Morgunblaðið - 14.03.1998, Page 58
58 LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ferdinand
f Þegar maður er hvolpur er eitt Veistu þá hvað mamma Mundu eftir að þvo þér um
! af því fyrsta sem manni er kennt segir alltaf? loppurnar á eftir ...
! að „heilsa með handabandi".
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Mamma,
af hverju?
Frá Ardísi Henriksdóttur:
MAMMA, af hverju ætlar þú að
hætta að vera hjúkrunarkona?
Þessa spurningu fékk ég frá syni
mínum nú um daginn er hann
heyrði frétt í útvarpinu þess efnis
að hjúkrunarfræðingar á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur og Ríkisspítölum
væru að hugsa um að segja upp. Af
hverju? Þetta er sú spuming sem
ég sjálf hef verið að reyna að svara
síðastliðna mánuði. Þegar hjúkrun-
arfræðingar gerðu síðast kjara-
samning sl. vor var gerður kjara-
samningur þar sem félagið mitt,
Félag íslenski'a hjúkrunarfræð-
inga, samdi um nýtt launakerfi, þar
sem í miðlægum kjarasamningi var
m.a. samið um launatöflu, vinnu-
tíma og fleiri slíka þætti. Síðan
skyldu fulltrúar stéttarfélagsins og
stofnunar semja um það á hverjum
vinnustað fyrir sig hvaða forsendur
yrðu lagðar til grundvallar ákvörð-
un launa hjúkiunarfræðinga í nýju
launakerfi. Átti þá m.a. að taka mið
af starfslýsingu hjúkmnarfræð-
inga, ábyrgð þeirra, menntun,
reynslu og fæmi. Þessari vinnu átti
að ljúka 30. nóv. 1997 og í fram-
haldi af því myndu laun hjúkmnar-
fræðinga taka breytingum í sam-
ræmi við samkomulag sem gert
yrði á hverri stofnun fyrir sig.
Núna er kominn marsmánuður og
samningur liggur ekki enn fyrir á
þeirri stofnun sem ég starfa hjá.
Það eina sem heyrist er að það eigi
að raða öllum almennum hjúkmn-
arfræðingum í launaramma A.
Skilgreining á launaramma A er
m.a. að starfið felst í almennum
störfum sem unnin era undir
ábyrgð eða umsjón annarra. Þetta
get ég ekki skilið öðmvísi en að
okkar viðsemjendur telji það að
hjúkrunarfræðingar beri enga
ábyrgð á eigin störfum og eigi því
að raðast neðst í lægsta launaflokk.
Ef ég myndi samþykkja að þiggja
laun samkvæmt launaramma A
væri ég í raun að brjóta gagnvart
siðareglum hjúkmnai-fræðinga,
þar sem stendur í 6. grein að
hjúkranarfræðingur ber faglega og
lagalega ábyrgð á störfum sínum.
Einnig er þessi lýsing í fullu ósam-
ræmi við starfslýsingu almennra
hjúkmnarfræðinga á þeirri stofnun
sem ég starfa hjá. Eg tel því að
skárri kosturinn væri að finna mér
vinnu þar sem ég ber enga ábyrgð,
þarf ekki að vinna á öllum vöktum ,
fæ frí á hátíðis- og tyllidögum, að
ég tali nú ekki um helgar, og fái
sambærileg laun ef ekki hærrí.
Þess vegna, sonur sæll, er mamma
að hugsa um að hætta að starfa
sem hjúkrunarfræðingur!
ARDÍS HENRIKSDÓTTIR,
hjúkrunarfræðingui’ á Landspítala.
Gegn
valdníðslu
Frá Önnu Þorsteinsdóttur:
OPIÐ bréf til Ingibjargar Pálma-
dóttur ráðherra.
„Milljónir í bætur“ hljóðar fyir-
sögn blaðagreinar DV frá 7. mars
sl. Greinin segir frá því að Karl
Steinar Guðnason, forstjóri Trygg-
ingastofnunar í'íkisins, hafi með
ólögmætum hætti, að mati umboðs-
manns Alþingis, vikið Guðjóni Al-
bertssyni lögfræðingi úr stöðu
sinni. Bótaféð var sótt til skatt-
greiðenda.
Guðjón Albertsson átti að baki
25 ára starf í þjónustu ríkisins og
hafði um árabil gegnt yfirmanns-
stöðu sem deildarstjóri Ti’ygginga-
stofnunar ríkisins, eða allt þar til
honum var skyndilega sagt upp
stöðu sinni, en Karl Steinar hafði
skömmu áður komið að stofnun-
inni. Ástæða brottvikningar var sú
að Guðjón neitaði að verða við til-
mælum Karls Steinars forstjóra
Tryggingastofnunar að segja af sér
deildarstjórastöðu vegna svokall-
aðrar „endurskipulagningar" og
gerast undirmaður að nýju.
Olögleg brottvikning embættis-
manns úr stöðu til að rýma sæti
hans íyrir annan, er ekki einkamál
þolandans, heldur mál er varðar
alla þegna landsins, a.m.k. þá sem
gera þær kröfur til stjórnvalda að
þau sjái sóma sinn í að almenn
mannréttindi séu viðhöfð í landinu.
Að skáka ríkisstarfsmanni frá eftir
dygga þjónustu hjá ríkinu í sam-
fleytt 25 ár, er afar grimmileg að-
för að einstaklingi. Málið horfir al-
varlega við þegar sannast að upp-
sögnin var bæði ólögmæt og
ástæðulaus og að þolandinn vann
sér ekkert til sakar.
Á sama tíma og ráðuneyti yðar
sker niður þjónustu til heilbrigðis-
og tryggingarmála sökum fjár-
skorts, er því gert að greiða bætur
fyrir brotalamir í stjórnsýslu
Tryggingastofnunar ríkisins, án
þess að nokkur sé dreginn til
ábyrgðar. Það þykir mér óréttlátt.
Ég geri þær kröfur til yðar, hæst-
virtur heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra, að þér upplýsið okkur al-
menning um, hver ber ábyrgð á
lögbrotinu og hvort sá sem brýtur
lög á öðram fái að starfa áfram óá-
talið við stofnun sem heyrir undir
ráðuneyti yðar?
ANNA ÞORSTEINSDÓTTIR,
gmnn- og framhaldsskólakennari,
Hjellandshaga, 6011 Alesund,
Noregi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í uppiýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.