Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998
FRÉTTIR
Þorsteinn Viktorsson fór í höfnina í Eyjum með lyftara sem hann ók
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
LYFTARINN hífður upp úr höfninni í Vestmannaeyjum í gær.
hjálp því ég vissi að það væru eng-
ar líkur á að til mín heyrðist enda
ekki nokkur maður á ferð þarna á
þessum tíma og ég var líka viss
um að ef einhver hefði verið
þama og séð lyftarann falla þá
væri hann örugglega farinn að
kalla eftir hjálp. Ég synti því bara
að bryggjustiganum og brölti upp
hann. Ég fann þegar ég byijaði að
klifra upp stigann hvað ég var
þungur enda var ég í kuldaúlpu,
þykkri peysu, með vettlinga, í
skóm með stáltá og buxum. Það
var því þungt að fara upp stigann
en erfíðast var að komast yfir
bryggjukantinn. Ég hafði það þó
loks og ég gerði mér eiginlega
ekki grein fyrir hvað ég var hætt
kominn fyrr en ég var búinn að
velte mér yfir bryggjukantinn.
Ég labbaði síðan upp f húsnæði
Flutningamiðstöðvarinnar og
hringdi þaðan á lögregluna og til-
kynnti um slysið. Eg var ekkert að
gera mikið úr þessu þegar ég
hringdi og ég held að þeim hafi
því hálfbrugðið þegar þeir komu
og sáu mig, alblóðugan og blautan.
Ég hef verið að hugsa það í dag
hvað lítið skilur á milli lffs og
dauða hjá manni því þetta augna-
bliks hugsunarleysi mitt hefði
getað orðið til þess að ég hefði
ekki verið hér til frásagnar í dag
ef lukkan hefði ekki verið mér
svona hliðholl," sagði Þorsteinn
að lokum.
„Fannst líða heil
eilífð þar til mér
skaut upp“
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
ÞORSTEINN Viktorsson, fram-
kvæmdastjóri Flutningamiðstöðv-
ar Vestmannaeyja, var hætt kom-
inn á sunnudagskvöld er lyftari
sem hann var á lenti f höfninni í
Eyjum. Það má teljast mikið afrek
að Þorsteinn skyldi
bjargast en honum
tókst af eigin ramm-
leik að koma sér upp
úr höfninni og til-
kynnti slysið sjálfur til
lögreglunnar. Hann
var þokkalega hress
er Morgunblaðið
heimsótti hann á
heimili hans f gær en
er þó talsvert marinn
á öxl og hálsi auk þess
sem hann er með ýms-
ar smáskrámur.
Þorsteinn hafði ver-
ið að vinna við upp-
skipun og hugðist
stytta sér leið með
lyftarann í hús Flutn-
ingamiðstöðvarinnar. Fór hann
þá yfir lyftupall með timburgólfi.
„Ég ók út á brúna og þegar aft-
urhjólin á lyftaranum komu út á
pallinn heyrði ég brest. Þá gaf ég
í því mér datt í hug að ein fjölin
undir afturhjólunum væri að gefa
sig og lyftarinn myndi því festast
þarna á pallinum. Þá skiptir eng-
um togum að háværir brestir
kveða við og ég finn að lyftarinn
er að fara niður um dekkið á pall-
inum. Þetta gerist á augabragði,"
sagði Þorsteinn.
„Ég sé alveg fyrir augum mér
það augnablik þegar lyftarinn fer
f kaf í sjónum og mér finnst hann
fyllast alveg um leið og ég vera
kominn á bólakaf. Ég tók strax í
hurðarhandfangið þegar lyftarinn
var að falla niður um gatið og
ætlaði að opna dyrnar en eftir að
lyftarinn fór í kaf geri ég mér
enga grein fyrir því sem gerðist
Þorsteinn
Viktorsson
fyrr en ég var kominn út úr hon-
um í kafi. Það sem siðan gerðist
man ég alveg,“ sagði hann.
„Ég dró djúpt andann um leið
og ég fór í kaf og þegar ég man
eftir mér þarna niðri hugsaði ég
um að halda ró minni
og byijaði að synda
upp. Þótt þarna niðri
væri svartamyrkur
fann ég strax hvemig
mig bar upp og synti
því með í rétta átt.
Mér fannst lfða heil
eilífð þar til mér
skaut upp, enda hlýt
ég að hafa sokkið eitt-
hvað með lyftaranum
sem hefúr verið fijót-
ur að sökkva því hann
er Ijögur og hálft
tonn að þyngd. Bara
járnklumpur og nær
ekkert flot í honum.
Tilfinningin þegar
vatnið umlukti mig
var allt annað en góð og það
hvarflaði auðvitað að mér að þetta
væri mín síðasta stund. Þarna
niðri var algjört myrkur, ekki
týra, svo þetta leit ekki vel út.
Hávaðarok á móti
Ég sá stiga á bryggjukantinum
framan við lyftuna, var fljótur að
koma auga á hann því stigarnir í
höfninni eru allir málaðir með
sjálfiýsandi rauðum lit, auk þess
sem Ijós eru í þeim. Ég synti því í
áttina að stiganum. Það var tals-
vert erfitt enda hávaðarok á móti
mér, suðvestan tíu vindstig, og
talsverður súgur í höfninni.“
Þorsteinn segist ekki hafa fund-
ið fyrir kulda í sjónum og hann
hafi alveg haldið ró sinni meðan
hann synti að stiganum sem er um
40 metra frá þeim stað sem hann
féll niður. „Ég var ekkert að eyða
kröftunum í að hrópa og kalla á
Fleiri lífeyrissjóðir at-
huga lækkun vaxta
Aukin
þorskgengd
fyrir Norð-
urlandi
MUN meiri þorskgengd er nú fyrir
Norðurlandi en í fyrra að sögn Sig-
fúsar Schopka fiskifræðings, en á
næstu þremur sólarhringum eða
svo lýkur togararalli Hafrann-
sóknastofnunar. Sagði Sigfús jafn-
framt að undanþága frá verkfalli til
að Ijúka rallinu hefði verið auð-
fengin hjá sjómönnum.
Sigfús sagði um rallið til þessa
að ástandið virtist vera með svip-
uðu sniði og í fyrra, utan að mun
meiri fiskgengd væri fyrir Norður-
landi.
„Við verðum mun meira varir við
þorsk á þessum slóðum en í fyrra
og það er kannski ekki svo óvænt
þar sem sjórinn bæði fyrir Norður-
og Austurlandi er tveimur gráðum
hlýrri en í fyrra. Þetta er mun
meiri þorskur en við höfum séð í
síðustu röllum,“ sagði Sigfús.
Hann bætti því við að rallið hefði
gengið vel og um það bil fjórðung-
ur þess væri eftir. „Þetta fer auð-
vitað eftir veðri og núna er bræla
og við í höfn á Fáskrúðsfirði, en ég
reikna með að ljúka mínum hluta
héma. á næstu þremur sólarhring-
um. Astandið er svipað annars
staðar nema það er spurning með
Vestfirðina, þar er ís sem gæti taf-
ið eitthvað. Það verður að koma í
ljós,“ sagði Sigfús.
FLEIRI lífeyrissjóðir eru með í af>
hugun að lækka vexti á sjóðfélaga-
lánum ef sú vaxtalækkun sem orðin
er á verðtryggðum lánum til langs
tíma á markaði hér á landi að undan-
fórnu verður varanleg. Stjóm Fram-
sóknarfélags Reykjavíkur segir í
ályktun í gær að breyttar aðstæður
krefjist þess að vextir lífeyrissjóðs-
lána lækki í um 5%. Stjómin bendir
jafnframt á að útlánsvextir banka
hafi ekki lækkað.
Lífeyrissjóður verslunarmanna
hefur ákveðið að tengja vexti á sjóð-
félagalánum ávöxtunarkröfu hús-
bréfa eins og hún er á hverjum tíma
að viðbættu 0,75 prósentustiga álagi,
en það þýðir að frá miðjum þessum
mánuði lækka vextir sjóðsins úr 6% í
5,87%. Vextirnir lækka íyrirsjáan-
lega meira í næsta mánuði, þar sem
ávöxtunarkrafa húsbréfa hefur farið
lækkandi það sem af er marsmánuði.
Jóhannes Siggeirsson, fram-
kvæmdastjóri Sameinaða lífeyris-
sjóðsins, sagði að full ástæða væri til
að skoða vexti sjóðfélagalána í ljósi
þeirrar vaxtalækkunar sem orðið
hefði á ríkisverðbréfum. „Menn
munu vafalaust taka það hér til skoð-
unar ef sú lækkun verður varanleg,
því það em auðvitað fullkomin rök til
þess að þarna sé ákveðið bil á milli,
þannig að þegar ríkisverðbréfin
lækka fylgi hitt á eftir,“ sagði Jó-
hannes.
Hámarkslán til sjóðfélaga er 2
milljónir króna úr Sameinaða lífeyr-
issjóðnum og hafa vextirnir verið 6%
frá 1. janúar 1994, en flestir lífeyris-
sjóðir hafa verið með 6% vexti á líf-
eyrissjóðslánum undanfarin ár.
Karl Benediktsson, framkvæmda-
stjóri lífeyrissjóðsins Framsýnar,
sagði að vaxtamál væm alltaf öðm
hvom til skoðunar hjá sjóðnum, en
þau hefðu ekki verið það nýlega. Það
megi gera ráð fyrir að þessi mál
komi til skoðunar með hliðsjón af
ákvörðun Lífeyrissjóðs verslunar-
manna, því þessir sjóðir hafi mjög
oft verið samstiga í þessum efnum,
án þess að þar sé um nokkurt sam-
ráð að ræða. Hámarkslán úr sjóðn-
um er 1,5 milljónir króna og em lán-
in með 6% vöxtum.
Sigurbjöm Sigurbjömsson, fram-
kvæmdastjóri Söfnunarsjóðs lífeyr-
isréttinda, sagði aðspurður að vaxta-
kjör á sjóðfélagalánum hefðu verið
til umræðu vegna lækkandi vaxta á
verðbréfamarkaði hér.
Kári Amór Kárason, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Norður-
lands, sagði að þessi mál hefðu ekki
verið rædd hjá sjóðnum og hann ætti
síður von á að vextimir yrðu lækkað-
ir. Vextirair eru 6% og sagði Kári
Amór að þetta væm lágir vextir í
samanburði við það sem almennt
væri í boði hvað varðaði löng lán til
einstaklinga. Þá væri það sín per-
sónulega skoðun að það ætti ekki að
vera hlutverk lífeyrissjóða að standa
í lánveitingum til einstaklinga.
Útlánsvextir banka
alltof háir
Stjóm Framsóknarfélags Reykja-
víkur fagnar þeirri lækkun sem orðið
hefur á vöxtum á skuldabréfamark-
aði og segir að það sé fyrst og fremst
að þakka markvissri stefnu ríkis-
stjórnarinnar. Bendir stjómin á að
þessar nýju aðstæður á markaði geri
kröfu um að lífeyrissjóðir lækki vexti
á eldri og nýjum lánum til samræmis
eða í um 5% raunvexti.
Síðan segir: „Útlánsvextir í banka-
kerfinu em allt of háir, einkum á lán-
um til einstaklinga. Afkoma bank-
anna hefur farið batnandi en útláns-
vextir ekki lækkað, hvorki með tilliti
til afkomu bankanna né vaxtalækk-
unar á skuldabréfamarkaði. Stjórn
Framsóknarfélags Reykjavíkur
hvetur því eindregið stjórnendur
banka og yfirvöld bankamála til að
beita sér fyrir lækkun útlánsvaxta í
bankakerfinu.
Þá vill stjóm Framsóknarfélags
Reykjavíkur skora á viðskiptaráð-
herra að láta þegar fara fram opin-
bera könnun á vöxtum bankanna á
lánum til einstaklinga og þeirri
áhættu og töpum sem bankarnir
verða fyrir vegna þessara lána í sam-
anburði við aðra lánaflokka."
Utanríkisráðherra í
heimsókn í Belgíu
Vilja starfa
náið með Is-
lendingum
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra, segist vera mjög ánægður
með viðræður sínar við belgíska ut-
anríkisráðherrann Erik Derycke og
belgíska innanríkisráðherrann Jo-
han van de Lanotte, en hann er nú
staddur í opinberri heimsókn í Belg-
íu sem lýkur í dag. Hann sagði að
viðræðumar sýndu að Belgar vildu
starfa náið með Islendingum.
Á fúndinum með utanríkisráðherra
Belgíu vom rædd tvíhliða samskipti
landanna ásamt samskiptum Islands
og Evrópusambandsins. Var rætt um
fyrirhugaða stækkun Evrópusam-
bandsins og afstöðu íslenskra stjóm-
valda til þeirrar þróunar og fram-
kvæmd sameiginlegrar fiskveiði-
stefnu Evrópusambandsins. Lagði ut-
anríkisráðherra áherslu á mikiivægi
þess að stækka útflutningskvóta Is-
lands á síld til Evrópusambandsríkj-
anna. Þá vom ráðherramir sammála
um mikilvægi þess að tryggja áfram-
haldandi þátttöku íslands og Noregs
í Schengen-samstarfinu eftir að það
hefur verið innlimað í Evrópusam-
bandið, en Belgía gegnir nú for-
mennsku innan Schengen-hópsins.
Ráðherramir ræddu einnig undir-
búning formennsku íslands í Evr-
ópuráðinu á næsta ári, stækkun
NATO, eftirmála Kyoto-ráðstefn-
unnar og sérstöðu íslands í því sam-
bandi ásamt ástandinu í Bosníu. Þá
komu þeir sér saman um að koma á
fót reglulegum samráðsfundum
embættismanna landanna tveggja
um alþjóðasamstarf.
Halldór sagðist telja að mikill
skilningur hefði komið fram á þeirri
afstöðu íslands að vilja standa fyrir
utan Evrópusambandið, en samt hafa
náið samband við Evrópu. „Við telj-
um að þessar viðræður hafi fært
þjóðirnar betur saman,“ sagði Hall-
dór.
í dag heimsækir utanríkisráð-
herra belgíska þingið og tekur síðan
þátt í fundi samstarfsráðherra Norð-
urlandanna, þar sem meðal annars
verður rætt um samstarf Norður-
landanna og Evrópusambandsins.
Utanríkisráðherra kemur til lands-
ins í kvöld.
Magnússon
Lést í um-
ferðarslysi
MAÐURINN sem lést í
bílslysi á Vesturlandsvegi síð-
astliðinn laugardag hét Hall-
dór Örn Magnússon. Hann var
fæddur 11. mars 1932 og lætur
eftir sig fimm uppkomin börn.
Slysið varð með þeim hætti
að jeppi á leið vestur, sem
Halldór Öm ók, og fólksbíll á
leið til Reykjavíkur, rákust
saman. Halldór Öm er talinn
hafa látist samstundis. Ungri
konu, sem ók fólksbílnum, er
haldið sofandi í öndunarvél á
gjörgæsludeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Áverkar hennar
era miklir; beinbrot á útlimum
og innvortis áverkar. Hún er
talin í lífshættu.
>
)
>
>