Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 33 MARGMIÐLUN SÉ SLEGIÐ á færsluhnapp, Enter, í miðjum leik niá skrifa inn eftirfarandi skipanir: Show me the money - gefur 10.000 í gasi og 10.000 í góðmálmum. Operation cwal - eykur byggingarhraða húna og myndunarhraða sveita. The gathering - gefur þeim sveitum sem nota galdra ótakmarkað mana. Get in shape - bætir og styrkir öll vopn og verjur. Svindl í Starcraft Get out of my way - ósigrandi On screen - öll kort verða sýnileg. Dig up - sýnir neðanjarðar zerga. Gimme fuel, gimme fire - gefur góð- málma og gas. Coffee - gerir alla Terrans á kortinu að berserkjum It’s a bird! a plane! it’s dead! - eyðilegg- ur allar flugvélar og -dýr á kortinu. I smell a rat - slekkur á öllu svindli. Armegeddon - eyðir öllum sveitum. Pickpocket - stelur helmingi af öllum vistum mótherjans og gefur þér. Fart - óvinurinn tapar öllu gasi. Af mönnum, Protoss, Xel’naga og Zerg Fárra leikja hefur verið beðið með annarri eins Starcraft er svokallaður rauntímaleikur sem mætti best líkja við Warcraft. I Starcraft er hægt að velja um þrjá kynstofna: Terrans, mennina sjálfa sem eru aðeins að reyna að verja plánetur sínar, Protoss sem er kynstofn búinn til af elsta kynstofni geimsins, Xel’naga sem hafa ótrúlega dulræna hæfileika og reyna að hindra mennina í því að eyðileggja fleiri plánetur með kæruleysi sínu og heimsku, og Zerg, kynstofn geimvera er einnig búinn til af Xel’naga og er sá allra árásargjarnasti og grimmasti af öllum. Fyrsta verkefnið í leiknum er að hjálpa mönnunum að standast árásir Zerg geimver- anna og losa sig við þá af heimaplánetum sín- um, en aðeins er ráðlagt að taka það fyrst, einnig má byrja sem einhver af hinum kyn- stofnunum. Greinilegur munur á öllum kynstofnum Greinilegur munur er á öllum kynstofnum geimveranna í leiknum. Þegar spilað er með mönnunum eru byggðar æfíngabúðir og mennirnir þjálfaðir upp með tilheyrandi kostnaði en sé þátttakandinn til dæmis Zerg byi-jar hann með bú er framleiðir lirfur sem síðan er hægt að láta stökkbreytast í Zerg- linga eða hvaða aðra veru sem er. Til þessa hefur oft verið lítill munur á verum í álíka leikjum, en núna hefur Blizzard gi-einilega lagt mikinn metnað í „einleikshluta" leiksins vegna þess að gjörólík reynsla er fyrir hvern kynstofn og næstum eins og ólíkur leikur fyr- ir hvern þeiiTa. í leikjum eins og C&C og Red Alert hefur oftast virkað afar vel bara að dæla út mönn- um á fullu og gera eina allsherjar áras. Ef eftirvæntingu síðustu misseri og Starcraft. ----------3»-------------- Ingvi M. Arnason kynnti sér leikinn og lærði meðal annars að stökkbreyta Zergum í Zerlinga. menn hafa haldið að það myndi alltaf virka í þessum leik, ættu þeir að hugsa sig betur um. Best er að byggja allra fyrst upp góðar varnir og fara síðan að huga að því að gera lítið árás- arlið til að taka einhverja eina byggingu eða einhvern einn turn. Ótrúleg hljóð Hljóðin í Starcraft eru hreint út sagt ótrú- leg og getur greinarhöfundur varla ímyndað sér hversu langan tíma og mikla vinnu það tók að taka upp öll stríðsöskur og óhljóðin í Zerg kynstofninum eða djúpa og viturlega rödd Protoz veranna. Myndbönd leiksins eru þau allra flottustu sem greinarhöfundur hefur séð til þessa og halda manni hugföngnum. Þó maður sé kom- inn með leið á leiknum (ekki líklegt) ættu söguþráðurinn og myndböndinn samt að geta dregið mann áfram. Er leikurinn kom fyrst út varð mikið fjaðrafok í búðum sem seldu hann því Blizz- ard var búið að fresta útgáfudeginum þrisvar og menn beinlínis biðu eftir leiknum í búðun- um. Aðalmálið er það að þessi leikur slær alla herkænskuleiki, sem komið hafa út til þessa, algjörlega út og er vel peninganna virði. EFTIR fáum leikjum hefur verið beðið með jafnmikilli eftirvæntingu og Starcraft og er það ekki að ástæðulausu. Eftir að fyrri þrír leikirnir frá Blizzard slógu í gegn (Diablo, Warcraft og Warcraft 2) gátu menn búist við miklu og forritarar Blizzard voru ekkert að flýta sér að klára leikinn, tóku sér langan tíma í söguþráðinn, enda er það oft hann sem dregur mann í gegnum leikinn. Hver kannast ekki við að kaupa sér leik með frábæn'i graf- ík og æðislegu hljóði og nenna svo ekkert að spila hann vegna þess að öll borðin eru eins og maður er alltaf að gera það sama? Blizz- ard-menn hafa ekki gert þau mistök til þessa og ætla greinilega ekki að byrja á því núna vegna þess að það er alltaf söguþráðurinn sem dregur mann aftur að tölvunni. Terran, Protoss, Xel’naga og Zerg ♦ lauaG/vdGUj hl. 10 - 17 o<ý ÓMtuutcbcUf Jzi. 13-17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.