Morgunblaðið - 09.05.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Morgunblaðið/Kristinn
DIDDU tók nokkur ítölsk lög fyrir viöskiptavini.
*
Italskir dagar í bakarmm
Itölsk brauð
og suðræn
stemmning
ÞAÐ var svo sannarlega ítölsk
stemmning í Mosfellsbakaríi nú í
vikunni þegar Diddú mætti og tók
nokkur ítölsk lög
fyrir viðskiptavini
sem gæddu sér á
ítölskum brauðum.
Þessa dagana er
ítalskur brauðbakst-
ur í hávegum hafður
í bakaríum sem eru
í Landssambandi
bakarameistara.
Hafliði Ragnars-
son, konditormeist-
ari og íslandsmeist-
ari í kökuskreyting-
um þetta árið, segist
ávallt bjóða ítölsk
brauð til sölu en
segir að úrvahð sé
sérstaklega fjöl-
breytt um þessar
mundir. „Við erum
að bjóða brauð með
sólþurrkuðum
tómötum, ólífum,
ítölsku kryddi og
svo framvegis og
bökum úr Semolinu
hveiti. Reyndar
bökum við hjá Mos-
fellsbakaríi okkar
brauð í steinofni og
með þeirri aðferð
verður skorpan hörð
en brauðin mjúk að
innan. Við bjóðum
alltaf ítölsk brauð.“
Brauði dýft / olíu
Hafliði segir að
brauð þyki
ómissandi með mat í suðrænum
löndum eins og á Italíu og Spáni.
„Við höfum verið að bjóða fólki að
smakka á ítölskum brauðum og þá
boðið með góða ólífuolíu svo og
bragðbættar olíur til að dýfa
brauðinu í að hætti suðrænna
þjóða. Þetta hefur mælst mjög vel
fyrir enda lostæti að borða brauðið
með t.d. balsamic ediki og jómfrúar
ólífuolíu."
Innréttingarnar úr
gömlu dönsku bakaríi
Bakaríið í Mosfellsbæ var nýlega
tekið í gegn og andrúmsloftið er
suðrænt. „Eg var við nám í Dan-
mörku og í Alaborg rakst ég inn í
bakarí og hreifst af innréttingun-
um þar. Það vildi svo til að
konditormeistarinn var að hætta
rekstri og ég keypti innréttingam-
ar. Þær eru uppistaðan í bakaríinu
en síðan létum við smíða það sem á
vantaði og hlaða veggi. Það stóð
ekkert sérstaklega til að hafa bak-
aríið suðrænt í útliti, það bara varð
svoleiðis. Okkar takmark var að
bakaríið yrði hlýlegt."
Þegar Hafliði er
spurður um ýmsa
smáhluti sem prýða
bakaríið og minna á
brauðbakstur segir
hann fjölskylduna
hafa sankað þessu
að sér um árin. „Svo
fann ég þessa for-
láta kaffikvörn úti í
Danmörku," segir
hann og bendir á
stóra kvöm. „Við
mölum allt kaffi fyr-
ir okkar viðskipta-
vini og þeir geta
annaðhvort tekið
kaffið með sér heim
eða tyllt sér niður
hjá okkur og fengið
sér kaffibolla."
Lítil ísgerð
Hafliði sem rekur
Mosfellsbakarí
ásamt fjölskyldu
sinni er með ýmis-
legt á prjónunum
sem hann ætlar að
hrinda í fram-
kvæmd á næstu
mánuðum. „Við ætl-
um að setja upp litla
ísgerð í bakaríinu og
bjóða upp á úrval
eftirrétta og heima-
lagað konfekt.
Það er að koma
inn ný kynslóð bak-
ara sem er með nýj-
ar áherslur. Litlu bakaríin hafa
enga aðstöðu til að keppa við þá
sem em að framleiða fyrir stór-
markaði. En við getum þjónað okk-
ar viðskiptavinum og boðið upp á
vöru sem er fyrsta flokks og sér-
stök.“
Handverks-
markaður á
Garðatorgi
I DAG, laugardaginn 9. maí, er
haldinn handverksmarkaður á
Garðatorgi. Þar sýna og selja
40-50 manns handverk sitt,
m.a. trévöru, leir og glermuni,
málverk, prjónavöru og leður-
vinnu.
Kvenfélagið sér um kaffisölu
og vöfflubakstur. Markaðurinn
er opinn frá klukkan 10-18.
KAFFIBAUNIRNAR eru
malaðar í þessari forláta
kvörn sem Ilafliði Ragn-
arsson, einn af eigendum
Mosfellsbakarís, rakst á í
Danmörku þegar hann
var þar við nám.
ÞAÐ er mjög gott að dýfa
ítölsku brauði í blöndu af
balsamic ediki og jómfrú-
ar ólífuolíu.
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 27
Ný stórversiun með flott barnaföt
á góðu verði opnar í dag klukkan tíu
í dag opnum við nýja 300 m2 stórverslun með gott úrval af frábærum fatnaði
fyrir krakka frá 0 -13 ára. Við bjóðum alla velkomna á opnunarhátíðina
og minnum á fjölda girnilegra tilboða.
Opnunartilboð
Motion sumarbolir á
stráka og stelpur, 3 stk.........990 kr.
Dissarabuxur...................1.990 kr.
Einlitir hettubolir............1.490 kr.
Spice Girls bolir................690 kr.
Leonardo DiCaprio bolir........690 kr.
Stelpubuxur með
vösum á skálmum.............1.990 kr.
All Saints kjólar.............790 kr.
JOHA ungbarnabuxur.............490 kr.
BigTime smekkbuxur..........1.990 kr.
BigTime gallabuxur..........1.490 kr.
O
lSímh581 4565
o opto
klNNUDao
við hliðina á Hagkaup i Skeifunni Sendum í póstkröfu