Morgunblaðið - 09.05.1998, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
m
Eg er farinn á
James Joyce,
elskan!
Ferð í þvottahúsið varð til þess að Frey-
steinn Jóhannsson fann sér uppáhaldskrá í
London, þar sem myndir af James Joyce
minntu hann bæði á Tómas Guðmundsson
og Halldór Kiljan Laxness.
NÚ FERÐ þú í þvottahús-
ið, meðan ég er í skólan-
um. Petta sagði frúin við
mig einn góðan veðurdag
úti í London og ég átti ekki annarra
kosta völ. Húsvörðurinn sagði mér
til vegar að næsta þvottahúsi og
þangað arkaði ég með þvott okkar
hjónanna í svörtum plastpoka. Þeg-
ar ég hafði komið þvottavélinni af
stað tók ég fram bók ástralska höf-
undarins Peters Carey um þau Ósk-
ar og Lúsindu, en á leiðinni í sætið
varð mér litið út um gluggann og yf-
ir götuna. Þar mætti augum mínum
skilti, sem á stóð The James Joyce.
Og ég þangað.
James Joyce-veitingahúsið er við
Cleveland-stræti, í húsi númer 115
til 123, sem er tveggja hæða þrí-
hymingur, dökkur við gangstétt og
rjómagulur efra. Á götuhæðinni eru
kráin og nokkrar verzlanir og íbúðir
á efri hæðinni.
Eileen Joyce og Pat Murray reka
The James Joyce. Þau eru bæði írsk,
hann 36 ára og hún á „svipuðum
aldri“. Hún er úr kráarfjölskyldu og
hefur aldrei unnið við annað, en
hann er smiður og vann í byggingar-
vinnu þar til hann kynntist Eileen
yllr barborðið og fór að rétta henni
hjálparhönd. „Ég er frá Tipperary,"
segir Pat og er snöggur að bæta við,
þegar ég brosi, ,já, ég veit það.
Mörgum finnst það skrýtið. Þeir
segja: Góði láttu ekki svona. Tipper-
ary er ekld til. Það er bara söngur.
En ég stend auðvitað á mínu. Ég er
stoltur af þeim góða stað.“
Glerskápurinn og lestrarhornið
Eileen og Pat byrjuðu með því að
reka krá fyrir utan London, en
PAT og Eileen.
ákváðu svo að söðla um og freista
gæfunnar í stórborginni. Eftir
nokki'a leit duttu þau niður á þessa
krá, sem þá hét The Cleveland pub,
og leigðu hana til 20 ára, en húsið er
í eigu Westminsterbæjarfélagsins.
Þau ákváðu strax að skipta um nafn
og finna kránni eitthvert sérkenni.
James Joyce kom ekki upp í hend-
umar á þeim vegna aðdáunar þeirra
á þessum írska rithöfundi. Reyndar
hafði Eileen lesið nokkrar bóka
hans og hrifizt af, en þau eru ekkert
skyld, þótt eftirnöfnin séu eins. Eft-
irnafn móður skáldsins var Murray,
eins og Pats. Þessar tilviljanir með
nöfnin lögðu þeim upp í hendumar
nafn á staðinn. Og þau ákváðu að
James Joyce skyldi verða sérkenni
krárinnar.
Myndir af skáldinu hanga á
veggjum. Þær leigja þau af safni í
Dublin. Myndimar eru af skáldinu
(1882-1941) á ýmsum aldri, ein frá
bemsku hans og á annarri frá full-
orðinsárunum er Joyce sláandi líkur
Tómasi Guðmyndssyni. Og önnur
mynd af honum minnir mig á mynd
af Halldóri Kiljan Laxness. Það er
þessi heimsmannsbragur, sem skín
af skáldinu. Kannski öll sönn skáld
séu einhvem veginn eins á mynd-
um, hugsa ég. Það er eitthvað í fari
eins, sem minnir á annað.
í einu hominu er skápur með bók-
um um skáldið og eftir það. Draum-
urinn var að útbúa þama lestrar-
hom, segja þau Eileen og Pat. En
bókunum var alltaf stolið svo nú em
þær geymdar í læstum glerskáp. En
lestrarhomið er ekki gleymt. Niðri í
geymslu eiga þau gamalt skólapúlt
með blekbyttustandi, sem Pat segist
ef til vill gera upp einn góðan veður-
dag. Og þá má aftur athuga mögu-
leikann á lestrarhomi, þar sem gest-
ir geta staðið við gamla púltið og
dmkkið í sig texta írska skáldsins.
Hvað er melatónín ?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spuming: Hvað geturðu sagt mér
um lyfið Melatónín?
Svar: Melatónín er efni sem mynd-
ast í heilakönglinum (pineal gland),
sem er staðsettur nálægt miðju heil-
ans. Efni þetta hefur verið þekkt
lengi (í meira en 40 ár) en lítið er vit-
að með vissu um þýðingu þess í lxk-
amanum og er það ýmist kallað
hormón eða taugahormón og nú er
farið að nota það sem lyf. Mun meira
af melatóníni losnar út í blóðið að
nóttu en degi og hafa sumir túlkað
þetta svo að efnið stjómi dægur-
sveiflum líkamans en aðrir draga það
í efa, enda hefur slíkt orsakasamband
ekki verið fullsannað. Það einkennir
mjög rannsóknir á þessu lyfi að mis-
munandi rannsóknarhópar fá iðulega
mismunandi niðurstöður. Margir
telja þetta stafa af því að í mörgum
rannsóknum sem gerðar hafa verið
með melatónín, hvort sem notuð vom
tilraunadýr eða menn, vora svo fáir
einstaklingar að tilviljun gat ráðið
hvaða niðurstaða fékkst. I sumum til-
vikum hengja menn sig í niðurstöður
einhverrar rannsóknar þar sem út-
koman var mjög jákvæð fyrir nota-
gildi melatóníns, jafnvel þótt aðrir
hafi ekki fundið það sama eða fengið
þveröfuga útkomu. Sumt af því sem
haldið er fram um melatónín byggist
á frásögnum eintaklinga af áhrifum
eða bata sem þeir telja sig hafa feng-
ið, en slíkar frásagnir hafa því miður
ekkert vísindalegt gildi, heldur þarf
skipulagða rannsókn á stóram hópi
fólks. Hvorki er með þessu verið að
vefengja slíkar frásagnir né gera lítið
úr þeim á nokkum hátt, en þær duga
ekki til að dregnar séu víðtækar
ályktanir.
Við skulum líta á dæmi um rök-
semdafærsluna. Oft er talað um að
magn melatóníns í blóði minnki með
aldrinum og með því að gefa efnið
megi hægja á öldran. Þessu til stuðn-
ings er vitnað í dýratilraunir þar sem
Efni í
heilaköngli
meðalaldur dýranna hækkaði um 20-
25% ef þeim var gefið melatónín. Á
þessu era nokkrir gallar: Þó svo að
flestir hafi fundið minnkað magn
melatóníns með hækkandi aldri er
ekki þar með sagt að uppbótarmeð-
ferð með melatóníni dragi úr öldran-
areinkennum; sjaldan er talað um
hinar dýratilraunimar þar sem með-
alaldur hækkaði ekki eða lækkaði
vegna aukinnar tíðni krabbameins í
eggjastokkmn (í músum). Því er
haldið fram að melatónín örvi kyn-
hvöt og bæti kynlíf fólks, en ekki er
vitað til þess að slíkt hafi verið rann-
sakað hjá mönnum og reyndar hefur
sést rýmun kynkirtla hjá tilrauna-
dýram sem fengu lyfið. Einnig hafa
sumir gert mikið úr því að melatónín
sé andoxunarefni en aftur vantar á
því rannsóknir hvort þessi eiginleiki
gagnist líkamanum á einhvem hátt.
Á einu sviði era niðurstöður
rannsókna nokkuð sannfærandi, en
það er varðandi notagildi melatóníns
við svefntruflunum sem stafa af
ferðalögum yfir mörg tímabelti,
vaktavinnu eða háum aldri. Margt
bendir til að sumt gamalt fólk sem
þjáist af svefntraflunum geti haft
gagn af því að taka melatónín sem
svefnlyf, en gamalt fólk þolir oft illa
venjuleg svefnlyf. Þegar melatónín er
gefið sem lyf hefur þó reynst erfitt að
finna hæfilega skammta. Skammtar
hafa verið á bilinu 0,1 til 200 mg en
algengast er að gefin séu 1-3 mg í
senn.
Talsvert af rannsóknum á
melatóníni er í gangi og stöðugt
eykst vitneskja okkar um hugsanlega
kosti þess og galla. Þeir sem stunda
slíkar rannsóknir kvarta þó undan
erfiðleikum við að fjármagna rann-
sóknirnar og bera þar einkum við
áhugaleysi lyfjafyrirtækja. Lyfjafyr-
irtækin hafa takmarkaðan áhuga
vegna þess að melatónín er ódýrt efni
sem ekki er hægt að fá einkarétt á,
frekar en önnur efni sem myndast í
líkamanum, og gróðavon er því lítil.
En hversu hættulegt er þetta lyf
og hvaða áhættu er fólk að taka? Svo
virðist sem bráð eituráhrif
melatóníns séu lítil, taka má mjög
stóra skammta án þess að hætta sé á
ferðum. Þetta gildir þó ekki endilega
alltaf, t.d. hafa sést fósturskemmdir
hjá dýram og ættu konur alls ekki að
nota lyfið á meðgöngutíma. Sömuleið-
is er lítið sem ekkert vitað um áhrif
melatóníns á vöxt og þroska bama og
unglinga, fólk sem tekur önnur lyf og
fólk með sjúkdóma þar sem ónæmis-
kerfið er of virkt (ofnæmi, sjálfsof-
næmissjúkdómar, o.fl.). Um hugsan-
lega eiturverkun við langtímanotkun
er einfaldlega sáralítið vitað.
Vonandi á eftir að koma í ljós að
melatónín sé gagnlegt lyf með sem
fæstum aukaverkunum. Staðan er
einfaldlega sú að við vitum ekki enn
við hverju við ættum að nota lyfið og
ennþá síður vitum við hvaða
skammta við ættum að nota. Eina
undantekningin er að nota má
melatónín, stundum með góðum ár-
angri, sem svefnlyf hjá öldruðum.
Það getur einnig átt eftir að koma í
ljós að lyfið hafi hættulegar auka-
verkanir ef það er tekið í langan
tíma. Þeir sem taka melatónín dag-
lega að ástæðulausu eru að nota
sjálfa sig sem tilraunadýr með af-
leiðingum sem ekki er hægt að sjá
fyrir.
• Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggur á
hjartn. Tekið er á móti spurningum á
virkum dögum milli klukkan 10 og 17
í síma 5691100 og bréfum eða
símbréfum merkt: Vikulok, Fax:
5691222.
SPURT ER
Hvað var
Ginnungagap?
Mennlng - listir
1. Hvaða fræga íslenska skáld
fæddist 23. aprfl, á Degi bók-
arinnar?
2. Landslag er algengt í verk-
um ungs íslensks listmáiara
sem liefur sýnt verk sín að
undanförnu. Hvað heitir
hann?
3. Tónlistarhús rís senn. Hvar
verður það; á Akranesi, Mos-
fellsbæ eða í Kópavogi?
Saga
4. Hvaða tveir menn stigu
íyrstir fæti á tunglið?
5. Spurt er um verslunarfélag
sem stofnað var árið 1872 og
hafði höfuðstöðvar á Oddeyri?
6. Hann var kjörsonur Sesars
og varð fyrsti keisari í Róm.
Hvert var hans upphaf-
lega nafn? Hvaða nafnbót
sæmdi öldungaráðið hann
og hvað þýðir það nafn?
Landafræði
7. Spurt er um borg, sem
er mikilvægasta hafnar-
borg Egyptalands og var
ein mesta menningar-
borg fornaldar. Á eyju
við borgina var eitt af sjö
undrum veraldar. Hvað heitir
borgin, hver stofnaði hana og
hvaða undur veraldar er hér
átt við?
8. Frá hvaða sýslu er styst úr
landi út í Grímsey nyrðri?
9. Hvaða borg stendur við
syðri enda Súezskurðar?
íþróttir
10. Hver er fyrirliði nýbakaðra
íslandsmeistara Njarðvíkur í
körfuknattleik karla?
11. Hvaða leikmaður varð
stigahæsti leikmaður NBA-
deildarinnar í tíunda sinn á
dögunum?
12. Hvað hafa Valsmenn oft
orðið Islandsmeistarar í hand-
knattleik karla?
Ýmislegt
13. Hvort heimskautið er nær
sóiu frá 21. júní til 21. sept-
ember?
14. Hvað var Ginnungagap?
15. Hvaða heimsfrægi
trompetleikari lók lag
Mezzoforte „Garden Party“
inn á hljómplötu?
16. MYNDIN er af þremur
liðsmönnum einnar þekktustu
liljómsveitar heims og með
þeim á myndinni eru synir
þeirra. Hveijir eru tónlistar-
mennirnir og hvað heitir
h(jómsveitin sem þeir gerðu
garðinn frægan með?
'SMopeiis SMX !UUi}!eASUJ9[m jn uB>)!e|JB}j6 uiajbiai MUBH 6o ubujluojí
jjeuueg ueug ‘uej|!e|jei!6 L|0|SM eorug me eneg 'SH 'peqiv qJSH 'SI 'igiæ4eeo6
luuæjjou juiæAi|ujes gndo>|s jba uiqjq! ue jnp? jba ujss qíuuqi jba de6e6unuu|0
>1 'Qiine>|suJ!e4Jngj0N '£1 'iunuuB 02 'Zl 'uepjop |eeqoi|A| 'U 'uossjeu6ea
>I!jquj '01 'zens '6 'n|sAsjeKe6u!c|-jn(>ns '8 -jepiejeA uinjpun pís je me jba uies
'jepieuioj iiia |ise6æjj jba sojea i.uuAe y 'j>j 'j ZCE e|>t!ui jepuexeiy je gnujojs jba
eupuexeiv 'Z lujeqddn uu|q 'e c| 'snisnöy !uu|J9qujeu uueq QipQjeÓunpig ipuiæs
'JX 'J LZ eue ue 'snueiAemO 194 uubh '9 Q!6ei9jnu?JO -g 'uupiv eue6ng u|AApg
6o 6uojisujjv iisn '9 lóoABdox '0 lugno 6joso sseuxeq ueíiw jopiibh ' iuoas