Morgunblaðið - 14.03.1998, Side 44
44 LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR
Úps, aftur
sjómanna-
verkfall?
ALLTAF jafn
óvænt. Ekki nema
rúmlega ár síðan
'-Asamningar losnuðu. Og
ríkisstjómin sem hefur
með ítarlegri skýrslu
svokallaðrar þríhöfða-
> nefndar viðurkennt að
» sjómenn búi við full-
i komlega óviðunandi
5 réttarstöðu og samn-
- ingsbrot. Ríkisstjórnin
? hefur meira að segja
látið smíða lagafrum-
vörp til að taka á vand-
anum og fengið Þjóð-
hagsstofnun til að
reikna út að það sé
þjóðhagslega hag-
kvæmt að setja slík lög. Hvað er þá
^gð gerast? Lítum fyrst á hlut
. stjórnvalda og athugum svo hvað er
að gerast í samningamálunum.
Skilyrtar lagabætur
Sjávarútvegsráðherra datt það
snjallræði í hug að segja við sjó-
menn, að stjómvöld muni ekki taka
Það er miður að heil
starfsstétt fólks skuli
búa við það, segir
Arnar Guðmundsson,
í seinni grein sinni, að
stöðugt sé reynt að
grafa undan löglegum
kjarasamningum.
á því himinhrópandi óréttlæti, sem
lýst var í fyrri grein minni, nema
sjómenn afsali sér því eina vopni
sem vinnulöggjöfin tryggir þeim til
að knýja á um gerð kjarasamnings.
. Eftir að hafa viðurkennt vandann
og kynnt ítarlega áð þjóðarbúið hafi
ávinning af því að tekið sé á honum,
%ber þingmönnum siðferðileg skylda
til að gera eitthvað í málinu. Hvers
konar stjórnvald er það sem segir
við heila stétt manna: Þið megið
áfram búa við skipuleg samnings-
brot, réttleysi og skert atvinnuör-
yggi okkar vegna, nema þið afsalið
ykkur möguleikum ykkar til að fá
gerðan löglegan kjarasamning eftir
15 mánaða streð?
Við skulum ímynda okkur að ein-
hver samviskusamur þingmaður
kæmist að þeirri niðurstöðu að það
væri hlutverk Alþingis að tryggja
þegnunum viðunandi og réttláta
löggjöf og flytti frumvarpsdrög þrí-
höfðanefndarinnar á þingi. Myndi
, ríkisstjómin leggjast gegn eigin til-
'Úögum - tillögum sem hún segir
þjóðhagslega hagkvæma lausn á al-
varlegum vanda sem hún hefur í
reynd viðurkennt?
Heilsárstúrar frystiskipa
Sjómenn búa við þær alvarlegu
aðstæður að hluti viðsemjenda
Vor
1998
mW
HARM.ITS Kringlunni s: 553 7355
þeirra leitar allra leiða
við að rangtúlka kjara-
samninga þeiiTa. Bar-
átta sjómanna við að
fá fram löglegan og
undirritaðan kjara-
samning snýst ekki
síst um að fá fram
skýrari ákvæði um
fjölda atriða. Mörg
hver skipta sjómenn
sköpum og við skulum
nefna nokkur raun-
veruleg dæmi.
Hugmyndaríkum út-
gerðarmönnum frysti-
togara hefur dottið það
snjallræði í hug að
landa ekki alveg öllum
afla eftir hvern túr og segja að þar
með sé túmum ekki formlega lokið.
Vegna þessa telja þeir sig ekki
þurfa að gera upp við áhöfnina og
veita henni samningsbundið hafn-
arfrí. Dæmi eru um frystitogara
sem eru í sínum þriðja túr en út-
gerðin telur þetta allt einn túr.
Verði ekki girt fyrir þetta getum
við bráðum séð 12 mánaða túra og
mannskapurinn fær ekki að fullu
uppgert fyrr en í desember.
Stopp á heimleið
Þegar veiði á úthafsmiðum hefur
verið hvað slökust eru þess dæmi
að sjómenn hafi dólað norður í
Smugu vikum saman á kauptrygg-
ingunni einni saman. Eftir fimmtíu
daga túra á strípuðum kauptrygg-
ingartaxtanum hefur hugmyndarík-
um útgerðarmönnum dottið í hug
að á heimleiðinni sé upplagt að
staldra við innan landhelginnar í
aðra tíu til tuttugu daga til þess að
láta mannskapinn fiska upp í kaup-
trygginguna. Annars yrði útgerðin
að gera kauptrygginguna upp við
mannskapinn og greiða svo afla-
hlutdeild af því sem fæst í næstu
veiðiferð innan landhelginnar.
Þetta þýðir að vísu að túrarnir geta
lengst upp í ríflega tvo mánuði en
það bitnar jú bara á sjómönnunum
og fjöískyldum þeirra.
Nauðsyn samninga
Þetta eru aðeins tvö dæmi um
þau mál sem taka verður á. Það er
mjög miður að heil starfsstétt fólks
skuli búa við þá stöðu að stöðugt sé
reynt að grafa undan löglegum
kjarasamningum. Ekki skortir hug-
myndaflugið þegar kemur að því.
Eg á ekki von á því að lesendur
þurfi að íhuga stöðu sjómanna mjög
lengi til að átta sig á því að þeim er
nauðugur einn kostur að fá fram
skýr og ótvíræð ákvæði um stöðu
sína í kjarasamningi. Burtséð frá
því hvaða skoðanir hver og einn vill
hafa á tekjumöguleikum sjómanna
þegar best fiskast held ég að við
hljótum að viðurkenna að við svona
aðstæður ætlum við. engii annarri
stétt landsins að vinna.
Höfundur starfar hjá Alþýðusam-
bandi Islands.
Amar
Guðmundsson
Nýir tímar
SAMFYLKING fólks á
vinstri væng stjórnmál-
anna undir kjörorðun-
um jafnaðarstefna, fé-
lagshyggja og kven-
frelsi um allt land hefur
verið undri líkast og
boðar nýja tíma í ís-
lenskum stjórnmálum.
Samfylkingin boðar að
sá tími sem okkur hef-
ur dreymt um svo lengi
er í vændum, að um allt
land stai-fi stór, öflugur
og sannur jafnaðar-
mannaflokkur sem geti
ráðið hvort tveggja,
landsmálum og sveitar-
stjómamálum. Við
þekkjum gildi þess í Hafnarfirði þar
sem jafnaðarmenn hafa ráðið mestu
sl. tólf ár. Einfaldur samanburður á
t.d. æskulýðsstarfsemi og öldmnar-
þjónustu við Kópavog, fyrirmyndar-
bæ forsætisráðherra segir allt sem
segja þarf.
Mikill hugur var og er hjá flestum
alþýðuflokksmönnum í Hafnarfirði
að ná samfylkingu með öðmm jafn-
aðar- og félagshyggjumönnum. I
þessum áfanga tókst það ekki. Ef
vel verður haldið á spil-
um mun það þó gerast
á næstu misseram þó
ferlið verði annað. For-
ingjar flokkanna
beggja í Hafnarfirði og
félaga okkar í Jafnað-
armannafélaginu verða
þá að sitja á strák sín-
um og fara að hegða
sér eins og fullorðnir
menn sem meina eitt-
hvað með sameiningar-
og samfylkingartali.
Þeir hafa hegðað sér
eins og klíkugengi sem
hrópast á yfir einhverja
ímyndaða markalínu á
milli yfirráðasvæða
þeirra, mála skrattann á vegginn og
draga upp hina skuggalegustu mynd
af foringjum hinna sem þeir svo
þykjast vera laða til samstarfs.
Engan þarf að undra þó í Hafnar-
firði hafi fleiri ljón verið í vegi sam-
fylkingar en annars staðar. Það er
hreinn barnaskapur ef menn ímynda
sér að orð þeirra og persónulegar
árásir hver í annars garð séu ekki
hindranir fyrir samstarfi og sam-
fylkingu. Þeir foringjar samfylkling-
Unnur A.
Hauksdóttir
Engan þarf að undra
þótt í Hafnarfirði, segir
Unnur A. Hauksdóttir,
hafí fleiri ljón verið í
vegi samfylkingar en
annars staðar.
arhópsins sem vilja styðja okkur,
áköfustu samfylkingarsinnana innan
Alþýðuflokksins, verða að sýna að
þeir meini eitthvað með því. Tor-
tryggni og tilheyrandi strýðsyfirlýs-
ingar verða að víkja fyrir sáttfysi og
samstarfsvilja í verki.
Við alþýðuflokksmenn þurfum
síðan í þessu prófkjöri að gæta að
því að tryggja breidd í forystuliði
okkar og að samfylkingaröflin verði
meðal þeirra sem skipa efstu sæti
listans. Eg hef allnokkra reynslu af
landsmálum, bæjarmálum og af
verkalýðsmálum, auk þess að sitja í
stjórn fulltrúráðs Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði og hafa setið í bráð-
byrgðastjórn samfylkingar A-flokk-
anna. Atvinnumál, félagsmál og
samfylkingarmál eru því mín hjart-
ans mál.
Höfundur gefur kost á sér í próf-
kjöri Alþýðuflokksins i Hafnarfírði
og sækist eftir 3. sæti.
Prófkjör Alþýðuflokksins
í Hafnarfírði um helgina
GÓÐIR Hafnfirðing-
ar! Brátt líður að lokum
þessa kjörtímabils.
Þann 23. maí nk. fara
fram kosningar þar
sem kjósendur ákveða
hverjir leiða bæjarfé-
lagið inn í nýja öld. AI-
þýðuflokkurinn í Hafn-
arfirði hefur verið for-
ustuafl hér í bænum
síðustu kjörtímabilin og
stefnir á að svo verði
áfram.
Umhverfísmál -
skipulagsmál
Um næstu helgi gefst
þér, kjósandi góður,
kostur á að hafa áhrif á hveijir veljast
til forystu á framboðslista stærsta
sjómmálaaflsins í bænum.
Eg hef ákveðið að gefa kost á mér í
4. sæti listans. Með þátttöku minni vil
ég vinna að framgangi ýmissa mikil-
vægra málaflokka. Sérstaklega mun
ég leggja áherslu á umhverfismál,
skipulagsmál og bættar samgöngur.
Umhverfismál fá
stöðugt meira vægi í
okkar daglega lífi. Fólk
gerir sér betur grein
fyrir hversu mikilvægt
það er að ganga vel um
náttúmna. Það hefur
oft verið sagt að við
þörfnumst hennar en
hún ekki okkar.
Uppbygging í
Hafnarfirði
Halda þarf áfram
myndarlegri uppbygg-
ingu í æskulýðs-,
íþrótta- og skólamál-
um. Með því gerum við
bæinn okkar að ennþá
betri valkosti fyrir þá sem hyggja á
búferlaflutninga, jafnt af lands-
byggðinni sem innan höfuðborgar-
svæðisins. Það er áberandi hversu
margir íbúar frá landsbyggðinni,
sem tekið hafa þá ákvörðun að flytja
búferlum til höfuðborgarsvæðisins,
velja Hafnarfjörð til að búa í. Bær-
inn hefur marga þá bestu eiginleika
Með þátttöku minni vil
ég vinna að, segir Gísli
O. Valdimarsson, fram-
gangi ýmissa mikil-
vægra málaflokka.
sem einkennir bæjarfélög á lands-
byggðinni.
Ný öld - nýtt fólk
Eg hvet kjósendur í Hafnarfirði
til að taka þátt í prófkjöri Alþýðu-
flokksins um næstu helgi og stuðla
þannig, að eðlilegri endurnýjun á
framboðslista flokksins. Ég er reiðu-
búinn að leggja mitt af mörkum í
þeim miklu verkefnum sem
framundan era hjá bæjarfélaginu,
fái ég til þess stuðning.
Veljum gott fólk, í öfluga forystu í
sterkum flokki, inn í nýja öld..
Höfundur er byggingarverkfræð-
ingur og tekur þátt í prófkjöri AI-
þýðuflokksins I Hafnarfirði.
Gísli Ó.
Valdimarsson
Tryggjum farsæla
framtíð Arborgar
í DAG fer fram próf-
kjör sjálfstæðismanna í
hinu nýja sveitarfélagi,
Árborg, þar sem valdir
verða fulltrúar á lista
flokksins vegna sveitar-
stjórnarkosninganna í
vor. Mikilvægt er að tU
starfans veljist fólk sem
hefur áhuga, kraft og
vilja til að vinna að
margþættum málefnum
sveitarfélaganna, sem
oft geta reynst erfíð
viðureignar. Komandi
kjörtímabil kemur til
með að móta framtíð
þessa unga sveitarfé-
lags verulega og þess
vegna er nauðsynlegt að rétt sé að
öllu staðið.
Þau era allnokkur málin er taka
þarf á. Nauðsynlegt er að stuðla að
frekari uppbyggingu atvinnulífsins,
t.d. með eflingu ferðaiðnaðar og
þjónustugreina á svæðinu. Einnig er
brýnt að hvetja tU nýsköpunar á
öðram sviðum og að auki er eðlilegt
og sjálfsagt að komi til frekari flutn-
ings ríkisstofnana á
landsbyggðina verði
Arborg fyrir valinu,
bæði vegna stærðar
sinnar og legu.
Rétt er að hafa í
huga að til að viðhalda
góðri uppbyggingu í
vaxandi sveitarfélagi
er mikilvægt að líta
einnig til þjónustu-
stigs á svæðinu, eink-
um hvað snertir dag-
vistar- og skólamál.
Staðreyndin er sú að
ungt fólk velur sér
búsetu með vaxandi
tilliti til þessara þátta.
Það er því rökrétt fyr-
ir sveitarfélag sem Árborg að þar
sé hröð og öflug uppbygging í
þessum málum. Mikilvægt er að
hefja sem fyrst byggingu nýs
skólahúsnæðis þar sem núverandi
byggingar hafa víða sprengt utan
af sér allt rými. Hið sama má segja
um leikskólapláss. Það ætti enginn
að þurfa að vera í þeirri stöðu að
geta ekki komið börnum sínum í
Ég er tilbúin að leggja
fram krafta mína,
segír Sædís Ósk Harð-
ardóttir, til að vinna
að bættri framtíð.
fyrsta flokks leikskóla, sama hvar
á svæðinu þeir búa. Þeir sem
starfa á þessum vettvangi þurfa
einnig að kunna til verka og brýnt
að sem flestir af starfsmönnum
skólans séu menntaðir til þeirra
starfa.
Þessi atriði ásamt fleiri þáttum
eru mál sem taka þarf á. Ég er tilbú-
in að leggja fram krafta mína til að
vinna að bættri framtíð. Þess vegna
óska ég eftir stuðningi þínum í 3.-4.
sæti í prófkjörinu á laugardag.
Höfundur tekur þátt íprófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Árborg og er
formaður Sjálfstæðisfélags Eyrar-
bakka og varaformaður Hersis, fé-
lags ungra sjálfstæðismanna \ Ár-
nessýslu.
Sædís Ósk
Harðardóttir