Morgunblaðið - 26.03.1998, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
SVIPMYND frá grunnskólamótinu.
Réttarholtsskóli
sigraði Hagaskóla
SK4K
Taflfélag Iteykja-
víkur 20. —22. mars
SVEITAKEPPNI
GRUNNSKÓLA í REYKJAVIK
Teflt var dagana 20.-22. mars.
SVEITAKEPPNI grunnskóla
í Reykjavík var haldin dagana
20.-22. mars. Tefldar voru 9 um-
ferðir eftir Monrad-kerfí og um-
hugsunartími var 30 mínútur á
skák fyrir hvem keppanda. Allir
grunnskólar í Reykjavík áttu rétt
á að senda sveitir í keppnina. Að
þessu sinni sendu 16 skólar sveit-
ir til keppninnar og voru þátt-
tökusveitir samtals 25.
Mótið var haldið sameiginlega
af Taflfélagi Reykjavíkur og
Iþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur. Skákstjórar frá
Taflfélagi Reykjavíkur voru Ólaf-
ur H. Ólafsson og Torfi Leósson,
en mótsstjóri var Gunnar Örn
Jónsson frá ÍTR. Mótið var hald-
ið hjá Taflfélagi Reykjavíkur,
Faxafeni 12.
Úrslit urðu þessi:
1. Réttarholtsskóli 33Vz v.
2. Hagaskóli 31Vz v.
3. Hólabrekkuskóli-A 2414 v.
4. Seijaskóli-A 20Vz v.
5. Háteigsskóli 20 v.
6. -7. Melaskóli-A og Öiduselsskóli-A
1914 v.
8.-10. Fossvogsskóli, Rimaskóli-A og
Alftamýrarskóli 19 v.
11.-12. Breiðagerðisskóli, og Selja-
skóli-C l_8‘/2 v.
13.-16. Arbæjarskóli-A, Grandaskóli-
A, Árbæjarskóli-B og Hólabrekku-
skóli-B 18 v.
17.-18. Melaskóli-B, og Rimaskóli-B
1714
19. Ártúnsskóli-A 17 v.
20. -21. Laugalækjarskóli og Artúns-
skóli-B 1614 v.
22. Seijaskóli-B 1414 v.
23. Grandaskóli-B 14 v.
24. Ölduselsskóli-B 13 v.
25. Engjaskóli 614 v.
Reylqavíkurmeistarar Réttar-
holtsskóla eru þessir skákmenn:
1 Davíð Kjartanss. 9 v. af 9
2 Þórir Júlíuss. 0 v. af 0
3 Sveinn Þór Wilhelmss. 71'z v. af 9
4 Guðni Stefán Péturss. 9 v. af 9
1. vm. Jóhannes I. Ámas. 5 v. af 5
2. vm. Einar Á. Árnas. 3 v. af 4
Sveit Hagaskóla var þannig
skipuð:
1 Stefán Kristjánss. 8 v. af 9
2 Sigurður P. Steindórss. 9 v. af 9
3 Andri H. Kristinss. 8 v. af 9
4 Aldís Rún Lárusd. 3 v. af 3
vm. Hallgrímur J. Jenss. 314 v. af 6
í sveit Hólabrekkuskóla-A,
sem lenti í þriðja sæti voru:
1 Gústaf Smári Bjömsson
2 Valtýr Njáll Birgisson
3 Sævar Ólafsson
4 Magnús Magnússon
vm. Ingibjörg E. Birgisd.
Atskákmdt Austurlands 1998
Atskákmót Austurlands var
haldið á Eskifirði sunnudaginn
22. mars. Þátttakendur voru 8 og
tefldar voru 5 umferðir eftir
Monrad kerfi. Tímamörk voru 25
mínútur á mann. Sigurvegari
varð Viðar Jónsson, Stöðvarfirði,
með 5 vinninga af 5 mögulegum.
I öðru til fjórða sæti urðu Gunnar
Finnsson, Borgarfirði, Sverrir
Gestsson, Fellabæ, og Rúnar
Hilmarsson, Reyðarfirði. Þeir
hlutu allir 3 vinninga. Stig í mót-
inu ákvörðuðu röð þeirra þannig
að annað sæti hlaut Sverrir
Gestsson og þriðja sæti Gúnnar
Finnsson. Verðlaunabikar var
veittur fyrir 1. sætið og verð-
launapeningar fyrir annað og
þriðja sæti. Mótsstjóri var Guð-
mundur Ingvi Jóhannsson.
Aðalfundur Hellis 1998
Aðalfundur Taflfélagsins Hell-
is 1998 verður haldinn fimmtu-
dagskvöldið 26. mars klukkan 20
í Hellisheimilinu, Þönglabakka 1.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfund-
arstörf. Rétt til setu á fundinum
hafa allir fullgildir, skuldlausir
félagsmenn 16 ára og eldri.
Félagsmenn eru hvattir til að
mæta á þennan áhugaverða fund,
þar sem jafnan fara fram fjörug-
ar umræður um stöðu og framtíð
félagsins.
Skemmtikvöld
skákáhugamanna
Skemmtiklúbbur skákáhuga-
manna heldur skemmtikvöld
föstudaginn 27. mars klukkan 20.
Fyrst verður farið yfir stöðuna í
heimsmeistarakeppnunum og
birt úrslit í getraun sem fram fór
1994! Þeir sem tóku þátt í henni
spáðu fyrir um það hvaða skák-
menn yrðu sigurstranglegastir á
næstu árum. Gert var ráð fyrir
því að Kasparov og Karpov
myndu tefla sameiningareinvígi,
en dómnefndin hefur nú gefist
upp á að bíða eftir því.
Síðan fer fram létt hraðskákk-
eppni þar sem þátttakendum er
skipt í riðla eftir styrkleika. Allir
skákáhugamenn eru velkomnir.
Skemmtikvöldið er haldið hjá
Taflfélaginu Helli, Þönglabakka
1, Mjódd. (Hjá Bridgesamband-
inu)
Aðgangseyrir er kr. 500 og
rennur óskiptur til skákmóta-
halds hér á landi.
íslandsmót grunnskólasveita
íslandsmót grunnskólasveita í
skák 1998 fer fram dagana 27. til
29. mars í Faxafeni 12, Reykja-
vík. 1.-3. umferð verða tefldar á
fóstudagskvöld frá kl. 19, en
laugardag og sunnudag hefst taf-
lið kl. 14.
Sigurvegari í þessari keppni
mun öðlast rétt til að tefla á
Norðurlandamóti grunnskóla-
sveita sem haldið verður í Noregi
í haust. Skráning og nánari upp-
lýsingar hjá Skáksambandi Is-
lands á milli kl. 10 og 13 virka
daga, sími 568 9141.
Daði Örn Jónsson
Margeir Pétursson
VELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Óhefðbundnar
lækningar
FYRIR nokkru var í Sjón-
varpinu skemmtilegur um-
ræðuþáttur þar sem rök-
rætt var um óhefðbundnar
lækningar. Undir óhefð-
bundnar lækningar flokk-
ast heilun, andalækningar,
grasalækningar, nála-
stungur, nudd á iljar, o.fl.
Það vakti nokkra furðu
hve landiæknir og félagi
hans voru gamaldags og
öfugsnúnir. Þeir voru það
sem til forna var kallað úr-
iilir en einnig uppsperrtir.
Ekki aðeins að þeir hefðu
litla eða enga trú á lækn-
ingum sem hér um ræðir,
heldur var á þeim að skilja
að þeir teldu þær sak-
næmar.
Spaugilegt var þegar fé-
lagi iandlæknis yggldi sig
og dró í efa að til væri orka
til lækninga. Hann mælti
„hver er þessi orka sem
enginn getur mælt eða
skilgreint?“ Hér er eðli-
lega átt við heilunarorku,
kraft sem kemur að hand-
an, en erfitt er að lýsa í fá-
um orðum. Sumir eru eðli-
lega vantrúaðir, einkum
þeir sem aldrei skynja
neitt dulrænt. Það skiptir
reyndar engu hvort þessi
orka eða kraftur er mæl-
anlegur eða ekki, kjarni
málsins er að það er hægt
að lækna fólk með hjálp að
handan. Þess vegna eiga
óhefðbundnai- lækningar
rétt á sér, og þar af leið-
andi eiga læknar og þeir
sem fást við óhefðbundnar
lækningar að vinna saman,
eftir því sem efni og að-
stæður leyfa.
Eyjólfur
Guðmundsson.
Góð póstþjónusta
LILJA hafði samband við
Velvakanda og sagðist hún
hafa sett bréf í póstkassa
við Bólstaðarhlíð sl. sunnu-
dag kl. 13.30. Um miðjan
dag á mánudag var bréfið
komið til viðtakanda á
Grundarfii-ði. Vill hún
þakka fyrir skjóta og góða
þjónustu.
Tapað/fundið
Húfa fannst á
Skólavörðustíg
HÚFA, eða hattur úr þrí-
iituðu flaueli, fannst á
Skólavörðustig um hádegi
mánudagsins 23. mars.
Upplýsingar í síma 560
6855 til kl. 16 á daginn.
Drapplitur frakki
tekinn í misgripum
DRAPPLITUR Bur-
berry’s frakki var tekinn í
misgi'ipum úr fatahengi í
Oddfellow-húsinu við
Vonarstræti á kútmaga-
kvöldi 12. mars. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 553 7266.
Gullhringur
týndist
GULLHRINGUR, kven-
hringur með upphleyptu
munstri, steinalaus, týnd-
ist þriðjudaginn 17. mars.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 567 6205 eða
553 9103.
Zippo-kveikjari
í óskilum
GYLLTUR Zippo-kveikj-
ari fannst í Miðtúni. Upp-
lýsingar í síma 552-9098.
Dýrahald
Kettlingur
óskast
ÓSKUM eftir vel upp öld-
um kettlingi, ekki eldri en
4ra mánaða. Upplýsingar í
síma 551 8575.
Morgunblaðið/Ásdís
BRUNAÐ á skíðum í Öskjuhlíðinni.
Víkverji skrifar...
NÝLEGA fór fram í Háskóla ís-
lands kynning á þeim mý-
mörgu möguleikum sem bjóðast til
náms í hinum ýmsu skólum og eru
slíkar kynningar haldnar á tveggja
ára fresti. Fjöldi ungmenna lagði
leið sína á þessa kynningu og von-
andi hafa einhver þeirra ákveðið í
framhaldinu hvað þau ætla að taka
sér fyrir hendur þegar mennta-
skóla eða sambærilegum skólum
lýkur.
Þegar rætt er við stúdentsefni
virðist ótrúlega lítill hluti þeirra
hafa ákveðið hvað þau ætla að gera
að menntaskóla loknum og oft virð-
ist tilviljun ráða því hvað þau taka
sér fyrir hendur. Hvort sífellt fleiri
möguleikar rugla unga fólkið í rím-
inu eða hvort meira rót er á hugum
ungs fólks nú en áður eða hvort
þetta hefur alltaf verið svona veit
Víkverji dagsins ekki. Hann veltir
því hins vegar fyrir sér hvort
náms- og starfsfræðsla geti ekki
verið markvissari og meira áber-
andi þáttur í starfi framhaldsskól-
anna en nú er.
Þessar vangaveltur komu upp í
hugann þegar skrifari heyrði að
dæmi væru um það í Háskóla Is-
lands, að fólk skráði sig allt að sjö
sinnum til náms í skólanum í hinar
mismunandi deildir áður en við-
komandi teldi sig hafa fundið eitt-
hvað við sitt hæfi.
XXX
INÝLEGU fréttabréfi mennta-
málaráðuneytisins kemur fram
að ráðuneytið hefur á síðustu ár-
um safnað margvíslegum upplýs-
ingum um starfsemi leik-, grunn-
og tónlistarskóla. Ráðuneytið og
Hagstofa íslands gerðu síðan síð-
astliðið haust með sér samkomu-
lag um að efla hagskýrslugerð um
skólahald í landinu og frá hausti
1997 annast Hagstofan gagna-
söfnun frá skólum í landinu.
Forvitnileg sýnishorn af þess-
ari upplýsingaöflun er að finna í
fréttabréfinu. Þar kemur til
dæmis fram að vorið 1997 voru
6.376 nemendur í 43 tónlistar-
skólum landsins. Yngsti nemandi
tónlistarskólanna var aðeins
þriggja ára og sá elsti áttræður.
Langflestir, eða 4.679, voru á
aldrinum 6-15 ára. Árið 1997 voru
864 nemendur á biðlistum eftir að
komast að í þeim 41 skóla sem
svaraði spurningu ráðuneytisins
þar að lútandi.
Langflestir nemenda tónlistar-
skólanna eru á fyi-sta stigi náms-
ins, eða tæplega 60%. Tæplega 20
nemendanna fara yfir á annað stig,
10% fara á þriðja stig og 1% fer á
níunda stig tónlistarnámsins.
xxx
SLAGURINN á raftækjamark-
aði hefur tæpast farið framhjá
nokkrum manni. Það sem skiptir
mestu máli í því sambandi er að sú
verðlækkun sem óneitanlega hefur
orðið að undanförnu verði varan-
leg. Að hún skili sér til neytenda til
frambúðar en verði ekki aðeins
hluti af markaðssetningu augna-
bliksins.
Kunningi Víkverja sem kannað
hefur þennan markað að undan-
förnu segist sannfærður um að svo
verði. Það sé neytendanna að halda
kaupmönnum við efnið. Hann segir
líka, að það sé ekki eðlilegt að
endalaust séu til birgðir af tilboðs-
vörum og segir atganginn hafa ver-
ið slíkan að nokkurra vikna birgðir
af vörum hafi horfið úr hillunum á
örfáum klukkustundum.