Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 53' MINNINGAR ÞORÐUR ÞÓRÐARSON + Þórður Þórðarson var fædd- ur 29. júlí 1910. Hann lést á Sólvangi í Hafnarfirði 4. maí síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði 8. maí. Elsku afi minn. Ég sit og horfi á mynd af þér og sé hvað þú hefur verið fallegur gamall maður. Reyndar hef ég alltaf vitað það. Þegar ég horfi rifjast upp fyrir mér allar þær minningar sem eru mér svo dýrmætar. Ég man fyrst eftir þér sitjandi við skrifborðið þitt. Þú varst að binda inn bækur. Það var eitthvað svo notalegt að fylgjast með þér vinna. Svo kom elskulega amma mín og spurði hvort við vild- um ekki pönnukökur. Seinna kenndir þú mér að þekkja nöfn far- fuglanna og hvaðan þeir kæmu. I mínum augum varstu manna fróð- astur um landið okkar. Þú kysstir mig oft á handarbakið og baðst Guð að blessa mig. Nú bið ég Guð að varðveita þig og ömmu. I dag er ég umvafin sorg en ég veit að tíminn græðir öll sár. Ég kveiki á kerti og stilli myndinni af þér og ömmu upp. Myndin á fastan stað í huga mínum. Ég elska þig. Þín Alfliildur. Elsku afi Þórður. Það má með sanni segja að lífið sé undarlegt ferðalag. Nú þegar við kveðjum þig í hinsta sinn koma svo margar minningar upp í hug- ann. Það hefur verið okkur svo lærdómsríkt að fá að vera ykkur ömmu Hrefnu samferða í þessu lífi og mikið fyrii- það að þakka. Ef við gætum aðeins verið okkar börnum brot af því sem þið voruð okkur öll- um þá væri það vel. Þið tókuð af al- hug þátt í lífi barna ykkar, barna- barna og barnabarnabai’na og hvert okkar átti sinn sess í hjörtum ykkar. Hjá ykkur voru allir ávallt velkomnir og oft var setið við eld- húsborðið í kyrrðinni sem ríkti í kringum ykkar ömmu og reynt að ráða fram úr öllu sem upp kom, sem oft var stórt í augum okkar en var svo léttvægt eftir yfirveguð svör ykkar: „Munið börnin mín, allt verður léttara á morgun." Þið vor- uð fyrirmyndarkennarar og það sem þú lagðir mesta áherslu á, afi minn, var að orð skyldu standa eins og stafur á bók. Þannig varst þú og þannig vildum við svo gjarnan vera. Við kveðjum þig nú og vitum að þú hefur fengið góða heimkomu, kominn aftur til ömmu Hrefnu. Við kveðjum þig með þessum orðum sem þú skrifaðir sjálfur: „Sú líffræðilega staðreynd að ég er orðinn ellihrumt gamalmenni, sem ekkert man stundinni lengur, vekur mig til meðvitundar um það á hvaða leið ég er. Með berum orð- um er ég að segja það eitt, að senn muni ég leggja af stað út á veg allr- ar veraldar án vissu en vonar um eitthvað sem mér er hulið og fæ ekki skilið. Minnugur þess að eng- inn veit sína ævina fyrr en öll er vil ég ganga í átt til stjarnanna, eða þess sem bíður mín þegar öllu er lokið.“ Páll Bergþór Guðmundsson og systkini. Fyrir rúmri viku síðan var mér sagt að Þórður Þórðarson væri al- varlega veikur og ætti varla langt eftir. Fréttin kom ekki með öllu á óvart því Þórður hafði náð háum aldri og ekki verið við bestu heilsu undanfarin ár. En fréttin snart mig meira en ég átti von á og varð með- al annars til þess að hugsanir mín- ar hafa - oftar en þær gera að öðru jöfnu - leitað aftur til æskuára minna þegar leiðir okkar Þórðar lágu saman flesta daga. Ég kom fyrst á heimili Þórðar Þórðarsonar og konu hans Hrefnu Hallgrímsdóttur fyrir tæpum fjörutíu árum. Þá dró Steingrímur sonur þeirra mig með sér heim í það sem þá hét drekkutími. Ég var grútskítugur eins og strákar voru, en samt og ætíð síðan voru viðtök- ur eins og höfðingi væri kominn í heimsókn. Samskipti okkar Þórðar voru fremur lítil fyrst í stað. Þó man ég að hann spurði mig um ætt og uppruna og næst þegar við hitt- umst upplýsti hann mig um það að ættir okkar lægju saman í löngu liðnum sauðaþjófi úr Kjósinni. Ekki er laust við að sá skyldleiki hafi komið mér til góða þegar fram liðu stundir. Næstu áratugina var ég fasta- gestur að Hringbraut 37 og skipar sá staður sérstakan sess í huga mér, ekki síst vegna kyrrðar og friðar sem ríkti jafnan þar. Þessi góði andi rifjaðist upp íýrir mér fyrir rúmum þremur árum er ég kom þangað í heimsókn með börn- in mín. Sá andi var ekki kynslóða- bundinn því að nokkrum mánuðum síðar, þegar sonur minn sjö ára velti fyrir sér búsetuskilyrðum á ýmsum stöðum, sá hann þann helstan kost við að búa í Hafnar- firði að þar væri hægt að fara oft í heimsókn til mömmu hans Stein- gríms. Sterkustu minningar mínar af Þórði eru þegar hann var að hlýða okkur Steingrími yfir próflestur. Fljótt lærðist mér að vera á rölti fyrir framan veglegt bókasafn Þórðar þegar spurningarnar hans dundu. Safnið var svo glæsilegt og fjölbreytt að manni datt iðulega eitthvað gáfulegt í hug með því að virða það fyrir sér. Ég minnist líka margi-a stunda þegai- Þórður spjallaði við okkur unglingana um framtíðaráform okkar og lífssýn. Oftast var tilefnið það að hann langaði til að skilja lífsskoðanir ungra pilta sem mátu sítt hár og háværa tónlist ofar flestu. Aleitnum spurningum hans var oft erfitt að svara enda kannski ekki auðvelt að útskýra þessar lífs- skoðanir f\TÍr manni sem var af kynslóð sem alist hafði upp við þröng kjör. Þórður lagði þó ýmis- legt á sig til að skilja okkur og minnist ég þess er hann sat í nokk- ur kvöld með heymartól á eyrum og hlustaði á Jesus Christ Superst- ar. Ég held að honum hafi þótt bókin betri. Ég er þakklátur Þórði fyrir margvíslega vinsemd sem hann sýndi mér. Af mörgu er að taka en ég nefni aðeins tvennt. A síðasta ári mínu í Kennaraskólanum vant- aði mig eitt sinn Skírni til að sýna í æfingakennslu. Fyrsti maður sem ég leitaði til var Þórður og varð hann góðfúslega við bón minni. Þegar ég hugsa til baka þá undrast ég að hann skuli hafa treyst mér fyrir nær aldargömlum innbundn- um árgangi af Skírni. Síðar, þegar ég hóf háskólanám fann ég til þess að ég átti ýmislegt ólært í að skrifa stfla. Aftur leitaði ég til Þórðar og hann las yfir mínar fyi-stu ritgerðir í Háskólanum og leiðbeindi mér um margt sem bet- ur mátti fara. Eina skilyrðið sem hann setti fyrir greiðann var að ég mundi aldrei bera það við að launa honum viðvikið á neinn hátt. A stundu sem þessari, þegar komið er að því að kveðja mann sem er nátengdur Ijúfum æskuminningum og hafði umtals- verð áhrif á þroska manns, þá verð- ur svo augljóst hvað orð eru fátæk- leg. Það besta sem ég get gert er að þakka þá vinsemd sem mér var ávallt sýnd og votta afkomendum og öðrum aðstandendum Þórðar Þórðarsonar samúð mína. Friðrik H. Jónsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðaför ÓLAFS L. BJARNASONAR, Stóru-Hildisey 2, og heiðruðu minningu hans á margan hátt. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11E á Landspítalanum fyrir yndis- legt viðmót. Birna Þorsteinsdóttir, Freyr Ólafsson, Kristjana Skúladóttir, Örvar Ólafsson, Elísabet Halldórsdóttir, Andri Ólafssson, Bjarni Már Ólafsson, Katrín Marta Magnúsdóttir, Magnús Bjarnason, Ásgerður Ásgeirsdóttir, Viðar Bjarnason, Þorgerður Jóna Guðmundsdóttir, Rúna Bjarnadóttir, Gísli Norðdahl, Svava Guðmundsdóttir, Þorsteinn Oddsson og aðrir aðstandendur. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför hjartkærs eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður, JÓNASAR EIGILSSONAR, Árholti, Húsavík. Egill Jónasson, Kristbjörg Jónasdóttir, Baldur Jónasson, Garðar Jónasson, Hörður Jónasson, Hulda Jóna Jónasdóttir, Hulda Þórhallsdóttir, Aðalheiður Hannesdóttir, Sigmar Mikaelsson, Margrét Einarsdóttir, Hildur Baldvinsdóttir, Rúnar Óskarsson, og fjölskyldur. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and- lát og útför ástkærrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR SÆMUNDSSON f. THORSTEINSON. Helga Jóhannsdóttir, Jón Marinó Samsonarson, Gyða Jóhannsdóttir, Haukur Arnar Viktorsson, barnabörn og barnabarnabörn. GUNNLAUGUR BIRGIR DANÍELSSON + Gunnlaugur Birgir Daníels- son fæddist í Reykjavík 28. maí 1931. Hann lést á Landspít- alanum 28. apríl siðastliðinn og fór útför hans fram frá Foss- vogskirkju 8. maí. Það er komið að kveðjustund. Þó með öðrum hætti en við vinnufé- lagar höfðum búist við. Vinnudegi tekið að halla en svo ótal margt átti að taka sér fyrir hendur að honum loknum. Golfið, félagsstörf, ferða- lög, samvistir við fjölskylduna. Nú var kominn tími til að njóta af- raksturs eftir erilsaman vinnudag. Við vissum að Gulli gekk ekki heill til skógar síðasta árið, en að það væri svo alvarlegt að hann ætti vart afturkvæmt af sjúkrahúsi grunaði okkur ekki. I níu ár höfum við átt samleið hjá Ó. Johnson & Kaaber. Hann réð mig til starfa við deildina sína sem hann leit á sem sitt eigið barn og það með réttu. Hann þjónaði fyrirtækinu af trúmennsku og bar hag þess mjög fyrir brjósti. Hann gerði kröfur til starfsmanna sinna en mestar þó til sjálfs sín. Gulli var alla tíð afskaplega hlýr og tryggur í minn garð og það vil ég þakka. Við vorum ekki alltaf sammála um leiðir og það gat hvesst, en gagnkvæm virðing var grunnurinn að okkar góða sam- starfi. í starfi okkar fólust töluverð ferðalög. Þar var ætíð gaman að vera á ferðinni með Gulla. Hann var sannkallaður heimsmaður og hafði víða farið. Ég minnist sér- staklega góðra stunda í kóngsins Kaupmannahöfn en hrifningu á því sem danskt var áttum við sameig- inlega og þar var hann í essinu sínu. Nú er tómlegt í deildinni okkar. Stærsta tómarýmið er þó hjá Biddý og fjölskyldu. Elsku Biddý, þú varst bakhjarlinn sem stóðst þétt við hann þegar hann þurfti á því að halda. Guð gefi þér, Einari, Siggu og fjölskyldunni allri styrk á þessari ei’fiðu stundu. Við hjónin kveðjum góðan vin með þökk fyrir tryggð og hlýju. Geirþrúður Pálsdóttir. Hin langa þraut er liðin. Nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt. Nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getui' grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Ur inni hai-ms og hryggða til helgra ijóssins byggða far vel, í Guðs þíns gleðisal. (V. Briem.) Elsku Biddý, Einar og fjöl- skylda, svo og aðrir aðstandendur, megi algóður Guð styrkja ykkur í sorginni. Guðrún, Svava, íris og Rakel. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við and- lát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, MARÍU GUÐMUNDSDÓTTUR, Bakkabraut 5, Vík í Mýrdal. Sigurlín Guðlaugsdóttir, Guðrún Guðlaugsdóttir, Helgi Þorsteinsson, Jóna Guðlaugsdóttir, Hrafn Þórhalisson, Guðmundur Guðlaugsson og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns og föður, KRISTJÁNS GUÐMUNDSSONAR frá Ásbjarnarstöðum. Guðrún Halldórsdóttir, Vigdís Kristjánsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.