Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ 60 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 ' KIRKJUSTARF I DAG VELVAKAMII Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Blótsyrðií fjölmiðlum MJÖG hefur færst í vöxt undanfarið er fólk kemur fram í útvarpi og sjónvarpi þá tvinnar það blótsyrði og stjómendur þátta gera engar athugasemdir. Einnig er áberandi að þáttastjómendur nota blótsyrði mun meira nú heldur en áðrn'. Islenskan er mjög orðrík og þvi óþarfí að ákalla óvininn sjálfan því nóg er til af góð- um lýsingarorðum. Sr. Friðrik Friðriksson, stofnandi KFUM og K á Islandi, skrifaði smárit í upphafí aldarinnar er bar heitið „Er nokkur hagur að blóta?“ og á sá boðskapur enn erindi til okkar í dag. Jón Oddgeir Guðmundsson. Veggjakrot NOKKUÐ hefur verið um það undanfarið að kvartað sé undan veggjakroti ung- linga eða annarra van- þroska einstaklinga. Fólk er hneykslað og má vart vatni halda útaf vandlæt- ingu. Fátt virðist vera til ráða gegn þessari plágu annað en kasta milijónum króna í hreinsun. Fyrir allmörgum árum fundu menningarvitar þeir sem flögmðu á vinstri hlið, upp á því að örva sköpunar- gleði ungra barna með því að kenna þeim að klína skít á pappír í leikskólun, það er kallað að lita. Árangurinn lét ekki á sér standa eins og sjá má. Hvað ungur nemur, gamall temur. Nú hefur verið bætt um betur, því nú er farið að kenna blessuðum bömun- um að ata sig í framan með þessum sama skít, eins og sást greinilega á öskudag- inn og sumardaginn fyrsta. Og nú segi ég við hina fullorðnu: Hættið að hneykslast á börnunum sem alin hafa verið upp í þessum sóðaskap í skólum og á heimilum. Hneykslist á ykkur sjálfum, þvi af þeim eldri læra þau yngri. Sigurþór Júniusson. Ónæði af völdum barna á tónleikum ÉG ER búin að fara síðast- liðin 6 ár á tónleika hjá ungum tónlistarnemum og ég verð alltaf jafn undr- andi þegar ég sé foreldra koma með grenjandi hvít- voðunga sem er svo trufl- andi fyrir tónlistarfólkið. Finnst að foreldrar ættu ekki að koma með smá- böm með sér. Þar sem ég þekki til er alitaf beðið um að foreldrar sitji tónleik- ana út, fari ekki þegar þeirra barn er búið að spila. En það vill verða misbrestur á því og enn sér maður þetta og hljóð- færaleikararnir sem em ungir og óreyndir verða fyrir traflun ef börn eru hlaupandi um allt og jafn- vel grenjandi. Sl. sunnu- dag vora tónleikar í Há- skólabíó, 9 tónlistarskólai', þar varð maður áþreifan- lega var við þennan há- vaða, börn að færa sig, skrjáf í bréfum og mikið ónæði. Mikil óvirðing við tónlistarfólkið. Bið fólk að hugsa sig vel um áður en það kemur með börn með sér. Móðir barns í hljóðfæranámi. Til fyrirmyndar ÉG FÓR í nýja blóma- verslun í Skeifunni (Bló- mó) en hún er með blóm 30% ódýrari en í nágrenn- inu. Þetta kalla ég góða kaupmáttaraukningu. Blómaunnandi. Kann einhver ljóðið GUÐRÚN hafði samband við Velvakanda og er hún með eitt erindi af ljóði og er hún að leita eftir hvort einhver kunni hin erindin. Guðrún segist halda að ljóðið sé eftir Valdimar Hólm Hallstað. Eins hefði hún gaman af að vita eftir hvern lagið við ljóðið er. Erindið hljóðar svona: Að lokum þegar stjömurnar lýs- an bláan geim égleggafstaðogþakka liðnu árin ég lít til baka vina og horfi til þín heim í hinsta sinn og brosi gegnum tárin. Þeir sem hafa einhverj- ar upplýsingar vinsamlega hafl samband við Guðrúnu í síma 567 4263. Tapað/fundið Hjól fannst fjallahjól Álagranda 4. maí sl. í síma VINRAUTT fannst við mánudaginn Upplýsingar 552 3669. Sólgleraugu SÓLGLERAUGU, Max Mara, með sjónglerjum týndust íyrir sl. helgi. Gyllt í hörðu hulstri. Finn- andi hafi samband í síma 565 1688. Týndur HVÍTUR og svartur högni, eyrnamerktur R8H007, er týndur. Hann á heima í Krummahólum 10. Sími 587 6320. Kanínuungi í óskilum KANÍNUUNGI, _ grá- brúnn, fannst í Armúla. Upplýsingar í síma 899 2044. Vináttubönd Morgunblaðið/Kristinn Víkveiji skrifar... Safnaðarstarf Tekur við H störfum Frí- i kirkjuprests j NÝR safnaðarprestur Fríkirkjunn- ar í Reykjavík, sr. Hjörtur Magni Jóhannsson, tekur við embætti og messar sunnudaginn 10. maí kl. 14. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson hefur þjónað sem sóknarprestur í Útskálaprestakalli á Suðurnesjum í 11 ár, en hefur verið við framhalds- nám við Edinborgarháskóla síðast- liðin þrjú ár. I guðsþjónustunni mun ^'ormaður safnaðarstjórnar, Sigurð- 1 ur E. Guðmundsson, flytja ávarp og Ibjóða nýjan safnaðarprest velkom- inn til starfa. Safnaðarfólk mun ann- ast ritningarlestra og bænagjörð. í lok guðsþjónustu er kirkjugestum boðið til kaffísamsætis í Safnaðar- heimilinu við Laufásveg. Allir eru hjartanlega velkomnir. Organisti Pavel Smid ásamt Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík munu annast tónlistarflutning og leiða al- mennan safnaðarsöng. Einsöngvar- ar verða Erla B. Einarsdóttir og Svava Ingólfsdóttir. Organisti mun leika á orgel kirkjunnar áður en at- höfn hefst. * Léttur KR- morgunn með Neskirkju Á MORGUN, sunnudaginn 10. maí, ætla Vesturbæingar að gleðjast með dafnandi vori. Þá verður „léttur KR- morgun með Neskirkju“ eins og við köllum uppátækið. j Dagskráin hefst með því að Sund- f laug Vesturbæjar býður upp á i þkeypis aðgang milli kl. 8 og 10 en | *kl. 9.15 verður dagskrá á vegum J sunddeildar KR sem er 75 ára um | þessar mundir, einnig munu sundsveitir frá Neskirkju og KR þreyta kapp í boðsundi „með frjálsri aðferð". Kl. 9.45 verður léttur morgun- verður í safnaðarheimili kirkjunnar í umsjá Neskirkju og KR-kvenna. Borgarkórinn syngur létta Vestur- bæjarsyrpu undir stjórn Sigvalda Kaldalóns. Kl. 11 hefst guðsþjónusta í kirkj- unni. Þar talar Kristinn Jónsson for- maður KR og sóknarnefndarmaður í Neskirkju, en keppnisfólk og félag- ar úr hinum ýmsu íþróttagreinum innan félagsins aðstoða. Prestur er -*fcr. Halldór Reynisson. Allir eru vel- komnir, ekki síst Vesturbæingar og KR-ingar. I Fjölskylduhátíð Fríkirkjunnar í Hafnarfirði FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði verður haldin á morgun, sunnudaginn 10. maí. Þetta er áttunda vorið sem efnt er til slíkr- ar hátíðar og hefur þátttakan farið vaxandi með ári hverju en í fyrra voru nærri fjögur hundruð manns á hátíðinni. Mjög góð aðstaða er í —**Kaldárseli, m.a. stórt íþróttahús. Þar fer dagskráin fram ef ekki viðr- ar til útiveru. Hátíðin hefst kl. 11 og er þeim bent á rútuferð frá Fríkirkjunni sem ekki koma á eigin bflum. Rútuferð verður kl. 10.30. Dagskráin er að venju sniðin fyrir alla fjölskylduna. Farin verður stutt gönguferð fyrir alla fjölskylduna um nágrenni sumarbúðanna en á sama tíma verður farið í leiki við sumar- búðimar. Fjölskyldusamkoma verð- ur að því búnu í íþróttahúsinu þar ^em bamakórar kirkjunnar og ung- lingakór koma fram ásamt hljóm- sveit á vegum Arnars Arnarsonar. Góðir gestir koma í heimsókn. Að lokinni þessari dagskrá verður böm- unum síðan boðið upp á grillaðar pylsur en hinir eldri setjast að veisluborði í sumarbúðunum. Það em allir velkomnir til þátttöku í fjöl- jjfckylduhátíðinni. Kvöldmessa í Laugarneskirkju SUNNUDAGINN 10. maí verða tvær messur í Laugameskirkju. Fyrri messan verður kl. 11 en sam- tímis henni er bamastarf. Sr. Halldór Gröndal þjónar fyrir altari. Kirkjukór Laugarneskirkju syngur en organisti og stjómandi kórsins er Gunnar Gunnarsson. Aðalfundur safnaðarins er að messu lokinni. Um kvöldið kl. 20.30 verður messa með „djass-tónum“. Djasskvartett leikur frá kl. 20 undir stjóm Gunnars Gunnarssonar. Með honum leika Tómas R. Einarsson, Sigurður Flosa- son og Matthías M.D. Hemstock. Einsöngvari með Kór Laugames- kirkju verður Þorvaldur Halldórsson. Prestur er sr. Halldór Gröndal. Eftir báðar messumar verður boðið upp á kaffisopa í safnaðarsalnum. Kvennakirkjan með messu KVENNAKIRKJAN heldur messu í Langholtskirkju á morgun, sunnu- dag, kl. 20.30. Inga Jóna Þórðar- dóttir borgarfulltrúi prédikar. Hanna Björk Guðjónsdóttir syngur einsöng. Kór Kvennakirkjunnar leiðir almennan söng undir stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Kaffi á eftir í safnaðarheimilinu. Messa og kirkju- kaffí ísfírðinga- félagsins HIN árlega messa og kirkjukaffi ís- firðingafélagsins fer fram á morgun, sunnudaginn lO.mai, kl. 14 í Áskirkju við Vesturbrún. Sr. Árni Bergur Sig- urbjömsson þjónar fyrir altari en Lára Oddsdóttir prédikar. Kór brott- fluttra ísfirðinga syngur. Allir Isfirð- ingar að fomu og nýju eru hvattir tfl að koma og taka með sér gesti. Kaffisala í Grensáskirkju HIN árlega kaffisala Kvenfélags Grensássafnaðar verður haldin á morgun, sunnudaginn 10. maí, í safnaðarheimili Grensáskirkju og hefst kl. 15. Frá upphafi hefur Kvenfélag Grensássafnaðar verið einn öflugasti bakhjarl safnaðarins og því fé sem inn kemur í fjáröflun félagsins er varið til úrbóta í kirkjunni. Nýjasta dæmið era hinir fögm gluggar Leifs Breiðfjörð sem vakið hafa eftirtekt og aðdáun flestra sem í kirkjuna hafa komið. Sóknarbörn og aðrir velunnarar Grensáskirkju era hvött til að koma á kaffisöluna, njóta þar frábærra veitinga og stuðla um leið að betri aðbúnaði kirkjustarfsins. Mæðradagurinn í Hafnar- fjarðarkirkju Á MORGUN, sunnudag, er mæðra- dagurinn. Af því tilefni verður hald- in fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00 í Haftiarfjarðarkirkju. Allar mæður á öllum aldri em sérstaklega hvattar til að mæta ásamt börnum sínum. Pabbamir era að sjálfsögðu vel- komnir líka. Barnakór kirkjunnar syngur ásamt krökkum sem um þessar mundir taka þátt í vomám- skeiði barnakórsins. Stjórnandi þeirra er Hrönn Helgadóttir. Eftir guðsþjónustuna fá allar mæður af- henta mæðradagsrós og síðan er boðið upp á molakaffi í safnaðar- heimilinu áður en haldið er heim á leið. Þema fjölskylduguðsþjónust- unnar er fjölskyldan, samband for- eldra og bama og sérstaklega móð- ur og barns. Við munum skoða þem- að í leik, með sögum og í söng. Kirkjukórinn leiðir sönginn en org- anisti er Natalía Chow. Prestur er sr. Þórhallur Heimisson. KEFAS, Dalvegi 24. Almenn sam- koma í dag kl. 14. Allir velkomnir. YÍKVERJI hefur mest notað einkabifreið, hjól eða tvo jafn- fljóta til að koma sér á milli staða í borginni undanfarin ár og því lítið notað þjónustu Strætisvagna Reykjavíloir. Þó gerðist það íyrir stuttu að Víkverji þurfti að nota strætisvagn og kom þá sumt honum spánskt fyrir sjónir. Það virðist til dæmis vanta í strætisvagnana upp- lýsingar á erlendum tungumálum, eða þá framsettar með myndrænum hætti, sem hjálpa erlendum ferða- mönnum til að átta sig á hvert þeir em að fara og hvar þeir era staddir. Síðastliðin ár hefur Víkverji aðal- lega notað strætó sem ferðamaður í útlöndum og hann gerir ráð fyrir að á sumrin séu erlendir ferðamenn stór hluti viðskiptavina SVR. Víða í borgum erlendis er í vagninum sjálf- um kort af leiðinni, þar sem helztu götur og kennileiti em merkt inn á. Þetta mætti SVR gjaman íhuga. XXX UNDARLEGRA fannst Vík- verja þó að skoða leiðatöflurn- ar á biðstöðvum SVR við Nesveg úti á Seltjarnarnesi. Víkverji leit á töfluna öðrum megin við götuna áður en hann gekk yfir og beið eft- ir vagni hinum megin. Þegar hon- um tók að leiðast biðin, leit hann á töfluna þeim megin og kom þá í ljós að á henni var að finna allt aðra áætlun en á hinni leiðatöfl- unni! Það er ekki nema von að fólk hafi á orði að erfitt sé að stóla á strætisvagnana. XXX VÍKVERJA finnst hreinsun sands og annarra óhreininda af götum borgarinnar hefjast seint, miðað við að snjóa leysti fyrir löngu og vorið hefur verið gott. Þar til fyrir skömmu voru sandhryggir eftir endilangri götunni sem Vík- verji býr við en nú em þeir foknir - einkum og sér í lagi inn um glugga húsanna við götuna. Víkverji og ná- grannar hans hafa varla haft við að þurrka úr gluggunum. Granni Vík- verja hafði á orði að hann hefði haldið að borgaryfirvöld stæðu sig betur í þessum efnum á kosninga- vori. XXX ILLT finnst Víkverja til þess að vita að nú bendir flest til að kon- um muni fækka í bæjarstjómum við komandi kosningar. Hvað er nú orð- ið um hin góðu áform stjórnmála- flokkanna um að auka veg kvenna í forystuliði sínu? Hvenær eiga at- hafnir að fara að fylgja orðum stjórnmálaforingjanna um jafnrétt- ismál?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.