Morgunblaðið - 17.03.1998, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
111 ára saga Landsbanka íslands á enda
SVONA, dinglaðu strákur, hann sígur í gróðinn ...
Sekt fyrir fíkniefnabrot, brugg-
un og útleigu klámmyndbanda
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir
manni sem sakfelldur var fyrir út-
leigu á klámmyndböndum í mynd-
bandaleigu í Kópavogi og að hafa
haft gambra og fíkniefni í fórum
sínum. Var maðurinn dæmdur til
greiðslu 450 þúsund króna sektar
fyrir brot sín.
Hjá manninum voru gerð upp-
tæk 102 klámmyndbönd, og við
húsleit á heimili hans fundust 200
lítrar af gambra, 6 grömm af am-
fetamíni og 12,8 grömm af hassi.
Maðurinn játaði afdráttarlaust að
hafa haft gambrann og fíkniefnin
í fórum sínum og í dómi Hæsta-
réttar kemur fram að þáu brot
skipta hvað helstu máli við
ákvörðun refsingar. Þá segir að
varðandi brot fyrir útleigu á
klámmyndböndunum verði að líta
jöfnum höndum til þess að þau
voru drýgð í atvinnustarfsemi og
að myndbandsspólurnar voru
ekki hafðar aðgengilegar við-
skiptamönnum myndbandaleig-
unnar og munu ekki hafa staðið
börnum eða unglingum til boða.
Að öllu þessu gættu þyki refsing
ákærða hæfilega ákveðin í hér-
aðsdómi.
Mál þetta dæmdu hæstaréttar-
dómaramir Markús Sigurbjöms-
son, Amljótur Bjömsson og Gunn-
laugur Claessen.
Tónleikar í Háskólabíói
fimmtudaginn 19. mars kl. 20:00
Hljómsveitarstjóri: Einsöngvari:
Petri Sakari Andrea Catzel
Richard Strauss: Don Juan
Richard Strauss: Fjórir síbustu söngvar
W. Lutoslawski Konsert fyrir hljómsveit
Starfsárið -
Sinfóníuhljómsveit Islands
Háskólabíói vib Hagatorg
Sími: 562 2255
Fax: 562 4475
Nánari upplýsingar á sinfóníu-
vefnum: www.sinfonia.is
Miöasala á skrifstofu hljómsveitarinnar og viö innganginn
Vinnumiðlun
skólafólks í
Hitt húsið
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu um að Vinnumiðlun skólafólks
verði flutt í Hitt húsið. Vinnumiðlunin
nær til skólanema 17-25 ára og er
starfrækt í fjóra til fimm mánuði á ári.
í tillögu borgarritara kemur fram
að á undanfömum mánuðum hafa ver-
ið kannaðir ýmsir möguleikar á fyrir-
komulagi Vinnumiðlunar skólafólks.
Niðurstaðan sé að hagkvæmast sé að
fela Hinu húsinu að annast verkefnið.
Fram kemur að um óbreytt fyrir-
komulag verður að ræða en áhersla
lögð á aukna þjönustu og upplýsinga-
gjöf, svo sem með rýmri opnunartíma
eða frá kl. 8.20-23 alla virka daga og
frá kl. 12-18 um helgar.
---------------
Rúmlega
154,7 milljóna
tilboði tekið
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu frá Innkaupastofnun Reykja-
víkurborgar um að taka rúmlega
154,7 milljóna króna tilboði lægst-
bjóðanda, Eyktar ehf., í viðbyggingu
við Melaskóla.
Sex buðu í verkið og var tilboð
Eyktar ehf. 81,57% af kostnaðaráætl-
un en hún er rúmar 189,7 milij. Ár-
mannsfell átti næstlægsta boð og bauð
82,22% af kostnaðaráætlun, Byggða-
verk ehf. bauð 84,15%, Jámbending
ehf. bauð 86,61%, ístak hf. bauð
92,06% og Spöng ehf. bauð 92,18%.
Bergmál - líknar- og vinafélag
Býður lang’veikum
til sumardvalar
Kolbrún Karlsdóttir
BERGMÁL, líknar-
og vinafélag var
stofnað árið 1992.
Upphafið var að fyrrum
skólafélagar vildu hlúa
að gamla söngstjóranum
sínum, Jóni Hjörleifi
Jónssyni, sem hafði
slasast lífshættulega.
Skólafélagarnir ákváðu
að hælda honum hátíð á
næsta afmælisdegi hans
ef hann fengi að lifa -
sem þeir og gerðu. Þá
voru 36 ár liðin frá veru
þeirra í Hlíðardalsskóla.
Núna eru félagar í
Bergmáli að undirbúa
starfsemi sumarsins en
árlega býður félagið
blindum, krabbameins-
sjúkum og öðrum lang-
veikum til ókeypis orlofs-
dvalar í eina viku.
Kolbrún Karlsdóttir er for-
maður Bergmáls.
- Hvers vegna bjóðið þið sjúku
fólki til orlofsdvalar?
„Einn stofnfélaginn, Ólafur
Ólafsson, greindist með krabba-
mein á okkar fyrsta starfsári.
Það sem við lærðum af því að
fylgja honum á öllum stigum
sjúkdómsins þar til yfir lauk,
varð til þess að við vildum gera
okkar til að létta undir með þeim
sem hafa ekki verið jafngæfu-
samir og við að halda heilsu
sinni.
Þess má geta að nú eru í Berg-
máli margir sem ekki voru í
Hlíðardalsskóla en eiga með
okkur þessa hugsjón að hlúa eft-
ir föngum að þeim er þess þurfa.
- Þið eruð vinafélag?
„Við vitum að án vináttu og
kærleika getur enginn lifað eðli-
legu lífi og það ásamt heilsunni
og trúnni er það dýrmætasta
sem okkur er gefið.“
- Hvar haldið þið orlofsvikurn-
ar?
„Við vorum fyrstu þrjú árin í
HUðardalsskóla en nú er hann til
sölu. Auðvitað var það áfall að
missa þennan góða stað sem eig-
endur lánuðu okkur án endur-
gjalds og við erum þeim ákaflega
þakklát fyrir. Við erum svo
gæfusöm að fá inni í sumar að
Sólheimum í Grímsnesi og höf-
um mætt einstökum velvilja for-
ráðamanna þar.“
- Hvað með fjármögnun starf-
seminnar?
„Við gerum allt sem við get-
um til að afla fjár og öll störf
eru unnin í sjálfboðavinnu. Við
eigum marga góða að sem hafa
árlega gefið megnið af þeim
matvælum sem við höfum
þarfnast og þau fyrirtæki hafa í
raun gert okkur þetta kleift og
við fáum þeim aldrei fullþakk-
að.
Þó þurfum við enn meiri
stuðning í ár.“
- Hvers vegna?
„Nú þurfum við i fyrsta sinn
að greiða fyrir húsnæði því auð-
vitað þarf fé til að
halda gistiþjónustu
Sólheima gangandi
þótt þeir vilji allt fyrir
okkur gera og hafi gert
okkur einstakt tilboð
þá þarf peninga til að
dæmið gangi upp.“
- Hvað hyggist þið gera?
„Við höfum engan fastan fjár-
stuðning en erum að leita á náðir
fyrirtækja í Reykjavík með
beiðni um fjárframlög og vonum
að velvilji forráðamanna þeirra
nái til okkar.
Það bara verður að takast og
með Guðs og góðra manna hjálp
trúi ég að svo verði.“
►Kolbrún Karlsdóttir er fædd
á Fáskrúðsfirði árið 1942. Hún
kennir postulfnsmálun og held-
ur námskeið í ýmsum öðrum
handverksgreinum.
Hún er formaður í sljórn
líknar- og vinafélagsins Berg-
máls.
Eiginmaður Kolbrúnar er
Jón Kjartansson og eiga þau
fjögur börn.
- Hvenær verða orlofsvikumar
ísumar?
„Sú fyrri er 24.-31. mai og
hún er fyrir blinda og fólk sem
er langveikt af öðrum sjúkdóm-
um en krabbameini. Við
komumst fljótt að því að svo
margir sjúkir þurfa tilbreytingu
og höfum tvisvar áður verið með
svona samsettan hóp. Seinni
vikan sem er fyrir krabbameins-
sjúklinga verður svo 17.-24.
ágúst. Við höfum rúm fyrir 35
gesti og ég get sagt að öll að-
staða er mjög góð að Sólheim-
um.“
- Hvað hafa gestir fyrir stafni
á orlofsvikum?
„Við reynum að sjá gestum
okkar bæði fyrir andlegri og
líkamlegri næringu og leggjum
mikið upp úr hollri fæðu. I
fyrra fórum við tvær á eigin
kostnað til Noregs og lærðum
að matbúa fyrir krabbameins-
sjúka. Þeir þurfa auðmelta
fæðu og nota fremur orkuna til
að vinna á sjúkdómnum. Við
gefum þeim því ríkulega af
ávöxtum, grænmeti og fiski og
reynum að forðast fæðu með
aukaefnum.
Á hverju kvöldi er kvöldvaka
og margir af bestu listamönnum
þjóðarínnar hafa komið og veitt
okkur ómælda gleði.
Við fáum líka fólk til að halda
fyrirlestra um heilsu, nuddarar,
fótsnyrti- og hársnyrtifólk hefur
gefið vinnu sína og við höfum
fengið sérfræðinga til að fjalla
um tryggingamál og einnig leiðir
til úrbóta þegar tekjur dragast
saman.
Þá er farið í sund og
gönguferðir, skemmti-
ferðir í rútu um ná-
grennið og til kirkju á
sunnudeginum. Eftir
kvöldvöku fara sumir í
galsasund en þá er sungið við
raust í lauginni en við syngjum
mikið við öll tækifæri, það er svo
góð heilsubót.“
- Félagar sem starfa í Berg-
máli eru ísex kirkjudeildum?
„Við erum um 50 talsins og úr
sex kirkjudeildum. Öll erum við
trúað fólk og teljum mikils virði
að geta með þessum hætti unnið
saman í kærleika.“
Með hug-
sjónina að
leiðarljósi