Morgunblaðið - 17.03.1998, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 17.03.1998, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 53 FRÉTTIR I I I I í I I : I I í I I í ( ( i ( ( Skagafjarðarlist- inn samþykktur Á FÉLAGSFUNDI Skagafjarðar- listans á sunnudag var framboðslisti Skagafjarðarlistans samþykktur. Framboðslista félagsins í næstu sveitarstjórnarkonsingum í hinu nýja sameinaða sveitarfélagi í Skagafirði skipa: 1. Ingibjörg Hafstað, Staðar- hreppi, 2. Snom Styrkársson, Sauðárkróki, 3. Pétur Valdemars- son, Sauðárkróki, 4. Anna Margrét Stefánsdóttir, Seyluhreppi, 5. Stef- anía Hjördís Leifsdóttir, Fljóta- hreppi, 6. Jóhann Svavarsson, Sauð- árkróki, 7. Helgi Thorarensen, Hólahreppi, 8. Hjalti Þórðarson, Hofshreppi, 9. Þórarinn Leifsson, Listi Fram- sóknarflokks- ins á Akra- nesi sam- þykktur TILLAGA uppstillingarnefndar að framboðslista Framsóknarflokks- ins á Akranesi til sveitarstjórnar- kosninga vorið 1998 var samþykkt á fundi fulltrúaráðs framsóknarfé- laganna á laugardag. Listann skipa: 1. Guðmundur Páll Jónsson, starfsmannastjóri, 2. Sigiíður Gróa Kristjánsdóttir, sjúkraliði, 3. Guðný Rán Sigurðar- dóttir, rekstrarfræðingur, 4. Kjart- an Kjartansson, rekstrarfræðingur, 5. Helga Magnúsdóttir, leikskóla- stjóri, 6. Valdimar Þorvaldsson, rafvirki, 7. Jóhanna Hallsdóttir, skrifstofumaður, 8. Jóhannes Snorrason, tæknifræðingur, 9. Skúlína Guðmundsdóttir, húsmóðir, 10. Sigurður Haraldsson, verka- maður, 11. Jón Frímannsson, raf- virkjameistari, 12. Hildur Bernód- usdóttir, húsmóðir, 13. Jóna Á. Ad- olfsdóttir, húsmóðir, 14. Ágústa Andrésdóttir, húsmóðir, 15. Leifur Þorvaldsson, trésmiður, 16. Magn- ús H. Ólafsson, arktitekt, 17. Stein- unn Sigurðardóttir, hjúkrunarfor- stjóri, 18. Jón Guðjónsson, vél- stjóri. Aðalfundur CCU-samtak- anna CCU-SAMTÖKIN, sem eru hópur fólks með langvinna bólgusjúk- dóma í meltingarvegi er nefnast Crohn’s og Colitis Ulcerosa, halda aðalfund þriðjudaginn 17. mars kl. 20.30 í sal íþróttasambands Is- lands, Laugardal, 3. hæð. Gestur fundarins verður Bjarni Þjóðleifsson meltingarsérfræðing- ur og mun hann fjalla um nýjustu rannsóknir á sjúkdómunum. I samtökunum eru um 100 félag- ar. Talið er að 500-600 íslendingar séu með þessa sjúkdóma og að ár- lega greinist um 25-33 sjúklingar, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlestur um umhverfísmál VÉLADEILD Tækniskóla íslands gengst á þessari önn fyrir fyrir- lestraröð um umhverfismál. Mið- vikudaginn 18. mars mun Þorvarð- ur Árnason, verkefnastjóri hjá Sið- fræðistofnun Háskóla íslands halda fyrirlestur sem ber heitið „Siðfræði náttúrunnar.“ Fyrirlesturinn er opinn öllum áhugamönnum um málefnið en að honum loknum er gert ráð fyrir opnum umræðum. Fyrirlesturinn verður haldinn í Tækniskóla ís- lands, stofu 339, og hefst hann kl. 17. Rípuhreppi, 10. Gréta Sjöfn Guð- munsdóttir, Seyluhreppi, 11. Jón Helgi Arnljótsson, Lýtingsstaða- hreppi, 12. Eva Sigurðardóttir, Sauðárkróki, 13. Erna Rós Haf- steinsdóttir, Hólahreppi, 14. Ingvar Guðnason, Lýtingsstaðahreppi, 15. Rósa María Vésteinsdóttir, Víðvík- urhreppi, 16. Guðrún Kristmunds- dóttir, Skarðhreppi, 17. Sigiáður Guðmunsdóttir, Sauðárkróki, 18. Guðni kristjánsson, Sauðárkróki, 19. Ársæll Guðmundsson, Sauðár- króki, 20. Anna Kristín Gunnars- dóttir, Sauðárkróki, 21. Björn Sig- urbjörnsson, Sauðárkróki, 22. Ulfar Sveinsson, Skarðshreppi. Byrjendanám- skeið í argen- tínskum tangó NÝTT námskeið í argentínskum tangó, ætlað byrjendum, hefst á miðvikudag 18. mars í Kramhúsinu. Námskeiðið stendur í tvær vikur og er kennt tvo tíma í senn, þrisvar í viku. Kennarar eru Hany Hadaya og Bryndís Halldórsdóttir. Innritun stendur yfir í síma Kramhússins. Argentínskur tangó hefur verið kenndur um árabil í Kramhúsinu við miklar vinsældir. Sérstakur tangó/salsa-klúbbur hefur verið starfræktur í Sölvasal á Sóloni fs- landusi einu sinni í mánuði, þar sem fólki gefst kostur á að dansa tangó og salsa af hjartans lyst, segir í fréttatilkynningu. Málstofa á Bifröst ÓSKAR Magnússon forstjóri Hag- kaupa heldur fyrirlestur á málstofu Samvinnuháskólans á Bifröst mið- vikudaginn 18. mars. Óskar nefnir fyrirlesturinn „Samkeppni á mat- vörumarkaði". Fyrirlesturinn hefst kl. 15.30 í Hátíðarsal Samvinnuháskólans. All- ir eru boðnir velkomnir. Samtök um framboð félags- hyggjufólks í Hafnarfírði SAMTÖK fólks sem aðhyllist fé- lagshyggju og jafnrétti í reynd og vill vinna að sameiginlegu framboði á sem breiðustum grundvelli verða stofnuð í Hafnarfirði í kvöld, þriðju- dagin 17. mars. Upphaf þessara samtaka má rekja til fundar sem var haldinn í Hafnarborg 28. febrúar sl., en þar var ákveðið að stofna slík samtök og kosin 7 manna undirbúningsnefnd til að undirbúa stofnun þeirra m.a. með viðræðum við fulltrúa félaga sem hafa lýst áhuga á sem nánustu samstarfi á vinstri væng stjórnmál- anna, segir í fréttatilkynningu. Á fundinum mun undirbúnings- nefndin flytja skýrslu um störf sín og leggja fram tillögur og skipu- lagsform samtakanna. Fundurinn verður haldinn í Hraunholti, Dals- hrauni 15, og hefst kl. 20.30. Fundur bæjarstarfs- manna í BSRB Ahyggjur vegna kjara- og rétt- indamála AÐALFUNDUR Samflots, bæjar- starfsmannafélaga innan BSRB, haldinn á Akureyri 13. og 14. mars 1998, samþykkti ályktun um kjara- mál þar sem segir m.a.: „Aðalfundur Samflots lýsir áhyggjur sínum vegna þeirrar þró- unar sem á sér stað í kjara- og rétt- indamálum starfsmanna sveitarfé- laga. Launanefnd sveitarfélaga ber þar mikla ábyrgð. Sveitarfélögin eru að taka við nýjum verkefnum og auka þjónustu sfna. Því eru gerðar sífellt meiri kröfur til starfsmanna þeirra án þess að bætt launakjör fylgi. Á næstu vikum munu sveitar- stjórnarmenn kynna stefnur sínar vegna komandi sveitarstjómar- kosninga. Því skorar fundurinn á sveitarstjórnarmenn að láta kjara- og réttindamál starfsmanna sveitar- félaga vera þar ofarlega á blaði. Aðalfundur Samflots telur það al- gjörlega óásættanlegt að starfs- menn sveitarfélaga sem vinna sam- bærileg störf á sömu stofnun séu á mismunandi kjöram eftir því í hvaða stéttarfélagi þeir eru. Því skorar fundurinn á sveitarstjómir í landinu að sjá til þess að þetta verði leiðrétt nú þegar.“ Fá styrki frá Jafnréttisnefnd Reykjavíkur JAFNRÉTTISNEFND Reykjavík- urborgar hefur samþykkt að veita eftirtöldum styrk til verkefna á sviði jafnréttismála: Handknattleiksdeild KR; styrkur að upphæð 100.000 kr. til kynningar á handbolta fyrir ungar stúlkur í vesturbænum. Karlanefnd Félags íslenskra leikskólakennara; styrkur að upphæð 100.000 kr. til verkefnis- ins Kynningarátak til að fjölga körl- um í leikskólum. Kvennakirkjan; styrkur að upphæð 100.000 til út- gáfu á ritningartextum m.t.t. kvenna. Kvennasögusafn íslands; styrkur að upphæð 100.000 kr. til útgáfu og kynningar á heimildarrit- inu Ártöl og áfangar í sögu ís- lenskra kvenna. Kvenréttindafélag íslands; styrkur að upphæð 100.000 til útgáfu á fræðsluefni fyrir konur sem hyggjast taka þátt í sveitar- stjórnarkosningum í vor. Jafnréttisnefndin ákvað einnig að ganga til viðræðna við Karlanefnd Jafnréttisráðs, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og BHM, BSRB og Skrifstofu jafnréttismála um þrjú önnur samstarfsverkefni á sviði jafnréttismála. SUS harmar bann við sam- runa frjáisra fyrirtækja SAMBAND ungra sjálfstæðis- manna hefur sent frá sér eftirfar- andi ályktun þar sem SUS harmar bann við samruma tveggja frjálsra fyrirtækja eins og það er orðað í ályktuninni: „Stjóm Sambands ungra sjálf- stæðismanna lýsir yfir vanþóknun sinni á því tiltæki embættismanna Samkeppnisstofnunar svonefndrar að „banna“ sammna tveggja frjálsra fyrirtækja hér í landinu. Stjórnin telur þetta óhapp embætt- ismanna stafa af þeim misskilningi að ríkisvaldið eigi að „tryggja sam- keppni“ þar sem því líst. Ungir sjálfstæðismenn telja að ríkið verði að láta sér nægja að neita sér um að banna samkeppni en megi ekki skipta sér af því hvernig frjáls fyrirtæki haga rekstri sínum. Samband ungra sjálfstæðismanna álítur að sé gang- ur að atvinnugrein frjáls sé ríkinu óheimilt að halda úti hernaði gegn vindmyllum eins og „fákeppni“ og „markaðsráðandi aðstöðu". Fræðslufundur um skógrækt í Skorradal SKÓGRÆKTARFÉLÖGIN halda fræðslufund í Mörkini 6 (húsi Ferðafélagsins) þriðjudaginn 17. mars kl. 20.30. Þessi fundur er liður í fræðslusamstarfi skógræktarfélag- anna og Búnaðarbanka íslands hf. Aðalerindi kvöldsins flytur Ágúst Ámason, skógarvörður í Skorradal. Umfangsmikil skógrækt er stunduð í Skorradal. Hann fjallar um þá miklu reynslu sem fengist hefur í Skorradalnum undanfama áratugi en af henni er ákaflega margt hægt að læra. Þannig á þessi fyrirlestur erindi til allra áhugasamra rækt- enda sem vilja ná góðum árangri í skógrækt, segir í fréttatilkynningu. Agúst sýnir myndir frá ýmsum stig- um ræktunarinnar úr Skorradal. Fiðluleikarinn Szymon Kuran leikur einnig léttan djass og boðið verður upp á kaffi og kleinur. Fyrir- lesturinn er öllum opinn meðan hús- rúm leyfir. Aðgangur er ókeypis. LEIÐRÉTT Röng nöfn I FORMÁLA minningargreina um Baldur Gunnarsson á blaðsíðu 39 í Morgunblaðinu sunnudaginn 15. mars féll niður síðasti stafur í nöfn- um tveggja systkina hans: Berg- þóru, f. 1912, og Ragnars, f. 1902, d. 1967. Þá var fæðingarár þriðja systkinisins, Jónínu, rangt. Hún var fædd 1899. Hlutaðeigendur em innilega beðnir afsökunar á þessum mistökum. Dagbók lögreglunnar Annríki en fátt í miðborginni 13. til 16. mars 1998 TALSVERT annríki var hjá lög- reglu um helgina en fátt um al- varlega atburði. Fremur fátt var af fólki í miðborginni aðfaranótt laugardags og enn færra nóttina á eftir og lítið um að vera. Ekki bar á unglingum undir útivistar- aldri. Umferðaróhöpp - umferðarslys Samtals vora skráðir 27 árekstrar um helgina. Þá vora teknir 30 ökumenn grunaðir um ölvun við akstur, sem er alltof há tala. 14 ökumenn virtu ekki stöðvunarskyldu og 11 óku gegn rauðu ljósi, en þetta era að sjálf- sögðu alltof háar tölur, enda skapar svona háttalag mikla slysahættu. Aðfaranótt sunnu- dags var maður tekinn fyrir ölv- un við akstur. Annar maður kom á lögreglustöðina til að sækja bif- reiðina, sem var fynrtækisbif- reið, en hann reyndist einnig of ölvaður til aksturs og fékk ekki bifreiðina. Laugardag kl. 02.05 var ökumaður stöðvaður á Miklu- braut. Hann reyndist bæði ölvað- ur og réttindalaus. Laugardag kl. 07.59 var tilkynnt umferðar- slys nálægt Félagsgarði í Kjós. Bifreið var að aka fram úr annarri og lenti þá framan á bif- reið sem kom á móti. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar lést en ökumaður hinnar var fluttur al- varlega slasaður og í lífshættu með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús. Sunnudag kl. 03.59 reyndi ölvaður ökumaður að sleppa frá lögreglu með því að hlaupa á brott frá bifreið sinni, sem rann þá á aðra bifreið. Sunnudag kl. 04.09 var ekið á gangandi vegfaranda við Sæ- braut. Hann var fluttur á slysa- deild með áverka á fæti og einnig var grunur um axlarbrot. Líkamsmeiðingar Föstudag kl. 19.31. Ráðist var á fatlaðan mann á heimili hans. Árásarmaðurinn var handtekinn. Laugardag kl. 20.52. Þá var til- kynnt líkamsárás í íbúð við Rauðarárstíg. I ljós kom að mað- ur hafði stungið sig sjálfur í gegnum höndina. Laugardag kl. 02.47 var tilkynnt um tvær konur í átökum á bifreiðastæði við Þjóðleikhúsið. Þetta reyndust vera systur og var önnur flutt á slysadeild, bólgin í andliti, en hin í fangageymslu. Laugai’dag kl. 03.35 var tilkynnt um líkamsárás í Lækjargötu. Þar hafði stúlka ráðist á par og bitið konuna í fingur en slegið manninn. Þjófnaður - skemmdarverk Tilkynnt vora 18 innbrot um helgina. Föstudag kl. 21.14. Stungið var á tvö dekk á bifreið. Granaður er fyrrverandi sambýl- ismaður. Laugardag kl. 01.43 bratust nokkrir piltar inn í sölu- turn við Arnarbakka til að stela tóbaki og sælgæti. Tveir þeirra náðust á hlaupum og hinir síðar. Mest af þýfinu komst til skila. Laugardag kl. 03.15 tilkynnti maður að stolið hefði verið af sér talsverðri peningaupphæð og debetkorti á veitingastað í mið- borginni. Laugardag kl. 08.27 var tilkynnt innbrot í verslun við Frakkastíg. Talsvert af þýfi fannst í pokum í bakgarði húss- ins. Laugardag kl. 19.07 ók mað- ur á brott af bensínstöð án þess að greiða fyrir eldsneytið. Hann náðist síðar um kvöldið og viður- kenndi þá einnig að hafa farið á brott frá söluturni án þess að greiða íyrir vörurnar. Sunnudag kl. 15.40 var tilkynnt innbrot í íbúð í vesturbænum. Þar var stolið sjónvarpi, myndbandstæki og skartgripum. Nokkra síðar vora tveir menn handteknir, grunaðir um innbrotið. Sunnu- dag kl. 20.27 var tilkynnt innbrot í tvo sumarbústaði í Kjós. Litlu var stolið en sýnilegt að tveir menn höfðu gist í öðram bú- staðnum. Þá var brotist inn í nokkrar bifreiðir um helgina og talsvert miklum verðmætum stolið. Annað Veitingastaður í miðborg Reykjavíkur var rýmdur aðfara- nótt laugardags, en staðurinn— hafði verið sviptur rekstrarleyfi. Aðfaranótt laugardags brenndist piltur á baki í heitum potti en verið var að hella heitu vatni í pottinn. Virðist seint of brýnt íyrir fólki að fara varlega í heitu pottunum. Á laugardagsmorgun kviknaði í eldhúsrúllu sem stóð á eldavélarhellu í húsi í austur- borginni. Ibúi náði að slökkva eldinn en nokkrar skemmdir urðu á viftu, eldavél og innrétt- ingu. Fyrir hádegi á laugardag var kveikt í ruslatunnu á salemi Bónuss á Suðurströnd. Starfs- maður náði að slökkva eldinn áð- ur en tjón varð á öðru en rasla- tunnunni. Aðfaranótt mánudags var tilkynnt að ölvaður maður væri að reyna að komast inn í Háteigskirkju. Þetta reyndist vera útlendingur og var honum ekið á hótel.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.