Morgunblaðið - 17.03.1998, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 35
-H-
MORGUNBLAÐIÐ
PltrgmuMaliÍljí
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SKIPULAG
SEÐLABANKANS
MIKIL UMSKIPTI eru hafin á íslenzkum fjármála-
markaði með breytingu ríkisbankanna, Landsbanka
og Bánaðarbanka, í hlutafélög. Fyrir dyrum stendur einka-
væðing þeirra með sölu hlutabréfa og umræða er þegar
hafin um sameiningu banka. Horfur eru því á, að innan til-
tölulega skamms tíma verði töluverðar breytingar á skipan
bankamála. Þetta beinir sjónum að skipulagi og hlutverki
Seðlabankans og hvort ástæða sé til breytinga á starfi hans
og stjórnun í framhaldi af þróun fjármálamarkaðarins.
Meginverkefni Seðlabankans er nú að stuðla að jafnvægi
í efnahagsmálum með aðgerðum til að hamla gegn verð-
bólgu, gæta verðgildis krónunnar, annast seðla- og myntút-
gáfu, auk eftirlits með fjármálamarkaði. Helzta krafan um
breytingu á rekstrinum er tengd þessum meginverkefnum,
þ.e. að bankinn geti gripið til ráðstafana í peningamálum án
afskipta ríkisstjórnar á hverjum tíma. Um þetta eru skiptar
skoðanir og ýmsir stjórnmálamenn telja ekki ástæðu til
breytinga á núverandi stöðu Seðlabankans.
Um árabil hefur verið gagnrýnt, að Seðlabankastjórar
eru þrír. Sumir telja heppilegra að hafa aðeins einn Seðla-
bankastjóra en aðrir benda á, að því mundi fylgja aukin
áhrif og ábyrgð bankaráðs Seðlabankans. Nú þegar breyt-
ingar eru framundan á bankastjórn Seðlabankans, þar sem
einn bankastjóranna lætur af störfum vegna aldurs, er
ástæða til að íhuga enn á ný þessa stöðu og ræða, hvort til-
efni sé til breytinga.
ABYRGÐ OG AÐGÆZLA
ÞAÐ SEM AF ER þessu ári hafa hafa fimm einstakling-
ar látið lífið í umferðarslysum hér á landi, þar af tveir í
marzmánuði. Umferðin hefur að meðaltali kostað sextán
mannslíf á ári á árabilinu 1993-97. Umtalsvert fleiri hafa
orðið fyrir alvarlegum meiðslum, jafnvel ævilöngum ör-
kumlum. Eignatjón er og mjög mikið. Það er því rík ástæða
til að herða á fyrirbyggjandi vörnum, ekki sízt þar sem um-
ferðin er mest og slysin flest.
Algengasta orsök umferðarslysa er of hraður akstur,
miðað við aðstæður. Meginmál fyrirbyggjandi varna er að
virða umferðarreglur, haga akstri eftir aðstæðum, sýna til-
litssemi í umferðinni og snerta aldrei vímugjafa samhliða
akstri.
Höfuðborgarsvæðið, Suðurnesin, þéttbýlið fyrir austan
fjall og Akranes eru að verða eitt atvinnu- og þjónustu-
svæði. Bæta þarf umferðaröryggið þar, m.a. með því að tvö-
falda Reykjanesbraut, lýsa leiðina milli Reykjavíkur og
Selfoss og auka umferðaröryggið á Vesturlandsvegi. En
bezta fyrirbyggjandi slysavörnin felst í meiri ábyrgð og að-
gæzlu okkar sjálfra í umferðinni.
SÝNING RÚRÍAR
SKIPTAR skoðanir hafa verið á því í gegnum tíðina
hvort listamenn eigi að taka afstöðu til þjóðmála og
heimsmálanna. Sömuleiðis hafa menn haft efasemdir um
það hvort listamenn geti yfirleitt haft áhrif, hvort listin nái
út yfir sjálfa sig: hefur listin eitthvað fram að færa, hefur
verið spurt í vonleysistón og menn hafa jafnvel efast um að
mark væri tekið á listamönnum.
Stöku sinnum tekst listamönnum þó að upphefja sig og
list sína yfir þessar vangaveltur um hlutverk og tilgang og
yrkja sig inn í samvisku heimsins - gleymast þá allar efa-
semdir. Sýning listakonunnar Rúríar í Vestursal Kjarvals-
staða, sem opnuð var síðastliðinn föstudag, er dæmi um
þetta. Sýningin nefnist „Paradís - Hvenær?“ og lýsir ógn-
um og afleiðingum stríðsátaka samtímans með áhrifaríkum
hætti. Með sýningunni nær Rúrí að gera það sem fjölmiðlar
eru kannski hættir að geta gert, að hræra áhorfandann til
meðvitundar um þann hrylling sem stríð hafa kallað yfir
stóran hluta heimsins.
Ljóst er að á bak við sýninguna er mikill sannfæringar-
kraftur. I viðtali í Lesbók Morgunblaðsins á laugardaginn
segist Rúrí hafa trú á að sýningin geti haft áhrif: „Eg álít
að ef við erum meðvituð um hvað við viljum og beitum okk-
ur meðvitað fyrir því þá getum við breytt ríkjandi ástandi.
Þegar allir leggjast á eitt getur jafnvel hið smáa haft
'-áforif&' mál ÍA-áuðúsí. .S.un- fifiitiHöriHim fi kwjrAantiftMbftr • í
MALAMIÐLUNARTILLAGA I SJOMANNADEILUNNI
Ríkissáttasemj ari
lagði í gær fram
fjórar miðlunartillögur
til að binda enda á
kjaradeilur sjómanna
og útvegsmanna, en
verkfall sjómanna
hófst á miðnætti á
sunnudag. Tillögurnar
eiga sér lögfestingu
frumvarpa þríhöfða-
nefndar sjávarútvegs-
ráðherra að forsendu.
Pétur Gunnarsson
kynnti sér miðlunar-
tillögurnar.
Rikissattasemjari
lagði í gær fram miðlunar-
tillögur í deilum sjómanna
og útvegsmanna. Fram
voru lagðar fjórar tillögur til lausnar
deilum útvegsmanna við Sjómanna-
samband íslands, Farmanna- og
fískimannasamband Islands og Vél-
stjórafélag Islands, auk Alþýðusam-
bands Vestfjarða og félaga yfir-
manna á Vestfjörðum. Atkvæða-
greiðsla mun standa í sólarhring,
hefjast klukkan 18 á morgun og
standa til jafnlengdar á fimmtudag.
Atkvæði vélstjórafélaga verða talin
sameiginlega og atkvæði FFSÍ, SÍ
og ASV verða talin sameiginlega.
Miðlunartillögurnar eiga sér það
að forsendu að nýframkomin frum-
varpsdrög þríhöfðanefndarinnar
svonefndu, sem sjávarútvegsráð-
herra skipaði til að fjalla um atriði
tengd kjaradeilu sjómanna og út-
vegsmanna, verði að lögum á því Al-
þingi sem nú situr.
Þar er um að ræða drög að frum-
varpi til laga um Verðlagsstofu
skiptaverðs og úrskurðamefnd sjó-
manna og útvegsmanna; drög að
framvarpi til laga um Kvótaþing og
drög að framvarpi til laga um breyt-
ingar á lögum um stjóm fiskveiða.
„Verði tillagan samþykkt er kom-
inn á gildandi kjarasamningur til
Morgunblaðið/Kristinn
FORYSTUMENN deiluaðila voru kallaðir inn á skrifstofu ríkissáttasemjara og þeim þar afhentar miðlunartillögur. 8 fulltrúar sjómanna og 2 talsmenn vinnuveitenda göntuðust með að vegna
þrengsla sætu fulltrúar þessara aðila nú í fyrsta skipti sömu megin við borðið í sjómannadeilunni.
KVÓTAÞING OG VEIÐISKYLDA
FORSENDUR TILLAGNANNA
þess tíma sem um getur í tillögunni.
Verði framvörpin ekki að lögum á
yfirstandandi þingi fellur kjara-
samningur aðila sjálfkrafa úr gildi
án uppsagnar. Fer þá um kjör sjó-
manna eftir þeim kjarasamningi sem
unnið var eftir við framlagningu til-
lögu þessarar," segir í tillögunum
sem deiluaðilum vora afhentar í
húsakynnum sáttasemjara í gær-
morgun.
13% hækkun kaup-
tryggingar við undirritun
Miðlunartillögurnar era samhljóða
hvað varðar launaliði. Verði þær
samþykktar kemst á samningur,
sem gildir til 15. febrúar 2000. Um
leið hækka einstakir kaupliðir, kaup-
trygging, tímakaup og hlífðarfata-
peningar um 13% og aftur um 3,6%
T. janúar 1999.
Hér er um að ræða hækkun kaup-
tryggingarliða. Þórarinn V. Þórar-
insson, framkvæmdastjóri VSI,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að slíkar hækkanir hefðu minni
þýðingu fyrir sjómenn en aðra laun-
þega þar sem kjör þeirra ráðast að
mestu í hlutaskiptum. Einnig sagði
Þórarinn óvænt að sáttasemjari
gerði ráð fyrir 13% hækkun því út-
vegsmenn hefðu talið að fýrir lægi
samkomulag um 11,4% hækkun
þessara liða þegar verkfalli var
frestað.
Við gildistöku samningsins hækka
fæðispeningar um 11,1%.
Dagpeningagreiðslur til áhafna i
hafnarfríi utan fiskveiðilögsögunnar,
svo sem rækjuveiðiskipa á Flæmska
hattinum, sem fara í land í Kanada,
verða hækkaðar úr 2.820 krónum í
3.800 krónur á sólarhring.
Sömuleiðs era miðlunartillögur
samhljóða varðandi hækkaðar ör-
orku- og dánarbætur. Eingreiðsla
dánarbóta til eftirlifandi maka og
eða bama innan 18 ára verður 3.228
þúsund krónur, sem svarar til um
50% hækkunar, að sögn Guðjóns A.
Kristjánssonar, formanns FFSI. Or-
orkubótaþáttur slysatryggingar sjó-
manna hækkar úr 20% í 50%. Sótt-
dauðabætur hækka úr 1.298 þús. kr.
í 1.724 þús. kr.
Reynsla af kvótaþingi
í lok gildistíma
I samtali blaðamanns við Þórarin
V. Þórarinsson, framkvæmdastjóra
VSÍ, kom fram að honum þætti áætl-
aður gildistími kjarasamnings til 15.
febrúai' 2000 skammur, miðað við að
aðrir samningar giltu yfirleitt til
loka ársins 2000. Guðjón A. Krist-
jánsson, formaður FFSÍ, segist
gjarnan hafa viljað sjá gildistíma
samningsins skemmri en til 15. febr-
úar 2000. Þessi gildistími sé hins
vegar heppilegur að því leyti að það
verði fyrst haustið 1999 sem menn
geti lagt mat á reynsluna af fram-
kvæmd ýmissa ákvæða í frumvörp-
um sjávarútvegsráðherra. Þetta eigi
við um væntanleg nýmæli á borð við
veiðiskyldu, þar sem skipum verði
gert skylt að veiða lágmarkshlutfall
úthlutaðs aflamarks, og kvótaþings,
sem skal skrá öll viðskipti með afla-
heimildir. „Þetta er ekki miklu
meira en sá tími sem þarf til að fá
nasasjón af framkvæmd þessara at-
riða þannig að ég geri út af fyrir sig
ekki athugasemdir við þennan tíma,“
segir Guðjón.
Frystitogarar ekki lengur
en 40 daga á sjó
Einnig gera miðlunartillögur rík-
issáttasemjara ráð fyrir að sett verði
ákvæði um lengd veiðiferða, hafnar-
frí og útivistartíma hjá áhöfnum
frystitogara. Samkvæmt því skal
hafnarfrí vera ein klukkustund fyrir
hverjar sex og hálfa klukkustund á
sjó en þó aldrei skemmra en 30
klukkustundir að lokinni hverri úti-
vist. Skilgreint er að útivist kallast
tíminn frá því að skip leggur af stað
úr höfn í veiðiferð þar til það kemur
til hafnar og hafnarfrí hefst. Hafnar-
frí skal ávallt tekið í heimnhöfn.
Einnig er kveðið á um að m.a.
skuli skipverjar eiga rétt á fríi þriðju
hverja veiðiferð. Veiðiferð sé aldrei
lengri en 40 sólarhringar. Eigi síðar
en á 26. degi veiðiferðar, og aldrei
seinna en fjórum sólarhringum áður
en veiðiferð lýkur, skuli kynna áhöfn
hvenær veiðiferð lýkur. Tvisvar á ári
er þó heimilt að koma með afla inn
til löndunar án þess að veiðiferð telj-
ist lokið.
Guðjón A. Kristjánsson segir að í
þessum ákvæðum felist fyrst og
fremst skýrari túlkun á ákvæðum
gildandi samninga.
Loðnulöndunarfrí
mætir mótspyrnu
Samkvæmt 9. grein miðlunartil-
lögu Sjómannasambandsins verður
sett nýtt ákvæði vegna löndunar á
uppsjávarfiski sem felur í sér að
þegar landað er í heimahöfn úr
loðnu- eða síldarskipi skuli tveir
undirmenn sinna löndun en aðrir
eiga löndunarfrí.
Þetta er það ákvæði sem Sævar
Gunnarsson, formaður Sjómanna-
sambands Islands, býst við að mæti
mestri mótspymu sjómanna, sem
hafa krafist þess að þessi réttur taki
jafnt til löndunar utan heimahafnar
sem í heimahöfn enda landi mjög
mörg nótaskip sjaldan eða aldrei í
heimahöfn. I tillögu vélstjóra er gert
ráð fyrir að einn vélstjóri á loðnu-,
sfldar- og kolmunnaveiðum sinni
löndun en aðrir eigi löndunarfrí í
heimahöfn.
Einnig er tekið á endurmenntun-
armálum. Annars vegar er skipverj-
um, samkvæmt tillögu til lausnar
deilu félagsmanna Sjómannasam-
bands Islands, gefinn kostur á að
sækja námskeið Slysavarnaskólans
og njóta kauptryggingar og útgerð
greiði námskeiðsgjald. Hins vegar
eru í tillögu til lausnar vélstjóradeil-
unni ítarleg ákvæði um endurmennt-
unarnámskeið sem vélstjórar sæki
a.m.k. annað hvert ár á kostnað út-
gerða; skipun endurmenntunarsjóðs
vélstjóra á fiskiskipum og fleira.
Miðlunartillagan í vélstjóradeil-
unni sker sig úr í fleiri atriðum. Þar
eru ýmis sérákvæði, þar sem tekið
er á kröfum vélstjóra um endurskoð-
un skiptahlutar í tengslum við aukna
ábyrgð þeirra varðandi tæknivæð-
ingu.
Sá ágreiningur er með tillögunni
falinn þriggja manna. nefnd, með
einum fulltrúa hvort deiluaðila og
oddamanni sjávarútvegsráðherra.
Nefndin hafi það hlutvei'k að skera
úr um hvort koma skuli til sérstakra
greiðslna til handa vélstjóram á
fiskiskipum vegna breytts verksviðs
þein'a og þátttöku í tæknivæðingu
fiskiskipa.
Nefnd fái vald til að úrskurða
vélstjórum hærri hlut
Komist nefndin að þeirri niður-
stöðu að verksvið vélstjóra hafi
breyst og álag í störfum aukist án
þess að þeir hafi sérstaklega notið
þess í launum skal nefndin úrskurða
hvort þeim beri sérstakar greiðslur
og ef svo er þá hversu miklar og frá
hvaða tíma. Urskurður þessarar
nefndar verður hluti af kjarasamn-
ingi frá úrskurðardegi.
Jafnframt er í miðlunartillögunni í
vélstjóradeilunni sérstakur fyrir-
tækjaþáttur, sem opnar fyrir það að
vélstjórar og einstakar útgerðir geri
samkomulag um að vélstjórar taki
að sér víðtækari störf þar sem
ávinningur af viðbótarverkefnum
skiptist milli útgerðar og vélstjóra.
Helgi Laxdal sagði að hér gæti
m.a. verið um það að ræða að vél-
stjórar taki að sér viðhaldsverkefni
sem í dag er sinnt af vélsmiðjum í
landi. Einnig að yfirvélstjórar verði
gerðir ábyrgir fyi'ir umsjón með við- ~
haldi og viðgerðum skipa.
Helgi segist telja að miðlunartil-
laga sáttasemjara beri merki um
skilning á málefnum vélstjóra og
kveðst ekki kvíða niðurstöðum úr-
skurðarnefndar sem starfi á fagleg-
um granni. „Það má segja að þessi
miðlunartillaga sé viðunandi íyrir
vélstjóra faglega og launalega," seg-
ir Helgi.
Fornfálegar
mönnunarreglur
Þórarinn V. Þórarinsson segir að
m.a. þurfi að fá skýringar á því hvort
úrskurðarnefndin sem fjalla á um
kröfur vélstjóra eigi að fá víðtækara .
verkefni en kröfur vélstjóra gerðu
ráð fyrir en þeir hafi einungis ki-afist
endurskoðunar af þessu tagi fyrir
vélstjóra á stærstu skipum. Þórar-
inn sagði einnig að það væra útvegs-
mönnum mikil vonbrigði að ríkis-
sáttasemjari kæmi ekki til móts við
þá varðandi breytingar á „afskap-
lega fomfálegum mönnunarreglum,
sem taka ekki neitt mið af tækni-
breytingum síðustu ára og áratuga,"
eins og Þórai’inn komst að orði. „Það
er engin grein, sem byggist á jafn-
mikilli vélvæðingu og sjávarútvegur,
þar sem launahlutfall hefur ekki
lækkað undanfarin ár samhliða því
sem fjárfestingin hefur aukist,“
sagði hann. „I útveginum er launa-
hlutfallið fast og eftir því sem sjálf-
virknin eykst og tæknibúnaðurinn
þannig að hægt væri að fækka í
áhöfnum þess vegna, eru samningsá-
kvæðin svo fráleit að þá á að hækka
laun sem hlutfall af heildartekjum
fyrirtækis. Þetta er ekki til í neinni
annarri atvinnugrein og er t.d. farið
að standa endumýjun loðnuskipa-
flotans fyrir þrifum.“
ÞÓRARINN V. ÞÓRARINSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI VSÍ
Engin tilmæli til út-
vegsmannafélaga
ÞÓRARINN V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands íslands, segir að eftir
ítarlega umfjöllun í samninganefnd útvegs-
manna um miðlunartillöguna sé talið eðlilegt að
um málið verði fjallað í félögum útvegsmanna.
Frá samninganefndinni fylgi hvorki tilmæli um
að miðlunartillagan verði samþykkt né henni
hafnað.
„Við lítum svo á að markmið sáttatilliigunnar
sé að gefa félagsmönnunum sjálfum milliliða-
laust kost á að taka afstöðu til mála,“ sagði Þór-
arinn.
Þórarinn kvað ekki koma á óvart að blaða-
manni virtist þyngra hljóð í útvegsmönnum en
sjómönnum. „Það eru nokkur atriði í þessari til-
lögugerð sem koma okkur á óvart og annað sem
okkur þykir óljóst," sagði Þórarinn. Hann
nefndi að fá þyrfti svör við því frá sáttasemjara
hvort samningar yrðu lausir ef Alþingi hnikaði
til orðalagi frumvarpa sjávarútvegsráðherra,
t.d. ef Alþingi breytti ákvæði um veiðiskyldu í
ákvæði um takmarkað framsal.
„Við horfum þarna einkum á fyrirkomulags-
þátt sem snýr að því hvort sett er á veiðiskylda
eða takmarkaðar heimildir til að framselja afla-
heimiidir," sagði hann. „Að okkar áliti hefur það
nákvæmlega sömu áhrif. Veiðiskyldan getur
haft í för með sér að skip missi heimildir varan-
lega ef afli bregst, eins og gerðist á síldveiðun-
um. Við viljum fá á hreint að það valdi ekki upp-
sögn samninga að svona fyrirkomulagsatriði
verði breytt."
Einnig sagði Þórarinn að það kæmi á óvart að
gildistími samningsins samkvæmt sáttatillög-
unni væri ekki lengri en til 15. febrúar 2000. Þá
sagði hann að ýmsar athugasemdir væru tækni-
legs eðlis og óskað yrði skýringa sáttasemjara á
þeim. T.d. virtist svo sem um yfirboð við tillögur
vélstjóra væri að ræða varðandi úrskurðarnefnd
um deilu þeirra. Henni virtist ætlað almennt
endurmat á störfum vélstjóra en ekki aðeins á
stærstu skipunum þótt kröfur vélstjóra hafi tak-
markast við þann hóp.
Loks sagðist Þórarinn játa vonbrigði yfir því
að tillagan tæki ekki á neinn hátt á því vanda-
máli sem fornfálegar mönnunarreglur á íslensk-
um skipum væru. Með þeim væri launahlutfalli í
greininni haldið föstu og spornað við hagræð-
ingu af aukinni vélvæðingu.
GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON,
FORMAÐUR FFSÍ
Skárra að sam-
þykkja en hafna
GUÐJÓN A. Kristjánsson, formaður Farmanna-
og fiskimannasambands Islands, segist almennt
jákvæður gagnvart miðlunartillögunni. „Menn
telja að þegar lagt er saman það sem í miðlunar-
tillögunni felst ásamt frumvörpunum sé rétt að
leggja til við sjómenn að það sé skárri kostur að
samþykkja þetta en hafna því og halda út í
óvissuna."
Innanlandsflug hefur legið niðri í tvo sólar-
hringa vegna veðurs og foringjar sjómanna
kæmust ekki inn á farþegalista flugfélaganna.
Verið var að athuga í gær hvort þeir fengju
flugvél Flugmálastjórnar til að flytja þá til
fundahalda út á land.
Verði miðlunartillagan samþykkt kemst á
kjarasamningur sem gildir til 15. febrúar 2000.
Guðjón sagðist hefðu viljað sjá gildistímann
skemmri en hins vegar sé það kostur við þennan
gildistíma að reynsla á framkvæmd veiðiskylduj
kvótaþings og þeirra atriða, sem frumvörp sjáv-
arútvegsráðherra gera ráð fyrir, liggi hvort
sem er ekki fyrir fyrr en í september eða októ-
ber 1999, þ.e. þegar það kerfi hefur verið við
lýði eitt fiskveiðiár. „Þetta er ekki miklu meira
en sá túni sem þarf til að fá nasasjón af þessu
þannig að ég geri út af fyrir sig ekki athuga-
seindir við þennan tíma.“
Miðlunartillögur til Sjómannasambands Is- _
lands og Farmanna- og fiskimannasambands ís-
lands eru nánast eins, að sögn Guðjóns A. Krist-
jánssonar, að frátöldum útfærslum á löndunar-
leyfum við loðnuveiðar.
HELGI LAXDAL, FORMAÐUR
VÉLST JÓRAFÉLAGSÍSLANDS
Reikna með að vél-
stjórar samþykki
HELGI Laxdal, formaður Vélsljórafélags ís-
lands, telur það betri kost fyrir sjómenn að sam-
þykkja miðlunartillögu ríkissáttasemjara en að
synja henni. Hann kvaðst reikna með að tillagan
yrði samþykkt í röðum vélstjóra, en samkvæmt
henni verður skipuð nefnd til að leysa sérmál
þeirra.
„Við erum ánægðir með að lagt sé til að skipa
sérstaka nefnd til að ræða um hlutaskiptakerfíð.
í þessari nefnd verða fulltrúar frá okkur og út-
vegsmönnum auk fulltrúa frá sjávarútvegsráð-
herra. Eg held að það sé ágætur kostur að láta
sérstaka nefnd útkljá deiluna um breytingar á
hlutaskiptakerfinu. Ef nefndin kemst að þeirri
niðurstöðu að við getum hækkað okkar hlut
munu aðrir í áhöfn ekkert geta sagt við því,“
ságði Helgi.
Hann sagðist einnig ánægður með ákvæði í
miðlunartillögunni sem lyti að endurmenntun
sjómanna.
Helgi segir að innan raða vélstjóra sé einkum
óánægja með 13% upphafshækkun launa. „Við
fórum í upphafi fram á 24% hækkun og vildum
færa laun nær greiddu kaupi, því vélstjórar eru
almeimt yfirborgaðir. Ríkissáttasemjari var
ekki sömu skoðunar, en ég held að þetta muni
ekki hafa mikil áhrif á launin í sjálfu sér.“
ÞÓRIR EINARSSON,
RÍKISSÁTT ASEM J ARI
Raunveruleg
viðræðuslit
AÐSPURÐUR hvers vegna liann hefði lagt fram
miðlunartillögu sagði Þórir Einarsson ríkis-
sáttasemjari að það hefði verið ákveðið í ljósi
þess ástands sem upp var komið í deilunni.
„Það voru komin upp raunveruleg viðræðuslit
og í Ijósi allra aðstæðna taldi ég þetta réttustu
leiðina," sagði hann og kvaðst vonast til að til-
lagan yrði til að málið leystist.
PETUR SIGURÐSSON,
FORSETI ASV
Mæli ekki gegn
tillögunni
PÉTUR Sigurðsson, forseti Alþýðusambands
Vestíjarða, sagðist vera sáttur við miðlunartil-
löguna og treysti sér ekki til að mæla gegn
henni.
„Ríkissáttasemjari tók tillit til beggja deiluað-
ila en þetta er óneitanlega rýr uppskera miðað
við tímann sem hefur farið í þessa deilu.“
Pétur sagði að það væri undir sjávarútvegs-
ráðherra komið hvernig mál þróuðust. „Sam-
+b
þykkt miðlunartillögunnar er undir því komin
hvort frumvarp um sérstakt kvótaþing verður
samþykkt, en það er mikið hagsmunainál fyrir
sjómenn. Ef það gengur eftir getum við verið
sáttir í bili.“
KRISTJAN RAGNARSSON,
FORMAÐUR LÍÚ
/ /
LIU mælir hvorki
með né á móti
miðlunartillögu
KRISTJÁN Ragnarsson, formaður Landssam-
bands islenskra útvegsmanna, segir að miðlun-
artillaga ríkissáttasemjara taki ekkert tillit til
þeirra sjónarmiða sem útvegsmenn hafa lagt
fram í kjaradeilu þeirra við sjómenn.
„Við erum meðal annars ósáttir við að launa-
kostnaður sparist ekki þótt fækkað sé í áhöfn. f
öllum öðrum atvinnurekstri sparast launakostn-
aður ef fólki fækkar við tiltekna vinnu. Hjá okk-
ur gerist það ekki vegna gamalla og úreltra
ákvæða í kjarasamningum; þess í stað vex
hann.“
Kristján segir að útvegsmenn hafi lagt
áherslu á að veikindakaupi verði breytt þannig
að fast kaup yrði greitt í tiltekinn tíma fyrsta
hálfa mánuðinn og þá tæki við svokölluð stað-
gengisregla, sem feli í sér að veikur sjómaður
fái sömu laun og hann hefði fengið ef hann væri
um borð. „Að þeim tíma liðnum vildum við
lengja launagreiðslur til þeirra sem væru veikir.
Þessu höfnuðu sjómenn en þetta hefði komið sér
vel fyrir þá sem eiga við langvarandi veikindi að
stríða."
Utvegsmenn eru einnig ósáttir við stofnun
sérstaks kvótaþings, sem gert er ráð fyrir í
frumvörpum fiskverðsnéfndar, en þau éru
grundvöllur miðlunartillagnanna. Telur Krislján
að það muni bitna á bátaflotanum með ósann-
gjörnum og ófyrirsjáanlegum hætti. „Flotinn
hefur fram til þessa getað verið lengur að út-
gerð en heimildir duga til. Með stofnun kvóta-
þings yrði það ekki lengur hægft og mönnum
gert erfiðara fyrir við veiðar."
Kristján segir að samninganefndin muni
hvorki mæla með né gegn miðlunartiliögunum,
en samningamenn útvegsmanna mum nú halda til
síns heima og skýra málið hver með sínum hætti.
SÆVAR GUNNARSSON, FORMADUR
SJÓMANNASAMBANDS ÍSLANDS
Ekki verri en
ég bjóst við
SÆVAR Gunnarsson, formaður Sjómannasam-
bands íslands, sagði að miðlunartillagan hefði
ekki verið „verri en ég bjóst við“. Þar sem undir
væru frumvörp þríhöfðanefndarinnar svoköll-
uðu kvaðst hann búast við að mæla með því að
sjómenn samþykktn miðlunartiilögurnar.
„Frumvörpin ráða úrslitum um það en sfðan
er tekið þarna á ýmsum málum. Það eru helst
loðnusjómennirnir sem standa út af,“ sagði Sæv-
ar. Hann sagðist þar eiga við að tillagan gerði
aðeins ráð fyrir loðnulöndunarleyfi undirmanna
í heimahöfn skipsins. Ákvæði tillögunnar gerir
ráð fyrir að í heimahöfn sinni tveir undirmenn
löndun á loðnuveiðum en aðrir eigi frí. Sævar
segir að fjölmörg loðnuskip landi aldrei í sinni
heimahöfn og þess vegna sé þessi heimild of
þröng eins og hún sé orðuð. „En í Ijósi þess að
þarna eru undir frumvörpin og þarna er tekið á
launaliðunum, útivistartíma á frystiskipum og
dánar- og örorkubótum þá sjáum við ekki á
þessari stundu að lengra verði komist," sagði
Sævar.