Morgunblaðið - 14.03.1998, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 59
BREF TIL BLAÐSINS
Frá Árna Helgasyni:
RONALD Reagan Bandaríkjafor-
seti reisti sér veglegan minnisvarða
þegar hann stuðlaði að þvi að lög-
aldur til áfengiskaupa í Bandaríkj-
unum var hækkaður í 21 ár. Til þess
naut hann stuðnings margi’a góðra
manna, meðal annarra landlæknis
þar vestra og nokkurra öfiugra al-
mannasamtaka. Telja fróðir menn
að hann hafi bjargað tugþúsundum
unglinga frá limlestingum eða bana.
Jóhanna Sigurðardóttir þingmað-
ur hefur hins vegar fengið þá rang-
hugmynd að lækkun áfengiskaupa-
aldurs sé æskileg - ef ekki bráð-
Við sama heygarðshornið
nauðsjmleg. í því efni er hún alltaf
við sama heygarðshornið. Að sjálf-
sögðu eru bjórknæpueigendur og
aðrir sem græða á áfengissölu sama
sinnis. (Það eitt ætti að fá fólk með
almenna greind til að hugsa sitt
ráð!) Svo eru auðvitað nokkrir þing-
menn á svipuðu þroskastigi og Jó-
hanna. Og öll eru þau að reyna að
fiska atkvæði í gruggugu vatni því
alltaf eru einhverjir svo fáráðir að
Dagvistarvandinn
Frá Valgerði Einarsdóttur:
GREIN eftú unga konu í Morgun-
blaðinu um dagvistarmál 4. mars sl.
vakti athygli mína. Ekki var það vegna
þess að dagvistarmál hafi farið hátt í
umræðunni undanfarið sem greinin
vakti athygli mína heldur kannski
einmitt vegna þess hve lítið hefúr farið
fyrir þessum málaflokki miðað við
ástand mála. Dagvistarmál eni mikil-
vægur málaflokkur og mikilvægt að
vel sé haldið á þessum málum.
Brotalöm í dagvistarmálum
Hin unga kona sagðist eiga 2 ára
gamalt barn sem væri á biðlista eftir
plássi á leikskóla og lítil von væri að
það kæmist að í bráð. Sagði hún að
900 börn væru á biðlistum sem ég
veit að er rétt, en jafnframt sagði
hún að ljóst væri að önnur börn
væru af einhverjum ástæðum tekin
fram yfir hennar barn. Ljótt er ef
satt er. Engin ástæða er þó til að
tortryggja konuna um það enda ým-
islegt sem bendir í þessa átt eftir því
sem ég hef heyrt. í því umhverfi sem
ég lifi í, fjölskyldu-, vina- og kunn-
ingjahópi, skynja ég það mjög að
brotalöm er í dagvistarmálum í
borginni. Það virðist sem seint gangi
á biðlista enda hefur miðstýring orð-
ið allsráðandi í þeessum málaflokki
efth’ að vinstri menn komust í meiri-
hluta í borgarstjórn. Nú hafa heim-
greiðslur verið afnumdar og þeim
foreldrum sem vilja hafa börn sín all-
an daginn á leikskóla er gert hærra
undir höfði en þeim sem vilja aðeins
hafa börn síri hálfan daginn. Margir
foreldrai' eiga kost á að vera með
börnum sínum hálfan daginn og vilja
því aðeins hafa þau á leikskóla hinn
helming dagsins. Það á að vera
frjálst val fólks, en ekki vera háð
miðstýringu forsjárhyggjuafla í
borgarstjórn hvernig foreldrar eyða
tíma sínum með börnum sínum auk
þess sem vafasamt er hversu gott
það er börnunum að vera allan dag-
inn á leikskóla.
Svikið Ioforð
Að lokum spyr hin unga kona og
beinir spurningu sinni til borgar-
stjóra, hvort rétt sé að R-listinn hafi
lofað að öll börn 2 ára og eldri yrðu
búin að fá leikskólapláss fyrir lok árs
1997. Þessari spurningu get ég svar-
að en virðing R-listans og borgar-
stjóra fyrir kjósendum er minni en
konuna giunar. R-listinn lofaði að
svo fljótt sem haustið 1996 myndu öll
börn 2 ára og eldri hafa fengið leik-
skólapláss og að fyrh- lok kjörtíma-
bilsins hafi öll börn 1 árs og eldri
fengið þá vistun sem foreldrar þeirra
vilja nýta sér. Allh' vita hvað um
þetta loforð hefur orðið og verð ég
að taka undir með konunni að mér
líkar ekki heldur við stjórnmála-
menn sem komast til valda með því
að lofa einhverju sem þeir hafa svo
hvorki getu né vilja til að standa við
þegar á hólminn er komið. Þykh- mér
það standa valdaráni næst.
VALGERÐUR EINARSDÓTTIR,
Laugarnesvegi 40, Reykjavík.
Laugardagur í Kópavogi
Frá Guðmundi Hallgrímssyni:
KLUKKAN er átta að morgni. Er
virkilega kominn laugai'dagur? Og
laugardagurinn byijar alltaf á laugar-
dagsgöngu Hana nú klukkan 10 og
það er augljóst mál að maður þarf að
drífa sig, þvo sér og raka og greiða og
fá sér eitthvað að borða. Þegar því er
lokið skal spá í veður og færð. Utlitið
er gott. Logn. 3 stiga frost en smáfól á
jörðu, ákjósanlegt gönguveður.
Og nú af stað upp í Gjábakka. Uti
fyrir dyrum stendur maður, sem býð-
ur góðan daginn um leið og maður
nálgast, tekur í hendi manns, spjallar
aðeins ef svo stendur á, býður svo að
ganga í hús og fá sér nýlagað mola-
kaffi.
Þama er giunnurinn að hinni lifandi
Hana nú hreyfingu. Grunnurinn sem
byggt hefur verið á í tæp 15 ár. Og sí-
fellt er verið að byggja við. Þetta
handaband að morgni og eðlilegt við-
mót skapar sterka samkennd meðal
þess fólks sem sífellt fer f Hana nú
göngu á laugardögum og aðra starf-
semi Frístundahópsins.
Við göngum í hús, bjóðum, góðan
dag, því það eru þegar nokkrir Hana
nú liðar mættir, fáum okkur kaffitár
og síðan er farið að rabba við þá sem
fyrir eru um daginn og veginn. Nú
sem fyrr er rætt um veður, hið eilífa
umræðuefni og svo um eftirtektar-
verðar nýjustu fréttir úr fjölmiðlunum.
En nú er kl. 10 og tími kominn til að
fara í göngu. Hin „þróttmikla" forusta
kallar tilbúin til göngu og allir rísa úr
sætum og hverfa út. Það er létt yfir
fólki því það er dásemdardagur.
Stefnan er tekin niður í Kópavogs-
halda að hlutir sem þessir séu ung-
lingum til góðs.
Aftur á móti vekur það furðu að
Jóhanna skuli nefna Ólaf landlækni
sem stuðningsmann við glapræði
heygarðshornsfólksins á þingi. Og
nefnir hann meira að segja í sömu
andrá og Böðvar Bragason og fé-
lagsmálaráð Reykjavíkur sem hefur
unnið sér það helst til ágætis að
stuðla að gegndarlausri fjölgun vín-
veitingahúsa í umdæmi sínu.
Landlæknamir Guðmundur
Björnsson og Vilmundur Jónsson
áttu veigamikinn þátt í því að áfeng-
isneysla íslendinga var minni en
annarra Evrópuþjóða fram yfir
miðja þessa öld og tjónið af hennar
völdum að sama skapi minna. Það
gerðist þannig að menn beittu al-
vöru forvörnum - sem einfeldningar
og hagsmunapotarar hafa verið að
brjóta niður undanfarin ár - en ekki
með gagnslausu spjalli við börn og
unglinga. Fyrir það minnumst við
þeirra, sem og baráttumanna Góð-
templarareglunnar, með sérstakri
virðingu. Ósköp hefði nú verið gam-
an fyrir núverandi landlækni að
bætast í þann hóp. En ef það er satt
hjá Jóhönnu að hann kjósi heldur að
vera í kompaníi við Böðvar Braga-
son og félagsmálaráð þá er ekki
hægt annað en að taka sér í munn
orð Lása kokks: Til lukku með líkið!
ÁRNI HELGASON,
Stykkishólmi.
dal og síðan út í vesturbæinn meðfi’am
Kópavoginum. Það er ekki margt sem
vekur eftirtekt nú á þon-a, því það má
segja að allt sé í dvala nú um hávetur.
En þó eru fuglar á voginum, sem
draga að sér athyglina og verið er að
spá í. Þessi umrædda ganga var ljúf og
létt og allir skiluðu sér heim endur-
nærðir. Þannig hefur þetta gengið fyi’-
ir sig í tæp 15 ár, gengið alla laugar-
daga, aldrei fallið úr laugardagur þótt
veður hafi verið válynd.
Eitt dæmi um hvemig gönguhópn-
um er tekið á sínum ferðum. Það var í
haust að við gengum fram hjá húsi
sem stendur dálítið sér. Þar kom út
kona, bauð góðan dag og sagði. Mikið
er gaman að sjá ykkur, gerið það fyrir
mig að líta inn og fá hressingu. Boðið
vai’ þegið og þáðar veitingar. Og þama
ríkti svo sannarlega Hana nú gleði og
hlýja. Síðan var þakkað fyrii- sig og
lokið göngu með frjásri aðferð.
Hana nú vefurinn er mjög litríkur
nú í dag og hefur verið það undanfarin
ár. Þar blómstrar bókmenntaklúbbui’
og er vís til stórræða. Á síðasta vetri
var lesið um Færeyjar og síðan blásið
til ferðar þangað, sem tókst afar vel.
Enda er djörf forasta fyrir hópnum
sem sýndi úrvals takta þá sem oft áð-
ur. Og ekki má gleyma öllum þeim
ferðum sem famar hafa verið á hina
ólíklegustu staði. Og spjallkvöld og
kleinukvöld hafa staðið fyrir sínu.
Allt sem að framan er sagt stuðlar
að því að halda heilbrigðri sál í hraustr
um líkama og hver dagur býður uppá
eitthvað nýtt og er tilhlökkunarefni.
GUÐMUNDUR HALLGRÍMSSON,
skíðakennari og Hana nú félagi.
Sprenghlægilegur gamanleikur Cf |í | /f |T IjtóiSiAvfKUR^I
/ BORGARLEIKHÚSIÐ
m