Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 8
8p LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998_________________________ FRÉTTIR LÁTTU nú dollaragrínið fá það óþvegið, mr. Duisenberg. Rafrænn MIRABELLE Smiðjustíg 6 * Rcykjavík SILFURBÚÐIN Kringlunni * Rcykjavík Skólavörðustíg 7 * Reykjavík Ml Tryggvagötu 8 • Rcykjavík Bílavörubúðin JFJðDRIfiL MENSWEAR R£AD THE MESSAGE Skeifunni 2 * Reykjavík Laugavcgi 61 * Rcykjavík Gjöld á end- urkomudeild hækka GJALD fyrir komu á endurkomu- deild slysadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur var hækkað í fyrradag til samræmis við gjaldskrá sem gildir um læknisþjónustu og heilsugæslu. Kostar koma til sérfræðings á göngudeild, slysadeild eða bráðamót- töku sjúkrahúss nú 1.400 krónur að viðbættum 40% af umframkostnaði. Magnús Skúlason, framkvæmda- stjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur, segir að komugjöld á slysadeild hafi lengi verið 1.200 krónur en frá 1. febrúar 1996 hafi þau hækkað í 1.400 krónur að viðbættum 40% af umframkostn- aði sem til fellur og getur verið vegna rannsókna, umbúða, myndatöku eða annars. Segir Magnús að lengi hafi verið óljóst hvort þessi gjaldskrá ætti við um komu á endurkomudeildina en nú hafi verið ákveðið að svo yrði. í fyrradag hafi gjaldskráin verið yfir- færð á komugjöld endurkomudeÚdar og hafi heilbrigðisráðuneytinu verið tilkynnt um það og ekki gert athuga- semd. Þessi fyrirtæki veita öilum sem greiða með VISA kreditkorti rafrænan afslátt Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt © FRIÐINDAKLUBBURINN www.fridindi.is • www.visa.is Spá köldum maímánuði VEÐURKLÚBBURINN á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra í Dalvík, spáir fremur köldum og umhleypingasöm- um maímánuði. Búast megi við norð- lægum áttum mestan hluta af maí og því gætu fylgt krapaslyddur. Veður- klúbburinn spáir fyrir veðri einkum á Norðurlandi en telur að oft gildi hlutar af spánum fyrir landið allt. í veðurspá fyrir maí er gert ráð fyrir hreti rétt fyrir bæjarstjómar- kosningar „rétt si sona til þess að hrista upp í mannskapnum fyrir lokasprettinn og teljum við í veður- klúbbnum að ekki veiti af því að hrista upp því að það er mikil deyfð í baráttunni norðanlands." Meðan veðurklúbburinn vann að spánni fyrir maí barst í tal að jarð- skjálfta gæti orðið vart á landinu. „Yrðum við ekkert hissa þó að jörð skylfi lítið eitt einhvers staðar á landinu í mánuðinum.“ MQRGUNBLAÐIÐ Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga Samstarf er lykillinn að betri heilsu Anna Björg Aradóttir Alpjóðadagur hjúkrunarfræð- inga er hinn 12. maí næstkomandi en það er fæðingardagur Flor- ence Nightingale. Ar hvert er dagurinn helgað- ur ákveðnu efni og í ár er yfirskrift hans Samráð um heilsugæslu. Það er Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga sem skipuleggur daginn hér á landi. Anna Björg Ara- dóttir sem er í forsvari fyrir verkefnið Heilsuefl- ingu hefur ásamt heilsu- gæsluhjúkrunarfræðing- um verið í undirbúnings- nefnd fyrir alþjóðadag hjúkrunarfræðinga á höf- uðborgarsvæðinu. Þá hafa svæðisdeildir hjúkr- unarfræðinga um land allt leitað til Heilsueflingar og annarra, sem sinna forvömum, eftir gögnum og upplýsingum. - Hvað verður gert í tilefni dagsins? „Það var ákveðið að fara þá leið að aðstoða fólk við að taka ábyrgð á eigin heilsu og við völd- um að hafa sérstakan fjölskyldu- dag. A morgun, sunnudaginn 10. maí, efnum við því til fjölskyldu- hátíðar í Laugardal og þar mun- um við bjóða upp á ýmiskonar fróðleik um heilbrigða lífshætti og gefa gestum að smakka holl- ar og góðar veitingar. Auk þess verður boðið upp á gönguferðir, dans og farið í leiki.“ Anna Björg segir að 12. maí ætli hjúkrunarfræðingar um land allt að standa fyrir fjöl- breyttum uppákomum þar sem hreyfing og hollusta verður höfð að leiðarljósi. - Nú segja margir að það sem er hollt sé ekki gott? „Það er rétt en við leggjum einmitt áherslu á vellíðan með hreyfingu og hollu mataræði. Það er frumskilyrði að fólk velji sér sér bæði fæðu og hreyfingu sem því geðjast að og líður vel með. Þetta er alls enginn mein- lætaboðskapur sem við erum að hvetja fólk til að fara eftir." - Hvers vegna ákváðuð þið að efna til fjölskyldudags? „Við vildum benda fjölskyld- um á að oft er hægt að stunda hreyfingu saman og fjölskyldur þurfa eimitt á fleiri samveru- stundum að halda. Oft stunda allir fjölskyldumeðlimir hreyf- ingu en það er algengt að þeir geri það hver í sínu lagi. Það er margt sem fjölskyldan getur gert saman eins og að fara í hjólreiðatúra, göngutúra, sund, tennis eða golf. Með þessu erum við ekki að segja að fjöl- skyldumeðlimir geti ekki líka stundað hreyfingu hver í sínu lagi. Það má blanda þessu saman.“ -Hvaða ábendingar eruð þið með um hollt mataræði? „í okkar samfélagi er þróunin sú að tímaskortur setur mark sitt á mataræðið. Fólk grípur eitthvað fljótlegt með sér heim úr matvöruverslun að loknum vinnudegi og þá er fæðan kannski ekki eins holl og hún ætti að vera. Á hinn bóginn vill fólk borða holla fæðu en stefna stjórnvalda ► Anna Björg Aradóttir er fædd á Húsavík árið 1955. Hún lauk BS-prófi í hjúkrun- arfræði frá Háskóla Islands árið 1980. Hún starfaði um skeið á barnadeild Landspítal- ans og á heilsugæslustöðvum. Anna Björg starfaði hjá Landlæknisembættinu um árabii en er nú verkefiiisstjóri Heilsueflingar og er í hluta- starfí við fangelsin á höfuð- borgarsvæðinu. Eiginmaður Önnu Bjargar er Þorleifur Magnússon, versl- unarstjóri Brúnás-innréttinga og eiga þau tvö börn. hefur ekki alltaf verið hvetjandi í þá átt. Til að mynda eru tollar á sykri lágir en það eru lagðir vemdar- og magntollar á græn- meti. Slík stefna stangast á við manneldismarkmið þar sem hvatt er til aukinnar neyslu grænmetis og ávaxta. Það er oft sagt að einstakling- ar beri ábyrgð á eigin heilsu en það er fleira sem kemur til. Við viljum hvetja stjómvöld og ráða- menn þjóðarinnar til að leggja sitt af mörkum til að stuðla að hollu mataræði. Allir landsmenn þurfa að taka höndum saman og stefna að þessu markmiði." - Hverjh■ standa að Heilsuefl- ingu sem þú ert í forsvari fyrir? „Heilsuefling er samstarfs- verkefni Landlæknisembættis- ins og Heilbrigðisráðuneytisins sem miðar að því að fá alla í samfélaginu til að vinna saman að því að efla heilsu og vellíðan." - Hefur Heilsuefling verið starfrækt lengi? „I fjögur ár og við höfum með- al annars verið í samstarfi við svokallaða heilsubæi í Hveragerði, Hafn- arfirði, á Húsavík og Höfn í Homafirði. Þessir staðir hafa að markmiði að sam- eina kraftana til að bæta heilsu íbúanna. Fjögur sveitarfélög em að bætast við á næstunni, á Héraði, Sauðár- krókur, Seltjamarnes og Akra- nes. Þá höfum við verið í sam- starfi við grunnskólann í Borg- amesi og Kópavogsskóla og leikskólann Skólatröð í Kópa- vogi svo og vinnustaðinn Granda þar sem unnið hefur markvisst verið að því að stuðla að heil- brigðum lífsháttum. Hefur heilsugæslan gegnt þar stóru hlutverki. Fjölskyldur hvattar til að stunda hreyf- ingu saman
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.