Morgunblaðið - 17.03.1998, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.03.1998, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Pétur H. Blöndal kynnir þrjú ný þingmál Markmiðið að einfalda skattkerfíð STAÐGREIÐSLA skatta, tekju- skattur og útsvar, lækkar úr rúm- um 38% í tæp 20% á sjö árum, samkvæmt frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt sem Pétur H. Blön- dal og Vilhjálmur Egilsson, þing- menn Sjálfstæð- isflokks, hafa lagt fram á Al- þingi. Þar er einnig lagt til að persónuafsláttur, sjómannaafslátt- ur, vaxtabætur og sérstakur tekjuskattur verði smám sam- an felldur niður á _______________ sjö árum og sér- stakri skattalegri meðhöndlun á dagpeningum og bifreiðastyrkjum verði hætt. Samhliða frumvarpi hafa þing- mennimir lagt fram frumvarp til laga um að barnabætur verði færð- ar undir sér lög en haldist þrátt fyrir það óbreyttar og tillögu til þingsályktunar um að húsnæðis- bætur komi í stað núverandi húsa- leigu- og vaxtabóta. Samkvæmt þingsályktunartillögunni eiga hús- næðisbætumar að vera háðar stærð fjölskyldunnar sem býr í sömu íbúð og skerðast í hlutfalli við tekjur allra í fjölskyldunni. Ætlun- in er að þær verði greiddar út mán- aðarlega og renni til greiðslu á húsaleigu eða greiðslu af lánum sem tekin hafa verið til að kaupa íbúðarhúsnæði. Markmiðið með þingmálunum þremur er m.a. að einfalda skatt- kerfíð með því að flytja úr skatta- lögum alla þætti sem varða félags- lega eða tryggingalega hjálp og jafnframt að einfalda húsnæðis- kerfið, að því er fram kom í máli Péturs er hann kynnti tillögumar á blaðamannafundi í gær. Þá er markmiðið m.a. að draga úr ALÞINGI skattsvikum, auðvelda eftirlit og auka meðvitund borgaranna um velferðarkerfíð með því að láta alla greiða til þess. Kemur hátekjufólki til góða Samkvæmt tillögunum eiga tekj- ur ríkis og sveitarfélaga ekki að breytast, en bú- ist er við því að fólk með heildar- tekjur rétt um skattleysismörk verði verst úti við þessar breyting- ar. „Það fólk hef- ur hvoi'ki greitt tekjuskatt né út- svar til þessa en mun eftir breyt- inguna greiða um 20% í skatt og útsvar,“ segir m.a. í greinai'gerð frumvarpsins um bi’eytingu á tekju- og eignarskatti. Þar kemur hins vegar fram að fyr- irhugaðar húsnæðisbætur muni milda þessi áhrif. Á hinn bóginn munu breytingamar koma fólki með háar tekjur til góða, þar sem jaðarskattaáhrif munu minnka og tekjuskattshlutfallið lækka. Jaðarskattanefnd guggnaði I máli Péturs kom m.a. fram að hin svokallaða jaðarskattanefnd sem starfaði síðastliðið sumar hefði guggnað á því verkefni að takast á við núverandi skattkerfi. Ástæðan hefði m.a. verið sú að menn hefðu einblínt of mikið á lægstu launin. „Eg segi hins vegar að það eigi að hækka lægstu launin,“ sagði hann meðal annars. „Hér er hugsunin sú að gera umræddar breytingar á nógu löngum tíma til þess að aðil- ar vinnumarkaðarins geti unnið að því að hækka lægstu launin. Ég hef grun um að það takist,“ sagði hann. Aðspurður kvaðst Pétur ekki bú- ast við því að umræddar tillögur yrðu samþykktar á vorþingi. Þær Morgunblaðið/Ásdís RÆTT var um skattamál á Alþingi þegar lögð voru fram lagafrumvörp um breytingar á skattakerfinu. væru hins vegai' meira hugsaðar sem leið til að sýna fram á það hvað hægt væri að gera. „Jaðar- skattanefndin guggnaði á því að koma með einhverjar tillögur. Hér eru komnar tillögur. Menn geta síðan skoðað þær og gagnrýnt og athugað hvoi’t það sé einhver flötur á því að taka þær upp,“ sagði hann. Ný lög frá Alþingi ÞRJÚ lagafrumvöi’p voru samþykkt sem lög frá Alþingi í gær. Fiumvarp til laga um dómstóla, frumvarp til laga um vopnalög og frumvarp til laga um Örnefnastofnun ís- lands. Heimilt að staðfesta stækkun NATO UTANRÍKISRÁÐHERRA, Halldór Ásgrímsson, hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu þess efnis að AJþingi álykti að heimila ríkisstjóm- inni að staðfesta fyrir íslands hönd þrjá viðbótarsamninga við Noi'ður- Atlantshafssamninginn um aðild Pól- lands, Tékklands ogf Ungverjalands sem gerðir voru í Brussel 16. desem- ber sl. í athugasemdum með ályktunartil- lögunni segir að aðildaxviðræður full- trúa landanna við fulltrúa NATO hafí staðið fram á haustið 1997 og lokið með ósk þein-a um aðild að Norður- Atlantshafssamningnum. Utanríkis- ráðhexrar aðildarríkja bandalagsins undirrituðu viðbótarsamninga um að- ild ríkjanna þriggja í Brussel 16. des- ember sl. ,Áður en viðbótarsamningar voru undirritaðir lét Atlantshafsbandalagið gera kostnaðaráætlun vegna fyrir- hugaðrar fjölgunar aðildarríkja þess. Niðurstöður þessara áætlunar benda til þess að sameiginleg útgjöld banda- lagsins muni aukast um u.þ.b. 1,5 milljarða BandaríkjadaJa á næstu tíu árum,“ segir í athugasemdunum. Andlát STEFAN VALGEIRSSON STEFÁN Valgeirsson alþingismaður lést á Fjórðungssjúla'ahús- inu á Akureyri laugar- daginn 14. mars. Stefán fæddist á Auðbrekku í Hörgár- dal árið 1918. Hann lauk búfræðiprófí frá Bændaskólanum á Hól- um og bjó um árabil fé- lagsbúi í Auðbrekku ásamt foreldrum sínum og bræðrum. Einnig stundaði hann ýmis störf í Reykjavík og á Suðumesjum. Stefán Stefán sat á þingi frá Valgeirsson árinu 1967 til 1991, fyrst fyrir Framsóknarflokkinn og síðar fyrir Samtök jafnréttis og fé- lagshyggju. Einnig sinnti hann ýmsum félags- og trúnaðarstörfum bæði á landsvísu og heima í héraði. Stefán var kvæntur Fjólu Guð- mundsdóttur og áttu þau sex börn. Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, minntist Stefáns við setningu þingfundar í gær og sagði m.a: „Frá upphafi var hann ötull við þingstörf, tók oft þátt í umræðum, starfaði í nefndum og gegndi formennsku í landbúnaðamefnd og síðar samgöngunefnd. Áhugamál hans beindust öðru fremur að bættum hag fólks- ins í dreifðum byggð- um landsins. Jafnrétti og félagshyggja voru honum hugð- arefni og urðu stefnumál hans og fylgismanna hans þegar hann, nær sjötugur að aldrí, keppti að endur- kjöri til Alþingis og náði kosningu fyrir ný stjórnmálasamtök.“ Alþingi Stutt Bætt réttarstaða fbúa stofnana og helmlla ELLEFU þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um bætta réttarstöðu íbúa á hjúkrunar- og dvalar- heimilum, sólarhringsstofnunum og vistheimilum fyrir aldraða og fatlaða. Aldraðir eða fatlaðir sem vistast á slíkum stofnunum missa réttinn til beinna bótagreiðslna úr almannatryggingakerfinu en fá eingöngu greiddan mánaðarlegan vasapening sem nú er rétt um 11.000 kr. Ásta B. Þorsteinsdóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar og fel- ur hún í sér að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að undirbúa breytingar á lögum um almannatryggingar þannig að þeir sem dvelj- ast langdvölum eða eiga heimili sitt á slíkum stofnunum vegna öldr- unar eða fötlunar, njóti sömu réttinda hvað varðar lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, hjálpartæki og aðra fyrirgreiðslu og þeir sem búa utan umræddra stofnana. I greinargerð með tillögunni segir m.a. að tilgangur hennar sé að bæta úr því augljósa og margháttaða misrétti sem þeir sem dveljast á stofnunum eða hjúkrunarheimilum búa við. Stofnanirnar séu flestar á daggjöldum eða föstum fjárlögum þannig að íbúarnir greiði ekki sjálfir fyrir dvöl sína eins og tíðkast t.d. á sambýlum eða í vernduðum íbúðum. í tillögunni er Jagt til að íbúar umræddra stofnana og heim- ila fái greiddan elli- eða örorkulífeyri, tekjutryggingu og heimilis- uppbót. Þeir greiði síðan til heimilisins vegna eðlilegs framfærslu- kostnaðar svo sem fyrir fæði, húsaleigu o.fl. á sama hátt og aðrir. Forsætlsráðherra veðurtepptur á Akureyrl FIMM þingmál voru tekin út af dagskrá Alþingis í gær þar sem Davíð Oddsson forsætisráðherra, er mæla átti fyrir fimm stjórnarfrum- vörpum, var veðurtepptur á Akureyri. Frumvörpin snúa m.a. að breytingum á lögum um tekju- og eignar- skatt og staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur og verða þess í stað á dagskrá Alþingis í dag. Alþingi Dagskrá ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 13.30 í dag. Eftirfarandi mál eru á dagskrá: 1. Stofnun hlutafélags um sfldar- útvegsnefnd. 1. umr. (atkvgr.). 2. Tekjuskattur og eignarskatt- ur. 1. umr. 3. Tekjuskattur og eignarskatt- ur. 1. umr. 4. Bindandi álit í skattamálum. 1. umr. 5. Staðgreiðsla skatts á fjár- magnstekjur. 1. umr. 6. Þjóðfáni íslendinga. 1. umr. 7. Eftirlit með fjármálastarf- semi. 1. umr. 8. Sérákvæði laga um fjármála- eftirlit. 1. umr. 9. Gjaldmiðill íslands. 1. umr. 10. Samningar með tilkomu evr- unnar. 1. umr. 11. Samábyrgð Islands á fiski- skipum. 1. umr. 12. Innheimtulög. 1. umr. 13. Vextir, dráttarvextir og verðtrygging. 1. umr. 14. Starfsréttindi tannsmiða. 1. umr. 15. Skipulag ferðamála. 1. umr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.