Morgunblaðið - 17.03.1998, Page 4

Morgunblaðið - 17.03.1998, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Reykskynjarar bjarga mannslífum Sluppu á nátt- klæðum ur elds- voða í Fljótsdal Eldsvoði í íbtíðarhtísi við Elliðavatn Morgunblaðið/Jón Svavarsson ELDURINN stóð tít um gafl htíssins þegar slökkvilið kom að. Misstu allt innbtí sitt EINLYFT íbúðarhús með þak- rými eyðilagðist í eldsvoða í Kríunesi við Elliðavatn á sunnu- dag. Ibúamir, ung hjón, voru ekki í húsinu þegar eldurinn kom upp. Þau misstu allt innbú sitt. Húsið er talið ónýtt en slökkviliði tókst að bjarga nýrra, sam- byggðu íbúðarhúsi frá eldinum. Slökkvilið var kvatt á staðinn rétt fyrir kl. 16 á sunnudag og stóðu logamir þá út um gafl hússins og húsið orðið alelda. Slökkviiið þurfti að brjóta ísinn á Elliðavatni til að komast í vatn og að sögn varðstjóra tafði það fyrir slökkvistörfum en skipti þó ekki sköpum því eldurinn hafði þegar náð að læsa sig í húsið. Nágrannarnir aðstoðuðu Nágrannar urðu varir við eld- inn og gerðu slökkviliði aðvart. Einnig björguðu þeir hundi út úr húsinu og aðstoðuðu við að bjarga innanstokksmunum út úr tengibyggingu milli eldra og yngra hússins. Eigandi húsanna býr í nýrra húsinu og leigði ungu hjónunum íbúð í því eldra. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var hvasst á staðn- um og létti það ekki störfin. Þak hússins var fellt til að koma í veg fyrir að það fyki af enda festing- ar og allt hald brannið. Egilsstöðum og Geitagerði. Morgunblaðið. HJON með eitt bam sluppu naum- lega, á náttklæðum einum fata, út úr alelda íbúðarhúsi sínu á bænum Víðivöllum ytri II í Fljótsdal í fyrr- inótt. Eldsins varð vart um klukkan 5 í gærmorgun og gerðu reyk- skynjarar fólkinu viðvart. Húsið var steinhús með timburþaki og svo virðist sem upptök eldsins hafi ver- ið í þaki hússins og eldur kraumað þar í langan tíma, þar til reykur braust út og inn í íbúðina. Húsráðendur vöknuðu þegar við skynjarana og fóra strax út, en um leið og útihurð var opnuð varð sprenging inni fyrir, sem talið er að hafi verið vegna súrefnis sem streymdi inn þegar hurðin var opn- uð. Skipti þá engum togum að húsið varð alelda á örskammri stundu og þakið hrandi nánast í heilu lagi á stuttum tíma. Allt brann sem brannið gat og fólkið mátti teljast heppið að sleppa lifandi út úr þessu eldhafi. Eldur læsti sig í sinu Mikið hvassviðri var þegar þetta átti sér stað og eldur læsti sig strax í sinu á túnum í kring og æddi þar um. Bændur á næstu bæjum og slökkviliðið á Hallormsstað bragð- ust fljótt við og réðu niðurlögum sinueldsins, en næsti bær var í tölu- verðri eldhættu, svo og skóglendi í nágrenninu að sögn Baldurs Páls- sonar, slökkviliðsstjóra á Héraði. Einnig náði heimavarnarliðið að leggja lögn að vatnsbóli þegar slökkviliðið af Héraði kom á vett- vang, sem auðveldaði störfin. Um þrjár klukkustundir tók að ráða niðurlögum eldsins, en upptök hans era ekki ljós. Baldur Pálsson vill koma á fram- færi þökkum til heimamanna í Fljótsdal og á Hallormsstað fyrir skjót viðbrögð og góð vinnubrögð í baráttunni við eldinn. Hann vill ennfremur minna á að enn einu sinni má þakka þessum ódýra litlu tækjum, sem reynskynjarar era, að mannbjörg varð. dómsmálaráðuneytis bréf þar sem bent er á hve alvarlegur heilbrigð- isvandi ölvunarakstur sé orðinn. Guðmundur sagði í samtali við Morgunblaðið að með skriflegum ábendingum til ráðherra vildi læknafélagið hefja umræðu um ölvunarakstur þar sem stjómvöld og aðrir sem bera ættu ábyrgð á málunum hefðu verið að „draga lappimar“. Ráðherra kannar tillögur Læknafélagsins Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að hún væri tiibúin að leggja málinu lið: „Ég er tilbúin að skoða allt sem getur bætt umferðaröryggi og ég mun kanna tillögur Læknafélags- ins í þeim efnum. Menn era aldrei of oft minntir á mikilvægi þess að hreyfa ekki bíl eftir að hafa bragð- að áfengi og einnig er aldrei of oft minnt á að ýmis lyf era sérstak- lega merkt þar sem ekki er ætlast til að fólk aki bíl eftir neyslu þeirra. Mikilvægt er að læknar og þeir sem selja lyfin minni stöðugt á það.“ Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra sagðist fagna áhuga lækna á viðfangsefninu. Umferðarráð og lögregla líti nú þegar á ölvun- arakstur sem eitt af stærri verk- eftium í áætlun um öryggi í um- ferðinni, sem nú væri unnið eftir. Samstarfsnefnd skipuð „Ákveðið var strax í morgun að skipa sérstaka samstarfsnefnd, undir forystu fulltrúa frá Ríkislög- reglustjóra, með aðild Læknafé- lagsins, Umferðarráðs og fleiri að- ila til þess að fjalla um þeirra hug- myndir og hvað frekar sé hægt að gera í þessum málum,“ sagði Þor- steinn í samtali við Morgunblaðið í gær. I bréfi sem Þorsteinn Pálsson sendi Læknafélagi íslands í gær kemur meðal annars fram að á ár- inu 1995 hafi 58 ölvaðir ökumenn átt aðild að umferðarslysum hér á landi. Á tímabilinu 1986-1995 létu 32 lífið hérlendis vegna umferðar- slysa sem ölvaður ökumaður átti aðild að, en það samvsvarar 14% allra banaslysa á tímabilinu. Ýmsar leiðir koma til greina Guðmundur Björnsson sagði að Læknafélagið hefði ekki fastmót- aðar skoðanir á því hvað væri best að gera: „Hvort lækka þurfi leyfi- legt áfengismagn í blóði öku- manna, auka eftirlit, herða viður- lög gegn ölvunarakstri eða auka r; fræðslu til að ná árangri, kemur í Ijós, en það þarf að grípa til að- gerða.“ Hann benti á að Svíar hefðu lækkað leyfilegt áfengis- magn í blóði ökumanna úr 0,5% í 0,2% fyrir nokkram áram og slys- um, þar sem ölvun væri talin helsti orsakavaldurinn, hefði fækkað í kjölfarið. Að sögn Guðmundar hafa lækn- ar lengi haft miklar áhyggjur af þessum málum og ljóst væri að g þróunin færi versnandi. Bæði hafi orðið aukning á slysum þar sem ^ ölvun hafi verið orsakavaldur og | einnig hafi fleiri ökumenn verið teknir ölvaðir undanfarið. „Læknar í slysamóttöku sjá hræðilegar afleiðingar þessara slysa og ræða við aðstandendur þeirra sem verða fyrir þeim, og er mælirinn nú orðinn fullur. Við get- um ekki lengur horft upp á svo al- varlegt heilbrigðisvandamál þar sem verið er að nota að óþörfu || heilbrigðisþjónustu sem hægt væri m að nota í annað.“ GUÐMUNDUR Bjömsson, for- maður Læknafélags íslands, hefur sent ráðherram heilbrigðis- og Vdkni <ig/á m i n n i ng Nánari upplýsingar um verð og sérþiónustu Landssímans færðu í síma 800 7000 eða SÍMASKRÁNNI. LANDS SfMlNN Bílskúrinn sveif í boga yfir húsin Ólafsvflt. Morgrinblaðið. SUÐVESTAN stormm- hefur nú geisað hér í á annan sólai’- hring, mjög sterkar kviður ganga yfir og skella þær af miklu afli á húsum sem eru eins og gripin feiknartökum. Ein stoi-mkviðan skellti sér á bflskúr við Brúarholt, sprengdi hann með feiknar hvelli og skrúfaði upp í loftið. Sjónar- vottur sá skúrinn svífa í boga yfir næstu hús og snerta þau lítillega. Lenti skúrinn á miðri Grundarbraut sem er ein helsta umferðargatan hér. Lögreglan segir mildi að ekki varð þama slys. Gatan var lokuð um tíma en björgunar- sveitin og starfsmenn bæjarins brugðu skjótt við og hreinsuðu götuna. í brakinu mátti sjá reiðhjól, garðslöngur og fleira tilheyrandi geymslu, en enginn bíll var í skúmum þegar hann fór á þetta mikla flug. Eftir stendur grannurinn með vel sópuðu gólfi eftir kústana hans kára. Úr lífs- hættu SAMBÝLISMAÐUR unpi konunnar, sem lést í árekstri á Vesturlandsveg skammt frá vegamótunum að Víkurvegi 7. mars síðastliðinn, er kominn úr öndunarvél. Hann telst vera úr lífshættu, samkvæmt upplýs- ingum frá Sjúkrahúsi Reykja- víkur. Þarftu að láta vekja þig eða minna þig á eitthvað? Það gerir þú með því að ýta á □ 55 □, ákveð- inn tíma (t.d. 0730) og H Læknar vilja aðgerðir ölvunarakstri í Dómsmálaráðherra skipar samstarfsnefnd til að fjalla um vandann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.