Morgunblaðið - 17.03.1998, Page 46

Morgunblaðið - 17.03.1998, Page 46
«-Í46 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Stjúpfaðir minn, tengdafaðir og afi okkar, EINAR SNÆBJÖRNSSON, Hrafnistu Reykjavík, áður Keilugranda 8, sem lést þriðjudaginn 10. mars, verður jarð- sunginn frá Neskirkju miðvikudaginn 18. mars kl. 13.30. Jafnframt verður minningarathöfn um son hans, SNÆBJÖRN EINARSSON, sem lést í Bandaríkjunum 11. febrúar si. og var jarðsettur þar 16. febrúar sl. Gerður Guðmundsdóttir, Helgi Bernódusson, Árni og Kristinn Helgasynir. t Elskulegi eiginmaðurinn minn og faðir okkar, JÓNAS GUÐMUNDSSON byggingarmeistari, Holtsbúð 79, Garðabæ, lést að heimili sínu laugardaginn 14. mars. Úrsula M. Guðmundsson, Helena S. Jónasdóttir, Ómar Jónasson, Richard G. Jónasson. Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BIRGIR ÞORVALDSSON vélfræðingur, Austurbrún 6, Reykjavik, verður gerð frá Fossvogskirkju á morgun miðvikudaginn 18. mars kl. 10.30. Kristín S. Birgisdóttir, Jón Stefán Kjartansson, Guðrún Birgisdóttir, Birna Birgisdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Systir okkar, ÁSBJÖRG GRÓA ÁSMUNDSDÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést laugardaginn 14. mars. Guðrún Ásmundsdóttir, Ásmundur Guðmundsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, bróður, mágs og afa, ÞÓRARINS B. ÓLAFSSONAR yfiriæknis, Smáragötu 10, Reykjavík. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliðs á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Grensásdeild og Landspítalanum, sem á síðasta ári og þessu önnuðust hann af alúð í veikindum. Björg Ólafsson, Oddrún Kristín Þórarinsdóttir, Geir Þórarinn Þórarinsson, Erla Þórarinsdóttir, Þóra Þórarinsdóttir, Oddur Hermannsson, Guðmundur Helgi Þórarinsson, Laufey Sveinbjörnsdóttir, Þóroddur Þórarinsson, Skúli Ólafsson, Elísabet Ólafsdóttir Þaulson og barnabörn. GUÐMUNDA VIGFÚSDÓTTIR + Guðmunda Vig- fúsdóttir fæddist í Tungu í Nauteyrar- hreppi 1. júlí 1909. Hún andaðist á Elli- og hjúkrunarheimil- inu Grund 8. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Arn- fríður Benedikts- dóttir og Vigfús Vig- fússon. Guðmunda átti tvö alsystkini, Hallfríði og Vigfús, en Hallfríður er látin fyrir mörgum árum. Einnig á hún hálf- systur, Dagbjörtu Kristjánsdótt- ur, sem nú dvelur á Hrafnistu í Hafnarfirði í hárri elli. Guð- munda giftist Hermamú Sveins- syni frá Skálavfk í Reykjarfjarð- arhreppi 8. desember 1929, en hann lést 30. júh' 1995. Þau bjuggu í Skálavík og Reykjar- firði í Reykjafjarðar- hreppi fram til ársins 1955 og á fsafirði til 1964 er þau fluttu til Reykjavíkur. Böm þeima em Amfríður, f. 3. mars 1930, gift Erling Sörensen; Ingi Sigurður, f. 22. júm' 1934, d. 30. apríl 1985, kona hans Gerður Elíasdóttir; íjóla, f. 30. október 1936, gift Herði Þor- steinssyni. Oll era þau búsett á Isafirði. Afkomendur Guðmundu og Hermanns era nú 36. Guðmunda verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. í dag verður til moldar borin tengdamóðir mín Guðmunda Vig- fúsdóttir. Hún ólst upp í foreldra- húsum, en fór snemma að vinna fyrir sér eins og títt var á þeim tímum. Rúmlega tvítug giftist hún Her- manni Sveinssyni, og bjuggu þau í Skálavík fram til ársins 1955 er þau fluttu til Isafjarðar. Hamingj- an brosti við ungu hjónunum, þó efnin væra ekki mikil, en snemma árs 1935 dundi ógæfan yfir. Nokkrum mánuðum eftir að hún eignaðist sitt annað bam veiktist hún mjög alvarlega, svo flytja varð hana á sjúkrahús á Isafirði, og síð- ar til Reykjavíkur. A þessum tím- um vora ferðir stopular, langt á milli skipaferða og dróst því nokk- uð að koma Guðmundu undir lækn- is hendur. Má ætla að það hafi átt nokkum þátt í því að hún náði aldrei heilsu eftir þetta. f þessum veikindum og alla tíð á meðan fjöl- skyldan bjó í Skálavík, naut hún ómetanlegrar aðstoðar hálfsystur sinnar, Dagbjartar Kristjánsdótt- ur. Er Guðmunda og Hermann eignuðust sitt þriðja barn, Fjólu, voru ekki önnur úrræði fyrir hendi, en að setja hana í fóstur til Bjargar Andrésdóttur og Páls Pálssonar í Þúfum, en þar ólst Fjóla upp til fullorðinsára. Hin börnin tvö Arn- fríður og Ingi ólust upp með for- eldrum sínum undir verndarvæng frænku sinnar Dagbjartar, en fóru bæði snemma að vinna fyrir sér. Arið 1955 fluttu þau Hermann svo til ísafjarðar, aðallega vegna veik- inda Guðmundu, enda var hún á þeim tíma löngum á sjúkrahúsinu á Isafirði. Árið 1964 fluttu þau til Reykjavíkur, að ráði lækna á ísa- firði, og eftir það var Guðmunda nær alveg á sjúkrastofnunum, lengi í Hátúni 10 og nú síðustu tíu árin að Elli- og hjúkranarheimilinu Grund. Þar naut hún góðrar að- hlynningar þar til hún lést þar þann 8. mars sl. Sérstaklega ber að geta ástríkr- ar umhyggju Gullu, eins starfs- mannsins á Grund. Eftir að Her- mann, maður hennar dó, var dótt- urdóttir hennar Svanhildur óþreyt- andi í að vitja ömmu sinnar, og var það dætram hennar ómetanlegt, þar sem þær bjuggu báðar svo langt frá móður sinni. Guðmunda var greind kona og vel verki farin en örlögin lögðu þungar byrðar veikinda á herðar henni frá 25 ára aldri. Hún var trú- uð kona og bar þjáningar sínar með ótrúlegri þolinmæði. Hún hef- ur nú fengið hvíld eftir langt og erfitt stríð, og gengin til fundar við mann sinn og son, sem báðir vora á undan henni farnir. Guð blessi minningu hennar. Erling Sörensen. Þegar mér barst andlátsfregn Guðmundu Vigfúsdóttur, þá fannst mér að sá sem ræður tilvera okkar hefði gjört góðverk, í bestu merk- ingu þess orðs, „að hvíldin var henni kærkomin". Minningarorð sem hér era tínd saman um Guðmundu, þau eru mér minnisstæð frá æskudögum mínum vestan frá Djúpi. Oft hef ég hugsað um hvað guð getur lagt á sumt fólk. Öll erum við komin í þennan heim til þess að lifa 4. Móðir okkar, GÍSLÍNA SIGURÐARDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eir, ll . - áður til heimilis á Dalbraut 27, andaðist föstudaginn 13. mars. Eygló Olsen, Agnes O. Steffensen, Óli P. Olsen. Upplýsingar í símum 2 562 7575 & 5050 925 O | I HOTEL LOFTLEIÐIR. S I C I L A M A I « H OJ I i I Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA og deyja, en lífsgangan er ekki öll- um beinn og breiður vegur. Gleði, heilbrigði og lífshamingja er vafa- laust sú ósk sem við öll kjósum okkur. En Guðmunda var sérlega ljúf og lífsglöð persóna, hjálpsöm, orðvör og hjartahlý. Hún var heil- steypt trúkona sem sótti sálu sinni ljós og yl í lindir trúarinnar, guðs- orð og bænina. Kom það sér vel þegar veikindin ásóttu hana, að hún var sterk í stríði með styrkri trú. Eg held að sú lífsganga sem Guðmunda þurfti að glíma við sé fremur fátíð sem betur fer. Þau hjón Hermann Sveinsson og Guðmunda vora ákaflega viljasterk og samhent, þótt olnbogarýmið væri ekki alltaf mikið. Fyrrihluta ævi sinnar voru þau annarra hjú og ásetningur þeirra var að leysa sín störf af drengskap og samvisku- semi. Fyrir rúmum 60 áram var þannig ástatt í sveitum landsins, að jarðnæði lá ekki á lausu. Varð því fólk sem vildi í sveitum dvelja og gat ekki haft sjálfstæðan búskap að gjörast „vinnuhjú í húsa- mennsku". Hafði frítt húsnæði, en launin jafnan goldin í kindafóðrinu. Þetta var talið bærilegasta lífsvið- urværi. En ef við horfum til þess- ara aðstæðna í dag þá era þetta kröpp kjör sem engum yrðu nú boðin. „En neyðin kennir naktri konu að spinna“ Þannig gekk líf þeirra um allmörg ár. Þau voru nægjusöm, jafnglöð og hress, hugs- unin var að vera trú í starfi og vinna sínum húsbændum af trú- mennsku og kostgæfni. Þegar yngsta barn þeirra Fjóla fæddist 30.10. 1936, veiktist Guðmunda af þeim sjúkdómi sem hún barðist við alla tíð síðan. Móðurmjólkin fór út í blóðið. Hvílík líðan og allar þær þrautir sem því fylgdu, það voru ómældar kvalir. A þessum tímum var Djúpið akvegur þeirra sem þar þjuggu og oft erfitt að ná til læknis. Eg minnist þess frá æskudögum mínum að læknir var fenginn frá Isafirði til að hjálpa Guðmundu, hann varð að koma báti til hennar. Læknirinn sem til var kvaddur var Friðgeir Ólason, ungur og gjörvulegur maður. Þessi ungi læknir fór síðan í framhaldsnám til Ameríku. A stríðsárunum kom þessi læknir heim frá námi ásamt konu sinni sem einnig var læknir og bömum þeirra. Þau komu með Goðafossi, skipið var komið heim að Islandsströndum en þá var það skotið niður og þar drukknuðu þessi ungu hjón og börn þeirra. Stuttu eftir að veikindu Guðmundu hófust sóttu foreldrar mínir litlu stúlkuna Fjólu (þá óskírða) og tóku hana í fóstur. Kom hún eins og sannur sólargeisli inn í líf foreldra minna. Okkur fóstursystkinum hennar var hún elskuleg systir og er það enn þann dag í dag. Árið 1955 fluttu þau Guðmunda og Hermann til Isafjarðar því ekki var annað gjörlegt en að komast nær læknum. Á Isafirði dvöldu þau til ársins 1964 en þá fluttu þau til Reykjavíkur. Þar dvaldi Guð- munda á sjúkrastofnunum í langan tíma, en síðan á Grund. Þar naut hún aðhlynningar eins og hægt var. Mörg síðustu árin sem hún dvaldi þar vora henni erfið, þróttur að mestu þrotinn og þótt vinir og vandamenn kæmu til hennar var minnið og allur lífskraftur tak- markaður. Þetta er saga konu sem var lífs- glöð og átti sér drauma um farsælt líf. Maður hennar var mikið ljúf- menni sem vildi allt reyna til þess að dagar hennar yrðu sem léttbær- astir og böm hennar sólargeislar sem hún unni heitt. Nú hefur guð gjört góðverk, hvflt þessa kæru vinkonu. Hún var hetja í ströngu stríði, barðist til hinstu stundar, hugprúð heiðurs- kona. Ástvinum hennar sendum við hjónin hughreystingar- og samúð- arkveðjur. Guð blessi minningu Guðmundu Vigfúsdóttur. Páll Pálsson frá Borg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.