Morgunblaðið - 17.03.1998, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Yfírtaka Arthur Treacher’s á Miami Subs ekki frágengin
Sameiginleg velta 15
milljarðar króna
Eimskip
lækkaði
vegna
jöfnunar
HLUTABRÉF að verðmæti 53
milljónir kr. skiptu um hendur
á Verðbréfaþingi Islands í gær.
Mest voru viðskiptin með
hlutabréf í Haraldi Böðvars-
syni hf. og Útgerðarfélagi
Akureyringa. Hlutabréfin í ÚA
hækkuðu lítillega, eða um 2,2%.
Gengi hlutabréfa Eimskips
lækkaði um 23% í gær, miðað
við gengi bréfanna á föstudag,
og var gengið í gær 6,15. A bak
við það gengi er reyndar aðeins
sala á hlutabréfum að mark-
aðsvirði 308 þúsund kr. Skýrist
þessi gengislækkun að öllu
leyti af ákvörðun um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa sem sam-
þykkt var á aðalfundi félagsins
í síðustu viku.
Úrvalsvísitala Aðallista
Verðbréfaþings hækkaði í gær
um 0,55% frá föstudegi.
STJÓRN skyndibitakeðjunnar Mi-
ami Subs Corporation í Fort
Lauderdale í Flórída, sem rekur
tæplega 200 veitingastaði, er enn
að skoða tilboð Arthur Treacher’s í
fyrirtækið. Velta sameiginlegs fyr-
irtækis yrði um 15 milljarðar kr.
íslendingar eiga sem kunnugt
er meirihlutann í Arthur Tr-
eacher’s sem rekur um 200 fisk-
réttastaði í Bandaríkjunum undir
eigin nafni og Skipper’s, en á síð-
asta ári keypti Treacher’s keðjuna
sem rekur Skipper’s-staðina.
Eftir stjórnarfund síðastliðinn
fimmtudag tilkynnti stjórn Miami
Subs að hún hefði ákveðið að ráða
óháð ráðgjafarfyrirtæki til að að-
stoða sig við að meta tilboðið.
Arthur Treacher’s bauðst til að yf-
irtaka Miami Subs með því að
greiða núverandi hluthöfum í Mi-
ami Subs með hlutabréfum í Tr-
eacher’s. Ekki hefur verið upplýst
hvaða verð eigendur Treacher’s
bjóða.
Tveir matseðlar
Ákveðin samvinna hefur verið
að þróast með Arthur Tr-
eacher’s og Miami Subs. Fyrr-
nefnda fyrirtækið hefur opnað
veitingastað með sínum matseðli
inni á einum veitingastaða Miami
Subs og hefur það gefist svo vel
að áform eru uppi um að taka
þetta fyrirkomulag upp á átta
stöðum til viðbótar. Gus Boulis,
forstjóri Miami Subs, segir að
með aukinni samvinnu við annað
fyrirtæki væri hægt að nýta betur
þá aðstöðu sem fyrirtækið hefði
yfir að ráða og auka söluna veru-
lega. Samvinna við Treacher’s
gæti verið leiðin til þess. Boulis
segir að ef til þessa kæmi sköpuð-
ust jafnframt möguleikar til þess
að bjóða matseðla Miami Subs á
þeim 200 Treacher’s- og Skipp-
er’s-veitingastöðum sem Arthur
Treacher’s nú rekur. Hann tekur
jafnframt fram að við samruna
verði að tryggja hluthöfunum
hæsta verð fyrir eignarhluti
þeirra.
Verði af samruna Arthur Tr-
eacher’s og Miami Subs mun nýja
fyrirtækið reka um 400 veitinga-
staði. Árleg sala þeirra er um 15
milljarðar kr.
Fólk
Jónas Fr. Jóns-
son til Eftir-
litsstofnunar
EFTA
• Jónas Fr.
Jónsson hefur
látið af störfum
sem aðstoðar-
framkvæmda-
stjóri Verslunar-
ráðs íslands, þar
sem hann hefur
starfað frá árinu
1991, að undan-
skildu einu ári er hann lagði stund á
framhaldsnám í Englandi. Jónas
tekur við sérfræðingsstöðu hjá Eft-
irlitsstofnun EFTA í Brussel og
mun fylgjast með fyrirtækjalöggjöf
og löggjöf um starfsemi verðbréfa-
markaðarins. Jónas er lögfræðingur
frá Háskóla íslands, með héraðs-
dómslögmannsréttindi og meistara-
gráðu í lögum frá Cambridge há-
skóla. Hann er giftur Lilju Dóru
Halldórsdóttur héraðsdómslög-
manni hjá Skeljungi og eiga þau tvö
böm.
Aðalfundur Sfldarvinnslunnar hf.
Reiknað með
5 prósenta
tekjuminnkun
10 stærstu hluthafar L/svn\i Síldarvinnslunnar hf. Neskaupstað Mars 1998 (þúsriuj Eignarhlutiímars1998
1.S.Ú.N. 185.318.8 21.06% ■
2. Lífevrissióður Austurlands 87.144,3 mxmm 9,90%
3. Bæiarsióður Neskaupstaðar 77.635,2 raniam 9,32%
4. Nafta (dótturfél. Olís) 60.980,7 wmm 6,93%
5. Burðarás 57.258,3 msm 6,51%
6. Trvdíiingarmiðstöðin 25.123,1 m 2,85%
7. Lífeyrissjóður Norðurlands 17.850,0 ■ 2,03%
8. Lrfevrissjóður Framsýn 17.837,5 ■ 2,03%
9. Auðlind 17.600,7 B 2,00%
10. Hlutabréfasióðurinn 14.963,2 B 1,70%
Samtals 561.711,8
MINNI hagnaður verður af
rekstri Síldarvinnslunnar hf. á yf-
irstandandi ári en var á því síð-
asta. Kom þetta fram á aðalfundi
fyrirtækisins sem haldinn var í
Neskaupstað síðastliðinn laugar-
dag.
Samdráttur í loðnuvinnslu
f rekstraráætlun Síldarvinnsl-
unnar fyrir árið 1998 er gert ráð
fyrir að tekjur minnki milli ára
um tæp 5% og að hagnaður af
reglulegri starfsemi verði 202
milljónir kr. og hagnaður ársins
211 milljónir kr. Til samanburðar
má geta þess að hagnaður ársins
1997 var 332 milljónir kr. Finn-
bogi Jónsson framkvæmdastjóri
segir að áætlun um minni tekjur
skýrist af því að reiknað sé með
samdrætti í loðnuvinnslu og veið-
um. Það sem af er ári hefur Síld-
arvinnslan fryst um 7.000 af loðnu
fyrir markaði í Japan og Rúss-
landi og er það 4.000 tonnum
meira en á sama tíma í fyrra. Ef
minna veiðist af loðnu í ár heldur
en á síðasta ári mun það því koma
fram í minni loðnubræðslu.
Hluthafafj öldinn
tvöfaldast
Hluthafar í Síldarvinnslunni
voru 964 um síðustu áramót og
hafði fjöldi þeirra nærri því tvö-
faldast á árinu því þeir voru um
500 ári fyrr. Aðeins einn hluthafi
á meira en 10% hlutafjárins, eins
og fram kemur á meðfylgjandi
korti, en það er Samvinnufélag út-
gerðarmanna í Neskaupstað sem
á rúm 21%. Á aðalfundinum var
ákveðið að greiða hluthöfum 7%
arð. Þá var stjórnin öll endurkjör-
in. Formaður er Kristinn V. Jó-
hannsson og framkvæmdastjóri
er Finnbogi Jónsson.
Þór Sigfús-
son svæðis-
stjóri NIB
•ÞÓR Sigfússon
hefur verið ráð-
inn svæðisstjóri
Islands hjá Nor-
ræna fjárfesting-
arbankanum
(NIB) í Helsinki í
Finnlandi. Þór
hefur starfað í
fjármálaráðu-
neytinu frá árinu 1994 en á síðast-
liðnu ári vann hann í alþjóðadeild
Norræna fjárfcstingarbankans.
Norræni fjárfestingarbankinn
var stofnaður árið 1975 og tók til
starfa árið eftir. Lánveitingar hans
til íslands hafa farið vaxandi á und-
anfömum árum og nema heildarút-
lán bankans til Islands nú um 40
milljörðum íslenskra króna. Lánin
til Islands dreifast á mörg svið eins
og orkuframleiðslu, iðnað og sam-
göngur, segir í frétt frá bankanum.
G r ensásvegur 10 • Sími 563 3050 • Bráfasími 568 7115 • http://www.ejs.is • 5ala@ej5.is