Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 18

Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Framkvæmdasjóður auglýsir eftir tilboðum í meirihlutaeign í Islenskum markaði hf. Lágmarksverð 90 milljónir króna SAMSKIP: HLUTHAFAR í mars 1998 Hluthafar Nordatlantic T. Gmbh. Mastur hf. Sund hf. Samherji Ehf. Alþýðubankans Flutningar hf. BM flutningar hf. Baldur Guðnason Samvinnulífeyrissj. Ólafur Ólafsson Sæmundur Guðlaugsson Guðmundur P. Davíðsson Aðrir (133 hluthafar) SAMTALS Hlutafé milljónir kr. Hlutfall Bischoff/Liirssen á mest í Samskipum FJÁRVANGUR hefur óskað eftir tilboðum í hlut Framkvæmdasjóðs íslands í íslenskum markaði hf. á Keflavíkurflugvelli. Framkvæmda- sjóður á tæp 55% hlutafjár og vill selja hlutinn í einu lagi. Lágmarks- verð er 90 milljónir, staðgreitt. íslenskur markaður hf. var stofn- aður um 1970 með þátttöku nokk- urra íslenskra framleiðslufyrir- tækja og félagasamtaka. Tilgangur- inn var að kynna og selja íslenskai- framleiðsluvörur í flughöfn Kefla- víkurflugvallar. Vörusala fyrirtæk- isins hefur aukist jafnt og þétt flest árin frá stofnun þess og fram til dagsins í dag. Á árinu 1989 eignað- ist Framkvæmdasjóður hlutafé Ála- foss hf. og Iðnaðardeildar SÍS og hefur síðan átt meirihluta hlutafjár. Osta- og smjörsalan og Sláturfélag Suðurlands áttu 10,63% hlutafjár hvort félag í árslok 1996. 26 aðrir aðilar eiga hlut í fyrirtækinu, allir með um eða undir 2% hlutafjár. Islenskur markaður var rekinn með 28,4 milljóna kr. hagnaði á síð- asta reikningsári sem lauk 31. októ- ber 1997 og hagnaður þrjú ár þar á undan var á bilinu 19 til 24 milljón- ir. Félagið hefur sterka eiginfjár- stöðu og veltufjárstaðan er sömu- leiðis sterk. í sölulýsingu vegna sölu hlutabréfanna kemur fram að sterk fjárhagsstaða sé mikilvæg fyrir fyrirtækið vegna þess að áætl- anir þess geri ráð fyrir því að breytingar á aðstöðu og uppsetn- ingu nýrra verslana muni kosta allt að 80 milljónum kr. á þessu ári. Fyrirtækið muni fjármagna fjár- festingarnar alfarið með núverandi veltufjármunum. Aukin samkeppni Fram til þessa hafa tvö fyrirtæki rekið verslanir í Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar, Fríhöfnin og Islenskur markaður. Á síðasta ári var verslun- arpláss í flugstöðinni boðið út og hefur það í för með sér fjölgun verslana og aukna samkeppni við verslanir sem fyrir eru. Islenskur markaður tók þátt í útboðinu og mun opna þar tvær nýjar verslanir, raftækjaverslun og herrafataversl- un, auk núverandi verslunar þar sem áfram verður lögð áhersla á ís- lenskar vörur en þar verður þó bætt við erlendum matvörum. í útboðslýsingu kemur fram að reiknað er með 5,4% aukningu í veltu í núverandi starfsemi Islensks markaðar, vegna fjölgunar flugfar- þega. Áætlað er að herrafataverslun- in muni velta rúmum 60 milljónum kr. á ári í upphafí og velta raftækja- verslunar verði svipuð. Búist er við því að áhrif Schengen-samkomulags- ins verði þau að velta núverandi starfsemi minnki um 15%. Ekki er gert ráð fýrir að samkomulagið hafi áhrif á veltu í nýju búðunum. Forkaupsréttur hluthafa Bent er á að vegna aukinnar sam- keppni og hækkunar húsaleigu gætu næstu ár orðið Islenskum markaði þung í skauti og áætlanir geri ekld ráð fyrir miklum hagnaði. Fjárfest- ingar íýrirtækisins í húsnæði og að- stöðu séu hluti af uppbyggingar- starfí þess og að það muni taka nokkur ár að skila sér til baka. Stjóm Islensks markaðar hf. og hluthafar eiga forkaupsrétt við sölu hlutabréfa. Félagið sjálft á kauprétt á allt að 10% hlutafjár og að því frá- gengnu eiga hluthafarnir forkaups- rétt að hlutum fyrir sama verð og annars staðar er í boði. Akveðið er að hlutur Fram- kvæmdasjóðs verði seldur í einu lagi og ekki fyrir lægri fjárhæð en 90 milljonir kr. Fjárvangur hf. tek- ur við tilboðum til klukkan 15 mið- vikudaginn 25. mars. ------------- IJtboð ríkisvíxla ÚTBOÐ á ríkisvíxlum fer fram í dag kl. 11 hjá Lánasýslu ríkisins. Gefnir verða út 3, 5 og 11 mánaða víxlar. Lágmarksfjárhæð útboðsins er 300 milljónir kr. og hámarksfjárhæð 5 milljarðar. Greiðsludagur er 18. mars. Lánasýslan vekur athygli á því að hinn 18. mars koma til inn- lausnar ríkisvíxlar fyrir um 4.900 milljónir kr. Aðalfundi Tæknivals frestað AÐALFUNDI Tæknivals hf. sem vera átti á morgun, 18. mars, hefur verið frestað vegna mistaka við boð- un. Rúnar Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Tæknivals, segir að fundurinn verði boðaður að nýju. Stefnt er að því að hann verði 3. aprfl en það var þó ekki endanlega ákveðið í gær. 240 milljóna hagnaður HAGNADUR af rekstri Þormóðs ramma-Sæbergs hf. var 240 milljón- ir kr. á síðasta ári, en ekki 40 millj- ónir eins og misritaðist í yfírfyrir- sögn á frétt um afkomu fyrirtækis- ins á viðskiptasíðu síðastliðinn laug- ardag. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. 0DEXION BISCHOFF/LURSSEN-fjölskyld- an verður stærsti hluthafinn í Sam- skipum hf., með 23,1% beina og óbeina eignaraðild, eftir kaup henn- ar á viðbótarhlutafé í félaginu í tengslum við kaup Samskipa á skipafélagi fjölskyldunnar, Bischoff Gruppe. Stærsti hluthafinn í Samskipum er Nordatlantik Transport Gmbh., eignai’haldsfélag sem Bischoff-fjöl- skyldan og Ólafur Ólafsson, for- stjóri Samskipa, eiga til helminga. BM flutningar hf., dótturfélag Sam- skipa, hefur verið skráð fyrir 46,2 milljóna kr. hlut. Eftir viðskipti Samskipa og Eriku Bischoff, iyrr- um aðaleiganda Bischoff Gruppe, verður sá hlutur, samkvæmt upp- lýsingum frá Samskipum, skráður á fyrirtækið Lurssen Wirft. Eigandi þess er Friedrich Lurssen, yngri bróðir Eriku Bischoff, en hann rek- ur eigið skipa- og lystisnekkju- smíðaíyrirtæki eins og fram kom í Morgunblaðinu um helgina. Bischoff/Lúrssen-fjölskyldan á því, beint og óbeint, hlutabréf í Sam- skipum að nafnverði liðlega 208 KAUP íslandsbanka hf. á hluta- bréfum í Frjálsri fjölmiðlun hf., út- gáfufélagi DV, er liður í miðlun bankans á hlutabréfum, að sögn Siguiyeigar Jónsdóttur, blaðafull- trúa íslandsbanka. íslandsbanki, Tryggingamiðstöð- in, íslenski hlutabréfasjóðurinn og Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans hafa keypt 20% eignarhlut í Frjálsri fjölmiðlun af Sveini R. Eyjólfssyni milljónir kr. sem er 23,1% af heild- arhlutafé félagsins. Ólafur Ólafsson forstjóri á auk 50% í Nordatlantik Transport Gmbh., liðlega 7,7 milljóna kr. hlut á eigin nafni, og á því tæplega 170 milljóna kr. hlut að nafnverði sem er 18,8% eignarhlutur í félaginu. Markaðsvirði Bischoff-bréfanna 600 milljónir Mastur hf. sem er skráð annar stærsti hlutafjáreigandinn er eign- arhaldsfélag Olíufélagsins hf., Is- lenskra sjávarafurða hf. og Sam- vinnulífeyrissjóðsins. Flutningar hf. sem á sjötta stærsta hlutinn er dótt- urfélag Vátryggingafélags Islands hf. Síðastliðinn miðvikudag fóru síð- ast fram viðskipti með hlutabréf í Samskipum á Opna tilboðsmark- aðnum. Þá var gengi bréfanna 2,80 til 3 og lokagengið var 3. Sam- kvæmt því gengi er markaðsvirði eignarhlutar Bisehoff/Lúrssen-fjöl- skyldunnar í Samskipum 624 millj- ónir kr. og markaðsvirði eignarhlut- ar Ólafs Ólafssonar 508 milljónir. og Eyjólfí Sveinssyni. Sigurveig segir að Viðskiptastofa Islands- banka hafí með höndum miðlun hlutabréfa og þurfí þess vegna að eiga eitthvað af bréfum. Bréfín séu keypt vegna þess að Frjáls fjölmiðl- un stefni að því að fara á hluta- bréfamarkaðinn og bankinn telji að hlutabréfin muni skila sér hagnaði við endursölu. AÐALFUNDUR JARÐBORANA HF. Aðalfundur Jarðborana hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 1998 í Þingsal A á Hótel Sögu og hefst kl. 16.00 Dagskrá 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvœmt grein 4.5 í samþykktum félagsins 2. Tillaga um heimild handa stjórn félagsins til að kaupa hluti ífélaginu skv. 55. grein hlutafjárlaga nr. 211995 3. Tillaga til hœkkunar hlutafjár með útgáfu jöfnunarhlutahréfa 4. Onnur mál sem eru löglega borin upp Vinsamlega athugið að tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega í hendur stjómar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, 7 dögum fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á skrifstofu félagsins að Skipholti 50 d, 4. hæð, frá og með 12. mars 1998, og á fundarstað við upphaf aðalfundar. Stjóm Jarðborana hf. J#/f JARÐBORANIR HF SKIPHOLTI 50d, SÍMI 511 3800, BRÉFSÍMI 511 3801 NT NETSTJÓRNUN Windows NT netstjómun I 36 kennslust. ItlWÁiríTi Frábært námskeið fyrir þá sem vilja sjálfir stjóma NT neti. Windows NT netstjómun II 36 kennslust. m Mjög ítarlegt framhaldsnámskeið fyrir þá sem hafa þekkingu á NT netstjómun. NT netstjómun I og II 72 kennslust. Jjfc Bæði námskeiðin í mjög hagstæðum pakka. Tölvu- og verkfræöiþjónustan Grensásvegi 16 //www.tv.is/skoli/ 5209000 I SIMAlSWSnil sem auftvelt er að muna íslandsbanki kaupir í Frjálsri fjölmiðlun Liður í miðlun hlutabréfa i i I i \ í \ > f I í ! I I I i I h

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.