Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Cook í
vanda
ERLENT
Verkfallslögin í Danmörku virðast ætla að skapa ró á vinnumarkaði
Skammir og hrós til
Nyrups forsætisráðherra
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
HIN flokkspólitísku eftirköst verk-
fallsins í Danmörku verða vart af-
gerandi, en einn flokkur sýndi á sér
nýja hlið. Hinn nýi formaður Ven-
stre, Anders Fogh Rasmussen, stað-
festi orðstír sinn um að vera samn-
ingslipur og sveigjanlegur. Aðilar
vinnudeilunnar hafa lýst yfír reiði
sinni í garð Pouls Nyrups Rasmus-
sens forsætisráðherra sem hafí síst
hjálpað til við að leysa deiluna.
74% sátt við Iagasetningu
Víða er verið að gera upp tap fyr-
irtækja og þannig hefur Tívolí lýst
jdir að þar nemi tap um 110 milljón-
um íslenskra króna, en garðurinn
var lokaður í verkfallinu. Nokkur
dæmi voru í gær um skæruaðgerðir,
en annars virðist fólk snúa til vinnu,
þótt það kom fyrst í ljós eftir helgi,
því í gær var frídagur í Danmörku.
Pia Christmas-Mpller, leiðtogi
Ihaldsflokksins, hamraði stöðugt á
að lög gegn verkfallinu gætu ekki
tekið til annars en tillögu sáttasemj-
ara. Pótt Venstre væri þessu sam-
mála átti Anders Fogh þó ekki í
vandræðum með að samþykkja lög-
in, sem voru uppsuða á tillögu sátta-
semjara með viðbótum til að blíðka
verkalýðshreyfinguna, án þess að
það kostaði vinnuveitendur neitt
umfram felldu samningana.
Þetta gæti verið fróðleg vísbending
um að Venstre muni sækja inn á
miðjuna og að flokkurinn verði sam-
starfsfúsari en hann var undir
stjóm Uffes Ellemann-Jensens.
Forsætisráðherra fær bæði
skammir og hrós fyrir lögin. Skoð-
anakannanir sýna að 74 prósent
Dana voru sátt við að ljúka verkfall-
inu með lögum. Afgreiðslan var
hnökrótt því heimavinnan var ekki
nógu vel unnin og lögin þurfti því að
sverfa til í meðferð þingsins. Hins
vegar fær Nyrup skammir bæði frá
Hans Jensen, forseta Alþýðusam-
bandins danska, og Jorn Neegaard
Larsen, framkvæmdastjóra Vinnu-
veitendasambandsins danska.
Hans Jensen segir Nyrup hafa
skemmt fyrir samningum þegar
hann á mánudagskvöld hvatti aðil-
ana til að draga sáttasemjara inn í
viðræðumar. Einmitt þá hafi Al-
þýðusambandið stefnt í þá átt, en
eftir hvatningu Nyrups hafí lokuð
verið fyrir það skotið. Neergaard
Larsen segir sífelldar ávítur Nyr-
ups í garð samningsaðila hafa
skemmt fyrir.
Áberandi var á blaðamannafundi
Nymps og Ove Hygum atvinnuráð-
herra er lögin vom kynnt að Hyg-
um sagði að auðvitað ætluðu þeir
ráðherramir ekki að vera í neinu
skólastjórahlutverki gagnvart aðil-
um vinnumarkaðarins. En að því
búnu ávítaði Nymp aðilana þung-
lega eftir sem áður.
Óvíst um stöðu
Nyrups-Rasmussens
Hver áhrif verkfallið hefur á
stöðu Nymps kemur í ljós þegar til
lengdar lætur. Vinnuveitendur
þurfa ekki að óttast að hann vinni
gegn þeim, en það mun vísast lengi
verða urgur í verkalýðshreyfing-
unni. Allt bendir til að verkfallsfólk
muni snúa til vinnu þegar ný vinnu-
vika hefst á mánudag.
London. Reutors.
ROBIN Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, á nú í vök að verjast
vegna deilu um ólöglega vopnasölu til
Vestur-Afríkuríkisins Sierra Leone.
Cook sætti harðri gagnrýni vegna
málsins í breskum fjölmiðlum í gær
og búist er við að aðstoðarmaður
hans, Tony Lloyd, verði leystur frá
störfum. Þeir hafa báðir sagt að
embættismenn í utanríkisráðuneyt-
inu hafi látið hjá líða að veita þeim
upplýsingar um vopnasöluna og að
stjómarerindrekum, sem kunni að
hafa brotið bann Sameinuðu þjóð-
anna við sölu vopna til Sierra Leone,
verði refsað.
Vandræði Cooks jukust enn í gær
þegar breskt fyrirtæki, sem hafði
milligöngu um vopnasöluna, birti
bréf sem það sendi Cook 24. aprfl.
Fyrirtækið kvartaði þar yfir því að
viðskiptavinir þess hefðu verið yfir-
heyrðir vegna samnings, sem gerður
var í mars, um að aðstoða Kabbah,
fyrrverandi forseta Sierra Leone, við
komast aftur til valda. í bréfinu seg-
ir að embættismenn bresku stjórn-
arinnar hafi fullvissað fyrirtækið um
að hún styddi vopnasöluna.
Indónesískir námsmenn mótmæla áfram
Krefjast réttar-
halda yfír
Suharto forseta
Jakarta. Reuters.
INDÓNESÍSKIR námsmenn virtu í
gær að vettugi áskoranir hersins um
að hætta mótmælunum gegn Su-
harto forseta, sem hefur verið við
völd í landinu í 32 ár. Námsmenn í
Jakarta settu á svið réttarhöld yfir
Suharto, kváðu upp dauðadóm og
brenndu eftirmynd forsetans.
Námsmenn efndu einnig til mót-
mæla í borginni Medan á Sumötru,
lýstu Suharto sem „syni Satans" og
kröfðust þess að hann yrði sóttur til
saka fyrir spillingu. Forsetinn hefur
verið sakaður um gegndarlausa
frændhygli og ættingjar hans og
vinir eru sagðir hafa safnað miklum
auði á kostnað þjóðarinnar.
Wiranto biðlaði til námsmanna
Wiranto hershöfðingi, yfirmaður
hersins, hafði skorað á námsmenn-
ina að hætta mótmælunum, sem
hafa staðið í tæpa þrjá mánuði.
Hann sagði að mótmælin hefðu þeg-
ar borið árangur því ráðamenn
landsins hefðu fallist á kröfur þeirra
um umbætur og námsmennirnir
gætu því gert eitthvað þarfara en að
mótmæla.
Námsmennirnir vilja hins vegar
tafarlausar efnahagsumbætur og af-
sögn Suhartos. Indónesískir trúar-
leiðtogar hafa tekið undir kröfur
þeirra um umbætur. Samtök
múslimskra fræðimanna (ICMI),
sem eru yfirleitt talin velviljuð
indósesískum stjómvöldum, sögðu í
fyrradag að fyrirheit stjórnarinnar
dygðu ekki. Helstu trúarsamtök
mótmælenda tóku undir þetta í gær
og hvöttu alla Indónesa til að styðja
námsmennina og hreyfingar sem
berjast fyrir umbótum í landinu.
Stjómvöld í Bandaríkjunum og
Ástralíu hvöttu ráðamenn í
Indónesíu til að grípa ekki til harka-
legra aðgerða vegna ólgunnar. „Það
er mjög mikilvægt að ríkisvaldið og
þá einkum herinn og lögreglan sýni
fulla stillingu,“ sagði Alexander
Reuters
KENNARANEMAR í Jakarta brenna eftirmynd Suhartos forseta eftir að hann var „dæmdur til dauða“ í
réttarhöldum sem námsmennirnir settu á svið. Námsmenn krefjast afsagnar Suhartos.
Downer, utanríkisráðherra Ástralíu.
Haft var eftir Wiranto hershöfð-
ingja í gær að verið væri að endur-
skoða öryggislöggjöf landsins, sem
fjallar um starfsemi hersins, lög-
reglunnar og leyniþjónustunnar,
vegna frétta um að nokkrir andófs-
menn hefðu horfið fyrr á árinu. And-
ófsmaðurinn Pius Lustrilanang fúll-
yrti að sér hefði verið rænt og mis-
þyrmt og sakaði herinn um að hafa
tekið þátt í mannráninu. Wiranto og
fleiri embættismenn hafa vísað
þessu á bug og fyrirskipað rannsókn
á hvarfi andófsmannanna.
Reuters
EKKI voru allir ánægðir með að danska stjórnin og Nyrup Rasmussen
forsætisráðherra skyldu binda enda á verkföllin í landinu með lögum.
Þessi maður hvatti kjósendur til þess í fyrradag að veita Nyrup
ráðningu með því að segja nei 28. maf við Amsterdam-samningi.
Forsetakosningar á Filippseyjum á mánudag
Fyrrverandi leikari
sigurstranglegur
Manila. Reuters.
EVRÓPA^
Amsterdam-samningur
47% fylgi í
Danmörku
FYLGI við Amsterdam-samning
Evrópusambandsins (ESB) fer vax-
andi ef marka má nýja könnun
Gallup. Samkvæmt henni eru 47%
Dana honum fylgjandi. Hins vegar
hefur andstæðingum hans bæst liðs-
auki þar sem er hið útbreidda síð-
degisblað Extra Bladet.
Könnun Gallup var gerð fyrir
danska útvarpið og Berlingske
Tidende og samkvæmt henni hefur
fylgi við Amsterdam-samninginn
aukist um 3% frá síðustu könnun
sem gerð var í september sl. And-
stæðingum samningsins hefur fjölg-
að um 1% og eru nú 33%.
„Nei, hingað og ekki lengra" er
slagorð Extra Bladet en það til-
kynnti í gær um herferð gegn Am-
sterdam-samningnum. Blaðið hefur
nú þegar látið dreifa „nei“-póstkort-
um á götum úti og hyggst láta enn
frekar til sín taka fram að kosning-
um um samninginn, 28. maí. Jorgen
Sehleimann, formaður Evrópuhreyf-
ingarinnar, hefur áhyggjur af
ákvörðun blaðsins, þar sem það beini
áróðri sínum að efasemdarmönnum
á miðju og hægri væng stjórnmál-
anna og það geti haft úrslitaáhrif.
EF trúa má skoðanakönnunum
verður næsti forseti Filippseyja
Joseph Estrada, fyrrverandi kvik-
myndastjama, og hefur það vakið
nokkurn ugg meðal frammámanna í
atvinnulífinu. Hann hefur reynt að
sefa ótta þeirra með því að tilnefna
virtan bankamann til að fara með
efnahagsmálin í væntanlegri stjórn.
Niðurstöður nýjustu skoðana-
kannana sýna að Estrada, sem er
varaforseti og jafnframt helsti
frambjóðandi stjómarandstöðunn-
ar, nýtur fylgis 33% kjósenda en
Jose de Veneeia, frambjóðandi
stjómarinnar, 15%. Kosningamar
verða nk. mánudag, 11. maí.
I könnun, sem gerð var meðal
starfsmanna kauphallarinnar, verð-
bréfamiðlara og frammámanna í at-
vinnulífinu, kom í ljós, að þeir vildu
Estrada síst af öllum vegna
reynsluleysis hans í efnahagsmál-
um. í gær virtust menn þó vera
farnir að taka hann í sátt, því verð-
bréfavísitalan í kauphöllinni í
Manila hækkaði lítillega og gengi
pesóans einnig.
Kaþólska kirkjan hefur litla trú á
Estrada vegna þess orðspors, sem
af honum fer sem miklum drykkju-
og kvennamanni. Estrada segir hins
vegar, að þeir tímar séu löngu liðn-
ir.
I fótspor Ramosar?
Estrada segir, að hann hyggist
skipa Edgardo Espiritu, gamal-
reyndan bankamann, fjármálaráð-
herra en mestu þykir skipta fyrir
atvinnulífið, að haldið verði áfram á
þeirri braut, sem Fidel Ramos, nú-
verandi forseti, hefur markað. Síð-
ustu sex árin hefur verið hagvöxtur
á Filippseyjum og pólitískur stöð-
ugleild.