Morgunblaðið - 09.05.1998, Blaðsíða 37
36 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 3%
STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
AÐGERÐA ER ÞÖRF
STRAX
VANDI afbrotaunglinga er mikill og skelfilegur. Um
30 unglingar bíða nú vistunar á meðferðarheimilum
hjá Barnaverndarstofu og var biðtími eftir vistun að
meðaltali innan við tveir mánuðir allt síðasta ár. Nú
stefnir hins vegar í 5 til 6 mánaða biðtíma. Þetta sýnir
að um vaxandi vanda er að ræða, sem nauðsyn er að
taka föstum tökum áður en hann verður óviðráðanlegur.
Um síðustu helgi birtist í Morgunblaðinu samtal við
unglingaráðgjafa hjá Félagsmálastofnun, Davíð Berg-
mann, um vandamál afbrotaunglinga. Hann sendi þing-
mönnum dreifibréf, því að honum ofbauð, að Islending-
ar skuli búa við þann veruleika að horfa upp á aðra og
þriðju kynslóð afbrotamanna án þess að brugðizt sé
nægjanlega við. Ungur síbrotamaður skilur oft ekki af-
leiðingar afbrota sinna og því þýðir ekki að birta honum
skilorðsbundinn dóm. Það er skoðun unglingaráð-
gjafans, að afbrotaunglingurinn þurfi á sérstöku með-
ferðarúrræði að halda.
Davíð Bergmann hefur í samvinnu við lögreglu,
slökkvilið, Fangelsismálastofnun og fleiri verið með for-
varnastarf fyrir unglinga, sem taldir eru í áhættuhópi
um afbrotahegðun. Hann telur að starfið hafi skilað
verulegum árangri og þriðjungur drengjanna hafi ekki
komizt í kast við lögin eftir hópstarfið, en lögreglan eða
félagsmálayfirvöld hafi haft afskipti af flestum þeirra
áður. Hins vegar telur hann forvarnastarf meðal ung-
linga, sem eru komnir lengra á afbrotaferlinum, erfið-
ara viðureignar, meðan síðbrotamenn gangi inn og út úr
yfirheyrslum á milli þess sem þeir halda áfram að
fremja afbrot.
Páll Pétursson félagsmálaráðherra tekur undir með
Davíð Bergmann að úrræði skorti til að taka á vanda af-
brotaungmenna, en hann segir að verið sé að vinna að
lausn vandans. Taka eigi í notkun meðferðarheimili í
Skjaldarvík í Eyjafirði og byggingu lokaðs meðferðar-
heimilis í Skagafirði ljúki síðari hluta ársins.
Hvað sem þessu líður, er nauðsynlegt að yfirvöld
bregðist af festu og öryggi við þessum mikla vanda.
Kostnaður við aðstoð við þetta unga fólk og meðferð til
þess að koma því á hina beinu vandrötuðu braut er ekki
mikill í samanburði við það tjón, sem vandræðaungling-
ar geta valdið á skömmum tíma. Því ber að bregðast
skjótt við og nýta starf þess fólks sem af áhuga og
skyldurækni við þjóðfélagið hefur unnið að velferðar-
málum unglinganna og sýnt nokkurn árangur. Stjórn-
völd verða að sinna þessum alvarlega vanda betur en
gert er.
LOFSVERÐ AFSTAÐA
FORMANNS
ALÞÝÐUBANDALAGS
Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubanda-
lagsins, hefur tekið ákvörðun um að láta vinna
greinargerð um hvernig staðið hafi verið að skuldamál-
um Þjóðviljans á sínum tíma í Landsbanka Islands. Er
þessi ákvörðun tekin í framhaldi af umræðum um mál-
efni Landsbankans en í þeim umræðum hefur m.a. verið
vikið að skuldum Þjóðviljans, en útgáfu blaðsins var
hætt fyrir nokkrum árum.
í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Margrét
Frímannsdóttir m.a.: „Það er rétt að skuldir Þjóðviljans
í Landsbankanum voru töluverðar. Það sem hefur
kannski fyrst og fremst verið dregið inn í þessa umræðu
er klausa, sem finnst á skuldabréfi, þar sem er einhvers
konar yfirlýsing um að greitt verði af skuldabréfinu á
meðan Þjóðviljinn komi út. Ég veit ekki hvernig þessir
samningar eru til komnir en auðvitað eru það stjórn-
endur Landsbankans, sem samið er við.“
Sú ákvörðun Margrétar Frímannsdóttur að gera
hreint fyrir dyrum Alþýðubandalagsins í máli þessu og
skýra frá niðurstöðum opinberlega er lofsverð og til fyr-
irmyndar.
S
Sjötíu ára afmæli Slysavarnafélags Islands fagnað með ýmsu móti
Aukið öryggi
sjómanna
með nj^u til-
kynningakerfi
s
Slysavarnafélag Islands fagnar á þessu ári
70 ára afmæli. í tilefni af því verður starf-
semin efld og ýmsum nýjum verkefnum
hleypt af stokkunum. Meðal annars verður
nýtt sjálfvirkt tilkynningakerfí skipa tekið í
notkun að hluta í haust og að fullu um næstu
áramót. Gréta Ingþórsdóttir kynnti sér
starfíð og dagskrá afmælisársins.
Morgunblaðið/Ásdís
HILMAR Snorrason, skólastjóri Björgnnarskóla sjómanna, sýnir hvernig nota á björgunarvesti á réttan hátt með
aðstoð Valgerðar Sigurðardóttur, kynningar- og fræðslufulltrúa SVFÍ. Sigurður Sigurðsson, deildarsljóri slysa-
varnadeildar, og Esther Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fylgjast með. Að sögn Hilmars er mikilvægt að fara í
klofólar, reima allar reimar og herða ólar og belti vel. Almenningi gefst kostur á að láta yfírfara björgunarvesti á
opnu húsi Slysavarnafélagsins um allt land á morgun.
SLYSAVARNAFÉLAG ís-
lands var stofnað 29. janúar
1928 og verður sjötíu ára af-
mælisins minnst með ýmsu
móti á þessu ári og tækifærið notað til
að móta stefnu þess til framtíðar. Þeg-
ar á morgun verða slysavarnadeildir
um allt land með opið hús og í dag er
haldið málþing í Borgamesi um frí-
stundaslys. Opna húsið verður einnig í
höfuðstöðvum SVFÍ við Grandagarð,
Sæbjörg, skip Slysavarnaskóla sjó-
manna, verður almenningi til sýnis og
slysavarnadeild kvenna í Reykjavík
verður með opið hús í húsakynnum
sínum í Sigtúni. Dagurinn verður
einnig notaður til fjáröflunar með sölu
afmælismerkis og rennur ágóði af sölu
þess til uppbyggingar björgunar- og
slysavarnastarfs á hverjum stað.
Almenningi gefst á morgun kostur á
að koma með björgunarvesti á opnu
húsin, fræðast um notkun þeirra og
láta yfirfara þau. Sérstök kynning
verður á sundjökkum fyrir börn og
verða slíkir jakkar afhentir endur-
gjaldslaust á sumum stöðum.
Hægl að fylgjast með
skipum á mínútufresti
Nýja sjálfvirka tilkynningakerfið
boðar, að mati forsvarsmanna SVFI,
byltingu í öryggi sjómanna. Kerfið
tekur við upplýsingum frá minni bát-
um á 15 mínútna fresti, frá stærri
skipum á klukkustundarfresti og frá
þeim skipum sem eru í gervihnatta-
sambandi tvisvar á sólarhring. Með
kerfinu er hægt að sjá staðsetningu
skipa, stefnu þeirra og siglingarhraða
og ef ástæða þykir til er hægt að fá
merki á allt niður í einnar mínútu
fresti og fylgjast þannig mjög náið
með skipum. Þá er með kerfinu hægt
að senda öllum skipum samræmd boð
með öruggum hætti en í dag verð-
ur að treysta á útvarpið og talstöðvar.
I kerfinu er hægt að lesa upplýsing-
ar úr skipaskrám og fá m.a. mynd af
hverju skipi sem getur verið gagnlegt,
t.d. ef síga þarf í skip úr þyrlu, til að
átta sig á aðstæðum, fjölda mastra,
loftneta o.þ.h.
Allar tilkynning-ar um
nýja kerfíð frá áramótum
Að sögn Bergs Þórissonar, starfs-
manns hugbúnaðarfyrirtækisins
Stefju ehf. sem hannað hefur kerfið, er
fjarskiptatæknin sem kerfið notar tví-
þætt. Annars vegar eru landstöðvar
sem nota metra-bylgjur, hins vegar er
Inmarsat-gervihnattakerfið sem tekur
til alls heimsins. í hverju skipi er
GPS-staðsetningartæki sem staðsetur
skipið og sendir upplýsingar um fjar-
skiptatæki eða talstöð til tölvu í landi,
sem aftur sendir upplýsingar til
Landssímans þaðan sem samræming-
armiðstöð sendir upplýsingarnar til
höfuðstöðva Slysavamafélagsins.
Fyrsta útgáfa kerfísins verður tekin
í notkun í október en fyrst um sinn
verða gamla handvirka kerfið og nýja
sjálfvirka kerfið notuð samhliða og
starfsmenn geta farið yfir í gamla
kerfið ef á þarf að halda á meðan
byggð verður upp trú á nýja kerfið.
Bergur segist telja að störf manna hjá
Tilkynningaskyldunni breytist tals-
vert og þeir verði aðallega í því að
greina falsviðvaranir frá raunveruleg-
um neyðartilkynningum. Tilkynningar
frá skipum fara alfarið um nýja kerfið
frá og með næstu áramótum.
Slysavarnir á nýrri öld
I lok þessa mánaðar verður haldið
landsþing félagsins í Sandgerði. í
tengslum við það verður opnað
söguminjasafn og sögusýning í Garð-
inum í húsnæði sem björgunarsveit
SVFÍ fékk að gjöf á síðasta ári. Að
sögn Gunnars Tómassonar, formanns
SVFÍ, hefur muna á safnið verið safn-
að um land allt.
Landsþingið sjálft hefur yfirskriftina
slysavarnir á nýrri öld og þar verður
stefna félagsins mótuð til framtíðar.
Gunnar segir að mikil vinna hafi verið
lögð í þá stefnumótun í vetur og vonast
hann til að hún verði samþykkt á lands-
þinginu. Málþing verða haldin víðs veg-
ar um landið í tilefni aímælisársins
undfr sömu yfirskrift og landsþingið.
Þegar hefur verið haldið málþing á Isa-
firði um sjóslys og í dag verður fjallað
um tómstundaslys í Borgarnesi.
Umferðaröryggisfulltrúar
í öll kjördæmi
Félagið ætlar að ráða umferðarör-
yggisfulltrúa í öll kjördæmi í sumar í
samvinnu við Umferðarráð. A síðasta
ári starfaði einn fulltrúi á Suðurlandi
með góðum árangri og nú verður sú
starfsemi færð út um allt landið.
Gunnar segir að þótt flest slysin verði
á Stór-Reykjavíkursvæðinu verði flest
alvarlegu slysin úti á landi og verði
mikil áhersla lögð á að taka á umferð-
aröryggismálunum í sumar.
A næstu þremur árum verður byggt
upp öryggiskerfi fyrir sjómenn og er
sú vinna þegar hafin. Hugmyndin hef-
ur verið kynnt fyrir samtökum sjó-
manna og útvegsmanna og fyrir þing-
mönnum sem fjalla um öryggismál
sjómanna. Starfsmaður verður ráðinn
á næstu dögum til að vinna að þessu
verkefni í sumar.
Árbókin komin út
Meðan á fundinum stóð barst árbók
Slysavamafélagsins úr prentun en hún
hefur verið gefin út á hverju ári óslitið
frá stofnun félagsins. Þar er að finna
skýrslur um starfsemi félagsins, árs-
reikninga, sagt frá afmælum félagsein-
inga og birtar upplýsingar um björg-
unarstörf og ýmis slys. Gunnar Tóm-
asson sagði að í bókinni væru nú í
fyrsta skipti teknar saman upplýsing-
ar frá björgunarmiðstöð SVFI, Land-
helgisgæslunni og fjarskiptastöðinni í
Gufunesi um atvik þar sem Slysa-
vamafélagið kom að málum í sam-
vinnu við hina aðilana.
Meðal annarra verkefna á afmælis-
árinu má nefna samkeppni um hönnun
á líflínu, skólaskip Slysavamaskóla
sjómanna verður endurnýjað, væntan-
lega með Akraborginni, húsnæði á
Gufuskálum verður afhent Lands-
björgu og SVFÍ á árinu og er fyrir-
hugað að setja þar á laggimar þróun-
ar- og fræðslumiðstöð, ritgerðasam-
keppni verður haldin fyrir grunnskóla-
nema í 8.-10. bekk og gert verður átak
í að fjölga félagsmönnum.
Nýjar kenningar
um þróun físka
Nýjar hugmyndir um þróun fiska hafa vakið athygli, en íslenskur
prófessor í Svíþjóð hefur leitt hóp vísindamanna sem sett hefur
fram nýjar kenningar. Eru hugmyndirnar taldar varpa nýju ljósi á
gömul vandamál í þróunarfræðum. Sigrún Davíðsdóttir, fréttaritari
í Kaupmannahöfn, ræddi við Ulf Arnason, prófessor í Lundi, og Ein-
ar Arnason, prófessor í þróunarfræði við Háskóla Islands.
ULFUR Árnason, prófessor í
sameindaþróunarfræði við
Háskólann í Lundi, og
starfshópur undir stjórn
hans hafa sett fram kenningar um þró-
un fiska, sem kollvarpa fyrri kenning-
um um þessi efni.
Hin viðtekna hugmynd hefur verið
að uppruna ferfætlinga væri að leita
meðal lungnafiska, en þeir Ulfur og
félagar sýna fram á það í grein í
tímaritinu Journal of Molecular
Evolution að svo er ekki. Forfeður
ferfætlinga er ekki að finna meðal
núlifandi fiska, svo leita þarf aftur í
steingervinga til að finna skyldustu
tegundir. Að sögn Einars Árnasonar,
prófessors í þróunarfræði við Há-
skóla Islands, varpa hugmyndir Ulfs
nýju ljósi á mörg gömul vandamál í
þróunarfræðum.
„Við uppgötvuðum að þróunartré
fiskanna sneri öfugt,“ segir Úlfur létt-
ur í bragði, þegar kemur að því að
skýra efnið fyrir leikmanni. Efnið er
þó flóknai’a en svo, en í megindráttum
snúast niðurstöðurnar um að teikna
upp nýtt þróunartré. „Hingað til hefur
verið haldið að ferfætlingar væru
komnir frá lungnafiskum, þannig að
forfeður fugla og spendýra væri að
fínna meðal núlifandi beinfíska. Við
sýnum hins vegar fram á að þróunar-
greinin til fugla og spendýi-a er neðan
greinar lungnafískanna.“
Um áhrif þessara hugmynda segir
Úlfur að þar með sé útséð um að leita
forfeðra fugla og spendýra í hópi núlif-
andi beinfiska eins og lungnafisks og
þorsks, því engir núlifandi fiskar eru
skyldari spendýrum en hinir. ,Alhr
núlifandi fiskar eru á sinni sérstöku
grein, sem er aðskilin frá þróunar-
greininni, sem liggur til fugla og spen-
dýra.“ Hvað rannsóknir varðar gjör-
breytir þetta afstöðunni, því út frá
hugmynd Úlfs og félaga þýðir ekki
lengur að bera saman kjarnasýrur,
DNA, fugla og spendýra annars vegar
og fiska hins vegar til að átta sig á
Úlfur Árnason Einar Árnason
þróun þessara tegunda, heldur verður
að leita til steingervingafræðinnar til
að finna forverurnar.
Tilviljun leiddi
til nýrrar kenningar
Það var þó ekki þessi niðurstaða,
sem verið var að leita að. Ann-Sofie
Rasmussen, doktorsnemi hjá Úlfi,
hafði það verkefni að ákvarða kjarna-
sýru í slímál til þess að rannsaka
skyldleika svokallaðra hringmunna.
RANNSÓKNIR á hvölum hafa verið útfærðar yfir
á skyldleika spendýra almennt.
Þegar kom að því að bera niðurstöð-
umar saman við þróunartréð kom í
ljós að þær féllu ekki inn í fyrri hug-
myndir um skyldleika fiska og fer-
fætlinga. Þá dugði ekkert annað en að
snúa þróunartrénu á hvolf og þar með
var ný kenning fædd.
Um áhrif hinnar nýju kenningar
segir Úlfur að nú verði að skilgreina
þróun landhryggdýra öðruvísi en áður.
„Sameindasamanburður við núlifandi
fiska leysir ekki það mál. Um leið þarf
að færa þróunarbreytingar fiska og
spendýra aftur í tímann og það breytir
sjálfkrafa tímasetningu þróunarsög-
unnar. Því þarf að fara aftar en áður
var talið til að finna uppruna núlifandi
hryggdýra og spendýra."
Fersk og fijó skoðun
„Þetta er fersk skoðun, sem Úlfur og
samstarfsfólk hans í Lundi koma þai-na
með,“ segh’ Einar Árnason, prófessor í
þróunarfræði við Háskóla íslands.
Hann segir rannsóknarstofuna, sem
Úlfur veitir forstöðu, hafa raðgreint
fleiri hvatbera DNA en allai- aðrar
rannsóknarstofur samanlagt, byggi því
á yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu á
sviði sameindaþróunarfræði og hafi oft
áður komið fram með nýjar og frjóar
hugmyndir. Úlfur byrjaði fyrir mörg-
um árum á rannsóknum á hvölum og
hefur síðan útfært þær frekai’ og tekið
fyiir skyldleika spendýra almennt.
„Þessar hugmyndir eru mjög spenn-
andi og dæmi um hvemig sameinda-
þróunaiiræði kemur með nýja sýn inn í
gamlar deilur. Auðvitað eru ekki allir
sammála um túlkun niðurstaðnanna, en
það er erfitt að standa gegn niðurstöð-
um sameindaþróunarfræðinnar, þar
sem þær era mjög sterkar.“
Einar segir að niðurstöður Úlfs og
félaga hans leiði til endurskoðunar
fyrri hugmynda, meðal annars um
uppruna ferfætlinga. Ýmislegt, sem
áður virtist ekki standast, gangi nú
upp, en um leið séu aðrir hlutir, sem
þaifinist skýringar.
„Með niðurstöðum sínum gerir Úlf-
ur einn hóp úr öllum fiskum, sem áður
voru álitnir dulstofna. Niðurstöður
Úlfs benda til þess að fiskar séu ein-
stofna, en einmitt deilur um hvort ein-
staka hópar séu einstofna (að hópur-
inn innihaldi alla afkomendur sameig-
inlegs forföður), dulstofna (að hópur-
inn undanskilji suma afkomendur
sameiginlegs forföður) eða fjölstofna
(að meðlimir hópsins hafa þróað sama
svipfar án þess að eiga sér sameigin-
legan forföður) eru stórt viðfangsefni í
þróunarfræði. Úlfur kemui’ því með
nýja sýn á gömul vandamál og um leið
með visbendingar hvar eigi að leita
svara við þeim.“
Umræður um kjaramál, skipulag og
menntun á þingi Samiðnar í gær
Varað alvar-
lega við verð-
bólgumerkjum
Varað var alvarlega við verðbólgumerkjum
sem fram hefðu komið að undanförnu, m.a. *
með 5,2% hækkun innlendra matvæla á einu
ári, við umræður sem fram fóru á þingi Sam-
iðnar í gær. Omar Friðriksson kynnti sér
umræður á þinginu, en þar var einnig rætt
um starfsmenntun og skipulag samtakanna.
FRÁ 1990 höfum við búið við
litla verðbólgu og byggðar
hafa verið upp forsendur í
fyrirtækjunum fyrir stöðugt
vaxandi kaupmætti. Staðan er sú í dag
að við höfum náð fram þeim kaup-
máttarauka sem við stefndum að. Við
sjáum hins vegar ýmis verðbólgu-
merki sem uppi era og það er athygl-
isvert að það eru innlendu vörarnar
sem eru að hækka, en innfluttu vör-
urnar að lækka,“ segir Örn Friðriks-
son, fráfarandi formaður Samiðnar.
Örn hafði framsögu um kjaramálaá-
lyktun á öðram degi þings Samiðnar í
gær.
Örn sagði í samtali við Morgunblað-
ið að ef þess yrði ekki gætt að halda
verðbólgunni niðri færi hún vaxandi á
nýjan leik og þá væri ljóst að forsend-
ur fyrir langtímakjarasamningum og
atvinnuöryggi væru brostnar.
Kaupmáttur dagvinnulauna
hefur aukist verulega
Á þinginu var kynnt yfirlit hagfræð-
ings ASÍ yfir verðlagsþróunina frá
mars í fyrra þegar kjarasamningar á
almenna vinnumarkaðinum voru gerð-
ir, til mars í ár. Á þessu tímabili hefur
ríkt 2,4% verðbólga en séu einstakir
liðir vísitölu neysluverðs hins vegar
skoðaðir á þessu tímabili, kemur í ljós
að innlendar vörur hafa hækkað um
5,2% á þessu tímabili, húsnæðisliður-
inn um 5,3% en innfluttar vörur hafa
lækkað á sama tíma um 0,5%.
í drögum að ályktun þingsins um
kjaramál segir að nú þegar þriðjung-
ur gildistíma kjarasamninga sé liðinn
hafi kaupmáttur dagvinnulauna Sa-
miðnarmanna aukist verulega, ráð-
stöfunartekjur dagvinnulauna hækk-
að meira en þekkst hafi um langt ára-
bil að teknu tilliti til skatta, atvinna
aukist og vextir farið lækkandi. í
drögunum er aftur á móti varað alvar-
lega við verðbólgumerkjum sem fram
hafi komið að undanförnu m.a. í
hækkun innlendra matvæla og kostn-
aðarhækkunum í heilbrigðiskerfinu.
„...framhald langtímasamninga er
m.a. undir því komið að verðbólga
haldist innan áætlaðra marka,“ segii’ í
ályktunardrögunum.
VMSÍ gagnrýnir reglur
um löggildingu
í gær fór mikil umræða fram um
starfsmenntamál á þinginu en meðal
þeiiTa sem ávörpuðu þingið voru
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra, Ingibjörg Guð- -------------
mundsdóttir, frá Menning-
ar- og fræðslusambandi al-
þýðu, og Björn Grétar
Sveinsson, formaður _______
Verkamannasambandsins.
Bjöm Grétar sagði ljóst að VMSÍ
ætti nokkuð í land með að skapa sam-
bærileg skilyrði fyrir félagsmenn sína
varðandi starfsmenntun og endur-
menntun en iðnaðarmannafélögunum
hefði tekist að skapa fyrir sína félags-
menn. „Fram til þessa dags hefur að-
koma verkafólks verið sama og engin
að menntakerfinu, en nú horfir til
betri vegar. Breiðari aðkoma atvinnu-
lífsins að skipulagningu, stefnumótun
og stjórnun menntakerfisins mun með
Orsök 2,4%
verðbólgu
frá mars 1997 tíl mars 1998
Innlendar vörur -19%
5,2%
Innfluttar vörur alls - 34%
| -0,5%
Húsnæði -12%
5,3% I
Opinber þjónusta -12%
c=C>2,4%
Önnur þjónusta
3,2%
12%
Innlend vara
hækkar en er-
lend lækkar
tíð og tíma skila sér í fjölbreyttara og
betra starfsnámi, bæði styttri og
lengri námsbrautum, þar sem tekið er
mið af raunverulegum þörfum vinnu-
markaðarins á hverjum tíma,“ sagði
Björn Grétar.
Fram kom í máli hans að rætt verð-
ur um löggildingu starfa á sambands-
stjórnarfundi VMSÍ eftir viku. Benti
hann á að VMSÍ og Landssamban+-
iðnverkafólks hefðu mótmælt harð-
lega breytingum sem gerðar voru á
iðnaðarlöggjöfinni í kjölfar úrskurðar
Eftirlitsstofnunar EFTA vegna stað-
festingar íslendinga á reglum ESB
um gagnkvæma viðurkenningu próf-
skírteina og starfsréttinda. Erlendii’
ríkisborgarar gætu komið hingað og
starfað við löggiltar iðngreinar á
grundvelli 6-8 ára starfsreynslu á
sama tíma og íslenskir launamenn
yrðu að lúta þeim ákvæðum iðnaðar-
laga að mega það ekki. Þannig mætti
verkamaðm- frá Portúgal með langa
starfsreynslu í bifreiðaviðgerðum
starfa á Islandi sem bifvélavirki en ís-
lenskt launafólk mætti ekki vinna
sama starf nema hafa sveinspróf í bif« ■
vélavirkjun.
Meirihluti andvígur
sameiningu aðildarfélaga
Á þinginu fer einnig fram mikil um-
ræða um skipulagsmál verkalýðs-
hreyfingarinnar. Kynnt var
niðurstaða úr við-
horfskönnun um skipulags-
mál sem fram fór meðal fé-
_________ lagsmanna Samiðnar. Sam-
kvæmt henni telja nær átta
af hverjum tíu að félög eigi að samein-
ast um þjónustu. Hins vegar
meirihluti aðspurðra mótfallinn því að7
sambandið gerði tillögu um samein-
ingu aðildarfélaganna. 43% vilja að
starfsmenn geti valið um félag án til-
lits til búsetu eða vinnustaðar en 12%
vora því mótfallnir. Um 70% töldu að
byggja ætti á skipulagi líku fyrir-
komulagi Samiðnar í dag en með
skýrari verkaskiptingu milli aðildarfc-
laga, Samiðnar og ASÍ.
va£-