Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ
. 56 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998
'--f .....——■ i i ——■
BRIPS
Umsjón
Arnór G. Ragnarsson
Landsliðskeppni fyrir Norður-
landamót - Opinn flokkur -
Kvennaflokkur
Ákveðið hefur verið að spOað verði
um landsliðssæti fyrir Norðurlanda-
riíótið sem verður haldið í Ósló í
sumar. Tímasetning fyrir landsliðs-
keppni í báðum flokkum er:
Undankeppni: 2. - 3. maí, spila-
staður: Þönglabakki 1. Byrjað verð-
ur báða daga kl. 11:00. Nánari tíma-
tafla liggur fyrir um leið og þátttaka
verður ljós. Úrslit: 16. - 17. maí,
spilastaður: Þönglabakki 1. Byrjað
báða daga kl. 11:00 og spiluð 56 spil
(4X14) hvorn daginn, alls 112 spil.
Sigurvegari telst sú sveit sem skor-
aði alls fleiri impa.
Þátttaka er opin í báða flokka, en
Landsliðsnefnd áskilur sér rétt til að
velja/hafna pörum til að fá réttan
þátttökufjölda. Þátttökufjöldi verður
8, 12 eða 16 pör. Ekkert þátttöku-
gjald verður innheimt.
Skráningarfrestur er miðvikudag-
inn 30. apríl kl. 20:00 og skal þá
hvert par vera búið að senda inn 2
eintök af útfylltu kerfiskorti. Þau
pör sem ekki geta sótt kerfiskort
paranna í mótinu geta fengið þau
send í pósti (póstlögð fimmtudaginn
kl. 10).
Spilað er með skermum. Spila-
fjöldi í umferð fer eftir þátttöku.
Varamaður má spila ca. 15-20% af
spilafjölda. Spilaður verður Kaup-
hallartvímenningur, þ.e. impasaman-
burður gerður við öll borð.
Dómnefnd BSI verður dómnefnd
mótsins.
Að lokinni undankeppninni verða
skipaðar 2 sveitir sem spila úrslita-
leik um hvor sveitin skipar landslið
íslands á Norðurlandamót í opnum
flokki/kvennaflokki 1998. Efstu 2
pörin í Undankeppninni öðlast sjálf-
krafa rétt til að spila í úrslitum.
maÞau velja með sér par, efsta parið
á undan. Ef par nr. 1 velur par nr. 2
þá má par nr. 2 víkjast undan, en
önnur pör tapa réttinum til að spOa í
úrslitunum ef þau víkjast undan að
spila með annaðhvort pari nr. 1 eða
2. Ef par nr. 1 og 2 spila saman þá
fer rétturinn til efsta parsins af þeim
pörum sem ekki hafa misst réttinn.
Líföndun
Að anda er að lifa
Guörún Arnalds veröur meö námskeiö í líföndun helgina
21 - 22 mars og kvöldnámskeið 24, 25 og 26 mars.
Langar þig til aö fá aukna starfsorku og lífsgleði og sjá líf þitt í skýrara Ijósi?
Langar þig til aö opna fyrir nýja möguleika og finna gleðina í líöandi stundu?
Ef viö lærum aö anda léttar veröur líf okkar ósjálfrátt léttara
Nýturþú andartakslns7
Hildur jón^dóttir s; $95 944715$$ $454.
Bókanir og allar nánari upplýsingar.
Misstu ekki af
vandaöri fermingar
myndatöku nú í vor.
í öllum okkar myndatökum eru
allar myndimar stækka&ar í
13 x 18 cm tilbúnar til aÖ gefa
þær, aö auki 2 stækkanir
20x25cmog einstækkun
30 x 40 cm í ramma.
VerÖkr. 15.000,oo
Passamyndir á fimm mínútum
alla virka daga. opið í
hádeginu.
LjósmyndastoTa Kópavogs Ljósmyndastofan Mynd
sími: 565 42 07 sími: 554 30 20
c/d
5
<
Öflugur húðljómi
■F
Gullbrá
NÓATÚNI 17, sími 562 4217
LANCOME
kynning
í dag og á morgun
VITAB0LIC
er nýtt einstakt krem sem inniheldur
samsetningu þriggja öflugra efna: orkugefandi,
virkt C vítamín, örvandi Gingseng og
Ginkgo sem gefur húðinni fallegan blæ.
Vor- og sumarlitirnir eru komnir og
þeireru afar spennandi!
Frábær kaupauki —
fyrstur kemur, fyrstur fær!
I' DAG
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Góð grein
LILJA hafði samband við
Velvakanda og langar
hana að lýsa yfir ánægju
sinni yfir grein Armanns
Þórissonar um meðgöngu-,
fæðingar- og sængurlegu-
þjónustu, sem birtist í
Bréfi til blaðsins fimmtu-
daginn 12. mars. Þetta var
snilldarlega vel skrifuð
grein og vill hún fá að vita
hverju það sæti að konum
sé svona misboðið þarna.
Lilja.
Agúst og Aðalstöðin
ÉG MÁ til með að láta til
mín heyra og taka einnig
undir bréf Skarphéðins
Einarssonar, sem birtist í
DV nýlega, og fjaliaði um
hnignun Aðalstöðvarinnar.
I mörg ár hafði ég litla
ánægju af að hlusta á út-
varp, fegin þögninni eftir
hávaða dagsins á stóru
heimili. En svo snemma
síðastliðið haust varð mér
á að kveikja á útvarpinu
eitt kvöldið og vildi svo til
að Aðalstöðin varð fyrir
valinu. Ég sat við vinnu við
tölvu mína og hlustaði ekki
sérstaklega á músíkina í
byrjun. En svo fór ég
smátt og smátt að gera
mér grein fyrir því hversu
frábær tónlistin var og tók
þá að hlusta fyrir alvöru.
Ég var heilluð. Þátturinn í
„Rökkurró", sem Ágúst
Magnússon stýrir, var í
gangi. En svo leið vika áð-
ur en ég kveikti aftur á út-
varpinu og enn var þessi
frábæra músik. Ég hringdi
inn í þáttinn og hældi
Ágústi fyrir tónlistarvalið.
Reyndar hélt ég á þessum
tímapunkti að þessi þáttur
væri bara á mánudögum,
en komst svo fljótlega að
því að hann var oftar á
dagskrá. Eftir það varð ég
fastur hlustandi Ágústs og
Aðalstöðvarinnar.
Svo eitt kvöldið kveiki
ég, að vanda, á útvarpinu til
að hlusta á uppáhalds þul-
inn minn, en þá var önnur
rödd á öldura ljósvakans.
Ég taldi að Ágúst væri
annað hvort veikur eða í
ffíi, svo ég slökkti aftur á
tækinu. Ég reyndi af og tii
næst tvær vitamar, en
enginn Agúst. Á endanum
hringdi ég á Aðalstöðina og
fékk að vita að Ágúst væri
ekki lengur á stöðinni. Og,
eins og Skarphéðinn benti
á, þá var í stað þáttarins
„Rökkurró" endurtekinn
þáttur dagskrárgerðar-
stjórans, Eiríks Jónssonar.
Sjálfri þykir mér aðeins of
mikið að halda að hlustend-
ur vilji fá sama efnið
tvisvar sama daginn.
Ágúst er einhver
skemmtilegasti þulur sem
ég hef heyrt síðan ég tók
að hlusta á útvarp að nýju,
en það var jú Ágústi að
þakka að ég fékk áhuga
aftur á útvarpshlustun. Ég
vona heitt og innilega að
við fáum að heyra í Ágústi
fljótlega aftur á Aðalstöð-
inni eða einhverri annarri
útvarpsstöð.
Síðan Aðalstöðin hætti
að hafa útsendingar með
Ágústi Magnússyni hef ég
skipt um stöð og hlusta nú
á Matthildi. Ég leita samt
af og til á hinum stöðvun-
um til að sjá hvort Ágúst
er nokkuð kominn aftur.
Ég hvet alla aðra aðdá-
endur Ágústs Magnússon-
ar að láta einnig skoðun
sína í ljós.
Ingibjörg Þorsteinsd.
Jónsson.
Þakkir til leikfélags-
ins SnúðS og Snældu
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi:
„Vil ég senda þakkir mínar
til leikfélagsins Snúður og
Snælda, sem er leikfélag
eldri borgara, fyrir frá-
bæra sýningu á leikritinu
Maður í mislitum sokkum.
Sá ég þessa sýningu fýrir
fullu húsi og skemmti ég
mér konunglega. Leikritið
er sýnt á Hverfisgötu 105
og hvet ég alla eidri borg-
ara til að fara að sjá þetta
leikrit.
Gamall söngvari.
Tapað/fundið
Jakki týndist
á Nellýs
SVARTUR jakki týndist á
Nellýs. Skilvis finnandi
hafi samband í síma 568
3345.
Lyklakippa týndist
í desember
LYKLAKIPPA týndist,
líklega við Meistaravelli
eða Hverfisgötu, 5. desem-
ber. Skilvís finnandi vin-
samlega hringi í síma 562
2438.
Iþróttataska fannst
við Háaleitisbraut
ÍÞRÓTTATASKA, Puma,
með iþróttafatnaði og
skóm af karlmanni, fannst
við Háaleitisbraut fimmtu-
daginn 5. mars. Upplýsing-
ar í síma 581 4731.
SKAK
tlmíijón Margeir
Péturssun
STAÐAN kom upp á móti í
Cannes í Frakklandi í febrú-
ar, sem nefnt var keppni
kynslóðanna. Viktor
Kortsnoj (2.630), Sviss, hafði
hvítt og átti leik gegn heims-
meistara unglinga, Tal
Shaked (2.535) frá Banda-
ríkjunum.
31. Hxd4! og
svartrn- gafst upp.
31. _ Bxd4 er svar-
að á sérlega
skemmtilegan
máta: 32. Be4! _
dxe4 33. Df6+! _
Bxf6 34. Bxf6 mát!
Eldri kynslóðin
sigraði unglingana
naumlega, lö'/z -
15/2 v. Kortsnoj
og Spasskí hlutu
fimm vinninga
hvor af átta
Gligoric hlaut fjóra vinninga
og Taimanov 2/2 v.
Vinningar unglinganna
skiptust þannig: Etienne
Bacrot, Frakklandi, 5 v.,
Ruslan Ponomariev, Ukra-
ínu, 4/2 v., Igor-Alexandre
Nataf, Frakklandi, 3/2 v.,
Tal Shaked, Bandaríkjun-
um, 2% v.
Reykjavíkurskákmótið:
Áttunda og næstsíðasta
umferðin er tefld í dag í fé-
lagsheimili TR, Faxafeni 12.
Taflið hefst kl. 17.
mögulegum,
HVITUR leikur og vinnur
HOGNI HREKKVISI
„ Bo myndi segjo. aZþú eyddirofmiktunj
íima> i SKQmmorfrdknanT. "
Vfkverji skrifar...
AÐ HEFUR lengi verið haft á
orði, að það skorti aga í um-
ferðinni hér en Víkverji hallast að
því, að yfirvöldum sé smátt og
smátt að takast að koma á þeim
aga. Hið nýja punkta- og sektar-
kerfi á mikinn þátt í því. Það er
einfaldlega of dýrt og dýrkeypt að
hlíta ekki settum reglum.
Þeir, sem hingað til hafa ekki
notað bílbelti gera sér nú grein fyr-
ir því, að það kostar of marga
punkta og of háar sektir að gera
það ekki. Þeir, sem hafa hingað til
haft reglur um ökuhraða að engu
gera sér nú ljóst, að það borgar sig
ekki að brjóta þær eins og mönn-
um sýnist. Þetta snýst ekki bara
um krónur og aura, þótt það sé
ljóst, að brot á umferðarreglum
eru orðin býsna dýr í sektum.
Punktakerfið gerir það að verkum,
að það er ótrúlega auðvelt að missa
ökuskírteinið!
Víkverji ráðleggur því þeim, sem
hingað til hafa farið sínu fram í um-
ferðinni að horfast í augu við veru-
leikann. Okumenn eiga engan ann-
an kost nú orðið en að hlýða settum
umferðarreglum.
xxx
HIÐ SAMA má segja um stöðu-
mæla og bílastæði. Fram á
síðustu ár hefur fólk komizt upp
með að sýna stöðumælum virðing-
arleysi og yfirleitt öllum reglum
um það, hvar megi leggja bflum.
Nú þýðir það ekki lengur. Inn-
heimtu stöðumælasekta er fylgt
fast eftir. Ef bfl er lagt þar sem
óheimilt er að leggja má ganga út
frá því sem vísu, að hann verður
dreginn á brott og það kostar bæði
peninga og fyrirhöfn að ná í hann.
Það er hyggilegt fyrir fólk að
hafa lausar 50 krónur eða 100
krónur í bílnum hjá sér eða nota
bílastæðahúsin, sem eru orðin
mörg í kringum gamla miðbæinn,
þar sem erfiðast er að finna bfla-
stæði.
Þeir „gömlu, góðu dagar“ eru
liðnir að ökumenn geti farið sínu
fram.
xxx
AÐ ER ekki ólíklegt, að um-
ferðaryfirvöldum takist á til-
tölulega skömmum tíma að skapa
aukinn aga í umferðinni á höfuð-
borgarsvæðinu með þessum að-
gerðum. Þá stendur eftir það verk-
efni að auka öryggi í umferðinni úti
á þjóðvegum. Sums staðar er ekið
mjög hratt, þar sem engar aðstæð-
ur eru til m.a. vegna þess hvað veg-
imir eru þröngir, þótt þeir hafi
breikkað mikið frá því á árum áður.
Sennilega er engin aðferð til
önnur en sú að auka eftirlit með
umferðinni á þjóðvegum, sérstak-
lega í námunda við höfuðborgar-
svæðið, og ógna ökumönnum með
punktum og sektum.