Morgunblaðið - 17.03.1998, Side 12

Morgunblaðið - 17.03.1998, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Páll Stefánsson dýralæknir segir hitasóttina breiðast hratt út í Arnessýslu Tímaspursmál hve- nær sóttin berst yfir í Rangárþing „ARNESSYSLAN er undirlögð af hitasóttinni og það er aðeins tíma- spursmál hvenær Rangárvallasýsl- an fær sóttina,“ sagði Páll Stefáns- son, dýralæknir hjá Dýralækna- þjónustu Suðurlands, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði útilokað að halda utan um sóttina á Suðurlandi en hins vegar væri það skoðun sín að verja þyrfti aðra landshluta með kjafti og klóm. Engin ástæða væri til að breiða sóttina hraðai- út á þeim svæðum sem væru nú þegar undirlögð. „Þótt veikin sé í flestum tilvikum væg koma upp mörg leiðindatilfelli þar sem hross verða mikið veik,“ sagði Páll, en kvaðst þó aðeins vita af einu dauðsfalli þar sem átti hlut að máli 24 vetra hryssa sem var illa fyrirkölluð og hefði allt eins getað farið í næsta hreti. Fylfullu merarnar helsti áhættuhópurinn „Helsti áhættuhópurinn er fyl- fullu hryssumar sem gætu orðið klumsa. Vil ég eindregið ráðleggja mönnum að auka eftirlit með úti- gangshrossum, sérstaklega þar sem sjaldan er fóðrað og mikið gef- ið í senn. Ef skjótt er brugðist við jafna þær sig flestar ef þeim er gefinn vökvi í æð,“ sagði Páll. Eftir því sem næst verður kom- ist hafa sex hross orðið dauðveik eða verið aflífuð vegna veikinnar. Hryssa á Andvaravöllum sem hafði verið veik kastaði á laugardag en folaldið drapst sólarhring eftir fæðingu. Var það krufið á Keldum í gær og sagði Sigurður Sigurðarson Hátt í 10.000 manns sóttu Námskynn- ingu 1998 NÁMSKYNNING 1998 var haldin í Háskóla Islands á sunnudaginn. Kynningin er samvinnuverkefni skóla og þjónustuaðila námsmanna og hefur Námsráðgjöf Háskóla Islands umsjón með fram- kvæmdinni í samvinnu við þátttakendur, sem eru flestir framhalds- og sérskólar lands- ins. A kynningunni voru kynntar um 200 leiðir til náms, allt nám á háskólastigi og í sérskólum hér á landi, auk þess sem tveir erlendir skólar kynntu starfsemi sína. Að sögn Astu Kr. Ragnars- dóttur, forstöðukonu Náms- ráðgjafar Háskóla íslands, er talið að hátt í 10.000 manns hafi sótt kynninguna og var stöðugur straumur fólks frá klukkan 11 til klukkan 18 á sunnudaginn. Fólk á öllum aldri sótti kynninguna og voru listaskólamir, Hitt húsið og Háskólakórinn með uppákom- ur auk þess sem verðlaun í Stærðfræðikeppni framhalds- skólanna vora afhent. Einkunnarorð Námskynn- ingar 1998 vora, „í leit að námi“ og eru kynningar sem þessar haldnar annað hvert ár. Morgunblaðið/V aldimar PÁLL Stefánsson dýralæknir rannsakar sýni. dýralæknir að ekki hefðu fundist óyggjandi ummerki sem rekja mætti til hitasóttarinnar. Nokkrar blæðingar hefðu verið í líffærum. Tekin voru sýni fyrir vefja-, sýkla- og veirurannsókn. Sigurður vildi hvetja menn til varkárni við hey- flutninga af ósýktum svæðum yfir á sýkt svæði. A Akranesi berst sóttin hús úr húsi í hesthúsahverfinu á Æðar- odda en svo virðist sem tekist hafi að einangra hana við hverfið. Mikill þrýstingur er nú á yfir- dýralæknisembættið og landbún- aðarráðunaeytið að reglugerðinni sem sett var vegna sóttarinnar verði breytt eða undanþágur gerð- ar um flutning hrossa, annars veg- ar innan sýktra svæða, sem era væntanlega höfuðborgarsvæðið og Amessýsla, og svo aftur að flutn- ingur verði leyfður innan ósýktra svæða. Sameining fjög- urra hreppa samþykkt SAMEINING fjögurra sveitarfé- laga í Borgarflrði, Andakíls- hrepps, Lundarreykjadalshrepps, Reykholtsdalshrepps og Hálsa- hrepps, var samþykkt í atkvæða- greiðslu á laugardag. Naumur meirihluti var fyrir sameining- unni í Reykholtsdal. í Andakflshreppi var tillagan samþykkt með 93% greiddra at- kvæða. 201 var á kjörskrá. At- kvæði greiddu 107, sem er 53,2% þátttaka. Já sögðu 100 en nei sögðu sjö. I Lundarreykjadalshreppi var tillagan samþykkt með 74,5% greiddra atkvæða. Kosningaþátt- taka var 78,3%. 60 voru á kjör- skrá, 47 greiddu atkvæði. 35 sögðu já, 12 nei. I Reykholtsdalshreppi greiddu 125 atkvæði en 161 var á kjör- skrá. Það svarar til 77,8% þátt- töku. Já sögðu 66 og nei 58. Einn seðill auður. Tillagan var því samþykkt með 53% greiddra at- kvæða. I Hálsahreppi var tillagan sam- þykkt með 88% greiddra at- kvæða. 62 voru á kjörskrá. 42 greiddu atkvæði. Þátttaka var því 67,7%. 37 sögðu já og 5 nei. Sem hlutfall allra greiddra at- kvæða var sameining samþykkt með 74% atkvæða á móti 26%. Svava S. Kristjánsdóttir, for- maður sameiningarnefndarinnar, sagði að jafnframt hefðu viðhorf kjósenda til nafns fyrir nýtt sveit- arfélag verið könnuð en eftir væri að vinna úr tillögum. Ein- hverjar þeirra verða lagðar fyrir kjósendur í tengslum við sveitar- stjórnarkosningar í vor. Sveifla í Reykholts- dalshreppi Hinn 17. janúar sl. var kos- ið um sameiningu þessara íjögurra hreppa og Skorradals- hrepps og Hvítársíðu- hrepps, en þeir tveir hrepp- ar felldu sameiningu og var því gengið til kosn- inga að nýju í þessum fjór- um hreppum. Athygli vek- ur að talsverðar breyting- ar eru á fylgistölum í Reykholts- dalshreppi. I janúar voru 108 íbú- ar hreppsins fylgjandi sam- einingu en 15 andvígir. Nú sögðu já 66 en nei 58. Svava S. Kristjánsdótt- ir sagði aðspurð um skýring- ar á þessari sveiflu að kom- ið hefði upp hreyfing í hreppnum þess efnis að ganga ekki til sameining- ar fyrr en vegamálin væru út- kljáð, en eins og fram hefur kom- ið er óánægja innan hrepps- ins með það að ekki er fengin niðurstaða um lagningu Borgarfjarðar- brautar í grennd við land Stóra-Kropps í Reykholtsdal. I nýju sameinuðu sveitarfé- lagi í Borgarfirði verða 686 íbúar, miðað við 1. desem- ber sl. Svava sagði að væntanlega yrði stjómsýslu- miðstöð sveitarfélagsins á Klepp- járnsreykjum í Reykholtsdal. Runnu saman í hálku ÁREKSTUR varð við Nesti á Kringlumýrarbraut klukkan 20:22 í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum lög- reglu lentu bílarnir saman í hálku og síðan annar þeirra ut- an í ljósastaur. Ökumaður ann- ars bflsins var fluttur á slysa- deild, með eymsl í síðu. Ingvar Viktorsson efstur í prófkjöri Alþýðuflokksins í Hafnarfírði Arni Hjörleifsson tekur ekki sæti á listanum INGVAR Viktorsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, hlaut 991 atkvæði og varð í 1. sæti í prófkjöri Alþýðu- flokksins í Hafnarfirði vegna sveitar- stjórnarkosninganna í vor. Fjórtán gáfu kost á sér í prófkjörinu og hlaut enginn bindandi kosningu. Árni Hjörleifsson bæjarfulltrúi, sem lenti í 8. sæti, segist ekki vilja vinna með Tryggva Harðarsyni bæjai-fullti-úa og mun því ekki taka sæti á listanum. Alls tóku 1.626 manns þátt í próf- kjörinu, sem var opið öllum Hafn- firðingum. I 2. sæti varð Jóna Dóra Karlsdóttir með 450 atkvæði í það sæti, í 3. sæti varð Tryggvi Harðar- son með 515 atkvæði, í 4. sæti varð Ómar Smári Armannsson með 689 atkvæði, í 5. sæti varð Hafrún Dóra Júlíusdóttir með 760 atkvæði og í 6. sæti varð Unnur Hauksdóttir með 726 atkvæði. í 7. sæti varð Eyjólfur Sæmundsson með 691 atkvæði, í 8. sæti varð Árni Hjörleifsson með 702 atkvæði, í 9. sæti varð Jóhanna Mar- grét Fleckenstein með 711 atkvæði og í 10. sæti varð Gísli Ó. Valdimars- son með 683 atkvæði. „Ég er mjög ósáttur við þau vinnubrögð sem voru viðhöfð hjá Þrjár konur urðu meðal sex efstu frambjóðendanna ákveðnum hópi, en ákveðnii’ menn vora sniðgengnir," sagði Árni Hjör- leifsson bæjarfulltrúi. „Guðmundur Árni og hans fylgismenn lögðu upp með að Ingvar Viktorsson væri að hætta. Hann væri að sýna samstöðu með því að vera með og þyrfti ekki mörg atkvæði. Menn ættu því að kjósa Tryggva Harðarson í fyrsta sæti og Jónu Dóru í annað.“ Tókum ekki þátt í svona leik Sagði Árni að auk þess hefði verið reynt að sjá til þess að hann yrði ekki á blaði, ásamt þeim Eyjólfi Sæ- mundssyni og Ómari Smára Ár- mannssyni. í stað þess var lagt til að konurnar þrjár yrðu teknar inn á listann. „Þetta era nýjar ágætis kon- ur og ég er ekki að gagnrýna þær, en þær vora notaðar til uppfyllingar," sagði hann. „Við heyrðum á fólkinu í talningunni hvernig þetta var. Þessir 300-350 kjósendur sem styðja Guð- mund Ama unnu svona en við hinir sem tókum þátt í þessu prófkjöri kepptum hver fyrir sig og tókum ekki þátt í svona leik. Það er greini- legt að hans vinnubrögð unnu og við verðum að taka því.“ Starfa ekki með Tryggva Ámi sagði að áróðurinn hefði fyrst og fremst beinst að því að koma Tryggva Harðarsyni í 1. sæti. Þau atkvæði sem hann fengi í það sæti myndu þá nýtast honum í 2. eða 3. sæti. „Þau vissu að ekki var hægt að klekkja á Ingvari," sagði hann. „Ég er búinn að segja að með Tryggva Harðarsyni nenni ég ekki að vinna. Hann hefur starfað af óheilindum þetta síðasta ár og ítrekað komið aft- an að okkur. Ég hef engan áhuga á að starfa með hann í forustu. Ég mun því ekki taka sæti á listanum með þessa forustu.“ Árni sagði óráð- ið hvað tæki við, en það væri viss léttir að losna eftir að hafa átt í bar- áttu við þennan hóp í rúmt ár. Fólk vildi breytingu Jóna Dóra Karlsdóttir varð í 2. sæti í prófkjörinu og er hún nýliði á listanum ásamt þeim Hafrúnu Dóru Júlíusdóttur, sem varð í 5. sæti, og Unni Hauksdóttur, sem varð í 6. sæti, en Alþýðuflokkurinn á nú fimm bæjarfulltrúa í bæjarstjórn. „Það sem gerðist var eins og við fundum að fólk vildi breytingu,“ sagði Jóna Dóra. „Það vildi ný andlit á listann og uppstokkun." Hún sagði að kon- umar hefðu fengið mjög góðar und- irtektir. „Við erum nýlegar í flokks- starfinu og erum ákaflega ánægðar með þessa niðurstöðu," sagði hún. Vegna ummæla Árna Hjörleifs- sonar sagði Jóna Dóra að hann hefði vitað eins og allir aðrir að þetta væri prófkjör. „Það eru engar blokkir og tölurnar sýna það best að ekki var unnið gegn neinum,“ sagði hún. „Hann á að sjá það best sjálfur að svo var ekki.“ Endanlegur framboðslisti flokks- ins verður lagður fram til samþykkt- ar í fulltrúaráði Alþýðuflokksfélag- anna eigi síðar en 2. apríl nk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.