Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 65
MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 65 FÓLK í FRÉTTUM Beinar útsendingar Halda Guðni og félagar úrvals- deildarsætinu? Sýn kl. 13.55 Urslitaleikur Reykjavíkui-mótsins í knattspyrnu, Valur og Fram mætast á Valsvelli að Hlíðarenda. Sjónvarpið kl. 16.00 Meistarakeppni KSÍ. Leikið verður á grasvellinum í Keflavík, þar sem mætast íslandsmeistarar IBV gegn bikarmeisturum Keflavíkur. Sunnudagur 10. maí Sjónvarpið kl. 11.40 Formúla-1 kappakstur í Barcelona. Stöð 2 kl. 14.00 Juventus gegn Bologna. Heima- menn eiga góða möguleika á að vinna 25. meistaratitilinn; þeir eru í fyrsta sæti, fjórum stigum á undan Inter, sem mætir Bari í þessari næstsíðustu umferð ítölsku deildar- innar og til þess að geta fagnað meistaratign þurfa leikmenn Juve að að sigra lið Bologna. Gestirnir eru í 9. sæti deildarinnar og eygja enn von um Evrópusæti. I liði þeirra er enginn annar en Roberto Baggio, fyrrum leikmaður Juventus, og hef- ur einmitt farið hamfórum undanfar- ið, þannig að þótt Juventus sé að sjálfsögðu sigurstranglegra liðið er aldrei að vita hvað gerist. Sýn kl. 14.55 Chelsea gegn Bolton Wanderers. Guðni Bergsson fer fyrir sínum mönnum í Bolton á Stamford Bridge. Þeir eru í 17. sæti og verða að sigra tO að vera öruggir um að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeild- inni. Dennis Wise, Frank Sinclair og Gianfranco Zola hafa allir verið á sjúkralista en forráðamenn Chelsea vonast til að þeir verði tilbúnir í þessa viðureign, með úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa á miðviku- daginn í huga. Everton leikur gegn Coventry á heimavelli á sama tíma og verður að sigra til að eiga von um að hanga uppi, en þá verður Bolton að tapa eða gera jafntefli. Sýn kl. 17.25 Atletico Madrid gegn Barcelona. Síðamefnda liðið hefur þegar tryggt sér meistaratitilinn en Atletico, sem er í níunda sæti, getur enn náð Evr- ópusæti. Mikið hefur verið skorað í viðureignum þessara liða síðustu misserin, til að mynda sigraði Barcelona í leik þeirra í Madríd í fyrravetur. Sýn kl. 19.15 Bari gegn Inter. Leikurinn fer fram fyrr um daginn og er því ekki í beinni útsendingu. Inter er í öðru sæti fyrir þessa næstsíðustu umferð og á því enn, fyrir umferðina, mögu- leika á því að verða meistari. Stöð 2 kl. 23.35 Úrslitakeppni NBA. Los Angeles Lakers gegn Seattle Supersonics. Fyrsta beina útsending Stöðvar 2 frá bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik að þessu sinni. Petta er þriðji leikur liðanna í undanúrslit- um Vesturdeildar; tveir hinir fyrri fóru fram í Seattle þar sem heima- menn fögnuðu sigri í fyrsta leik en Los Angeles-strákamir unnu örugg- an sigur í næsta leik. Þetta er fyrsti leikui- af þremur í röð í Forum höll- inni í Englaborginni og spennandi verður að sjá hvort Shaquille O’Neal og samherjar hans ná að komast alla leið í úrslit deildarinnar eins og spáð hefur verið. Laugardag 9. til 16. maí Dreifingaraðili fyrir „Lolitu“ fundinn KVIKMYND Adrian Lyne’s „Lolita“ hefur valdið fram- leiðendum hennar erfiðleik- um í Bandaríkjunum því í langan tíma hefur reynst ómögulegt að finna dreifing- araðila. Nú hefur rofað til því Showtime-sjónvarpsstöðin hefur keypt dreifingarréttinn að myndinni. Hún verður sýnd á stöðinni í ágúst og í framhaldi af því verður reynt að dreifa henni í kvikmynda- hús. Myndinni var dreift í Evrópu á síðasta ári án telj- andi vandræða. „Lolita" er byggð á sögu Vladimirs Nabokovs og fja.ll- ar um kynferðislegt samband unglingsstúlku og stjúpföður hennar. I henni er að finna innilega kossa hinnar 15 ára gömlu leikkonu, Dominque Swain, og leikarans Jeremy Irons og ástaratriði þar sem bæði eru í fótum. Leikstjórinn Stanley Kubrick gerði mun siðsamari útgáfu af sögunni árið 1962 og olli hún miklum deilum. Sifjaspell eru of- urviðkvæmt efni og fram til þessa vildi enginn dreifingaraðili í Bandaríkjunum leggja nafn sitt við hina umdeildu „Lolitu.“ GIANFRANCO Zola, til vinstri, ræðir við Paul Gascoigne í úrslitaleik deildarbikarkeppninnar Zola hefur verið á sjúkralistanum en verður hugsanlega með gegn Guðna Bergssyni og félögum í Bolton. Laugardagur 9. maí Sjónvarpið 10.55 Tímatökur fyrir Formula-1 kappakstur- inn í Barcelona á Spáni, sem fram fer á morgun. Mika Hakkinen, náði langbestum tíma í gær í fyrstu tímatökum; var 0,8 sek. á undan samherja sín- um hjá McLaren, David Coulthard og aðrir voru meira en sekúndu á eftir Finnanum. Sjónvarpið 13.25 Hansa Rostock gegn Karlsru- her. Botnbaráttan er í al- gleymingi í þýsku 1. deildar keppninni svo og keppnin um Evrópusæti. Þetta er síðasta um- ferðin og Rostock, sem er í sjö- unda sæti, þarf á sigri að halda til að komast í UEFA-keppn- inni. Karlsruhe hins vegar er í 15. sæti og jafntefli ætti að nægja liðinu til að halda sæti sínu í 1. deildinni. Mégane Open Þéttari og þægitegri sæti sem veita góðan stuðning Góðar dýnur - tilvaldar á heimilið, í bústaðinn eða tjaldvagninn. Lystadún-Snæland býður upp á fjölbreytilegt úrval dýna af öllum stærðum og gerðum sem henta mjög vel fyrir heimilið, sumarbústaðinn eða útileguna í sumar. Þú lætur okkur vita hvað þig vantar og við eigum það til eða sníðum það fyrir þig. af eggjabakkadýnum Gestadýnur 190x70x9 m/áklæði Nokkur dæmi um tiiboðsverð á svampdýnum 200 x 75 x 12 m/veri 7.500 kr. 200 x 80 x 12 m/veri 7.900 kr. 200 x 90 x 12 m/veri 8.500 kr. Höfum auk þess frábært úrval af Latex-, Pocket-og Bonnelfjaðradýnum, og heilsu- koddum. SKÖTOVCÆOR LAUGARDAG 10-16 SUNNUDAG 12-16 sæbrmJT »imi Njóttu sumarsins á góðri dýnu Sumartilboð wl* ky æl^wj Utaliimíijjjjj af kurlI lUull>Ultll c \ - þokktur fyrír þægindl Ármúla 13 t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.