Morgunblaðið - 09.05.1998, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 41
AÐSENPAR GREINAR
Um tónlistar-
gagnrýni
Karlakórinn Stefnir
hélt fyrstu vortónleika
sína þetta árið í Hafn-
arborg fyrir nokkru.
Einn tónlistargagn-
rýnenda Morgunblaðs-
ins, Ríkarður Órn Páls-
son, skrifaði gagnrýni
um tónleikana sem birt
var í blaðinu 19. apríl
sl.
I grein sinni gerir
Ríkarður lítið úr efnis-
skrá tónleikanna, segir
hana samanstanda af
„gömlum lummum,
drykkjusöngvum og
þýskum bjórstúdenta-
sálmum“. Finnst hon-
um að slík efnisskrá eigi frekar
heima á þorrablóti en í tónleikasal.
Þessar fullyrðingar eru
rangar. Ásgeir Eiríks-
son gagnrýnir gagnrýni
á tónleika Karlakórsins
Stefnis.
Þó lét hann þess getið að inni á milli
voru nokkur ágæt lög.
Ríkarður skrifar m.a.: „Karlakór-
inn Stefnir er einn af þessum dæmi-
gerðu íslensku karlakórum sem
manni finnst stundum mættu stefna
hærra“ og síðar „það var synd að
horfa upp á þetta metnaðarleysi".
Þessar fullyrðingar eru rangar, og
þess vegna eru þessar línur settar á
blað. Karlakórinn Stefnir braut blað
í sögu íslenskra karla-
kóra á síðasta starfs-
ári, er Sálumessa
(Requiem) eftir Franz
Liszt var tekin til æf-
inga og flutnings, bæði
hérlendis og erlendis.
Þetta er í fyrsta skipti
sem þetta verk er flutt
hér á landi, og er al-
mennt ekki flutt oft,
m.a. vegna þess hversu
erfitt það þykir. Kór-
inn söng veririð á tón-
leikum í Búdapest og í
Vínarborg, þar sem
fóru saman góð aðsókn
og góðir dómar.
Við sem störfum í
áhugamannakór og syngjum okkur
og öðrum til ánægju erum ekki við-
kvæmir fyrir gagnrýni. Þvert á móti
gefur hún okkur færi á að bæta það
sem betur má fara, sem og veitir
hún okkur uppörvun vegna þess
sem vel er gert. Það er hins vegar
sanngjarnt að rétt sé farið með
staðreyndir, en ekki gert lítið úr
starfi kórsins á þennan hátt með
vísvitandi röngum staðhæfingum.
Allir velunnarar og áhugamenn
um góðan karlakórssöng fagna
sanngjarnri umfjöllun, og því hvet
ég fólk að fjölmenna á tónleika
kórsins nk. sunnudag í Hafnarborg
og hlýða á Karlakórinn Stefni sem
eins og Ríkarður sagði „er öfunds-
verður af þeim krafti sem flæddi
um velhljómandi Hafnarborgarsal-
inn“.
Höfundur er formaður Stefnis.
Ásgeir
Eiríksson
„Skoðum björgunarvestin” er sam-
eiginlegt slysavarnaátak Landhelgis-
gæslunnar, Slysavarnafélags íslands og
Landssímans hf.
Björgunarmiðstöövar Slysvamafélags-
ins verða opnar sunnudaginn 10. maí
og víða í tengslum við það er almenn-
ingi boðið að koma með björgunar-
vesti í sundlaugar og prófa flot þeirra.
Þar munu björgunarsveita- og slysa-
varnafólk leiðbeina um rétta notkun
vestanna.
LANDS SfMINN
OPIÐ
hjá félagselningum Slysavarnafélags
fslands
í tilefni af 70 ára afmæli Slysavamafélags íslands
er almenningi boðið að kynnast starfsemi félagsein-
inga um allt land. Innan Slysavamafélagsins eru
starfandi 90 björgunarsveitir, 90 slysavamadeildir og
40 unglingadeildir. Slysavama- og björgunarstöðvar
víða um land verða opnar á sunnudaginn og kynna
starfsemi sína, tæki og búnað. Einnig verður boðið
upp á fræðslu, skoðun á björgunarvestum o.fl.
Afmælismerki félagsins verður til sölu og rennur
ágóði þess til eflingar á félagsstarfmu. í Reykjavík
verða höfuðstöðvar félagsins að Grandagarði 14 opnar
og til sýnis milli kl. 13.30 og 16.00.
Slysavamaskóli sjómanna í Sæbjöiginni við Miðbakka
Reykjavíkurhafnar verður einnig til sýnis á sama tíma.
flllir em velkomnir - heitt á könnunni!
Gemm okkur glaðan dag og fræðumst um slysavamastarf.