Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR GULIMIÐINN Stclt Heilsuhúsóins! Með tilkomu þessarar bætiefnalínu komu á markað bætiefni sem ekki höfðu fengist hérlendis áður. Góðar viðtökur og síauknar vinsældir GULA MIÐANS staðfesta ánægju viðskiptavina. 25% aþsláttur í tilefni af 25 ára afmæii Heiisuhússins bjóðum við þessi bætiefni með 25% afsiætti, Laugardaginn 9. maí í Heiisuhúsinu Skóiavörðustíg, Krínglunni og Smáratorgi. Og Sunnudaginn 10. maí 7 Heiisuhúsinu Smáratorgi. GULIMIÐINN TRYGGIR GÆÐIN! iZ 5% awL í1 Eilsuhúsið Skóiavörðustíg, Kríngiunni & Smáratorgi www.heilsa.is Lægra verður ekki komist Á undanfornum vik- um hefur verið í gangi endurskoðun úthlutun- arreglna í stjórn Lána- sjóðs íslenskra náms- manna. Námsmenn hafa eins og áður átt sinn fulltrúa í vinnunni og stefnt hefur verið að því að reyna að komast að niðurstöðu sem bæði fulltrúar ríkisvaldsins og námsmanna geta sætt sig við miðað við aðstæður hverju sinni. Á undanfömum fjórum árum hefur náðst sam- komulag um úthlutun- arreglur sjóðsins en sú leið hefur verið talin æskileg af fulltrúum námsmanna vilji þeir ná einhverju fram þó fram- faraskrefin hafi oft verið fullstutt. Námsmenn sitja einir eftir I ár hafa fulltiúar námsmanna sameinast um að halda á lofti þeirri eðlilegu kröfu að hljóta sömu kjara- bætur og aðrir þjóðfélagshópar hafa fengið. Það hefur hins vegar komið á daginn að fulltrúum ríkisvaldsins Námsmenn skora á ríkisstjórnina, segir Asdís Magnúsdóttir, að meðhöndla kjara- mál námsmanna með sama hætti og annarra þjóðfélagshópa. fínnst þessi krafa ekki eins eðlileg og hafa lagt til að námslánin hækki í takt við verðlagsbreytingar eins og undanfarin ár. Meirihlutinn leggur því til að námslánin hækki um 2,5% eða úr kr. 56.200 í kr. 57.600. Sam- kvæmt tillögum meirihlutans drag- ast námslánin því töluvert aftur úr öðrum hópum. Til samanburðar má benda á að atvinnuleysisbætur í dag eru hærri en lánin eða kr. 59.636. Oþarft er að benda á að annars veg- ar er um tímabundna neyðaraðstoð að ræða en hins vegar um fram- færslulán sem borgað er til baka með vöxtum og verðbótum og ætluð eru til framfærslu um nokkurra ára skeið. Námsmenn hafa einnig bent á að nauðsynlegt er að endurskoða frí- tekjumarkið sem ákvarðar hversu há laun námsmenn geta haft án þess að lán þeirra skerðist. Samkvæmt tillögum meirihlutans skal sú upphæð vera kr. 185.000. Námsmenn geta því ekki haft 70.000 kr. lágmarks- laun í þrjá mánuði yfir sumartímann án þess að lán til þeirra skerð- ist. Það má því ætla að meginþorri náms- manna komi ekki til með að fá óskert lán eða kr. 57.600. Náms- menn leggja til að tekið verði mið af lágmarks- launum í landinu þegar frítekjumarkið er ákvarðað. Slitnað upp úr samn- ingaviðræðum Á sameiginlegum fundi í hádeginu sl. fimmtudag höfnuðu námsmenn tillögum meirihlutans um að hækka lánin með tilfærslum á fjármunum innan sjóðsins. Niðurstaðan úr þeim tilfærslum þýðir nánast óbreytt heildarlán til námsmanna. Oft hefur meirihlutanum tekist þessi blekk- ingarleikur en í þetta skiptið varð niðurstaðan það augljóslega engin kjarabót að námsmenn höfnuðu henni. Námsmenn geta ekki sætt sig við að ólíkt öllum öðrum verði komið til móts við þeirra kjarakröfur með niðurskurði innan lánasjóðskerfis- ins. Þegar námsmenn stóðu fast á sínu voru viðbrögðin þau að ekki væri lengur grundvöllur til samn- ingaviðræðna. Áskorun til ríkisstjórnarinnar Námsmenn skora því á ríkis- stjórnina og fulltrúa þein-a innan stjórnar sjóðsins að meðhöndla kjaramál námsmanna með sama hætti og annarra hópa þjóðfélagsins. Námsmenn urðu á níunda áratugn- um fyrir mikilli kjaraskerðingu með þeim rökstuðningi að lán þeirra yrðu að rýma í takt við þá almennu kjaraskerðingu sem orðið hefði í þjóðfélaginu. Núna hefur dæmið snúist við og tími til að vera sam- kvæmur sjálfum sér. Námsmenn koma ekki til með að sætta sig við að sitja einir eftir í þeirri löngu tíma- bæru þróun sem átt hefur sér stað í kjaramálum þjóðarinnar. Við gerum eðlilegar kröfur sem við getum eðli- lega ekki fallið frá. Höfundur er formaður Stúdenta- ráðs og fulltrúi SHÍ( stjórn Lána- sjóðs íslcnskra námsmanna. Ásdís Magnúsdóttir Tökum á tækin vantar Merkjasala Landssamtaka hjartasjúklinga er í dag. Tilgangur söfnunarinnar er að afla fjár tll kaupa á leysigeislatæki fyrir Landspítalann og hjartagæslutæki fyrlr Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Seljum rauða hjartað í dag og hvetjum um leið alla þá, sem vilja leggja baráttunni gegn hjartasjúkdómum lið, að gerast félagar í samtökum okkar. Hægt er að skrá sig á skrifstofum - hjartasjúklinga um land allt. Aðalskrifstofa Landssamtaka ~ hjartasjúklinga er að Suðurgötu 10, Reykjavík, 1 þar er opið til kl. 22.00 í kvöld og virka daga kl. 9.00-17.00. | O a Leggið góðu málefni lið LANDSSAMTÖK HjARTASJÚKLINGA 1 Suðurgötu 10. Símar 552 5744 & 562 5744. |
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.