Morgunblaðið - 17.03.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 41*
KIRKJUSTARF
„ÉG ÆTLA að segja
ykkur sögu“ . . . Þannig
hófu þeir mál sitt fyrirles-
arar á ráðstefhu á Akur-
eyri á dögunum þar sem
umfjöllunarefnið var
munnleg geymd i nútíma
samfélagi og tengsl ferða-
þjónustu og menningar.
Lífið er saga
Að líta á lífið sem sögu
eins og David Campell frá
Skotlandi orðaði það ,A
Wonderful Story“ er ekki
svo fráleitt. Sögur eru
eins og lífið sjálft fjöl-
breytilegar, þær eru
skemmtilegar, spennandi,
ævintýralegar, sorglegar, en sjaldnast
leiðinlegar. Þama komu saman fræði-
menn, leikmenn og listamenn sem áttu
það sameiginlegt að segja sögur. Þar
var hinn hefðbundni sagnaþulur sem
fékk okkur til að missa kjálkana niður
á bringu, hlæja og tárast allt í senn við
að hlusta á eina sögu. Góður sögumað-
ur er að sjálfsögðu listamaður og við
sáum einnig sögur túlkaðar með ljóð-
um, söng og dansi. Aðrir kusu að segja
sinar sögur með nútíma tækni, kvik-
myndum og margmiðlun. Þama opn-
uðust augu manna fyrir því hvemig
nýta má alla þessa miðlunarmáta, láta
þá vinna saman og ná til sem flestra.
Við íslendingar höfum ekki þá
sterku sagnahefð sem Skotamir
kynntu, en okkar hefðir þó. Þeir
sýndu svo sannariega fram á að þjóð-
legur fróðleikur þarf ekki að vera
þungur eins og sumir kynnu að halda,
heldur þvert á móti léttur og
skemmtilegur, færður í stílinn hjá
hverjum þeim sem í hlut á og segir
söguna á sinn persónulega hátt. Auð-
vitað breytast sögumar í meðfómm
manna en þær þurfa ekki allar að
byija á einu sinni fyrir langa löngu ...
heldur getur það sem
gerðist í gær eða í morg-
un líka verið í frásögur
færandi. Litlar sögur at-
vik, frásagnir, brandarar
úr nútíð og fortíð, trölia-
sögur, álfasögur, sannar
sögur og þannig má
lengi telja. Þessi dýr-
mæta hefð að segja sög-
ur miðlar þekkingu og
menningu löngu liðinna
tíma beint og óbeint, við
fáum innblástur og lær-
um auk þess að vera
skemmt. Það sakar ekki
að prófa, ein h'til saga,
svo kemur önnur og önn-
ur, teiknimynd með til-
gang, saga með boðskap. Það má setja
hluti fram á mismunandi vegu eftir
því hvað hentar hlustendum hverju
sinni, þroskastigi þeirra og skilningi.
Síðar á lífsleiðinni ná þeir að yfirfæra
og tengja.
Tengsl ferðaþjónustu
og menningar
Menningartengd ferðaþjónusta er
afar spennandi viðfangsefni og fjöl-
breyttir vannýttir möguleikar á þeim
vettvangi hérlendis. Það er vaxandi
krafa meðal ferðamanna að fræðast
um land og þjóð fyrr og nú, þeir dást
að fallegri náttúru en vilja jafnframt
vita hvað landsmenn hafast að. Víða
þurfum við að gera betur, merkja
þarf sögustaði og fræða ferðamenn
innlenda og erlenda um það sem
gerðist á hverjum stað. Þróunin inn-
an ferðageirans er einnig í þá átt að
æ fleiri ferðast á eigin vegum án leið-
sögumanna sem gjarnan sjá um
fræðsluþátt ferðalagsins. Þessum
breytingum þurfum við að mæta,
ásamt því að miðla menningararfin-
um til unga fólksins.
Ein leið til þessa er að byggja upp
Menningartengd ferða-
þjónusta, segir Asborg
Arnþórsdóttir, er afar
spennandi viðfangsefni.
menningarmiðstöðvar eða fræðslu-
setur þar sem efnið er sett fram á lif-
andi máta og fræðslu og skemmtun
blandað saman á smekklegan hátt.
Slíkir staðir þjóna jafnt heimamönn-
um sem innlendum og erlendum
gestum. Önnur leið er að miðla fróð-
leik með hjálp nútímatækni s.s.
margmiðlunar. Nemendur í Mennta-
skólanum að Laugarvatni færa um
þessar mundir inn á veraldarvefinn
fjölþættan fróðleik um mannlíf í
sveitinni fyrr og nú ásamt sögum og
sögnum af ýmsum toga sem margar
koma frá fyrstu hendi.
I Uppsveitum Ámessýslu verður á
næstunni lögð rík áhersla á sögu og
menningu svæðisins. Þar verður leit-
ast við að miðla til heimamanna og
gesta þjóðlegum fróðleik á aðgengi-
legan hátt. Það er mikils virði að
unga fólkið átti sig á uppruna sínum
og sé stolt af, ekki hvað síst nú þegar
allur heimurinn stendur því opinn til
náms og starfa. Jákvæð sjálfsmynd
er hollt veganesti út á vinnumarkað
án landamæra.
Þeir voru frábærir sögumennimir
frá Skotlandi og Wales og við sem
nutum frásanga þeirra á Akureyri
komum fróðari heim, með Ijúfar
minningar í farteskinu. í fullum sal
af fólki jafnt snemma morguns sem
seint að kvöldi náðu þeir að halda al-
gerri athygli, þátttakendur hlustuðu
eins og böm á hverja söguna á fætur
annarri. Einu sinni var ...
Höfundur er ferðamálafulltrúi upp-
sveita Ámessýslu.
Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf fyrir
10-12 ára kl. 17.
Dómkirkjan. Kl. 13.30-16 mömmu-
fundur í safnaðarh., Lækjargötu
14a. Kl. 16.30 samverustund fyrir
börn 11-12 ára.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Orgelleikur, ritningarlestur, alt-
arisganga, fyrirbænir. Léttur máls-
verður á eftir.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um. Orgelleikur og lestur Passíu-
sálma kl. 12.
Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12 ára
börn kl. 17 í safnaðarheimilinu.
Langholtskirkja.Ungbamamorg-
unn kl. 10-12. Æskulýðsfundur kl.
19.30.
Laugarneskirkja. Lofgjörðar- og
bænastund kl. 21. Umsjón Þorvald-
ur Halldórsson.
Neskirkja. Foreldramorgunn á
morgun kl. 10-12. Þroski barna og
örvun.
Óháði söfnuðurinn. Föstumessa
kl. 20.30. Þóra Björnsdóttir, guð-
fræðinemi prédikar. Kaffi. Biblíu-
lestur út frá 30. Passíusálmar í
safnaðarheimili að lokinni guðs-
þjónustu.
Seltjarnarneskirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10-12
Arbæjarkirkja. Foreldramorgunn í
safnaðarheimilinu í dag kl. 10-12.
Hjúkrunarfræðingar frá Heilsu-
gæslu Árbæjar koma í heimsókn og
ræða um kynlíf eftir barneignir.
Breiðhoitskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Digraneskirkja. Starf aldraðra í
dag frá kl. 11.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-
10 ára kl. 17.
Grafarvogskirkja. Eldri borgarar.
Opið hús kl. 13.30. Föndrað, spilað,
sungið. Kaffi. KFUM, drengir 9-12
ára kl. 17.30-18.30. Æskulýðsfélag,
yngri deild, fyrir 8. bekk, kl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 10-
12.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 8-10 ára börn kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu Linnetstíg 6.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Vonarhöfn í safnaðarh. Strandbergi
fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30.
Bessastaðakirkja. Bæna- og kyrrð-
arstund kl. 17.30. Hægt er að koma
bænaefnum til presta og djákna^
safnaðarins.
Vídali'nskirkja. Fundur í æskulýð-
félaginu, yngri deild kl. 19.30, eldri
deild kl. 21.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Borgameskirkja. Helgistund
þriðjudaga kl. 18.30. Mömmumorg-
unn í safnaðarhúsi , Bröttugötu 6,
kl. 10-12.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10. TTT starf kl. 18-19 fyrir
10-12 ára. Unglingastarf kl. 20.30 .
fyrir 8., 9. og 10. bekk.
Keflavíkurkirkja. Hugvekja í
Hvammi kl. 14. Kirkjan opin 14-16.
Starfsfólk kirkjunnar í Kirkjulundi
14-16.
Landakirkja. Kl. 16 kirkjuprakkar- ‘
ar (7-9 ára). Kl. 20.30 Eldri deild
KFUM & K fundar í húsi félag-
anna.
Lágafellskirkja. Kyrrðar- og
bænastund verður í Lágafells-
kirkju, í dag, kl. 18.
Akraneskirkja. Ame Tord
Sveinall, lektor í Noregi, flytur fyr-
irlestur í Veitingahúsinu Langa-
sandi kl. 20 um nýöld og kristin-
dóm. Islenskur túlkur. Aðgangs-
eyrir 500 kr. Kaffiveitingar inni-
faldar. Sóknarprestur.
Einu sinni var
Ásborg
Arnþórsdóttir
SAFNAÐARSTARF
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 10-14. Léttur málsverð-
SVIPMIKILL
EÐALVAGN
Hyundai Sonata er flaggskip Hyundai flotans;
Á EINSTÖKU TILB0ÐI í NOKKRA DAGA
svipsterkur og glæsilegur bítl á góðu verði.
Hyundai er breiður og rúmgóður eðalvagn
með 139 hestafla 2000 vél og er einstaklega
lipur og mjúkur i akstri. Tveir líknarbelgir,
ABS bremsukerfi, styrktarbitar í hurðum o.fl.
tryggir öryggi farþeganna.
N Ú E R LAG - SONATA
Suðurlandsbraut 14 & Ármúla 13 • Söludeild: 575-1220 • Skiptiborð: 575 1200
<B>
HYUnDRI
— til framtiðar
Fax: 568 3818 • Netfang: bl@bl.is