Morgunblaðið - 14.03.1998, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 51f
i
I
i
I
I
I
i
<
I
i
i
(
í
í
(
<
+ Kristinn Ólafsson
fæddist í Grinda-
vfk 5. mars 1923.
Hann lést á Landspít-
alanum 8. mars síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Ragnheið-
ur Helga Jónsdóttir,
f. í Kóki á ísafirði
22.9. 1884, d. 18.1.
1964, og Ólafur Þor-
leifsson, f. í Þing-
vallasveit 23.8. 1970,
d. 7.9. 1960. Alsystk-
ini Ólafs voru Þór-
laug húsmóðir, f.
15.10. 1920, og Jón
Ágúst framkvæmdastjóri, f. 10.8.
1925. Hálfsystkini sammæðra
voru Elín Jóna Hammer, f. 21.12.
1906, d. 29.5. 1943; Þorvaldur
Ragnar Hammer, f. 23.6. 1912,
látinn, og Lára Karlotta
Hammer, f. 29.11. 1909. Hálf-
systkini samfeðra voru Sigríður,
Þorsteinn, Magnúsa, Margrét, og
Sigurður.
Kristinn kvæntist Ingibjörgu
Magnúsdóttur árið 1953, bjuggu
þau í Holti í Grindavík, þau
skildu 1963. Börn þeirra: 1) Þor-
valdur Jón húsasmiður, f. 13.5.
1955. Börn hans eru Ragnheiður,
f. 27.1. 1980, og Rakel Eyja, f.
4.1. 1990. Núverandi sambýlis-
kona hans er EUen Maja
í dag kveð ég þig, elskulegi fað-
ir minn, sem kallaður varst burtu
eftir skammvinn veikindi en fram
að því hafði þér aldrei orðið mis-
dægurt. Þú stóðst þína öldu í lífs-
ins ólgusjó eftir að hafa stundað
sjóinn af alúð alla þína ævi og lok-
ið þínum störfum með sóma. Eg
man svo vel þegar ég, fimm ára
hnokki, lá í rúminu mínu og þú
komst seint heim eftir langan
vinnudag og breiddir sængina
mína ofan á mig, var ég þá vak-
andi og þú vissir ekki af því. Eins
minnist ég þess að oft er mamma
sendi þig til að skamma okkur
bræðurna eftir einhver strákapör-
Tryggvadóttir. 2)
Ragiiar Heiðar húsa-
smíðameistari, f.
23.7. 1956, giftur
Ragnheiði Katrínu
Thorarensen gjald-
kera. Eftirlifandi
sambýliskona Krist-
ins er Ásdís Vigfús-
dóttir húsmóðir, f.
26.10. 1926. Barn
þeirra: Ólafur húsa-
smiður, f. 30.4. 1965.
Sambýliskona Ólafs
er Þorbjörg Inga
Jónsdóttir lögfræð-
ingur. Dóttir þeirra
óskírð, f. 23.2. 1998.
Kristinn byrjaði að stunda sjó
13 ára að aldri. Hann eignaðist
sinn fyrsta árabát 14 ára og
skömmu seinna sinn fyrsta mót-
orbát. Kristinn stofnaði útgerð-
arfyrirtækið Þorbjörn hf. ásamt
mági sínum heitnum Sigurði
Magnússyni og fleirum. Var
Kristinn vélstjóri á bátum þeirra,
Hrafni Sveinbjarnarsyni GK, í
áratugi þar til hann byijaði að
vinna í landi sem útgerðarmaður
um 1970. Starfaði hann á neta-
gerðarverkstæði Þorbjarnar hf.
fram á 72. aldursár.
Útför Kristins fer fram frá
Grindavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
in þá iokaðir þú aðeins dyrunum á
herberginu því þú þurftir aldrei
að skamma okkur. Þú varst svo
góður og hjartahlýr alla þfna ævi
við okkur og minnist ég þess ekki
að hafa séð þig skipta skapi. Þú
varst góður vinur allra, sama hver
átti í hlut, og ávallt varstu tilbú-
inn að aðstoða og gefa af rausnar-
og myndarskap þínum. Margar
góðar stundir áttum við saman í
Lyngholti, þar sem þú byggðir
sumarbústað með þínum tveimur
höndum, vannst við að stækka
hann í tómstundum í 30 ár og er
nú svo komið að ekki er hægt að
stækka hann meira. Þessi mikla
alúð sem þú lagðir í smíði bústað-
arins lýsir vel þínum innri manni
því það sem þú tókst þér fyrir
hendur laukst þú við með miklum
sóma. Elsku pabbi minn, hvíl þú í
friði.
Lát akker falla! Eg er í höfn.
Eg er með frelsara mínum.
Far vel, þú æðandi, dimma dröfn!
Vor Drottinn bregst eigi sínum.
Á meðan akker í ægi falla
Eg alla vinina heyri kalla,
sem fyrri urðu hingað heim.
Þinn
Ragnar.
Margs er að minnast er mætur
maður er kvaddur.
Kristinn Olafsson var höfðingi
heim að sækja. Ég minnist allra
jólaboðanna í Grindavík, sem voru
alltaf mikið tilhlökkunarefni. Hann
hafði gaman af að fá gesti og vildi
gera vel við alla, er sóttu hann
heim.
Ég minnist Kristins í sumarbú-
staðnum í Þrastaskógi. Þar undu
þau Asdís sér vel. Þangað þótti
bamabörnunum gaman að koma,
enda fundu þau alltaf að þau voru
velkomin að Lynghóli. Kristinn var
börnum okkar Sigfúsar hinn besti
afi og skal það nú þakkað hér.
Síðastliðið sumar fórum við
nokkur í ferð til Flateyjar og um
Snæfellsnes. Hann hafði gaman af
að skoða stórbrotna náttúru lands-
ins, t.d. Hellna og Arnarstapa.
Nutum við þess að ferðast með svo
rólegum og traustum ferðafélaga,
sem Kristinn var.
Síðustu árin bjó Ki-istinn í Mos-
fellsbæ. Þar undi hann hag sínum
vel, enda voru þau Asdís þar í ná-
býli við son sinn og tengdadóttur,
Olaf og Þorbjörgu Ingu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Blessuð sé minning Kristins
Olafssonar.
Guðríður Þórðardóttir.
KRISTINN
OLAFSSON
+ Egon Georg
Jensson fæddist í
Árhúsum í Dan-
mörku 3. janúar
1916. Hann lést á
sjúkrahúsi í Krist-
jánsand í Noregi 6.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Viktoría og
Carl Vendelbo Jen-
sen frá Árhúsum í
Danmörku. Georg
var eitt af níu systk-
inum og eru fjórar
eftirlifandi systur
hans allar búsettar í
Danmörku.
Georg kom til Islands á eftir-
stríðsárunum ásamt Gretu systur
sinni og eiginmanni hennar í leit
að atvinnu. Hann vann ýmis störf
á sveitabýlum en hann hafði unn-
ið mikið á búgörðum og við garð-
yrkju í heimalandi sfnu.
Hinn 31. desember 1961
kvæntist Georg Ástu Theódórs-
dóttur, f. í Vestmannaeyjum 28.
ágúst 1929, dóttir hjónanna
Þuríðar Skúladóttur og Theó-
dórs Árnasonar. Þau eignuðust
sex börn, þau eru: 1) Una Viktor-
ía, f. 4. júní 1956, gift Svein
Tjelta, búsett í Noregi, hún á son
Mig langar að minnast föður
míns, Georgs Jenssonar, skírður
Egon Georg Vendelbo Jenssen,
með nokkrum fátæklegum orðum.
Þú varst alltaf léttur í lund og
hafðir ótrúlegt lag á öllu sem þú
tókst þér fyrir hendur. Þú gast
búið til alveg frábærar fiskisúpur,
frá fyrra hjónabandi.
2) Leifur Theódór, f.
26. janúar 1961, bú-
settur í Noregi. 3)
Þuríður Ósk, f. 5.
apríl 1964, búsett í
Reykjavík, gift
Hlöðveri Á. Guð-
mundssyni og eiga
þau einn son. 4)
Svandfs, f. 21. ágúst
1965, búsett í Reykja-
vfk, sambýlismaður,
Ögmundur Matthías-
son, hún á tvo syni
frá fyrri sambúð. 5)
Skúli, f. 9. nóvember
1967, búsettur í Vestmannaeyj-
um. 6) Helga, f. 2. ágúst 1969, bú-
sett í Vestmannaeyjum, hún á
eina dóttur. Georg og Ásta slitu
samvistum.
Georg bjó í Vestmannaeyjum
eftir að hann kynntist Ástu og
stundaði sjóinn þar til hann fór á
eftirlaun. Hann bjó hjá dóttur
sinni í Noregi í nokkur ár en
flutti aftur heim í haust og bjó
hjá yngstu dóttur sinni í Vest-
mannaeyjum.
Georg verður jarðsunginn í
dag frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum og hefst athöfnin
klukkan 14.
grjóthleðslurnar sem þú hlóðst hjá
Unu og Sveini í Noregi eru alveg
afrek fyrir mann sem kominn var
á áttræðisaldurinn, alltaf varstu
að sýsla við eitthvað hjá þeim,
varst stundum úti allan daginn að
velta stærðar grjóthnullungum.
Þá var gott að koma inn og taka
„eitt partý kasínó“ eins og þú
varst vanur að segja, sem þér
fannst svo gaman að spila. Þú
ferðaðist mikið til Danmerkur og
Noregs síðustu árin og áttir það
til að lenda í ótrúlegustu ævintýr-
um á þessum ferðalögum. Þú varst
lítið fyrir að skipuleggja ferðirnar
og oftar en einu sinni birtist þú
öllum að óvörum hress og kátur
en líka hálf slæptur, þar sem göm-
ul meiðsl þoldu illa löng ferðalög.
En pabbi, þú varst alltaf ungur í
anda alveg fram á síðasta dag,
alltof ungur fyrir svona gamlan
líkama, enda þurftir þú að hvíla
þig vel og lengi eftir ferðalögin
þín, þar til útþráin kallaði á ný.
Nú hefurðu farið í þitt síðasta
ferðalag, sem var ekki farið af eins
frjálsum vilja og þau sem áður
voru farin, en eflaust hefurðu lent
í miklum ævintýrum á leið þinni
og hefur sjálfsagt frá mörgu að
segja næst þegar við hittumst.
Þú ætlaðir aðeins að ski'eppa til
Noregs í reglubundna skoðun, en
kemur ekki til baka úr þeirri ferð.
Við höfðum ekki sést í mörg ár
þar til þú ákvaðst að flytja aftur til
Islands í nóvember, en þú hefur
greinilega komið til að kveðja okk-
ur í hinsta sinn. Og nú kveð ég
þig, pabbi minn, með söknuð í
hjarta því þótt sumar minningar
frá barnæsku minni ýfi upp gömul
sár þá áttum við margar góðar
stundir saman og þú svo marga
góða kosti sem vega upp þá
slæmu. Þú áttir við áfengisvanda
að stríða sem reyndist fjölskyld-
unni þungbært og hefur eflaust
verið þér erfiður fjötur um fót,
ætla ég ekki að dæma þig fyrir
það heldur elska minninguna um
þig. Ég veit við sjáumst á ný,
vertu sæll.
Þuríður Georgsdóttir.
EGON GEORG
JENSSON
SIGURLAUG
JÓNSDÓTTIR
+ Sigurlaug Jóns-
dóttir frá Hofi í
Fellahreppi var fædd
á Rangá í Hróars-
tungu 28. febrúar
1910. Hún andaðist á
sjúkrahúsinu á Egils-
stöðum 8. mars síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Jón Pét-
ursson frá Bessastöð-
um í Fljótsdal og
Rósa Hávarðardóttir
frá Dalatanga. Systk-
ini hennar voru:
Magnea Herborg,
Margrét Jóna, Ragn-
heiður Petra, Vilhelmína Svan-
björg og Jón, einnig þrír drengir
sem dóu ungir. Hún ólst upp á
Setbergi og fleiri bæjum í Fell-
um. f Eiðaskóla var hún veturna
1928-29 og 1929-30, og kaupa-
kona í Staðartungu í Hörgárdal
sumarið 1930. Eftir það var hún
vinnukona á Skeggjastöðum.
í heiðardalnum er heimabyggð mín,
þar hef ég lifað glaðar stundir,
því hvergi vorsólin heitar skin
en hamrafjöllunum undir.
Og fólkið þar er svo frjálst og hraust
og falslaus vinmál þess og ástin traust.
Já þar er glatt, það segi ég satt,
og sælt að eiga þar heima.
(Bjami Jónsson frá Þuríðarstöðum)
Sigurlaugu kynntist ég fyrst
1964 þegar við Nanna dóttir hennar
bjuggum í sama húsi á Reyðarfirði.
Sigurlaug var alltaf sívinnandi, í
hvert skipti sem ég leit inn til henn-
ar var hún með útsaum eða að
prjóna einhverja flík. Eftir ára-
langa vináttu er efst í huga þakk-
Hinn 30. ágúst
1935 giftist Sigur-
laug Birni Gunnars-
syni frá Hofi. For-
eldrar hans voru
Gunnar Jónsson á
Hofi og Steinunn
Árnadóttir frá Finns-
stöðum, hann lést 20.
apríl 1990. Á Hofi
bjuggu þau allan sinn
búskap, en sfðustu 9
árin var hún á Egils-
stöðum, fyrst í þjón-
ustuíbúð, og þrjú ár
á Sjúkrahúsinu þar.
Þau eignuðust fjögur
börn, Björn Ingiberg, Ragnheiði
Nönnu, Sigurveigu og Gunnar.
Barnabörnin eru níu og barna-
barnabörnin fjögur. Ragnheiður
Nanna býr á Reyðarfirði, en hin
eiga öll heima á Hofi.
Útför Sigurlaugar fer fram frá
Áskirkju í Fellum í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
læti fyrir ánægjulegar samveru-
stundir, og þá góðvild sem hún
sýndi mér og mínum alla tíð. Við
sendum börnum hennar og fjöl-
skyldum þeirra innilegar samúðar-
kveðjur.
Ég elska fjöllin, því höfuð hátt,
ég hefi lært af þeim að bera;
á ijósum tindi við loftið blátt
mig langarjafnan að vera,
þvi þar í öndvegi uppi hæst,
er útsjón fegurst, björtum himni næst.
Já þar er glatt, það segi ég satt,
og sælt að eiga þar heima.
(B.J.)
Sigrún Guðnadóttir,
Reyðarfírði.
t
Elskulegur bróðir okkar,
HARALDUR B. BJARNASON
múrarameistari,
Vesturgötu 7,
andaðist að morgni miðvikudagsins 11. mars.
Sigriður Bjarnadóttir,
Elín Bjarnadóttir.
t
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
VALGEIR ÖRN GARÐARSSON,
Miðstræti 15,
Vestmannaeyjum,
lést mánudaginn 9. mars.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 16. mars kl. 15.00.
Garðar Tryggvason,
Tryggvi Garðarsson,
Jóna Ósk Garðarsdóttir,
Vilhjálmur Kr. Garðarsson,
Sigurjón Ingi Garðarsson,
Kolbrún Sigurjónsdóttir,
Hjördís Árnadóttir,
Ágúst Guðmundsson,
Bente Hejgárd Pedersen,
Erna Kristjánsdóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför
SIGRÍÐAR DANÍELSDÓTTUR,
Hrafnistu
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólk á deild G-ll á
Hrafnistu fyrir hlýhug og góða umönnun.
Sæunn Kristjánsdóttir, Margrét Tómasdóttir,
Már Guðmundsson Snorri Guðmundsson
Magnús Tumi Guðmundsson, Elísabet Vala Guðmundsdóttir,
Þorvaldur Sverrisson
og fjölskyldur.
*