Morgunblaðið - 14.03.1998, Side 45
j
d
MORGUNBLAÐIÐ
____________LAUGARDAGUR 14, MARZ 1998 4jjv-
AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR
Kjarni málsins
er gott mannlíf
HVATINN að baki
þátttöku minni í bæj-
armálum í Hafnarfirði
undanfarin ár byggist
fyrst og fremst á
áhuga mínum til að
bæta manngildi og
mannrækt.
Þegar ég hugleiddi
hvaða leið var að því
markmiði, komst ég
fljótt að raun um að
hún liggur í gegnum
fjölskylduna og heimil-
ið. Heimilið er alla
jafna sá vettvangur,
þar sem mótun ein-
staklinga í æsku á sér
stað og það er innan
fjölskyldunnar sem sjálfsímynd
bama og unglinga mótast að mestu
leyti og viðhorf þeirra til sam-
borgaranna verður til. í mínum
huga er því afar brýnt að skapa að-
stæður og búa til það umhverfí sem
hjálpar fjölskyldunni að vera sam-
an, þroskast og dafna og mynda
þannig kjölfestuna í þjóðfélaginu.
Ut frá þessari áherslu er fjöl-
margt sem ég vil beita mér að og
hefur bein áhrif á manngildi og
mannlíf.
I fyrsta lagi vil ég sjá aukna
áherslu á skóla- og menntamál, allt
frá dagvistarmálum upp í fram-
haldsskóla. Það er mikilvægt að
böm fái notið leikskóladvalar sem
fyrsta skólastigs, sem hefur þýð-
ingu bæði gagnvart
foreldmm og bömum.
Markviss uppbygging
og vinna í dagvistar-
málum skiptir gríðar-
lega miklu máli á
fyrstu árum bamsins
og hér vil ég sérstak-
lega leggja áherslu á
foreldrasamstarf.
Almennt vil ég efla
tengsl og samstarf
milli kennara, nem-
enda og foreldra, um
leið og aukin áhersla
er lögð á aðbúnað og
öryggi í skólum. Ekki
síst er þetta mikil-
I mínum huga er því
afar brýnt að skapa
aðstæður, segir Hafrún
Dóra Júlfusdóttir, og
búa til það umhverfi sem
hjálpar fjölskyldunni.
Vægt nú, á tímum vaxandi ágangs
eiturlyfa. Þar er sterk samstaða
kennara og foreldra mikilvægur
hlekkur í öflugum forvörnum.
Einnig tel ég áhugavert að tengja
saman kennslu og reynslu fyrri
tíma sem er að finna hjá eldri íbú-
um bæjarins og varðveita og nýta
Hafrún Dóra
Júlíusdóttir
á þann hátt mikilvæga menningar-
arfleifð.
Umgjörðin utan um fjölskylduna
og skólann skiptir miklu máli.
Hluti af umgjörðinni er framboð og
stuðningur við æskulýðs- og
íþróttamál af ýmsu tagi. Það skipt-
ir miklu máli að böm og unglingar
hafi vettvang til að virkja þrótt
sinn og kraft á jákvæðan hátt. Á
þetta vil ég leggja áherslu. Ég vil
sjá markvissa vinnu sem hefur
þann útgangspunkt að hér sé um
mikilvægt forvamarstarf að ræða,
um leið og slíkt eflir félagslegan
þroska einstaklingsins og gerir
hann hæfari til að taka þátt f sam-
vinnu og nýsköpun á öllum sviðum
þjóðfélagsins.
Kjami málsins er því þessi; við
aukum manngildi og mannrækt
með því að leggja áherslu á fjöl-
skylduna sem homstein fjölskyld-
unnar og skapa henni skilyrði til að
hlú að hverjum einstökum fjöl-
skyldumeðlimi, um leið og við
byggjum upp skóla- og stuðnings-
kerfi sem hjálpar til. Bætt mann-
gildi og mannrækt er um leið for-
senda þess að við byggjum upp
vandaða einstaklinga. Vandaðir
einstaklingar, sem hafa uppeldi,
þekkingu, getu, metnað og áhuga
til að takast á við sameiginleg
verkefni á ólíkum sviðum þjóðfé-
lagsins, em forsenda árangurs,
hvort sem horft er til atvinnulífs,
menningarmála, umhverfismála
eða annarra sviða.
Að þessu vil ég einbeita mér. í
vinnu, sem beint eða óbeint tengist
þessum áherslum, vil ég beina mín-
um kröftum af áhuga, metnaði og
trúmennsku.
Höfundur býður sig fram í 2. tíl 4.
sæti í pröfkjöri Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði.
Hafnarfj örður
- bærinn minn
HÉR hef ég búið
alla mína ævi og hér
ætla ég að búa og eng-
inn fær því breytt.
Sem borinn og bam-
fæddur Hafnfirðingur
sætti ég mig ekki við
hvað sem er bænum
mínum til handa,
hvorki hver stjómar
né hvemig er stjómað.
Ég vil að það verði
jafnaðarmenn og fé-
lagshyggjufólk sem við
alþýðuflokksfólk er-
um, sem hefur mann-
gildið að leiðarljósi.
Mörg verkefni bíða
Mörg ný verkefni bíða
nýrrar bæjarstjórnar,
segir Þorlákur
Oddsson, svo sem í
skólamálum, stækkun
hafnarinnar, uppbygg-
ingu nýrra hverfa
og samgöngum í
gegnum bæinn.
nýrrar bæjarstjómar næstu 4 ár,
svo sem í skólamálum, stækkun
hafnarinnar, uppbyggingu nýrra
hverfa og samgöngum
í gegnum bæinn.
Hugsanleg sameining
sveitarfélaga og að
viðhalda þróttmiklu
atvinnulífi í náinni
framtíð. Sköpun nýrra
atvinnutækifæra.
Opna stjómkerfí bæj-
arins og bæta þjón-
ustu, t.d. að koma allfP'
þjónustu bæjarins á
einn stað.
Að undanfömu hef-
ur verið mjög neikvæð
umræða um Hafnar-
fjörð og bæjarfélagið,
þar sem fjölmiðlar
hafa farið hamfömm,
upplýsingar þeirra hljóta að koma
frá aðilum sem vilja ekki veg Hafn-
arfjarðar sem mestan. Blásum til
sóknar og tryggjum jákvæða
ímynd Hafnarfjarðar aftur eins og
var.
Opið prófkjör Alþýðuflokksins
verður nú um helgina 14.-15. mars
frá kl. 10-20 báða dagana cfgt
tryggjum eðlilega endumýjun list-
ans. Kjósendur geta hvergi haft
svo afgerandi áhrif annars staðar
en hjá Alþýðuflokknum.
Bæjarbúar, notið rétt ykkar og
veljið þá frambjóðendur sem þið
treystið til að fara með stjómun
bæjarins. Ég býð mig fram í 4
efstu sætin, stöndum saman.
Höfundur er bifreiðastjóri.
Þorlákur
Oddsson
Skapti Hallgrímsson ræðir við Völu Flosadóttur,
í blaðinu á sunnudaginn.
éngSijS
...jákvæt
góðs, en