Morgunblaðið - 29.05.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kynningar- og söfnunar
átak vegna jarðsprengna
KYNNINGAR- og söfnunarátak
Hjálparstofnunar kirkjunnar
vegna aðstoðar við fólk sem býr
á jarðsprengjusvæðum í Angóla,
Kambódíu og Súdan hefst í dag.
Til landsins er kominn sérút-
búinn bíll og verða sett upp
sýningarsvæði í Reykjavík og á
nokkrum öðrum stöðum á land-
inu næstu daga. Fólki gefst
kostur á að prófa að ieita að
, jarðsprengjum" og heyrist
sprenging í hátaiara ef einhver
stígur á „sprengju". Þá verður
unnt að skoða gervilimi og hjálp-
artæki framleidd í þróunarlönd-
um og dreift verður upplýs-
ingum um jarðsprengjuvandann.
Safnað verður Qármunum um
leið og kynningin fer fram en
auk þess verður hringft í íbúa í
byggðunum sem staðldrað
verður við í.
Fyrir söfnunarféð verða hópar
þjálfaðir til að fræða almenning
um hvernig hægt sé að lifa við
ógn jarðsprengjunnar þar til
hreinsun hefur farið fram, kenna
fólki að varast sprengjur og búa
um ijót sár. „Jarðsprengjur tefja
fyrir uppbyggingu eftir stríðsá-
tök, halda börnum frá skólum,
bændum frá ökrum og hindra al-
mennt hjálparstarf,“ segir m.a. í
frétt frá Hjálparstofnun.
Jarðsprengjubfllinn verður á
ferðinni sem hér segir: í Reykja-
vík um helgina, þ.e. við Kringl-
una í dag og á morgun og á Ing-
ólfstorgi á sunnudag. Síðan fer
hann hringinn um landið og byij-
ar á Akranesi mánudaginn 1.
júní, daginn eftir á Sauðárkróki,
síðan Akureyri, Húsavík, Egils-
stöðum, Höfn og endar á Selfossi
sunnudaginn 7. júní.
FOSTUDAGUR 29. MAI1998
HAGKAUP
verð 1.495.000
WAGON
i : 7 m
W ■
Hyundai Elantra Wagon er öflugur fjölskyldu- og ferðabíll með 116 hestafla 1600 vél og fæst
bæði sjálfskiptur og beinskiptur. Ef þú færð þér nýjan Hyundai Elantra í vor færðu frítt bensín í
allt sumar í SUMARBÓNUS eða allt að 450 l! Gríptu gott tækifæri til að komast áfram.
HYunoni
- til framtíðar
Ármúla 13
Sími 575 1220
Skiptíborð 575 1200
Fax 568 3818
lllon/www.sla.li ?39-397