Morgunblaðið - 09.05.1998, Page 1

Morgunblaðið - 09.05.1998, Page 1
96 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 103. TBL. 86. ÁRG. LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Netanyahu fer ekki til Washington Jerúsalem. Reuters. BENJAMIN Netanyahu, forsætis- ráðherra Israels, fer ekki til fundar við Bill Clinton, forseta Bandaríkj- anna, og Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, í Washington á mánudag. Skýrði talsmaður hans frá þessu í gær. Talsmaður Bandaríkja- stjómar sagði hins vegar, að hún væri ekki búin að gefa upp alla von um, að af fundi yrði í næstu viku. David Bar-IIlan, talsmaður Net- anyahus, sagði, að líkumar á því, að forsætisráðherrann færi til Was- hington væra engar en vildi ekkert um það segja hvort hann hefði farið fram á, að fundinum yrði frestað. Sagði hann, að meiri tíma þyrfti til að finna lausn á ágreiningi ísraela og Bandaríkjamanna um afhend- ingu lands á Vesturbakkanum. Dennis Ross, sendimaður Banda- ríkjastjómar, kom til Jerúsalem í gær og átti þá viðræður við Net- anyahu og mun halda því áfram í dag að sögn James Rubins, tals- manns Madeleine Albright, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna. Á milli steins og sleggju Áður en fundur þeirra Ross og Netanyahus hófst í gær hafði raun- ar talsmaður þess síðarnefnda hafn- að kröfu Bandaríkjastjórnar um, að ísraelar afhentu Palestínumönnum 13% lands á Vesturbakkanum. Er sótt að Netanyahu úr öllum áttum í þessu máli og liggur hann undir þrýstingi frá Bandaríkjunum, harð- línumönnum í eigin stjóm, Palest- ínumönnum og stjómarandstöðunni í Israel. Skoðanakönnun, sem birt var í Israel í gær, sýnir einnig, að almenningsálitið er mjög skipt. Em 46% andvíg kröfunni um afhend- ingu 13% Vesturbakkans, 43% hlynnt henni og 11% skoðanalaus. ftaliustjórn lýsir yfír neyðarástandi á aurskriðusvæðunum Hamförunum líkt við Reuters Lögum um guðlast mótmælt Hirðprest- ur vill kon- ungskjör London. The Daily Telegraph. EINN af hirðprestum Elísabetar Englandsdrottningar segir að ekki sé skynsamlegt að gera ráð fyrir að menn fæðist hæfir til að gegna skyldum konungs eða drottningar. „Vandi konungs- veldisins er augljós: Einvaldurinn sem nú er við völd kann að vera óaðfinnanlegur en við vitum ekki hvað við fáum næst,“ sagði séra Eric James í stólræðu í Westmin- ster Abbey, þar sem margar kon- unglegar athafnir hafa farið fram. Séra James er 72 ára og einn af tólf prestum við bresku hirð- ina. Orð hans hafa vakið litla hrifningu við hirðina, talsmaður drottningar lét sér nægja að segja það vera „mál séra James hvernig hann fær þessar skoðan- ir til að samræmast stöðu sinni sem prestur.“ Konungssinnar eru ævareiðir vegna orða prestsins, sem hefúr ekki viljað ræða efni ræðunnar frekar, sagði það „of hættulegt". ♦ ♦♦---- Tóbaksiðnaðurinn Minnesota fær bætur St. Paul. Reuters. TÓBAKSIÐNAÐURINN í Banda- eldgosið í Pompei Sarno. Reuters. Reuters OMURLEGT er um að litast í bæuum Sarno, sem varð einna verst úti í aurskriðununi á þriðjudag. ÍTALSKA stjórnin lýsti í gær yfir neyðarástandi í þremur héruðum á Suður-Ítalíu þar sem mannskæðar aurskriður féllu á þriðjudagskvöld. Tölur yfir látna í skriðuföllunum fara hækkandi, nú er talið að þau kunni að hafa kostað allt að 300 mannslíf en 101 lík hefur fundist. Þeir sem eftir lifa eru fullir örvænt- ingar og reiði vegna þess hversu seint og illa hjálp hefur borist. Stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd vegna þessa máls en Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, sem er í heimsókn í Banda- ríkjunum, sagði í gær að legu lands- ins væri um að kenna hvernig fór, svo og „langtíma vanrækslu gagn- vart landinu - vanrækslu sem nú þarf langan tíma til að bæta“. Leitarstarf hefur dregist vegna tækjaskorts, um tíma voru ekki einu sinni skóflur til að grafa eftir fólki. I gær komu hins vegar her- menn og stórvirkar vinnuvélar frá bandaríska hemum til bæjanna sem verst urðu úti; Sarno, Qindici, Siano og Bracigliano. Leitarmenn etja kappi við tímann í veikri von um að finna einhverja á lífi í byggingum sem eru á kafi í aur, en tveir fund- ust lifandi undir eðjunni í gær. Hafa fjölmiðlar á Ítalíu kallað hamfarimar „Pompei nútímans" með vísan til þess er borgin Pompei og íbúar hennar hurfu undir ösku úr Vesúvíusi árið 79. Itölsku almannavarnirnar sögðu í gær að 107 væri saknað en í raun og veru væri útilokað að segja ná- kvæmlega til um fjöldann. Bæjar- stjórnirnar á svæðinu segja þá miklu fleiri, að aurskriðurnar kunni að hafa orðið um 300 manns að bana. Yfirborð eðjunnar hefur nú þornað og fíngert rykið veldur leit- armönnum miklum erfiðleikum, þar sem þeir sjá á köflum vart handa sinna skil. íbúar í miklu uppnámi „Því miður em bæjarbúar í miklu uppnámi,“ sagði Gaetano Simonetti, sem hefur yfirumsjón með björgun- araðgerðum. „I stað þess að hjálpa okkur standa þeir yfir okkur og kvarta yfir því að við aðstoðum þá ekki við að hreinsa út úr húsum þeirra.“ En íbúamir segjast hafa fulla ástæðu til að vera reiðir. T.d. hafi borist símbréf á bæjarskrifstofurn- ar í Sarno um yfirvofandi hættu á aurskriðum átta tímum eftir að skriðurnar féllu. Hjálpin hafi borist seint og skipulagning verið í molum. Fólk hafi beðið tímunum saman á húsþökum og í aur upp að mitti eftir aðstoð og almannavarnanefndir hafi ekki getað skipulagt leit þar sem símalínur eyðilögðust og enginn var með farsíma. EFNT var til mótmæla í Karachi í Pakistan í gær og þúsundir kristinna manna komu saman í bænum Khush Pur til að minnast kaþólsks biskups, Johns Josephs, sem svipti sig lífi í fyrradag fyrir utan dómshús í bænum Faisal- abad. Gerði hann það til að mót- mæla líflátsdómi yfir kristnum manni, sem sakaður var um að hafa óvirt fslamska trú. Eru pakistanskar öryggissveitir sak- aðar um að kúga fé út úr kristnu fólki og öðrum trúarlegum minni- hlutahópum með því að hóta þeim með lögunum um guðlast. uðu í gær milligöngu erlendra ríkja í Kosovodeilunni og héldu því fram, að stjómmálalegar og efnahagsleg- ar refsiaðgerðir gegn landinu kyntu undir sjálfstæðiskröfum albanska meirihlutans í héraðinu. Dragomir Vucicevic, embættis- maður í utanríkisráðuneytinu í Belgrad, sagði, að ekki yrði fallist á erlenda milligöngu þrátt fyrir nýjar efnahagsþvinganir Samstarfsríkja- hópsins en þær koma til fram- kvæmda í dag. Banna þær erlenda fjárfestingu í Serbíu. Felipe Gonzalez, fyrrverandi for- sætisráðherra Spánar og sáttasemj- ari Samstarfsríkjahópsins og ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, staðfesti í Brussel í gær, að ríkjunum féllst í gær á að greiða Minnesota-ríki bætur fyrir þau miklu fjárútlát sem ríkið hefur orðið fyrir vegna sjúkdóma sem rekja má til reykinga. Réttarhöld í þessu máli hafa stað- ið í tæpa fjóra mánuði en rétt áður en dæma átti í því tókust sættir. Var sæst á, að tóbaksiðnaðurinn greiddi Minnesotaríki rúmlega 430 milljarða ísl. kr. á 25 árum. Er þetta fyrsta málið af 40, sem einstök ríki hafa höfðað og réttað er í. Áður hef- ur tóbaksiðnaðurinn fallist á að greiða Mississippi, Flórída og Texas 2.100 milljarða kr. Júgóslavíustjórn hefði hafnað við- ræðum við hann. Hann lagði þó áherslu á, að Slobodan Milosevic, forseti Júgóslavíu, hefði enn tæpan sólarhring til að sjá sig um hönd og koma í veg fyrir auknar refsiað- gerðir. Holbrooke til Belgrad? Orðrómur var um það í gær, að sendimaður Bandaríkjastjómar, Ro- bert Gelbard, og hugsanlega einnig Richard Holbrooke væru á leið til Belgrad til viðræðna við stjómvöld en Vucicevic vildi ekki staðfesta það. Bann við erlendum fjárfestingum í Júgóslavíu mun gera að engu ýms- ar framkvæmdir, sem stjórnvöld ráðgera í von um betri tíma í efna- hagsmálunum. Hafna milli- göngn í Kosovo Belgrad. Reuters. STJÓRNVÖLD í Júgóslavíu höfn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.