Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 25 ERLENT___________ Estermann sagð- ur Stasi-njósnari Bonn, Róm. Reuters, Tlie Daily Telegraph. FULLYRT var í þýsku dagblaði í gær að Alois Estermann, yfirmaður svissneska lífvarðarins í Páfagarði, sem myrtur var í vikunni, hefði ver- ið njósnari austur-þýsku leyniþjón- ustunnar Stasi. Páfagarður vísar þessum fullyrðingum á bug. Pá hef- ur fjölskylda lífvarðarins unga sem skaut Estermann og konu hans, sakað Páfagarð um að halda upplýs- ingum er varða málið leyndum. I Berliner Kurier segir að Sviss- lendingurinn Estermann hafi geng- ið til liðs við Stasi árið 1979 og veitt upplýsingar um Páfagarð til ársins 1984. Haft var eftir ónefndum heim- ildarmanni að Estermann hefði að minnsta kosti sjö sinnum sent trún- aðarupplýsingar um Páfagarð með næturlestinni frá Róm til Innsbruck í Austurríki, þar sem starfsmaður Stasi tók við þeim. Segir blaðið að Estermann hafi starfað undir dulnefninu „Werder“ og að hann hafi þótt nytsamlegur njósnari vegna aðgengis hans að páfa og vegna þess að hann ferðað- ist víða um heim. Estermann hafi freistast til að njósna fyrir Stasi vegna þess hve launin í svissneska lífverðinum voru bág. Páfagarður haldi upplýsingum leyndum Systir lífvarðarins sem skaut Estermann, eiginkonu hans og sjálf- an sig að lokum, hefur sakað Páfa- garð um að segja ekki allan sann- leikann í málinu. T.d. hafi verið full- yrt í blöðum að lífvörðurinn, Cedric Tornay, hafi skilið eftir bréf þar sem sé að finna útskýringar á gjörðum hans, en Páfagarður hafi ekki látið það af hendi. Fulltrúar embættisins segjast nú hafa komið bréfinu til móður Tomays og í úrdrætti bréfs- ins, sem ítalskir fjölmiðlar birtu í gær, segist Tomay neyðast til að grípa til „þessa“. „Þeir vildu ekki veita mér viðurkenningu. . . Eg geri þetta fyrir liðið“. Virðast orðin staðfesta fullyrðingar páfagarðs um að ungi maðurinn hafi framið morðið í æðiskasti, vegna þess að Ester- mann neitaði honum um stöðuhækk- un. Þá hefur systir Tornays haldið því fram að hann hafi ekki getað framið morð, hann hafi verið blíð- lyndur, yfirvegaður og haft ímugust á vopnum. Estermann hafi hins vegar lagt hann í einelti. Þeir eru einnig til sem telja Tornay ekki morðingjann. Segja þeir marga hafa haft hom í síðu Estermanns þar sem hann hafi ver- ið kominn af bændum, en hingað til hafi menn af aðalsættum gegnt stöðu yfirmanns lífvarðarins. Hafi óþekktur fjórði maður skotið Ester- mann og eiginkonuna, svo og To- urnay, sem hafi borið óvænt að. IRS verði endur- skipulögð ÖLDUNGADEILD Banda- ríkjaþings samþykkti með níu- tíu og sjö atkvæðum gegn engu frumvarp er miðai- að því að endurskipuleggja skattstofuna (IRS) og gera hana samskipta- vænni fyrir almenning. Undan- farið hafa miklar sögur verið sagðar af harkalegum inn- heimtuaðgerðum og ótrúlega flóknum skattalögum, og þykir eindrægni pólitískra andstæð- inga í öldungadeildinni til marks um að þingmönnum hafi þótt IRS vera farin að ganga of langt. Reuters Níu létust í Israel NIU verkamenn létu lífið í As- hkelon í Suður-Israel í gær er vinnupallur er þeir voru á gaf sig. Mennimir voru að leggja síðustu hönd á 250 metra háan reykháf á orkuveri. Þeir voru frá Israel, Bandaríkjunum, Rúmeníu og Indlandi. Fjórum var bjargað af reykháfnum með þyrlu. Ekki var ljóst í gær hvað olli slysinu. ETA kennt um tilræði FYRRVERANDI höfðingi í spænska þjóðvarðliðinu særð- ist alvarlega í skotárás í gær. Alfonso Parada Ulloa var skot- inn í höfuðið er hann var að fara út af heimili sínu í Vitoria, höfuðborg Baskahéraðs, og er aðskilnaðarsamtökum Baska, ETA, kennt um tilræðið. Læknar sögðu í gær að Ulloa væri í dái og líf hans héngi á bláþræði. Burt með „Le Shuttle“ NAFNIÐ „Le Shuttle" verður lagt af sem heiti lestaþjónust- unnar um Ermarsundsgöngin, vegna þess að franskir við- skiptavinir skilja það ekki. Þeir sem starfrækja lestirnar, sem fluttu alls 2,3 milljónir bíla um göngin í fyrra, segja að ekki hafi tekist að fá nægilega marga viðskiptavini í Frakk- landi, en um 70% viðskiptavina eru breskir, einungis tæplega 20% franskir. Markaðsfræð- ingar bjuggu til ensk/franska orðið „Le Shuttle“ sem þótti einstaklega snjallt, en í ljós hefur komið að Frakkar eiga ekki bara erfitt með að skilja „Shuttle" heldur geta þeir varla borið það fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.