Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 9
FRÉTTIR
Um 8 þúsund manns búa þar sem hitaveita væri hagkvæm
Atak í leit að jarðhita
á köldum svæðum
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ,
Orkuráð og Byggðastofnun hafa
undimtað samkomulag um átak í
leit að jarðhita til húshitunar á
svokölluðum köldum svæðufn á
landinu, þar sem engin hitaveita er
en talið er að þjóðhagslega hag-
kvæmt kunni að vera að leggja
hitaveitu.
Að sögn Þorkels Helgasonar
orkumálastjóra sýna útreikningar
að 8 þúsund manns búa á svæðum,
þar sem talið er hagkvæmt að
leggja hitaveitu. Um er að ræða
svæði á Snæfellsnesi, Vestfjörðum
og á Austurlandi. I dag búa 85%
landsmanna við hitaveitu en gera
má ráð fyrir að í framtíðinni nái
hitaveita til 90% landsmanna.
„Ef til vill er ekkert sem getur
haft jafn mikil áhrif á búsetuþróun
í landinu og orkukostnaður," sagði
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra. „Það hefur sýnt
sig að þau svæði landsins, þar sem
kostnaður við húshitun er lægstur
þar er styrkleiki byggðar mestur.“
Hvati til aðgerða
Átakinu er ætlað að verða hvati
til frekari aðgerða í jarðhitaleit á
köldum svæðum með áherslu á
frumstig leitarinnar en heima-
mönnum og orkufyrirtækjum er
ætiað að taka við framkvæmdum
þegar vísbending fæst um jarðhita,
sem hagkvæmt gæti verið að nýta.
Athyglinni verður einkum beint að
þéttbýlisstöðum og áherslu lögð á
svæði, þar sem erfiðleikar kunna
að vera nú eða í framtíðinni í dreif-
ingu á raforku til hitunar.
Miðað er við tvö starfsár með
möguleika á framhaldi og er gert
ráð fyrir 30 milljóna króna fram-
lagi á ári en reiknað er með að
sveitarfélög og orkufyrirtæki leggi
fram mótframlag er nemi a.m.k.
50% af kostnaði við fi-amkvæmd-
ina. Samkvæmt lauslegri kostnað-
aráætlun Orkustofnunar er gert
ráð fyrir að heildarkostnaður við
jarðhitaleit, þar með taldar boran-
ir á köldum svæðum, geti numið
200-300 milljónum.
Jarðhitaleitarátakinu er ætlað
að verða sveitarfélögum og orku-
fvi'irtækjum hvatning til jarðhita-
leitar og getur Orkusjóður lagt til
fi-ekari aðstoð með lánum. Við for-
gangsröðun við styrkveitingar
verður tekið tillit til þess að verk-
efnið leiði til þess að a.m.k. 100
íbúar geti notað jarðvarmann til
húshitunar, að verkið sé þjóðhags-
lega arðbært, geti stuðlað að já-
kvæðri byggðaþróun og að það fái
jákvæða umsögn auðMndadeildar
Orkustofnunar.
Lánað áfram til jarðhitaleitar
Iðnaðarráðherra sagði að eftir
sem áður yrðu jarðhitaleitarlán
Orkusjóðs til staðar og er lánað til
borana og rannsókna en þó ekki
vegna áfallins kostnaðar og geta
lán numið allt að 60% af áætluðum
kostnaði. Lánað er til tíu ára.
Fyrstu tvö árin eru án afborgana
og eru þau einungis endurkræf ef
árangur verður af verkefninu.
Sagði ráðherra að hann hefði auk
þess heimild til að fresta afborgun-
um enn frekar þar til tekjur við-
komandi fyrirtækis standa undir
rekstrinum.
Egill Jónsson, stjómarformaður
byggðastofnunar, segir átakið vera
í takt við stefnu í byggðamálum.
Sagði hann að í þingsályktunartil-
lögu, sem nýlega hefur verið lögð
fram á Alþingi sé lagt til að heimilt
verði að nýta þær 500 milljónir sem
ríkissjóður leggur til í niðurgreiðslu
á raforkukostnaði í stofnframlag til
vii'kjunar á heitu vatni í fimm ár.
r
Fallegar og vandaðar
sumarvörur í miklu úrvali
A
V
TÍSKUVERSLUN Kringlunni 8-12, sími 553 3300
J
AÐALSTÖÐIN
/7...9Z 9
IfiugfílágVslandsI
Hjómsveit
Geirmundar
BROADWA^
HÓTEL ÍSLANDl
Miða- og borðapantanir í síma 533 1100.
Verð 4.900, matur og sýning. 2.200, sýning. 1.000, dansleikur.
leikur fyrir dansi
14 manna hljómsveit undir
Jstjórn Þóris Baldurssonar.
Z&ynnir er Jón Axel Ólafsson.
Franskar gallabuxur
6 litir - Frá stærð 34
Opiðvirkadaga9-18, ^l^ l^ w w
laugardag 10-14. ■ MM CT
Ný sending
ÚTSKRIFTARDRAGTIR
hj&QýGnfiihiUi
» Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.30, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Valhöll, Háaleitsbraut 1, 3. hæð, 105 Reykjavík
Símar: 515 1735, 515 1736
Farsími: 898 1720
Bréfasími: 515 1739
Netfang: utankjorstada@xd.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumanninum í
Reykjavík í Ármúlaskóla alla daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22
Utankjörstaðaskrifstofan gefur upplýsingar um allt sem
lýtur að sveitarstjórnakosningunum 23. maí n.k.
Sjálfstæðisfólk!
Látið okkur vita um alla stuðningsmenn sem ekki verða
heima á kjördag t.d. námsfólk erlendis.
MERCURV
SUMARTILBOÐ
POSTSENDUM
SAMDÆGURS
Stærðlr: 23-34
Sumartilboð
kr. 1.290
Opið
laugard.
kl. 10-14
SKOUERSLUN
K0PAU0GS
ttAMRABORG 3 • SÍMl 554 1754
STYRKUR TIL
TÓNLISTARNÁMS
Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á
þessu ári veita tónlistarfólki styrk til jramhaldsnáms
erlendis á nœsta skólaári 1998-1999.
Veittur er styrkur að upphæð kr. 500.000.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og
framtíðaráform sendist fýrir 25. maí nk. til
formanns sjóðsins:
Arnar Jóhannssonar,
pósthólf 3372,
123 Reykjavík.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár
frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna
hæfni umsækjanda.