Morgunblaðið - 17.03.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 19
___________VIÐSKIPTI___________
Rökke nær yfír-
ráðum yfir
dönsku fyrirtæki
Ósló. Aftenpostcn.
NORSKI fjárfestirinn Kjell Inge
Rökke hefur náð yíírráðum yfír
danska fjárfestingarfélaginu Gef-
ion AS með fjárfestingu upp á 650
milljónir norskra króna.
Rökke kaupir 39% hlutabréfa í
Gefion, sem eru leifar danska fjár-
málafélagsins Baltica. Hann kaup-
ir hlutabréfin fyrir milligöngu
einkafyrirtækis síns, TRG, þar
sem hann hefur einnig komið fyrir
hlutabréfum sínum í Aker-RGI og
Storebrand.
Rökke sagði í Kaupmannahöfh
að Gefion yrði breytt í fjárfesting-
arfyrirtæld, sem mundi kaupa og
selja fyrirtæki eða hlutabréf.
„Þetta verður fjárfestingarfélag,
sem mun minna mikið á Aker RGI
og sjá um fjárfestingar sem Aker
RGI hefur ekki áhuga á,“ sagði
heimildarmaður Aftenpostens.
Gefion er metið á rúmlega 1,6
milljarða norskra króna, en Aker
RGI um 9,5 milljarða.
Á íþróttaleikvanginn
Idrettsparken
Upplýsingafulltrúi Aker RGI
sagði að fyrirtækinu væri kunn-
ugt um hina nýju fjárfestingu
Rökkes, en hún vekti ekki áhuga
Aker RGI. „Ekki er tímabært fyr-
ir okkur að fjárfesta í slíkum fyr-
irtækjum," sagði hann. Við fylgj-
um þeirri stefnu að leggja áherzlu
á iðnaðarstarfsemi," sagði hann.
Gefion á meðal annars Idretts-
parken, þar sem landsleikir Dana í
knattspymu fara fi’am. Auk þess á
félagið útistandandi lán hjá
12-15.000 litlum viðskiptavinum
og er það arfur frá bankastarfsemi
Baltica.
Gefion hefur einnig látið mikið
að sér kveða á sviði fasteigna í
brezku nýlendunni Gíbraltar á
Spáni og tapað stórfé. Nýlega seldi
félagið skrifstofu- og hóteleign og
húsamsamstæðu í nýlendunni.
Söluverðið var 440 milljónir
danskra króna, en fjárfestingin
nam 1,8 milljörðum á sínum tíma.
Gefion á enn nokkrar fasteignir á
Gíbraltar.
Kaupir af lánardrottnum
Rökke kaupir hlutinn í Gefion af
lánardrottnum hins gjaldþrota
danska tryggingafélags Hafnia.
Den danske Bank er stærstur
þessara lánardrottna.
Viðræður Rökke og lánar-
drottna munu hafa staðið í hálft ár,
Hafnia gerði misheppnaða tilraun
til að yfirtaka Baltica í byrjun
þessa áratugar.
Árið 1993 var nafni Baltica
breytt í Gefion. Afgangurinn af
hlutabréfunum í Gefion, um 60%,
eru í eigu nokkurra lítilla hlut-
hafa.
BMW hefur enn áhuga
á Rolls-Royce
Míinchen. Reuters.
ÞÝZKI bflaframleiðandinn
BMW AG hefur ítrekað áhuga
sinn á að bjóða í brezka lúxus-
bflaframleiðandann Rolls-
Royce.
Forstjóri BMW, Bemd
Pischetsrieder, sagði að taki
við stjórn Rolls-Royce er að
vænta í marzlok eða aprflbyij-
un.
Þýzka blaðið Bild-Zeitung
hermir að forstjóri Volkswag-
ens, Ferdinand Piech, og Ger-
hard Schröder, forsætisráð-
herra Neðra-Saxlands og full-
trúi í stjóm VW, hafi farið til
Bretlands 7. marz til viðræðna
við stjóm Rolls-Royce bflaverk-
smiðjanna og eiganda þeirra,
Vickers Plc.
Blaðið sagði að starfsmenn
VW væra þess fullvissir að fyr-
irtækið hefði náð samkomulagi
um kaup á Rolls-Royce.
Gengið fellt í Grikklandi
Aþenu. Reuters.
GENGI grísku drökmunnar hefur
verið lækkað um 14% og hlutabréf
hafa hækkað í verði.
Um 450 miUjónir dollara flæddu
inn á markaði landsins. „Við erum
ánægðir í meginatriðum,“ sagði
Lucas Papademos seðlabanka-
stjóri.
Um leið hafa Grikkir gerzt aðilar
að gengissamstarfi Evrópu (ERM)
og var gengi drökmunnar skráð
357 ecu. Fyrsta viðskiptadaginn
fengust 352 drökmur fyrir ecu.
Verð hlutabréfa hækkaði, þar sem
líkur eru á lægri vöxtum og auk-
inni samkeppnishæfni.
Lokagengi aðalhlutabréfavísitöl-
unnar í Aþenu hækkaði um 7,31%,
eða 112,32 punkta, í 1.649,69.
Hagnaður af skuldabréfum jókst
einnig.
„Tiltrú hefur aukizt á ný, þar
sem stjómin hefur tekið á sig póli-
tíska ábyrgð á því að fella gengið
og gera samkeppnishæfm að aðal-
forgangsverkefni sínu,“ sagði sér-
fræðingur
Gengisfelhngin sætti gagnrýni
grískra æsifréttablaða, sem töldu
grískan almenning 14% fátækari.
„Þeir hafa ráðið drökmuna af dög-
um,“ sagði blaðið Eleftheros
Typos.
Stjómin hélt fast við það að ráð-
stöfunin væri nauðsynlegt skref í
átt til aðildar Grikklands að mynt-
bandalagi Evrópu 1. janúar 2001
eins og stefnt er að.
Aðalfundur
Aðalfimdur Flugleiða hf.
verður haldinn fímmtudaginn
19. mars 1998 í efriþingsölum
Hótels Loftleiða og hefst kl. 14:00
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarströrf skv. 10. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um breytingu á 16. gr. samþykkta þess eftiis að ákvæði um
kjör varamanna í stjóm félagsins verði felld úr greininni.
3. Tiliaga um heimild til félagsstjómar til kaupa á eigin hlutum
samkvæmt S 5. gr. laga nr. 2/199 5.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöíúm, sem bera á fram á aðalfúndi, skulu vera
komnar í hendur stjómarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tiliögur, svo og reikningar félagsms munu liggja
frammi á skrifstofú félagsins hluthöfúm til sýnis 7 dögum fýrir
aðalfund. _
Stjóm Flugleiða hf.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og
fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu
félagsins, Reykjavíkurflugvelli,
hlutabréfadeití á 1. hæó frá 16. til
18. mars frákl. 09:00 til 17:00 og
fundardag til kl. 12:00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að
vitjafundaigagnasinnafyrirkl. 12:00
áfúndardegi.
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskurferðafélagi
ER FYRIRTÆKIÐ
ÞITT OPIÐJH
I FYRIR H
INNBROTUM?
Innbrotsþjófar gerast nú æ bíræfnari í að sigta út þau fyrirtæki,
þar sem allur aðbúnaður er eins og best verður á kosið, að þeirra mati.
Gerðu strax ráðstafanir til að tryggja að þessir menn sniðgangi þitt fyrirtæki.
Kostnaðurinn, samfara örygginu, er aðeins brot af skaðanum sem þ eir geta valdið.
Firmavörn Securitas
fullkomiö öryggiskerfi aö |^nj
Firmavörnin er samsett af
stjórnstöð, þremur hreyfi-
skynjurum og sfrenu.
Kerfið er sett á með einu
handtaki þegar fyrirtækið er
yfirgefið og er síðan tengt við
stjórnstöð Securitas sem er
ævinlega í viðbragðsstöðu.
Securitas býður nú fyrirtækjum að fá að láni fullkomið öryggiskerfi,
alsjáandi auga sem hleypir engum óboðnum gesti inn. Fyrir kerfið sjálft
og uppsetningu þess þarf ekkert að borga en mánaðarlegt þjónustugjald
felur í sér útköll og þjónustu við kerfið allan sólarhringinn.
Heimavöm og Firmavöm
eru vörumerki Securitas.
Síðumúla 23'108 Reykjavík • st'mi 533 5000 • fax 533 5330 • nelfang sala@securitas.is • heimaslóð www.securitas.is