Morgunblaðið - 09.05.1998, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 13
FRÉTTIR
Steinimn Y. Qskarsdóttir, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, um jafnréttisáætlanir hjá Reykjavíkurborg
Níu stofnanir gagn-
rýndar fyrir seinagang
JAFNRÉTTIS- og kjaramál komu
til umræðu á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur í fyrrakvöld þegar
Steinunn V. Óskarsdóttir, borgar-
fulltrúi Reykjavíkurlistans, brýndi
borgarstofnanir til að skila starfsá-
ætlunum í jafnréttismálum. Nefndi
hún níu borgarstofnanir sem ekki
hefðu skilað slíkum áætlunum og
sagði fulltrúa í jafnréttisnefnd vera
að missa þolinmæðina vegna seina-
gangs þeirra í þessum efnum.
A nýlegum fundi jafnréttisnefndar
Reykjavíkurborgar var minnt á að
samkvæmt samþykkt borgarráðs frá
7. maí 1996 beri öllum borgarstofn-
unum að skila starfsáætlunum í jafn-
réttismálum. Steinunn V. Óskars-
dóttir, formaður jafnréttisnefndar-
innar, sagðist á borgarstjórnarfund-
inum vera mjög óánægð með að níu
borgarstofnanir, sem hún taldi upp,
hefðu ekki skilað áætlunum, hvorki
fyrir síðasta ár né hið yfirstandandi,
og skoraði hún á forstöðumenn
þeirra að gera það sem allra fýrst.
Þessar stofnanir eru borgarskipulag,
borgarverkfræðingur, Dagvist
barna, Fræðslumiðstöð, Innkaupa-
stofnun, menningai'miðstöðin Gerðu-
bergi, Slökkvilið Reykjavíkm', um-
ferðardeild og Vélamiðstöð.
Vaxandi launamunur kynja
Árni Sigfússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, sagði óskandi
að R-listinn færi eftir þeim jafnrétt-
isáætlunum sem samþykktar hefðu
verið samhljóða í borgarstjórn.
Ræddi hann í framhaldi af því um
launamun kynja, sem hann sagði
fara vaxandi hjá borgarstofnunum
og tiltók Sjúkrahús Reykjavíkur og
spurði hvort ekki væri ástæða til að
fylgja þessum málum betur eftir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri sagði ekki hægt að sætta sig
við að þessar tilteknu borgarstofnan-
ir skiluðu ekki jafnréttisáætlunum.
Hún sagði ekki hægt að fullyrða að
launamunur kynja hefði aukist eins
og Árni Sigfússon héldi fram, til þess
þyrftu að fara fram mun ítarlegri at-
huganir, en hún kvaðst heldur ekki
halda því fram að munurinn hefði
minnkað. Urðu nokkur orðaskipti
milli þeirra um þessi mál og sagði
Árni það ótrúlegt að borgarstjóri
vildi gera ábendingar sínar um vax-
andi launamun ótrúverðugar með því
að segja að málið þyrfti meiri athug-
unar við.
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull-
trúi R-listans, upplýsti fyrir hönd
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur að
vinna við jafnréttisáætlanir fyrir
hverja og eina stofnun Fræðslumið-
stöðvarinnar væri nú á lokastigi og
væru þar stigin metnaðarfull skref í
átt til jafnréttis.
Morgunblaðið/Baldur Sveinsson
DOUGLAS Skymaster lendir á Keflavíkurflugvelli á miðvikudagskvöld.
FLUGVÉL af gerðinni Douglas
Skymaster lenti á Keflavíkurflug-
velli á miðvikudagskvöld á leið frá
Goose Bay til Berlínar þar sem fara
í hönd hátíðahöld í tilefni af því að
50 ár eru liðin frá því að loftbrúin
til Berlínar var sett upp.
Vél þessi, sem margir þekkja
undir nafniuu „fjarki“, er nýupp-
gerð og ber nafnið „Spirit of
Freedom". Tilefni loftbrúarinnar
var að Sovétmenn lokuðu landflutn-
ingaleiðinni frá hernámssvæðum
Douglas
Skymaster
í Keflavík
Vesturveldanna í gegnum sovéska
hernámssvæðið til Berlínar, en
Berlín var langt inni í Austur-
Þýskalandi, sem síðar varð. Vestur-
veldin settu upp loftbrú og flugu
herflutningavélar þeirra linnulítið
til Berlínar með allar vistir og
nauðsynjar handa íbúum borgar-
innar. Loftbrúin stéð frá júní 1948
til maí 1949 og höfðu þá verið
flognar 227 þúsund ferðir.
Douglas Skymaster var mest not-
aða flugvélategundin í þessum
flota. Flugfélag Islands og Loftleið-
ir notuðu Skymaster flugvélar til
millilandaflugs til margra ára.
Þrjár skýrslur um meðferð heimilisofbeldismála og forvarnir
Réttur og staða brota-
þola verði styrkt
DÓMSMÁL ARÁÐHE RRA hefur
sent Alþingi þrjár skýrslur sem unn-
ar voru í kjölfar skýrslu um orsakir,
umfang og afleiðingar heimilisof-
beldis og annars ofbeldis gegn kon-
um og börnum sem ráðherra mælti
fyrir á Alþingi í mars á síðasta ári.
I kjölfar þeirrar skýrslu var
ákveðið að skipa þrjár nefndir til að
huga að úrbótum á þessu sviði.
Fyrsta nefndin fjallaði um meðferð
heimilisofbeldismála hjá lögreglu,
önnur nefndin fjallaði um meðferð
heimilisofbeldismála í dómskerfinu
og þriðja nefndin fjallaði um for-
varnir gegn heimilisofbeldi, hjálpar-
úrræði fyrir þolendur og meðferðar-
úrræði fyrir gerendur.
Lögregla kynni brotaþolum
bótarétt og hjálparúrræði
Nefnd sú er fjallaði um meðferð
heimilisofbeldismála hjá lögreglu
leggur til að gefnar verði út leiðbein-
ingar til lögreglustjóra um hvernig
haga skuli skráningu heimilisofbeld-
ismála í dagbók og málaskrá og
hvernig haga skuli rannsókn mála
vegna heimilisofbeldis. Nefndin
leggur til að brotaþolum verði leið-
beint af lögreglu um réttindi sín og
þau hjálparúrræði sem þeim standa
til boða og að ríkislögreglustjóri gefi
út reglur um hvernig lögregla skuli
kynna brotaþola bótarétt.
Nálgunarbann verði lögfest
Nefndin leggur til að lögfestar
verði reglur um nálgunarbann og um
rétt brotaþola til að fá skipaðan lög-
lærðan talsmann. í nálgunarbanni
felst að með dómi yrði unnt að banna
þeim sem framið hefur refsiverðan
verknað að halda sig á tilteknum
svæðum ef sýnt þætti vegna verkn-
aðarins að nærvera hans þar gæti
haft í fór með sér sérstaka hættu eða
óþægindi. Nefndin leggur einnig til
að tekin verði í almenn hegningarlög
ákvæði um vitnavernd og að ríkislög-
reglustjóri gefi út almennar leiðbein-
ingar til lögreglustjóra um hvers
beri að gæta þegar lögregluáminn-
ing er veitt.
Nefnd sú er fjallaði um meðferð
heimilisofbeldismála í dómskerfinu
leggur til að í lög um meðferð opin-
berra mála verði tekið ákvæði um
rétt brotaþola til að fá skipaðan lög-
lærðan talsmann. Þá gerir nefndin
tillögur um breyttar ákærureglur og
leggur til að lögfestar verði reglur
um nálgunarbann og er í skýrslu
hennar að finna ítarlegar röksemdir
fýrir slíku úrræði.
Auknar skyldur á sveitarfélög
Nefnd um forvarnir gegn heimilis-
ofbeldi, hjálparúrræði fyrir þolendur
og meðferðarún-æði fyrir gerendur
leggur til að atriði í barnalögum og
hjúskaparlögum um umgengnisrétt,
sameiginlega forsjá og sáttaumleit-
anir verði tekin til skoðunar, þar sem
ýmsir aðilar hafi bent á að fyrir-
komulag skv. gildandi lögum geti
viðhaldið ofbeldi eftir skilnað eða
sambúðarslit. Lagt er til að auknar
skyldur verði lagðar á sveitarfélög í
heimilisofbeldismálum, t.d. með að-
gerðaskyldu fáist vitneskja eða
grunur um heimilisofbeldi.
Nefndin telur mikilvægt að hugað
verði að almennri kynningu og
fræðslu um heimilisofbeldi, svo og
kynningu á úrræðum fyrir brotaþola
og gerendur. Unnið verði að forvörn-
um með markvissri fræðslu um of-
beldi, orsakir þess, umfang og afleið-
ingar.
Áróðursherferð
Tryggt verði að fræðsla um orsak-
ir og afleiðingar heimilisofbeldis
verði hluti af grunnmenntun starfs-
stétta sem sinni frekar slíkum mál-
um en aðrar. Þá leggur nefndin til að
gripið verði til áróðursherferðar til
að fræða almenning um heimilisof-
beldi og fleira.
Nefndin leggur áherslu á mikil-
vægi þess að faghópar sem þolendur
heimilisofbeldis leita til hljóti viðeig-
andi starfsþjálfun. Hún teliu’ mikil-
vægt að starf félagasamtaka í þágu
þolenda heimilisofbeldis, einkum á
vegum Kvennaathvarfsins, Kvenna-
ráðgjafarinnar og Stígamóta, verði
treyst með gerð þjónustusamninga
og að fjárframlög til þeirra frá ríki
og sveitarfélögum verði ekki skert.
Nefndin leggur til að komið verði
á sérhæfðri móttöku fyrir þolendur
heimilisofbeldis, sem starfrækt verði
samhliða neyðarmóttöku fyrir
þolendur kynferðisofbeldis og í nán-
um tengslum við félagasamtök á
þessum vettvangi. Nefndin telur sér-
stakra aðgerða þörf í málefnum ný-
búa hvað þetta varðar.
Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga
{ tilefni af alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga stendur Félag fslenskra
hjúkrunarfræðinga fyrir dagskrá víða um land næstu daga undir kjörorðinu
Samráð um heilsugœslu-heilbrígði er allra hagur.
Reykjavík
Sunnudaginn 10. maí: Skautahöllin í Laugardal
Heilsuefiingarhátíð fyrir alla fjölskylduna
Kl. 13:00 Sýningin hollt, gott og gaman opnuð í skautahöllinni í
Laugardal. Heilsugœsluhjúkrunarfrœðingar kynna störf sín,
vakin verður athygli á hollri nœringu, gildi hreyfingar og
forvörnum. Sýningin er opin til kl. 17:00.
Kl. 13:30 Dagskrá sett: Ásta Möllerformaðurfélagsins
Kl. 13:45 Hlutverk og framlag Reykjavíkurborgar til eflingar heilsu
borgarbúa: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
Kl. 14:15 Fjölskylduganga um Laugardalinn í samvinnu við íþróttir fyrir
alla og starfsfólk Grasagarðsins.
Kl. 15:00 Félagið Komið og dansið leiðir þátttakendur í dans
Kl. 15:45 Kraftganga í umsjón Ámýjar Helgadóttur hjúkrunarfræðings
Auk þess leikur Jóna Einarsdóttir hjúkrunarfrœðingur á harmonikku,
Þorrí þorskur kemur og leiktæki fyrir börn verða á staðnum.
Þriðjud. 12. maí: Fræðslufundur að Suðurlandsbraut 22 kl. 20.00
Konur og áfengi: Þóra Bjömsdóttir hjúkrunarforstjóri Vogs
Konur og meðvirkni: Unnur Heba Steingrímsdóttir,
hjúkrunardeildarstjóri bamadeild BUGL
Hjúkrunarfræðingar segja frá reynslu sinni við að ná tökum á áfengissýki
og meðvirkni. Allir velkomnir.
Akureyri
Þriðjudagur 12. maí: Hagkaup og KEA Nettó kl. 14.00 - 18.00
Hjúkrunarfræðingar verða með ráðgjöf fyrir almenning í verslununum og
bjóða m.a. blóðþrýstings- og kólesterólmælingar. í Hagkaup verður
ráðgjöf fyrir fólk sem vill hætta að reykja og kennd verður leit að beri í
brjósti. Á Heilsugæslustöðinni munu hjúkrunarfræðingar mæla
blóðþrýsting og veita ráðgjöf á skiptistofunni á 3ju hæð kl. 9:00—12:00.
Ýmiskonar fræðsluefni verður í boði.
Suðurnes
Sunnudaginn 10. maí: Kjarni kl. 13.00—17.00
Hjúkrunarfræðingar á Suðurnesjum bjóða blóðþrýstingsmælingar og ýmsar
blóðmælingar fólki að kostnaðarlausu. Kynning verður á getnaðarvörnum
og reykingavörnum í boði apótekanna, mæðravernd, þvagfæravandamálum
og fleira. f kaffiteríunni verður til sölu ýmiskonar hollustumeðlæti.
Frítt verður í Sundmiðstöð Keflavíkur. íþróttir fyrir alla efna til 40 - 60
mín. heilsubótargöngu fyrir alla fjölskylduna frá Kjama kl. 13.30.
Bókasafn Keflavíkur mun vekja athygli á bókum er tengjast heilbrigði og
hollustu í vikunni á eftir.
Akranes
Þriðjudaginn 12. maí kl. 14:00: Veitingastofan Barbró
Herdís Storgaard flytur fyrirlestur um slys á börnum. Allir velkomnir.
Fimmtudaginn 14. maí og laugardaginn 16. maí: Heilsuefling á
Heilsugæslustöðinni.
Hjúkrunarfræðingar bjóða heilsufarsmat og ráðgjöf, fólki að kostnaðar-
lausu. Nánari upplýsingar og tímapantanir á Heilsugæslustöðinni.
Víða annars staðar verða hjúkrunarfræðingar með dagskrá í tilefni
dagsins sem auglýst verður á viðkomandi stöðum.
lH ÍSLENSK FJALIAGRÖSHF