Morgunblaðið - 26.03.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 55
I
I
I
(
í
(
J
J
(
(
1
i
:
i
i
:
(
i
i
<
(
4
(
(
i
(
4
J
BRÉF TIL BLAÐSINS
Framsókn tapar á
R-lista samkrullinu
Frá Karli Ormssyni:
FRAMSÓKN tapar á R-lista sam-
krullinu. Eftir stjórnarmyndunina
1995 voru skiptar skoðanir um það
hvort Sjálfstæðisflokkurinn ætti að
fara í stjórnarsamstarf með Fram-
sóknarflokknum. Eg skrifaði gi’ein í
Morgunblaðið um þetta þar sem ég
efaðist um að þetta væri rétt leið.
Við þyrftum að sjá til, en hegðun
Framsóknar með R-listanum lofaði
ekki góðu. Það er bláköld staðreynd
að Framsóknarflokkurinn sýnir svo
ekki sé meira sagt undarlega hegðun
í þessu samkrulli. Reykjavík hefur
verið höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins í
áratugi og það er að mínu áliti vafa-
samur tvískinnungsháttur sem
Framsóknarflokkurinn sýnir. Að
berjast gegn Sjálfstæðisflokknum í
Reykjavík, en sitja með honum í rík-
isstjórn.
í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins
fyrh- nokkru sagði Halldór Ásgríms-
son, formaður Framsóknarflokksins,
sannleikann um R-lista samki’ullið í
Reykjavík. Áður hafði Halldór skrif-
að lítillega um þetta í Dag-Tímann
sem þá hét. Þai’ heldur hann því
fram að það hafí skaðað flokkinn
verulega að hafa verið með í R-lista
framboðinu. Halldór sagði það sem
fjölmargir hafa talað um og enn fleiri
hugsað. í seinni fréttatíma ríkissjón-
varpsins sama kvöld viðurkennir
Sigrún Magnúsdóttir að R-listinn
hafí skaðað Framsóknarflokkinn,
hún er sammála Halldóri formanni
sínum. „Eflaust hef ég vanrækt
flokkssystkyni mín, hef verið of upp-
tekin af að vera oddamaður R-list-
ans.“ Þama hitti Sigrún naglann á
höfuðið, hún lét allskonar flokksbrot
með Valdimar Kr. Jónsson í farar-
broddi draga sig á asnaeyrunum út í
eitt allsherjar sukk og stefnulaust
flan. Rétt fyrir prófkjör R-listans
reynir Halldór að klóra í bakkann í
Degi og segist styðja framboð R-list-
ans. Það var of seint og jafnvel að-
stoðarmaður Finns Ingólfssonar
lendir í 18. sæti í prófkjörinu. Það
eru þó nokkrir þekktir framsóknar-
menn og -konur sem sagt hafa skilið
við flokkinn fyrir þetta gönuhlaup.
Hræddur er ég um að vinur minn
Einar Erlendsson ljósmynda
röntgenverkfræðingur muni R-list-
anum að svíkja hann um stöðu
forstöðumanns Ljósmyndasafns
Reykjavíkurborgar. Einar er, eins
og kannski margir vita, sonm’ Er-
lendar Einarssonar fyn’um forstjóra
SÍS og að honum standa stórar fjöl-
skyldur. Einar er tvímælalaust sá
aðili sem hefur yfirburðaþekkingu á
öllu er lýtur að ljósmyndun, söfnun
mynda, varðveislu og tölvuvæðingu
fyrir nútíma ljósmyndasafn, sem er
borginni ómetanlegt að rétt sé að
staðið. Nei! Það er Framsóknar-
flokknum lítið tii sóma að hafa
klambrað saman R-listanum aftur.
KARL ORMSSON,
fv. deildarfulltrúi,
Gautlandi 5, Reykjavík.
Loga ljósin hjá þér?
Ljósaperur lýsa okkur við dagleg störf en þær geta
einnig valdið tjóni. Rafljós geta hæglega kveikt í með
þeim hita sem stafar frá þeim. Setjið aldrei sterkari peru
í lampa en hann er gefinn upp fyrir né aðra gerð af peru
en hann er ætlaður fyrir. Gætið þess að nógu langt sé frá
Ijósaperu í brennanlegt efni, t.d. frá ljóskösturum í
gluggatjöld (lágmark 50 sm).
Ráðleggingar úr fræðsluriti Löggildingarstofu um rafmagnsöryggi
sem dreift verður inn á hvert heimili í þessari viku.
Úr bæklingi Rafmagnsöryggisviku Löggildingarstofu
ESTEE LAUDER
Ráðgjafi fra Estée Lauder verður í Gullbrá, Nóatúni,
í dag og á morgun, föstudag.
Gullbrá,
Nóatúni,
Laugavegi 60 ♦ Sími 551 2854
Glæsilegur nærfatnaður
Laugavegi 4, sími 551 4473
Nýiar \A
Sér\egagottvexð
ussur stutt- og langerma
Glugginn
Laugavegi 60 C7C7 sími 551 2854
Vantar núna fyrir ákveðna
viðskiptavini
2ja íbúða hús í Reykjavík á verðbilinu 14—17 millj.
2ja—3ja herb. íbúð í Teigum eða Holtum í Mosfellsbæ,
helst á jarðhæð.
Eignamiðstöðin Hátún,
Skipholti 50b, Reykjavík.
Sími 561 9500.
Heilbrigðisvandi fanga
Stjórn Verndar heldur málþing um
heilbrigðisþjónustuna í fangelsum og
heilbrigðisvanda fanga í Norræna húsinu
í dag fimmtudaginn 26. mars.
Málþingið hefst kl. 13.30
Aðgangur ókeypis og öllum heimill
meðan húsrúm leyfir
Q
érnd
Stjórn Verndar
tangahjálp
Samgöngur 21. aldar
Ráðstefna á vegum VFÍ og TFÍ
Tími: Föstudagur 27. mars 1998, kl. 9:00-17:00, Kiwanishúsinu, Engjateigi 11.
Þátttökugjald: kr. 8.000,-. Innifaliðer Ráðstefnumappa, matur og kaffí.
Skráning: Skrifstofa VFÍ og TFÍ á Engjateigi 9, 105 Reykjavík.
Símar: 568 8511, 568 8503. Myndriti: 568 9703. Tölvupóstfang: vt@vortex.is
Ráðstefnustj.: Henrý Þór Gránz, byggingatæknifræðingur.
Ríkharður Kristjánsson, byggingaverkfræðingur.
Dagskrá:
9:00 Ráðstefnan sett. Jóhannes Benediktsson, formaður TFÍ.
9:10 Avarp. Halldór Blöndal, samgönguráðherra.
9:20 Vegakerfið og flutningar, þróun og horfur. Helgi Hallgrímsson, vegamálastjóri.
9:40 Vegaáætlanir, aðferðir og verkefni. Jón Rögnvaldsson, aðstoðar vegamálastjóri.
10:00 Framkvæmdir og þjónusta á vegum. Rögnvaldur Jónsson,
framkvœmdastjóri tæknisviðs Vg.
Kaffihlé.
10:50 Viðhorf dreifbýlis. Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður.
11:10 Þróun samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Stefán Hermannsson, borgarverkfrœðingur.
11:30 Hlutverk aimenningssamgangna á 21. öldinni. Guðrún Jónsdóttir, arkitekt
Hádegisverður.
13:00 Á að spyrja notendur ráða eða bara þingmenn? Ómar Ragnarsson, fréttamaður.
13:30 Byggðaþróun á íslandi og samspil hennar við samgöngumál. Trausti Valsson,
skipulagsfræðingur.
14:00 Samspil eða barátta umhverfís og samgangna. Auður Sveinsdóttir, landslagsarkitekt.
14:30 Nýir orkugjafar í samgöngutækni. Einar Valur Ingimundarson,
umhverfisverkfrœðingur.
Kaffihlé.
15:40 Samgöngutækni 21. aldarinnar. J. Ingimar Hansson, verkfræðingur.
16:20 Að horfa fram eða aftur. Spáð í spilin í fortíð og nútíð. Guðjón Friðriksson,
sagnfrœðingur.
17:00 Ráðstefnuslit. Pétur Stefánsson, formaður VFÍ.
Kl. 17:20-18;30, Móttaka í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9.
Leyfðar verða stuttar fyrirspurnir í lok hvers erindis.
Hér er um að ræða ráðstefnu um framtíðarsýn varðandi samgöngur á 21. öldinni þar sem
margir þekktustu fagmenn landsins koma fram og flytja erindi um sitt sérsvið.
Verkfræðingafélag íslands og Tæknifræðingafélag íslands
sími 562 42179
- kjarni málsins!