Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 57
<
i
i
í
i
i
i
i
4
I
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Fiskvinnslufólk ekki
haft með í ráðum
DEILD fiskvinnslufólks innan
Verkamannasambandsins hefur
sent sjávarútvegsráðherra bréf þar
sem gagnrýnt er að fiskvinnslufólk
hafi ekki verið haft með í ráðum í
störfum fiskverðsnefndar nýlega.
Bent er á að ýmsir hagsmunahópar
hafi verið kallaðir til. Bréf deildar-
innar til Porsteins Pálssonar sjávar-
útvegsráðherra fer hér á eftir:
@texti: „Samkvæmt því sem kom-
ið hefur fram í fjölmiðlum hefur
þriggja manna nefnd „fiskverðs-
nefnd“, sem falið var af sjávarút-
vegsráðherra að setja fram tillögur
til lausnar kjaradeilu sjómanna og
útvegsmanna nú skilað tillögum sín-
um. Pað hefur jafnframt komið
fram að fundað hefur verið með
hluta þeirra aðila sem hagsmuna
hafa að gæta um tillögurnar. Að
venju hefur einn aðili, sá fjölmenn-
asti, sem ekki hefur minnstra hags-
muna að gæta, samtök fiskvinnslu-
fólks, ekki verið kvaddur að málinu.
Það liggur þó ljóst fyrir að allar
ákvarðanir um fískveiðar, fiskveiði-
stjórnun og verðlagsmál sjávarút-
vegsins geta haft áhrif á kjör þess
fjölmenna starfshóps sem vinnur í
landvinnslunni. Samtök fiskvinnslu-
fólks innan Verkamannasambands
íslands harmar þá afstöðu sem
kemur fram í þessum vinnubrögð-
um og telja hana ekki til farsældar
atvinnugi-eininni."
Bílagasolía sam-
kvæmt Evrópu-
staðli hjá ESSO
OLÍUFÉLAGIÐ hf. hefur sent frá
sér eftirfarandi fréttatilkynningu:
„Olíufélagið hf. ESSO reið á vaðið
árið 1992 og hóf sölu á bílagasolíu
yfir vetrartímann með frostþol -24
gi'áður. Nýjung Olíufélagsins hf. að
þessu sinni er sala gasolíu til notk-
unar á bifreiðar og vinnuvélar sam-
kvæmt EN 590 staðli Evrópubanda-
lagsins. Gasolían sem um ræðir er
umhverfisvænni en áður hefur
þekkst og gefur hreinni bruna auk
þess sem brennisteinsinnihald er að
jafnaði aðeins 0,04% af þyngd olí-
unnar.
Gasolían er nú á öllum sölustöð-
um Olíufélagsins hf. hvar sem er á
landinu."
Valferð og
skíðaganga á
dagskrá FI
FERÐAFÉLAG íslands efnir til
tveggja ferða á sunnudaginn. Kl.
10.30 er skíðaganga á Þingvalla-
svæðinu. Farið verður þangað sem
snjóalög eru hagstæðust. Farar-
stjóri er Bolli Kjartansson.
Kl. 13 er svokölluð valferð. Þetta
er gönguferð í 2-3 klst. á skemmti-
legu svæði norðaustan við höfuð-
borgina m.a. verður skoðaður foss í
vetrarbúningi. Verð 1.000 kr., frítt
fyrir börn með fullorðnum. Farar-
stjóri er Sigurður Kristjánsson.
Brottför er frá BSÍ, austanmegin,
og Mörkinni 6.
Fyrirhugaðri Selatangaferð er
frestað.
Námskeið um
ofvirkni barna
og unglinga
NÁMSKEIÐ verður haldið í Gerðu-
bergi föstudaginn 27. mars og laug-
ardaginn 28. mars næstkomandi um
ofvirkni barna og unglinga. Fjallað
verður um orsakir, horfur og að-
stæður fjölskyldunnar. Þá verður
sagt frá meðferð og kennslu fyrir
ofvirk börn og unglinga, bæði í leik-
skóla og grunnskóla.
Eirð, fræðsluþjónusta um uppeldi
°g geðheilsu barna og unglinga,
hefur nýlega verið stofnuð. Að
henni stendur fagfólk sem starfar á
barna- og unglingageðdeild Land-
spítalans og Dalbrautarskóla. Þau
hafa langa reynslu í greiningu og
meðferð ofvirkra barna og unglinga
°g ráðgjöf við foreldra og kennara.
Hópurinn hefur undanfarin ár hald-
ið fjölda námskeiða og íyrirlestra
um athyglisbrest með ofvirkni, fyrir
fagfólk og foreldra, bæði á höfuð-
borgarsvæðinu og úti á landi.
Upplýsingar veita Kristín Krist-
mundsdóttir, félagsráðgjafi, Mál-
fríður Lorange, sálfræðingur, og
Guðríður Guðbjartsdóttir, fulltrúi,
milli kl. 18-20.
Kaffídagur
Dýrfirðinga-
félagsins
DÝRFIRÐINGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík heldur árlegan kaffidag
félagsins sunnudaginn 15. mars í
Bústaðakirkju. Hefst hann með
guðsþjónustu kl. 14 en þegar henni
lýkur hefst kaffisala í safnaðai'heim-
ilinu. Prestur verður sr. Pálmi
Matthíasson. Allir velunnarar fé-
lagsins og Dýrafjarðar eru vel-
komnir og er félagsmönnum 70 ára
og eldri sérstaklega boðið.
Tilgangur þessarar samkomu er
tvíþættur, segir í fréttatilkynningu.
I fyrsta lagi rennur allur ágóði til
byggingar aldraðra heima í Dýra-
firði og í öðru lagi styi'kir samkom-
an samheldni þeirra Dýrfirðinga
sem flutt hafa að vestan á liðnum
árum eða eiga ættir sínar þangað að
rekja.
Ferðafundur
húsbilaeigenda
FERÐAFUNDUR Félags húsbíla-
eigenda verður haldinn næstkom-
andi sunnudag kl. 14 á Dugguvegi
12, Reykjavík. Fundarstjóri er
Hólmar Tryggvason.
Á ferðafundunum eru teknar
ákvarðanir um ferðir sumarsins,
alls 7 ferðir. Einnig verður mynda-
sýning úr 10 daga svokallaðri stóru
ferð síðasta sumars sem farin var á
sunannverða Vestfirði.
JÓHANN Krisljánsson vefstjóri
íslandsbanka (t.v.) afhendir
Guðjóni Steindórssyni verð-
launin í netleik bankans.
Verðlaun afhent
í netleik
íslandsbanka
DREGIÐ hefur verið í verðlauna-
leik íslandsbanka og datt Guðjón
Steindórsson í lukkupottinn.
Leikurinn fór fram á vefsíðum Is-
landsbanka dagana 2.-17. febrúar
og fólst í því að fara í gegnum allar
kynningarsíður Heimabankans.
Dregið var úr nöfnum þeirra sem
luku keppni og hlaut sá heppni
20.000 frípunkta sem hann getur
ráðstafað að vild.
Fræðslu-
bæklingur
um skógrækt
ÚT ER kominn bæklingur um
fræðslu- og félagsstarf Skógræktar-
félags íslands fyrir árið 1998. Þessi
bæklingur er hluti af fræðsluátaki
skógræktarfélaganna og Búnaðar-
banka íslands hf. sem styrkir verk-
efnið.
Bæklingurinn er sendur til allra
félagsmanna í skógræktarfélögun-
um og í honum eru kynntir helstu
liðir í fræðslustarfi skógræktarfé-
laganna í landinu. Bæklingnum er
einnig dreift í útibúum Búnaðar-
bankans. Fræðslustarf Skógrækt-
arfélags Islands er fjölbreytt og
helstu liðir þess eru: Skógræktar-
námskeið ætluð sumarbústaðaeig-
endum og öðrum landeigendum,
framhaldsnámskeið í skógrækt um
sérhæfðari mál, skógargöngur, opn-
ir fræðslufundir í Mörkinni, nám-
skeið einstakra skógræktarfélaga í
landinu og fræðsluferðir innan- og
utanlands.
Þeir sem áhuga hefðu á að nálg-
ast bæklinginn og frá frekari upp-
lýsingar geta haft samband við
Skógræktarfélag Islands.
Kvikmyndasýn-
ingar fyrir börn
KVIKMYNDASÝNINGAR eru
fyrir börn í Norræna húsinu alla
sunnudaga kl. 14. Sunnudaginn 15.
mars verða sýndar þrjár teikni-
myndir um Gubben Pettson
Sýndir verða þrír skemmtilegir
þættir um kallinn Pettson sem er
svolítíð skrýtinn og köttinn hans
Findus. Kötturinn á til dæmis 3 af-
mælisdaga á ári og þá bakar Pett-
son alltaf uppáhaldskökuna hans,
„pönnukökuköku“. Teiknimyndirn-
ar hafa notið gífurlegra vinsælda
hjá yngstu kynslóðinni, segir í
fréttatilkynningu. Myndin er með
sænsku tali.
Áhrif lækkaðs
lögaldurs til
áfeng-iskaiipa
alvarleg
ÁFENGISVARNARRÁÐ varar við
lækkun áfengiskaupaaldurs og seg-
ir að flestum muni ljóst að áfengis-
neysla 15-17 ára unglinga muni
aukast verulega ef lögaldur til
áfengiskaupa verður lækkaður í 18
ár.
„Slíkt gerðist í Bandaríkjunum
og annars staðar þar sem slíkt hef-
ur verið rannsakað enda kaupa ung-
lingar gjarnan áfengi fyrir vini sína
sem ekki hafa náð lögaldri til kaup-
manna. Hér á landi er sérstök
ástæða til að gefa gaum að þeirri
staðreynd að aldursmörkin lenda á
miðjum framhaldsskólaaldri ef
lækkuð verða. Um tvítugt eru hins
flestir við háskólanám, starfsnám
eða í atvinnu.
Ekki er kunnugt að nokkur
staðar hafi verið sýnt fram á að
lækkun lögaldurs til áfengiskaupa
hafi stuðlað að minni drykkju og
tjóni af völdum hennar," segir í
fréttatilkynningu frá Áfengisvarn-
arráði.
Framhaldsnám
við KHÍ í tölvu-
og upplýsinga-
tækni
KENNARAHÁSKÓLI íslands býð-
m- upp á framhaldsnám skólaárið
1998-1999 á nýrri 15 eininga náms-
braut um tölvur og upplýsingatækni.
Námið er skipulagt sem fjamám í
eitt á með nokkrum staðbundnum
lotum. Fléttað verður saman fræði-
legri umfjöllun og reynslu til að auka
þekkingu og fæmi nemenda varð-
andi nýtingu tölvu- og upplýsinga-
tækni í námi og kennslu, námskrár-
vinnu og námsefnisgerð. Eitt 5 ein-
inga námskeið verður á haustmisseri,
annað 5 eininga námskeið á vorönn
og tvö námskeið á sumarönn, þriggja
og tveggja eininga. Unnt er að ljúka
námi af brautinni með tvennum
hætti, með formlegri viðurkenningu
eða sem hluta af meistarprófsnámi.
Rétt til að sækja um inngöngu
eiga þeir sem lokið hafa fullgildu
starfsmenntanámi á sviði kennslu,
þjálfunar, uppeldis og umönnunar.
Gilt er nám frá Fósturskóla íslands,
Háskóla íslands, Háskólanum á
Akureyri, Iþróttakennaraskóla ís-
lands, Kennaraháskóla íslands,
Kennaraskóla íslands, Þroska-
þjálfaskóla íslands og öðrum skól-
um sem veita sambærilega mennt-
un. Auk þess þurfa umsækjendur
að hafa lágmarksfæmi í tölvunotk-
un (ritvinnsla, myndvinnsla, tölvu-
póstur, veraldavefur).
Valið verður úr hópi umsækjenda
með hliðsjón af menntun þeirra og
starfsreynslu sem tengist nýtingu
tölva- og upplýsingatækni í námi og
kennslu.
Breskir fjölmiðl-
ar heimsóttir
NEMAR í hagnýtri fjölmiðlun við
Háskóla Islands heimsóttu nýlega
helstu fjölmiðla í London, m.a.
BBC, WTN, Financial Times og
The Independent.
í tilefni þeimsóknarinnar bauð
Benedikt Ásgeirsson sendiherra
hópnum til móttöku í bústað sínum
við Park Street. Auk þess voru í
boðinu starfsmenn íslenska sendi-
ráðsins og forvígismenn íslendinga-
félagsins í Bretlandi.
Fyrirlestur
um dauðarefs-
ingar í Banda-
ríkjunum
BANDARÍSKU hjónin Hugo
Bedau og Constance Putnam halda
óformlegan fyrirlestur á vegum Fé-
lags áhugamanna um heimspeki og
Siðfræðistofnunar Háskóla íslands
þriðjudaginn 17. mars kl. 12. Fyrir-
lesturinn er fluttur á ensku í Odda,
stofu 101 og er öllum opinn.
Fyi-irlesturinn ber yfirskriftina
„The Current Status of Death
Penalty in the U.S.“ Efni fyrirlest-
ursins fjallar um þær siðferðilegu
og réttarheimspekilegu deilur um
réttmæti eða óréttmæti dauðarefs-
inga sem blossað hafa upp með
reglulegu millibili, segir í fréttatil-
kynningu.
Saga Boutique
í Leifsstöð
NÝ verslun, Saga Boutique, var
opnuð hinn 7. mars sl. í Leifsstöð
á Keflavíkurflugvelli en Flugleiðir
hafa rekið Saga Boutique, toll-
frjálsa sölu ýmiss konar varnings,
í árabil um borð í flugvélum fé-
lagsins. Markmiðið með opnun
verslunarinnar er að veita úrvals
þjónustu í Leifsstöð og gefa fólki
kost á að kaupa gæðavöru á hag-
stæðu verði og nýta þannig tím-
ann í stöðinni, segir í fréttatil-
kynningu.
Nýja verslunin, sem er nálægt
veitingasölunni, býður upp á léttan
herrafatnað og aukahluti frá Hugo
Boss, svissneska og ítalska skó frá
Bally, kvenföt frá Aquascutum,
Kello, Donna Karan, Betty Barcley
og fleirum en einnig verður boðið’
upp á ýmiskonar fylgihluti, s.s.
sokkabuxur frá Orebleu, töskur frá
Longcamp, belti, slæður, nærföt og
fleira frá viðurkenndum framleið-
endum.
Verslunin verður opin frá kl. 5.30
til 18.30 fyrst um sinn en hún verð-
ur opin lengur fram á kvöldið yfir
sumartímann.
Þau Putnam og Bedau hafa hald- ’
ið ýmsa fyrirlestra víðs vegar, eink-
um um mál tengd dauðanum, m.a.
við Háskóla Islands nú þessa dag-
ana. Putnam vinnur nú að doktors-
verkefni við Tufts-háskóla í Banda-
ríkjunum um líknarmeðferð og
dauðahjálp en Bedau er prófessor
við sama skóla.
Píanótónleik-
ar á Akureyri
RICHARD Simm píanóleikari
heldur tónleika á vegum Tón-
listarfélags Akureyrar í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju
og hefjast þeir 20.30 annað-
kvöld, sunnudagskvöldið 15.
mars.
Á efnisskránni fyrir hlé eru
þrjár sónötur eftir Scarlatti,
Scherzo eftir Chopin og
Années de Pélerinage númer
1. 2 og 3 eftir Liszt. Eftir hlé
leikur Richard ljóðræn smá-
verk eftir Grieg, Études Tabl-
eaux op. 39 nr. 5 og 6 og tón-
leikana endar hann með því að
leika þrjá þætti úr Préludes
bók II eftir Debussy, en flest
þessara verka marka djúp
spor í þróun píanósins sem
hljóðfæris.
Richard Simm fluttist til Is-
lands árið 1989 og stundaði
tónlistarkennslu í Skagafirði
til ársins 1991 er hann fluttist
til Akureyrar.
SIGRÚN Björnsdóttir, stundakennari við Háskóla íslands, Benedikt
Ásgeirsson sendiherra ásamt hópi nema í hagnýtri Qölmiðlun, starfs-
mönnum sendiráðsins og öðrum gestum.