefur
vitaskuld í för með sér samsvar-
andi hækkun á skuldum borgar-
innar.
I huga almennings er það eitt
meginhlutverk stjórnmálamanna
að vinna að almannahag. Traust
það, er kjósendur kunna að bera
til stjórnmálamanna, er undir því
komið að orð þeirra og efndir fari
saman. Ingibjörg Sólrún lofaði
fyrir síðustu kosningar að hækka
ekki skatta á kjörtímabilinu. Hún
ætlaði einnig að reka borgarsjóð
með afgangi og lækka skuldir.
Þrátt fyrir ríkjandi góðæri á
valdatíma R-listans hafa öll þessi
loforð verið svikin.
Olíkt hafast þau að
Þegar árangur Árna Sigfússon-
ar, formanns FIB, er borinn saman
við árangur Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur á síðasta kjörtímabili
kemur í ljós að álögur á borgarbúa
hafa að meðaltali hækkað um 30%.
Á sama tíma tókst Árna Sigfússyni
að lækka bifreiðatryggingar heim-
ilanna um 30%.
Það má því með sanni segja að
ólíkt hafist þau að.
Höfundur er nemi.
Fasteigna- og skipasala Austorlands ehe.
" tryggir farsœl fasteignaviðskipti - Jónas A. Þ. Jónsson hdl., lögg. fasteignasali
Kaupvangur 2, Egilstöðura, sími 471 2090, fax 471 2426.
Fyrírtæki
Sport og útivöruverslun á
besta stað á Austurlandi.
Þetta er verslun í leiguhúsnæði, sem
þjónar viðskiptavinum um allt Austurland.
Er með umboð fyrir mörg þekkt vöru-
merki. Verslunin hefur getið sér gott orð
fyrir fjölbreytt vöruúrval og lipra þjónustu.
Afkoma þessa fyrirtækis er góð, og eru
miklar líkur á verulegri söluaukningu á
þessu ári, enda er þetta eina sérvöru-
verslunin af þessu tagi á stóru svæði.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Fast-
eigna- og skipasölu Austurlands.
Atvinnuhúsnæði
Miðvangur 5-7, jarðhæð
Egilsstöðum
Draumastaður viðskipta og verslunar.
Höfum fengið til sölumeðferðar jarðhæð
glænýrrar hótelbyggingar í hjarta bæjar-
ins. Hæðin selst annað hvort sem ein
heild eða skipt (tvo eða fleiri hluta. Selst
tilbúið undir tréverk, með fullfrágenginni
lóð og bílastæðum. Að auki er sorp-
geymsla og fl. sameiginleg með hótelinu.
. Nú er rétta tækifærið til þess að koma
upp starfsemi sem hentar bæði ferða-
mönnum sem og heimamönnum en
staðsetningin gerist vart betri. Nánari
upplýsingar á skrifstofu Fasteigna- og
skipasölu Austurlands.
Kauptún 2 - Fellabæ
Við þjóðveg nr 1
í alfaraleið getum við boðið upp á þetta
húsnæði sem selst í einum eða tveimur
hlutum. Húsið er stálgrindarhús og eru út-
veggir hlaðnir með svokölluðum Mývatns-
steini. Annar hlutinn skiptist í tvo sali sem
báðir henta vel undir hverskonar við-
gerðaþjónustu. Einnig tilheyrir þessum
hluta móttaka, skrifstofa og salemi. Hinn
hlutinn er nýrri, en lengi var starfrækt
prentsmiðja þar. Á efri hæð eru 3 skrif-
stofuherbergi, salerni og opið rými sem
geymir einnig lítinn eldhúskrók. 3ja fasa
rafmagn. Þetta er húsnæði sem býður
upp á óteljandi möguleika
Lagarfell 2 - Fellabær
Um er að ræða steinhús, sem byggt hef-
ur verið í þremur hlutum og eru þessir
eignarhlutar skv. Fasteignamati rlkisins
172,9 fm. Skv. teikningum er sameign
um 42 fm. Á efri hæð sem er um 150 fm
er veitingasalur, bar, salerni og eld-
húsaðstaða. Á neðri hæð sem er 22,8 fm
(án sameignar) er geymsla og hluti af
eldhúsi. Eigninni tilheyrir stór lóð og
bílastæði. Aðgengi að húsinu er mjög
gott en gengið er beint inn í húsið af
götu. Húsið er nú uppsett sem veitinga-
hús með eldhúsi, veitingasal og bar, en
auðvelt er að breyta húsinu að þeim
þörfum sem hentar. Hægt er að skoða
nýjan skiptasamning, teikningar o.fl. á
skrifstofu Fasteigna- og skipasölu Aust-
urlands.
Ný sending
Stuttir frakkar,
ítölsk buxnadress og dragtir
k&QýGafiihiMi
rJ Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.30, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Líkamsrækt, endurhæf-
ing og heilsuvernd ^
í Heilsustofnun NLFÍ
HEILSUHÆLI
NLFÍ í Hveragerði, nú
Heilsustofnun, var rek-
ið með litlum breyting-
um frá stofnun þess ár-
ið 1955 fram til ársins
1992. Þá voru gerðar
breytingar á starfsem-
inni og við rekstrinum
tók Heilsustofnun, sem
er einkastofnun í eigu
N áttúrulækningafélags
Islands. Þessar breyt-
ingar voru gerðar til að
laga starfsemina betur
að heilbrigðiskerfinu og
styrkja sérhæfða starf-
semi, jafnframt sem
tryggt var að hlúð yrði
að gömlum meðferðarhefðum og
áhugamálum náttúrulækninga-
manna. Með þessu var staða
Heilsustofnunar Náttúrulækninga-
félags íslands viðurkennd í ís-
lensku heilbrigðiskerfi.
Lífsgæði!
Öll höfum við mismunandi þarfir
og markmið í lífinu, sem við reyn-
um að ná. Sumt kemst í fram-
kvæmd, annað breytist af ýmsum
orsökum. Að hafa möguleika á að
gera það sem hvern mann langar
til er í hugum flestra merki um lífs-
gæði. Stundum verða tækifæri
okkar minni til að ná settum mark-
miðum, t.d. vegna sjúkdóma og
Vor
1998
É|P ^íj|P^
Mfc Jp, V
WARNEKS Kringlunni s: 553 7355
slysa. Einkenni sjúk-
dóma geta einnig kom-
ið fram við of mikið
andlegt eða líkamlegt
álag. Þetta leiðir til
þess að við höfum ekki
sömu tækifæri og áður
til að stunda vinnu,
heimili eða frístundir.
Þörf getur skapast á
að fá sérhæfða hjálp til
að bæta getu okkar og
styrkja það heilbrigða í
okkur svo að við getum
náð því sem við viljum
kalla lífsgæði.
Starfsemin
I Heilsustofnun er iðkuð bæði
sérhæfð og almenn endurhæfing.
Fjöldi sérhæfðra starfsmanna vinn-
ur þar nú. Starfandi eru meðal ann-
arra sjúkraþjálfarar, sjúkranudd-
arar, sjúkraliðar, læknar og hjúkr-
unarfræðingar, auk næringarfræð-
ings og sálfræðings. Sérfræðingar í
endurhæfingarlækningum, melt-
ingar- og hjartasjúkdómum starfa
við stofnunina. Á meðferðardeild-
um eru stundaðar baðlækningar
m.a. lækningajurtaböð, víxlböð og
leirböð auk annarra viðurkenndra
aðferða við endurhæfingu og gigt-
lækningar svo sem sjúkranudd og
sjúkraþjálfun. Góð heilsuræktarað-
staða er í Heilsustofnun þar sem
hægt er að iðka alhliða heilsurækt.
Einnig eru möguleikar á líkams-
þjálfun og göngutrimmi í stórbrot-
inni náttúrufegurð. Læknisfræði-
legar upplýsingar þurfa að fylgja
beiðni um dvöl í Heilsustofnun en
dvalarbeiðni þarf að koma frá
lækni. Með slíkum upplýsingum er
hægt að velja rétta meðferð og ráð-
leggja hæfilegan dvalartíma.
I framkvæmdastjóm Heilsu-
stofnunar, sem sér um daglegan
rekstur, eru framkvæmdastjóri,
hjúkrunarforstjóri og yfirlæknir.
Markmið og meðferð
Heilsustofnun NLFI hefur það
sem grundvallarmarkmið að bæta
andlegt og líkamlegt atgervi dval-
argesta og efla lækningamátt lík-
amans með heilsusamlegu liferni,
Heilsustofnunin, segir
Guðmundur Björnsson,
er tilvalinn staður fyrir
fólk með hvers kyns
sjúkdóma.
svo sem neyslu hollrar fæðu og lík-
amshreyfingu. Hér er beitt nýjum
og gömlum meðferðaraðferðum
þar sem byggt er á nýjustu vísind-
um og kunnáttu ásamt þeirri löngu
reynslu sem er til staðar í meðferð
óþæginda frá stoðkerfí. Mikil
áhersla er lögð á fræðslu og stuðn-
ing fyrir dvalargesti sem vilja
breyta um lífsstíl. Meðferð hefst
með nákvæmri greiningu á þörfum
hvers dvalargests til að geta skipu-
lagt endurhæfingu hans. Dvalar-
gestir taka þátt í dagskrá sem er
auðkennd ákveðnum „línum“.
Gerðar eru einstaklingsbundnar
áætlanir í meðferð og við útskrift
eru gefin ráð um framhaldið.
Markmiðið með „línum“ er fjór-
þætt:
Að sem flestir geti nýtt sér allt sem
í boði er.
Að samræma meðferð og fræðslu
dvalargestum í hag.
Að ná fram vinnuhagræðingu og
nýtingu í starfínu.
Að auðvelda dvalargestum yfirsýn
yfir meðferðar- og fræðsluþætti.
Reynsla og árangur
Reynslan sýnir að fólk vill breyta
lifnaðarháttum sínum vegna svo-
kallaðra „menningarsjúkdóma" svo
sem streitu, rangs mataræðis og
rangrar neyslu lyfja. Á undanfóm-
um árum hefur aukin áhersla verið
lögð á fræðslu með forvarnir í huga
og til að kenna fólki að skilja gang
og eðli sjúkdóma og læra að lifa við
það sem ekki er hægt að bæta lík-
amlega. Heilsustofnun NLFÍ í
Hveragerði á mikla framtíð fyrir
sér þvi hér hefur fólk sem þarfnast
meðferðar og endurhæfingar náð
miklum og góðum árangri.
Höfundur er yfirlæknir Heiisustofn-
unar NLFÍ í Hveragerði.
Guðmundur
Björnsson