Morgunblaðið - 17.03.1998, Side 45

Morgunblaðið - 17.03.1998, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 45 ( ( < ( ( ( ( ( ( < < < < < < < < < < < < 1 < < i < < í i i STEINDÓR SIGHVA TSSON + Steindór Sig- hvatsson var fæddur á Ártúnum á Rangárvöllum 27. aprfl 1925. Hann lést á Sjúkrahúsi Blöndu- öss 6. mars síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Sighvatur Andresson frá Hemlu í Landeyjum og Kristín Arnadöttir frá Oddhöl á Rangár- völlum. Steindór ólst upp í Ártúnum til 14 ára aldurs og síðan á Ragnheiðarstöðum í Árnessýslu í hópi átta systkina. Árið 1946 giftist Steindór Erlu Viggósdóttur, f. 19. sept. 1931, og hófu þau búskap á Ragnheiðar- stöðum en þau fluttu til Reykja- víkur árið 1959. Þau eignuðust sex börn en slitu sambúð 1973. Börn þeirra eru: 1) Guðmundur, f. 12. ágúst 1947, giftur Lísbet Steindórsson, búsettur í Svíþjóð en hann á þijú börn. 2) Viktoría Lára, f. 18. nóv. 1949, gift Ásgeiri Haraldssyni, búsett í Danmörku en hún á þrjú börn. 3) Kristín Rós, f. 2. okt. 1952, á tvo syni, var gift Hafliða Hákonarsyni, búsett í Reykjavík. 4) Sighvatur Smári, f. 15. júní 1955, giftur Bryndísi Pálmadóttur en þau eiga tvo syni, búsett í Neðra-Holti, Blönduósi. 5) Viggó, f. 7. sept. 1959, giftur Eh'sa Steindórsson, búsett í Danmörku en hann á þijú börn, eitt þeirra lést af slys- förum. 6) Anna María, f. 10. sept. 1969, gift Jóni Ragnari Gíslasyni, þau eiga tvö börn, búsett á Blönduósi. Steindór stundaði nám við íþróttaskól- ann á Laugarvatni í tvo vetur og var mik- ill íþróttamaður og keppti bæði í glfmu og sundi. Steindór spilaði á harmónikku, spilaði í hljómsveit sem ferðaðist víða um land. Steindór stundaði ýmis störf, bæði heima í sveit- inni, í Reykjavík og víðar. Hann var til sjós bæði á togurum og mótorbátum. Seinna stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Véla- leigu Steindórs Sighvatssonar, sem hann starfrækti um árabil. Steindór keypti sér mótorbát og gerði hann út frá Reykjavík um tíma og var skipstjóri á honum. Flutti hann síðan til Stykkis- hólms og Anna María með hon- um, starfaði hann þá sem verk- stjóri í Rækjuvinnslunni og var einnig til sjós sem fyrsti stýri- maður á rækju- og skelbátum. Um árið 1983 flytja Steindór og Anna til Svíþjóðar. Starfrækti hann þar bflaverkstæði með Guð- mundi syni sfnum en var þá far- inn að flnna fyrir vanheilsu í lungum sem minnkaði starfsgetu hans mikið. En svo kom að þvi' að Steini flutti aftur heim til Islands og settist að á Blönduósi. Stein- dór flutti á Héraðssjúkrahúsið, Blönduósi, og bjó þar á ellideild í tvö ár þar til hann lést. Útför Steindórs fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Elsku pabbi minn, minn kæri vin- ur. Mikið skelfíng sakna ég þín, sakna þess að tala ekki við þig í sím- ann meira. Alltaf gátum við talað saman um heima og geima og skild- um hvort annað mjög vel. Eins mun ég sakna þess að við förum ekki saman til systkina þinna né til Sísí- ar og Bjarna frænda, en þá var oft mikið hlegið og skrafað, harmonikk- an tekin upp og sungið. Það var geysilega gaman, glatt á hjalla, (eins og sagt er) hvar sem þú komst. Þú skildir eftir gleði, kjark og minningar. Þú gafst þér alltaf tíma til að hlusta og miðla af reynslu þinni og hafsjó fróðleiks. Þín lífsýn var trú, von og kærleik- ur. Þú komst eins fram við alla og kenndir mér það sama. En þú varst líka heilmikill grallari, fórst víða og gerðir margt um ævina. Aidrei varstu hræddur við að takast á við lifið þótt það færi ekki um þig blíð- um höndum. Alltaf stóðst þú upp aftur og hélst áfram hvað sem á gekk. Ég á þér mikið að þakka og vona að þér líði betur þar sem þú ert nú. Ég veit að það hefur verið tekið vel á móti þér og nú geturðu gert allt sem þig langaði til að gera hér en gast ekki vegna lélegrar heilsu. Ung ákvað ég að taka mér þig til fyrirmyndar, vonandi tekst mér það áfram og að gera lífsýn þína að minni. Ég þakka þér öll góðu árin og góðu stundimar sem við áttum saman og bið að heilsa öllum hinum sem þú hefur nú hitt. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guðþérnúfylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut Guð oss það gefl, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut (V. Briem.) Hákon, Baldvin og Svala senda þér saknaðarkveðjur. Far vel. Þín Rós. Steindór ólst upp í Ártúnum til 14 ára aldurs og síðan á Ragnheiðar- stöðum í Árnessýslu í hópi átta systkina, á góðu heimili í skjóli góðra foreldra og móðurömmu Margrétar Guðmundsdóttur prests- dóttur frá Stóruvöllum. Margrét kom á heimilið þegar við systkinin vorum ung að árum og átti hún þar heima til dauðadags. Amma var mikil stoð og stytta á bammörgu heimili og var einkar lagin að kenna bamabömunum að lesa og skrifa o.fl. Hún var mjög söngelsk og kenndi okkur lög, ljóð og sálma og mörg holl ráð sem við höfum stund- um vitnað í síðan. Steindór stundaði ýmis konar störf bæði heima í sveitinni, í Reykjavík og víðar. Hann var til sjós, bæði á togurum og mótorbát- um um tíma. Síðar stofnaði hann fyrirtækið vélaleiga Steindórs Sig- hvatssonar, sem hann starfrækti í mörg ár við góðan orðstír. En sjór- inn heillaði Steina alltaf og nú keypti hann sér mótorbát og gerði hann út frá Reykjavík um tfma og var skipstjóri á honum. Eftir það var hann í Stykkishólmi, verkstjóri hjá Rækjuverksmiðjunni og stýri- maður á rækjubátum í nokkur ár. Síðan lá leiðin til Svíþjóðar, þar dvaldi hann í nokkur ár og var í fé- lagi við Guðmund son sinn og ráku þeir saman bílaþjónustufyrirtæki í nokkur ár. En svo kom að því að Steini flutti aftur heim til íslands og keypti sér íbúð á Blönduósi. Þar undi hann sér vel, enda þrjú af bömum hans bú- sett þar. Én þegar hér var komið var heilsan farin að gefa sig og síð- ustu árin dvaldi hann á Héraðs- sjúkrahúsinu á Blönduósi. Steini var einstakur persónuleiki, frá honum stafaði mikil útgeislun, bjartsýni, góðvild og tillitssemi við aðra í orðum og athöfnum, en jafn- framt einkenndi hann mikill kjark- ur, dugnaður og áreiðanleiki í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Aldrei leið langur tími milli þess að við töluðum saman bræð- umir, sérstaklega eftir að hann settist að á Blönduósi. Oftast var það í síma, því langt var á milli okk- ar, en við heimsóttum þó hvor ann- an stundum. Sérstaklega var ánægjulegt þegar hann kom til Reykjavfkur til að hitta fólkið sitt og vini og gisti hjá okkur í tvo til þrjá daga. Þá var oft tekið lagið á „nikkumar" sem Steini spilaði á eins og bræður hans. Steini var músíkalskur og söngelskur og sung- um við oft saman, t.d. dúett: Sólset- ursljóð eða Gunnar og Njáll, sem var í sérstöku uppáhaldi hjá honum. Þó Steini ætti við veikindi að stríða á síðustu árum og væri háður súrefnistækjum, því lungun höfðu smátt og smátt verið að gefa sig, þá kvartaði hann aldrei og var andlega hress, bjartsýnin hafði ekki yfirgef- ið hann þó líkaminn hefði látið und- an. Það var alltaf uppörvandi og gefandi að tala við hann, fram til hins síðasta. Vertu sæll bróðir og vinur. Við þökkum þér fyrir allt sem þú varst okkur. Guð varðveiti þig. Ég votta börnum hans og öðrum vanda- mönnum samúð. Til moldar oss vígði hið mikla vald, hvert mannslíf, sem jörðin elur. Sem hafsjór, er rís með fald við fald, þau falla, en guð þau telur; því heiðloptið sjálft er huliðstjald, sem hæðanna dýrð oss felur. Af eilífðarþ'ósi í bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öÚum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Andrés Sighvatsson. Elsku pabbi minn. Ég hélt að við fengjum að hafa þig aðeins lengur hjá okkur. En núna líður þér miklu betur og ferðast örugglega um höfin blá eins og þú óskaðir þér og dregur örugglega djúpt að þér andann. Við erum búin að gera svo margt saman og ég á svo margar minning- ar að ég væri marga daga að skrifa aíiDWUA 4IÓT-CL tOK • («{ Upplýsingar í s: 551 1247 Sími 562 0200 rxxTxxuxxxrl Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Einarsson, útfararstjóri Sverrir Olsen, útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sírni 581 3300 Allan sólarhringinn. þær niður og þær eru allar góðar. En best þótti mér þegar þú fluttir frá Svíþjóð til okkar á Blönduós. Jón Gísli á eftir að muna þegar hann fór í heimsókn til þín og fékk kaffitár með mjólk og sykurmola og þið spjölluðuð saman um heima og geima. Ég veit að við eigum eftir að sakna þín mjög mikið en ég ætla að trúa því að þér líði miklu betur þar sem þú ert í dag. Elsku pabbi minn, mig langar að þakka þér fyrir allt sem þú hefur kennt mér um heiðarleika og að reyna að sjá heiminn með öðnim augum en bara mínum. Ég skal geyma alla þá visku sem þú sagðir mér og miðla henni til minna bama. Margs er að rainnast, margterhéraðþakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V. Briem.) Guð blessi þig. Þín dóttir, Anna María. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðarviðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þegar Rós hafði samband við mig og sagði mér að þú værir dáinn, fóru minningamar að streyma fram. Ég var komin vestur í Stykk- ishólm á Silfurgötuna. Ég sé þig fyrir mér sitjandi inni í stofu spilandi á harmonikkuna „Suður um höfin". Þetta lag, harmonikkan og þú hafa alltaf verið eitt í mínum huga. Mér er ljúfsárt að rifja upp þessi ár því það hafa myndast svo stór skörð í hópinn sem þarna var. Diddi, Guðjón og nú þú, allir famir. Það hefur verið stutt stórhögganna á milli fyrir fjölskylduna undanfarin ár og oft verið erfitt. En traustir vinir geta gert kraftaverk. Ég þakka þér og bömum þínum ómældan stuðning sem þið sýnduð- mér í sorg minni, sú hjálp var ómet- anleg. Far vel, gamli vinur. Ég sendi með þér kveðju yfir hafið. Kristrún. Frændi, þegar fiðlan þegir, fuglinn loýpur lágt að skjóh, þegar kaldir vetrarvegir villa sýn á borg og hóh, hann sem eitt sinn undi hjá mér, einsog tónn á fiðlustrengnum, eilíft honum fylgja frá mér friðarkveðjur brottu geingnum. "v „Steini bróðir“, eins og við kölluð- um hann okkar á milli, var bróðir mömmu, tengdamömmu og ömmu okkar, lést á Blönduósi í síðustu viku. Kallið kom snögglega þó að heilsan væri farin að gefa sig hin síðari ár. Við minnumst Steina er hann dvaldi hjá okkur á Halldórs- stöðum í rúma viku eitt sumarið og hjálpaði okkur við lagfæringar á vélum og öðru við búskapinn, alltaf hress og skemmtilegur, lagni hans tvímælalaus við allt sem hann tók sér fyrir hendur. Gaman var að hlusta á hann spila á nikkuna og minnumst við þess sérstaklega þeg- ar hann spilaði á afmæli okkar hjóna haustið 1992 og naut hann sín vel í hópi söngelskra Skagfirðinga. Oft hittumst við heima hjá honum má Blönduósi og höfðu strákarnir okkar sérstaklega gaman af lyft- unni sem Sighvatur sonur hans út- bjó fyrir hann, en hann átti orðið erfitt með að ferðast upp og niður stigann án aðstoðar. Þrátt fyrir versnandi heilsu var alltaf stutt f góða skapið og í rauninni var erfitt að gera sér grein fyrir hve veikur hann var þó spallað væri við hann,-** því aldrei kvartaði hann og alltaf virtist lífið verja jafn skemmtilegt. Hann var mikill gleðigjafi og fékk fólk til þess að líta á björtu hliðam- ar. Fyrir þessar góðu stundir viljum við þakka og margar fleiri sem of langt yrði að telja. Við vottum Sighvati, Bryndísi, Önnu Man'u, Nonna og bömum þeirra okkar einlægu samúð, einnig Erlu, Gumma, Rós, Viggó, Viktoríu og mökum þeirra og bömum ásamt systkinum Steina og þeirra íjölskyld- um. Kveðja, Páll Jóhann, Guðmunda Valgeir, Páll Hreinn og Eggert Daði. t Elskuleg móðir okkar, tendamóðir, amma og langamma, LÝDÍA GUÐJÓNSDÓTTIR, Austurbrún 6, Reykjavík, lést á Borgarspítalanum þriðjudaginn 10. mars. Hún verður jarðsungin frá Áskirkju miðviku- daginn 18. mars kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Rúnar Guðjónsson, Birna Valgeirsdóttir, Guðbjörg Guðjónsdóttir, Halldór Halldórsson, Kjartan Guðjónsson, Bára Samúelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, STEFÁN VALGEIRSSON fyrrverandi bóndi og alþingismaður, lést að morgni laugardagsins 14. Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin verður auglýst síðar. mars sl. á Fjóla Guðmundsdóttir, Anna Karólina Stefánsdóttir, Guðmundur Valur Stefánsson, Valþór Stefánsson, Lilja Stefánsdóttir, Hildur Stefánsdóttir, Gunnhiidur Fjóla Valgeirsdóttir, Höskuldur Höskuldsson, Anna Katrfn Árnadóttir, Anna Sigurbjörg Gilsdóttir, Hörður Hafsteinsson, Guðjón Jónsson, (sleifur Helgi Waage, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.