Morgunblaðið - 17.03.1998, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Konur sem starfa hjá Akureyrarbæ með um 60% af launum karla
Abyrgð í starfi skilar sér
ekki í launaumslagi kvenna
KONUR sem starfa
hjá Akureyrarbæ hafa
umtalsvert lægri heild-
arlaun að meðaltali en
karlar eða einungis
tæp 60% af heildar-
launum þeirra. Þennan
launamun má að ein-
hverju leyti rekja til
þess að hlutfallslega
fleiri konur en karlar
eru í hlutastörfum, en
er þó ekki nægileg
skýring því þegar ein-
ungis er miðað við fólk
í fullu starfi eru konur
með rúm 70% af laun-
um karla.
Þessar upplýsingar
koma fram í skýrslu
um samanburð á laun-
um karla og kvenna
sem starfa hjá Akureyrarbæ og
Kristjana Blöndal hjá Félagsvís-
indastofnun Háskóla Islands vann
íyrir bæjarstjórn Akureyrar. Mark-
mið rannsóknarinnar var að kanna
hvort kynbundinn launamunur sé
til staðar meðal starfsmanna bæjar-
ins og byggðist hún á upplýsingum
frá launabókhaldi Akureyrarbæjar.
Meiri yfirvinna og
greitt fyrir akstur
Náði rannsóknin til allra starfs-
manna bæjarins sem voru í reglu-
bundnu starfi í febrúar og mars á
síðasta ári, eða 1137 starfsmanna,
þar af voru 817 konur og 320 karlar.
Æðstu yfirmönnum bæjarins, bæj-
arstjóra, félagsmálastjóra, bæjar-
ritara og bæjarverkfræðingi var þó
sleppt þar sem það hefði haft til-
tölulega mikil áhrif á niðurstöðurn-
ar og ýkt kynjamuninn.
Rannsóknin leiðir í
ljós að konur eru með
lægri meðalheildar-
laun en karlar í öllum
starfsstéttum og er
sömu sögu að segja
þegar laun eru skoðuð
eftir ólíkum aldurs- og
starfsaldurshópum.
Fram kemur að
konur í sambærilegum
störfum og á sambæri-
legum starfssviðum
hafa að meðaltali um
24% lægri laun en
karlar. Ein af skýring-
unum á hærri heildar-
launum karla en
kvenna er kynjamunur
á yfirvinnu, en karlar
fá að jafnaði greidda
meiri yfirvinnu en
konur, einkum á það við um fasta
yfirvinnu. Þá er mikill munur á
greiðslum vegna aksturssamninga
eftir kyni en um 12% karla fá slík-
ar greiðslur en innan við 1%
kvenna.
Minnstur var launamunurinn á
meðal sérfræðinga þar sem konur
höfðu um 77% af launum karla, en
mestur var munurinn meðal þjón-
ustu-, sölu- og afgreiðslufólks þar
sem konur höfðu 61% af launum
karla. Hvað stjórnunarstörf varðar
voru konur með um 71% af því sem
karlar fengu greitt. Ábyrgð í starfi
virðist ekki skila sér til kvenna líkt
og hún gerir hvað karla varðar að
sögn Kristjönu Blöndal.
Kristjana sagði að skýringar á
launamun væru margar, störfin
væru ólík, karlar hefðu lengri
starfsaldur og meiri yfirvinnu en
þegar ýmsir slíkir þættir hefðu ver-
ið teknir með væri kynbundinn
launamunur á heildarlaunum um
8% að meðaltali. Þegar starfsfólki
grunnskólanna er sleppt kemur í
ljós að konur í fullu starfi hjá Akur-
eyrarbæ eru með 12% lægri laun en
karlar, en launajöfnuður virðist
meiri milli kvenna og karlar á því
sviði.
Ekki á óvart
„Meginlínur þessarar könnunar
koma mér ekki á óvart,“ sagði Jak-
ob Björnsson bæjarstjóri um rann-
sóknina. Hann sagði að niðurstöð-
urnar myndu verða notaðar til
skapandi umræðu um þessi mál í
framtíðinni, en fyrst yrði fjallað um
þær í jafnréttisnefnd og bæjarráði
og eflaust yrðu þær einnig sendar
stéttarfélögum til umfjöllunar.
Ragnhildur Vigfúsdóttir, jafn-
réttisfulltrúi Akureyrarbæjar, segir
niðurstöðurnar dálítið sláandi en í
bænum hafi verið virkt jafnréttis-
starf um árabil. Greinilega þurfi að
grípa til róttækra aðgerða til að
jafna launamun karla og kvenna.
Lúðrasveit
Akureyrar
í hljóm-
leikaför
LÚÐRASVEIT Akureyrar leggur
land undir fót um komandi helgi og
heldur í hljómleikaför suður yfir
heiðar.
Sveitin tekur þátt í tónleikum í
Ráðhúsi Reykjavíkur ásamt
Lúðrasveitinni Svani og Skóla-
hljómsveit Kópavogs og hefjast
þeir kl. 14, en þeir eru liður í sam-
starfi lúðrasveitanna. Síðastliðið
vor héldu Lúðrasveit Akureyrar og
Lúðrasveitin Svanur tónleika í fé-
lagsheimilinu Laugaborg í Eyja-
fjarðarsveit og er þessi ferð farin
til að endurgjalda þá heimsókn.
I þessari ferð taka þátt um 35
hljóðfæraleikarar en sveitin á nú
góða samvinnu við Blásarasveit
Tónlistarskólans á Akúreyri um
framtíðaruppbyggingu lúðrasveit-
arstarfs á Ákureyri.
Sveitimar leika
allar saman í lokin
Á efnisskrá sveitanna eru fjöl-
breytt verk eftir íslenska og er-
lenda höfunda og lýkur tónleikun-
um með því að sveitirnar þrjár,
samtals um 100 hljóðfæraleikarar,
leika saman nokkur lög. Stjómend-
ur sveitanna eru Atli Guðlaugsson,
Haraldur Ami Haraldsson og Öss-
ur Geirsson.
Á sunnudag, 21. mars, heimsæk-
ir Lúðrasveit Akureyrar Tónlistar-
skóla Austur-Húnavatnssýslu og
heldur tónleika í boði hans í
Blönduóskirkju kl. 16.
i ■ -
fúr U •
HLJOÐFÆRAVERSLUN
Flytur frá Laugavegi 163 að
RAUÐARÁRSTÍG 16,
(Áöur Hljóðfæraverslun Poul BernburgJ
Verslunin að Laugavegi 163
verður lokuð laugardaginn 14. mars og
mánudaginn 16. mars, og opnar síðan
þriðjudaginn 17. mars að Rauðarárstíg 16.
ÍUÍMBUÐIN
HLJÓÐFÆRAVERSLUN
Rauðarárstíg 16 • sími 552 4515
Morgunblaðið/Kristján
KRISTJANA Blön-
dal, Félagsvísinda-
stofnun.
Morgunblaðið/Kristján
RAGNHILDUR Vigfúsdóttir, jafnréttis- og fræðslufulltrúi Akureyrar-
bæjar, telur að grípa þurfi til róttækra aðgerða til að jafna launamun
karla og kvenna, en konur sem starfa hjá Akureyrarbæ hafa mun
lægri laun en karlar.
Námskeið
um nýöld
og kristin-
dóm
ARNE Tord Sveinall, sem er
Norðmaður og starfar við
Egede-stofnunina í Ósló, er
leiðbeinandi á námskeiði á
vegum Biblíuskólans við
Holtavog, sem haldið verður í
Glerárkirkju á miðvikudags-
og fimmtudagskvöld, 18. og
19. mars, frá kl. 20 til 22.
Arne Tord hefur aðallega
unnið með nýaldarfræði og
hefur haldið fjölda námskeiða
um sálgæslu og líknarstörf í
Bólívíu og Japan auk fleiri
landa. Á námskeiðinu verður
fræðsla um nýöld og kristin-
dóm, hver sé munurinn og
hvort hættur séu fólgnar í
hugmyndum nýaldarinnar. Þá
verður komið inn á hvemig
hægt sé að koma til móts við
þá sem eru andlega leitandi
og hvernig hægt sé að ræða
um trú við þá sem aðhyllast
spíritisma og önnur nýaldar-
fræði, segir í frétt um nám-
skeiðið.
Námskeiðsgjald er 1.500
krónur og fer innritun fram
hjá Jóni Oddgeiri Guðmunds-
syni og í Glerárkirkju.
Skátar
aðstoðuðu
ökumenn
FÉLAGAR í Hjálparsveit
skáta á Akureyri aðstoðu öku-
menn bifreiða sem lent höfðu í
basli í Bakkaselsbrekku á
Öxnadalsheiði seinni partinn
á sunnudag. Skátamir héldu
vestur á tveimur bflum og
gekk þeim greiðlega að að-
stoða ökumennina sem flestir
vora á leið niður Bakkasels-
brekku.
Mjög vont veður var á heið-
inni, „ekkert útivistarveður,“
eins Magnús Arnarson hjá
Hjálparsveit skáta orðaði það.
Hann sagði að ekki hafi verið
mikil ófærð á veginum, nema
aðeins í kringum vegriðin,
sem alltaf skefur vel í kring-
um í suðvestanáttinni.
Öxnadalsheiðin var ófær í
gærdag, enda var þar stórhríð
og því erfitt fyrir vegagerðar-
menn að athafna sig. Heldur
rofaði til á heiðinni þegar leið
á kvöldið en þá beið tugur
bfla, bæði fólks- og flutninga-
bflar, eftir að komast leiðar
sinnar.
Íshokkí í
kvöld
ÖÐRUM leik sem vera átti í
íslandsmótinu í íshokkí á
sunnudag á skautasvellinu á
Akureyri var frestaðf vegna
veðurs. Leikurinn verður í
kvöld, þriðjudagskvöld, kl.
19.30, en mótataflan raskast
við þessar breytingar, þar
sem fyrirhugað var að leika
fyrsta úrslitaleikinn þá.
AKSJÓN
Þríðjudagur 17. mars
bJFTTIR 2000 ►Sjónvarps-
• I kringlan - Akureyri
21.00 ►Fundur er settur Bæjar-
stjórnarfundur sýndur í heild.